Fara í efni
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
„Fer svo heim að taka upp podcast þar sem hann titlar sig Ritstjórann“
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
Fólk

Björgvin Franz fagnar eins árs sam­bands­af­mæli með kærust­unni

Heimur

Kærastan fann dag­bæk­urnar og sleit sam­band­inu við David Walliams

Fólk

Fjórum árum eftir að heil­inn hót­aði upp­sögn á Karl Ágúst tvö verk á sviði

Heimur

Hin sænska Karin hvarf áður en hún átti að sækja börnin sín

Heimur

Prestur rifjar upp óþægi­lega reynslu úr æsku

Heimur

Lögregla fjar­lægði mót­mæl­anda eftir að hafa rugl­ast á áletrun á bol hans

Heimur

Raun­veru­leika­stjarnan Sheila Mangubat látin 35 ára að aldri

Innlent

Grun­semdir vökn­uðu þegar son­ur­inn sagð­ist fá fría ferð til Taílands

Innlent

Lög­reglan kölluð til eftir að hitn­aði í kol­unum við tölvu­leikja­spil

Innlent

„Sterkar vís­bend­ingar eru núna um að hryðju­verk­a­ríkið Ísrael hafi gert tölvu­árás á íslenska inn­viði“

Heiða í Unun fagnar afmælinu með bókasafnsferð: „Það er ágætt fagn og sigur í því“

Heiða Eiríksdóttir
Heiða Eiríks­dóttir Mynd: vma.is

Afmæl­is­barn dags­ins er engin smá kanóna já og engin smá kona heldur. Söng og útvarps­konan Ragn­heiður Eiríks­dóttir eða Heiða í Unun eins og hún er oft­ast kölluð á 51 árs afmæli í dag, hvorki meira né minna.

Eins og gælu­nafnið segir til um var hún söng­kona hinnar geysi­vin­sælu hljóm­sveitar Ununar en frægð­ar­sól þeirrar hljóm­sveitar skein hvað hæst á tíunda ára­tug síð­ustu aldar en lifir enn í útvarp­inu og í hjörtum lands­manna. Unun er þó alls ekki eina bandið sem Heiða hefur verið við­riðin í gegnum árin en má þar nefna bönd eins og Heiða og heið­in­gj­arnir, Hellvar, Dys, Ruddinn og Somet­hing Else. Flestir Íslend­ingar kann­ast við lög með henni á borð við Lög unga fólks­ins, Ástin dugir, Ást í við­lögum og Ég og heil­inn minn svo fáein séu nefnd.

Heiða, sem er þekkt fyrir hressi­lega sviðs­fram­komu og sterka rödd starfar nú sem dag­skrár­gerð­ar­kona á Rás 2 í bland við tón­list­ar­sköpum. Þá hefur hún bæði BA og MA gráðu í heim­speki frá Háskóla Íslands.

Heiða í bláum kjól

En ætlar Heiða að fagna afmæl­inu með ein­hverjum hætti í dag? Já og nei.

„Ég er að lesa Freud því ég á að mæta í skól­ann klukkan þrjú í fjar­nám­inu,“ sagði Heiða hress í sím­ann er Mannlíf sló á þráð­inn til hennar en hún stundar nú upp­rifj­un­ar­nám í heim­speki en hún stefnir í dokt­ors­nám í fag­inu á næst­unni.

„Ég þarf að klára lest­ur­inn fyrir klukkan þrjú, er að lesa alveg ótrú­lega erf­iða sál­grein­ingar sjúkra­sögu sem heitir Dóra. Ödipus­ar­duld og reð­ur­tákn og ég veit ekki hvað og hvað, mjög áhuga­vert,“ sagði Heiða enn­fremur og bætti við, „Svo er ég að hugsa um að fara á bóka­safnið, skila bókum og taka nýjar.“

Aðspurð hvort hún ætl­aði sem sagt ekk­ert að fagna afmæl­inu sér­stak­lega svar­aði Heiða því til bóka­safns­leið­ang­ur­inn væri fín leið til að fagna deg­inum. „Jú, jú, er þetta ekki bara ágætis fagn? Ég meina, ég svaf til hádegis og ætla að halda mér við prógram­mið sem ég hef búið mér til í Kóvitinu, að vera í skóla. Það er ágætt fagn og sigur í því. Svo elska ég bóka­söfn þannig að ég er að hugsa mér að fara á bóka­safnið og ná mér í ein­hverjar góðar bækur og kaupi mér kannski eitt­hvað að borða niðri í bæ.“

Mannlíf óskar hinni bráð­skemmti­legu Heiðu inni­lega til lukku með dag­inn!

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

Heimur

Ísrael hefur nán­ast útrýmt ævafornum ólífutrjám Gaza

Aðeins um 150 þúsund af tveimur milljónum ólífutrjáa sem stóðu á Gaza fyrir stríðið eru enn eftir, samkvæmt gögnum landbúnaðarráðuneytisins þar.
Fólk

Átta mis­tök sem fólk ætti að forð­ast ef það flýgur um jólin

Heimur

Rússar sagðir und­ir­búa kjarn­orku­vopn á braut um jörðu

Pólitík

„Staðan á vissum tímum sól­ar­hrings­ins orðin nán­ast óbæri­leg“

Pólitík

Aðeins þrír róðrar áður en hjónin riftu kaup­unum

Innlent

Sakar rík­is­stjórn­ina um að gera lítið úr vinnu lág­launa­fólks og for­eldra

„Ég biðla til þeirra þingmanna sem kalla sig jafnaðarmenn að beita sér gegn þessum breytingum“

Tölvu­þrjót­arnir sem réð­ust á 1984 skemmdu sjö vef­síður tengdar Palest­ínu

Að minnsta kosti þrjár Palest­ínu­tengdar vef­síður eyði­lagðar í netárásinni á 1984