Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Fólk

Selja eitt minnsta einbýli Reykja­víkur á ótrúlegu verði

Innlent

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Innlent

Ásta Bjarney valin framyfir sjö aðra

Innlent

Ísland gefur þrjá sjúkra­bíla og 33 mótorhjól til Malaví

Innlent

Matvæla­stofnun fylgist náið með útbreiðslu veiru í hundum

Heimur

Kona lést eftir að hafa gengið á flugvélar­skrúfu

Peningar

Kröfur upp á rúmar 33 milljónir fengust ekki greiddar

Innlent

Móðir lýsir biðinni eftir fréttum af frumburði sínum

Fólk

GusGus uppfyllir GusGus gildin

Heimur

Eldur blossaði upp eftir árekstur við bensín­dælu

Heilbrigt viðhorf: „Launin mættu vera hærri en þau eru til staðar”

„Ég sé þetta allan hringinn, ég hef nátt­úrlega líka lesið inn bækur eftir sjálfan mig, og stóri plúsinn er: Þú eignast nýja lesendur. Það hefur allt í einu samband við mig fólk sem hefur aldrei lagt í hlunk minn um Halldór Laxness en það tekur heila vinnuviku í að hlusta á hann,” sagði Halldór Guðmundsson í bókmennta­þættinum Kiljunni í gær og bætir við:

„Það er mjög heilbrigt viðhorf höfunda að þeir fái vel greitt fyrir sína vinnu, en það er ákveðið greiðslu­kerfi þarna í gangi og þú getur alveg séð nákvæmlega hvernig er borgað fyrir þetta. Höfundar­launin, án spurningar, mættu vera hærri, en þau eru til staðar.”

Nú er það jafnvel svo að höfundar og útgefendur gefa út bækur á stafrænu formi eingöngu, sem hefur orðið til þess að þeir skrifa fyrir hljóð­formið. Halldór segir að slíkt hafi hrint af stað því sem kalla mætti sjálf­stæða bókmennta­stefnu, „audio first”.

„Og það sem er gott við þetta, plúsinn við þetta, er að það kemur fullt af bókum sem annars væru ekki, tekur ekki að endur­prenta eða borgar sig ekki að endur­prenta. Þarna eru þær komnar og eru þá til.”

Sprenging hefur orðið á undan­förnum árum á útgáfu og hlustun hljóðbóka. Nú er svo komið að þriðjungur alls bóka­lesturs hér á landi er í formi hlustunar, sem gefur mögulega tilefni til þess að bókaskrif, ritlistin sjálf, séu hugsuð upp á nýtt. Halldór Guðmundsson, bókmennta­fræðingur og rithöfundur, segir að hljóðbóka­byltingin hafi brotist út seinna en gert var ráð fyrir.

Þegar straum­hvörf urðu í tónlistar­bransanum snemma á þessari öld og tónlist færðist á stafrænt form gerði fólk ráð fyrir að önnur eins bylting yrði í bóka­útgáfu. Það varð þó ekki og segir Halldór því til sönnunar að árið 2017 hafi hér á landi komið út alls níu hljóð­bækur, ef verk Hljóð­bóka­safnsins eru frátalin. Ári seinna, þegar innreið Storytel á bóka­markaðinn hófst, komu út 168 bækur. Í fyrra komu svo út 770 bækur.

Lélegt hlut­skipti tónlistar­manna gagnvart útgefendum í nýju umhverfi streymis­veitna er vel þekkt. Halldór segist viss um að Storytel, svo dæmi sé tekið, borgi nú ívið meira en Spotify, sem hann segir að séu „lang­verstir” þegar kemur að höfundar­launum. Aðspurður segir hann að það sé margt jákvætt við að gera samning um útgáfu hljóðbóka.

Hér má horfa á Kiljuna frá því í gær.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Húsfélagi óheimilt að rukka skrópara

Ágreiningur um þrif, ræstiþjónustu og myndavélar í sameign fór fyrir kærunefnd
Fólk

Fimm ráð Kristjönu til að halda á sér hita í vetur

Innlent

Mál vegna gruns um kynferðis­brot í Garðaseli fellt niður

Innlent

Kveikti í íbúð með vél úr mótor­hjóli

Fólk

„En svo lenti ég í því að eignast mann“

Innlent

Eftir­lýstur maður óvænt gripinn

Lögreglan hafði hendur í hár hans

Fjárhagur heimila stöðugur í heild en þrengir að ungu fólki

Innbrot og þjófnaður í heimahúsi í Árbæ

Sex dæmdir í fangelsi fyrir umferðar­lagabrot sama dag

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli