Fara í efni
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
„Fer svo heim að taka upp podcast þar sem hann titlar sig Ritstjórann“
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
Heimur

Kærastan fann dagbækurnar og sleit sambandinu við David Walliams

Fólk

Björgvin Franz fagnar eins árs sambands­afmæli með kærustunni

Innlent

Grun­semdir vöknuðu þegar sonurinn sagðist fá fría ferð til Taílands

Fólk

„Ég er orðinn leiður á að vera veikur“

Heimur

Prestur rifjar upp óþægilega reynslu úr æsku

Fólk

Fjórum árum eftir að heilinn hótaði uppsögn á Karl Ágúst tvö verk á sviði

Heimur

Hin sænska Karin hvarf áður en hún átti að sækja börnin sín

Heimur

Lögregla fjarlægði mótmælanda eftir að hafa ruglast á áletrun á bol hans

Heimur

Raun­veruleika­stjarnan Sheila Mangubat látin 35 ára að aldri

Pólitík

Stefán Einar svarar Þorgerði með orðum Heiðu Kristínar

Dauðsfall erlendis kveikir spurningar um réttindi íslenskra sjúklinga

Tilefnið er er kvörtun föður sjúklings sem lést á sjúkra­húsi erlendis

Alma Möller
Alma Möller Er heil­brigð­is­ráð­herra Íslands Mynd: Stjórnarráðið

Umboðs­maður Alþingis hefur óskað eftir upplýsingum frá heilbrigðis­ráðuneytinu um hvernig staðið er að upplýsinga­gjöf og leið­beiningum til sjúklinga sem þurfa að sækja heilbrigðis­þjónustu erlendis að frumkvæði íslenskra heilbrigðis­stofnana.

Tilefni fyrir­spurnarinnar er kvörtun föður sjúklings sem lést á sjúkra­húsi erlendis. Kvörtunin laut að stjórn­sýslu Sjúkra­trygginga Íslands og viðbrögðum heilbrigðis­ráðuneytisins þegar athuga­semdir vegna málsins voru bornar upp.

Meðferð umboðs­manns á þeirri tilteknu kvörtun er lokið en um er að ræða mál númer 471 árið 2025 en því lauk í september á þessu ári.

Málið varð hins vegar til þess að umboðs­maður taldi ástæðu til að afla frekari upplýsinga um hvernig sjúklingum og eftir atvikum aðstand­endum þeirra er leiðbeint þegar heilbrigðis­þjónusta þarf að fara fram utan Íslands. Í erindi umboðs­manns er meðal annars vísað til laga um réttindi sjúklinga, þar sem kveðið er á um að ráðuneytið skuli sjá til þess að fyrir liggi upplýsingar um réttindi sjúklinga, sjúklinga­félög og sjúkra­tryggingar.

Heilbrigðis­ráðuneytið er beðið um að upplýsa hversu algengt sé að sjúklingar sæki heilbrigðis­þjónustu erlendis að frumkvæði íslenskra heilbrigðis­stofnana. Þá er óskað upplýsinga um hvaða leið­beiningar sjúklingar og aðstand­endur þeirra fá um réttindi sín í tengslum við slíka þjónustu.

Umboðs­maður hyggst í fram­haldinu meta hvort tilefni sé til að taka málefnið til frekari athugunar að eigin frumkvæði. Ráðuneytinu var veittur frestur til 16. október til að svara erindinu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

Heimur

Ný UFO-skjöl afhjúpa áform um neðan­jarðar­hvelfingu fyrir „framandi efni“

Gögnin eru hluti af 43 skjölum sem voru birt nýlega. Þar er einnig fjallað um óútskýrðar ratsjármælingar frá árinu 2023.
Menning

Tvenns konar bað í boði og aðeins annað þeirra er blautt

Pólitík

Kristrún segir hallalaus fjárlög sleggjuna sem þurfi til að ná vöxtum niður

Heimur

Samsæris­kenningar spretta upp eftir undarlegt augnablik á blaðamanna­fundi

Innlent

Sendi saksóknara falsað læknis­vottorð og hlaut ársfangelsi

Innlent

Innkalla vinsælt jólasmáköku­deig vegna aðskotahluts

Neytendur eru beðnir um að farga vörunni eða skila henni.

Kökuboð á Patreks­firði endaði fyrir dómi

Hrafn­hljóð flýgur inn á manna­nafnaskrá

Sverrir spyr hvað heilli karla við ofbeldið í Grand Theft Auto

Sakar ríkis­stjórnina um að gera lítið úr vinnu láglauna­fólks og foreldra