Fara í efni
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
„Fer svo heim að taka upp podcast þar sem hann titlar sig Ritstjórann“
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
Skoðun

Nakin og blaut í Reyn­is­fjöru

Fólk

Vigtuð viku­lega og sett á mat­ar­plan aðeins tíu ára gömul

Heimur

Macaulay Culkin snýr aftur sem Kevin McCallister

Innlent

Lög­reglan lýsir eftir Nikulási Snorra­syni

Heimur

„Guðfaðir gervi­greindar“ varar við yfir­vof­andi stór­slysi

Pólitík

„Af tvennu illu er skárra að böð­ull­inn sé ekki í felu­litum frjáls­lyndis“

Heimur

Banda­rísk stjórn­völd birta þrjú ný mynd­skeið af óþekktum fljúg­andi fyr­ir­bærum

Heimur

Faðir skaut eig­in­konu sína og þrjú ung börn til bana

Heimur

Kærasti Heidi Gardner lát­inn, 43 ára að aldri

Heimur

Hin sænska Karin hvarf áður en hún átti að sækja börnin sín

Vilhjálmur prins hélt aftur af tárum í samtali um sjálfsvíg

„Fyr­ir­gefðu, það er bara erfitt að spyrja þess­ara spurn­inga“

Vilhjálmur prins
Vil­hjálmur prins Prinsinn af Wales sýndi mjúku hlið­ina Mynd: CHRIS JACKSON / POOL / AFP

Vil­hjálmur Breta­prins hélt aftur af tárum þegar hann ræddi áhrif sjálfs­víga við konu, sem missti eig­in­mann sinn er hann framdi sjálfs­víg. Samtalið er úr stutt­mynd sem birt var af skrif­stofu breska kon­ungs­fjöl­skyld­unnar í dag, í til­efni af Alþjóða­degi geð­heil­brigðis.

Í mynd­band­inu ræðir erf­ingi krún­unnar við Rhian Mannings, en eig­in­maður hennar Paul tók eigið líf fimm dögum eftir skyndi­legt and­lát ungs sonar þeirra George af veik­indum árið 2012. Samtalið fór fram heima hjá Rhian í Cardiff. Þau ræða nauð­syn þess að betri stuðn­ingur sé til fyrir þá sem hafa misst ein­hvern eða orðið fyrir áhrifum sjálfs­víga.

William verður greini­lega til­finn­inga­lega snort­inn þegar hann spyr Mannings, sem stofn­aði hjálp­ar­sam­tökin 2wish til að styðja fólk sem hefur upp­lifað skyndi­legan missi barns eða ung­lings, hvað hún myndi vilja segja við eig­in­mann sinn:

„Ég myndi bara vilja setj­ast niður með honum og segja: „Af hverju komst þú ekki til mín?“ Því hann hefur misst af svo mik­illi gleði, og við hefðum verið í lagi. Og það er það sem er erf­ið­ast, við hefðum verið í lagi,“ sagði hún við prins­inn, sem reynir þá að halda aftur tárum.

„Er allt í lagi?“ spyr Mannings hann.

„Fyr­ir­gefðu,“ svarar Vil­hjálmur. „Það er bara erfitt að spyrja þess­ara spurn­inga sem ég…“

„Nei, það er allt í lagi. Þú átt börn … Það er erfitt … Og þú hefur upp­lifað missi sjálfur.“

Á síð­asta ári var Vil­hjálmur meðal syrgj­enda við jarð­ar­för Thomas Kingston, tengda­sonar Mikaels, prins af Kent, frænda Elísa­betar Bret­lands­drottn­ingar heit­innar, en hann tók sitt eigið líf eftir að hafa orðið fyrir auka­verk­unum lyfja.

Mynd­bandið var gefið út í tengslum við stofnun For­varn­ar­nets gegn sjálfs­vígum (National Suicide Prevention Network) af Royal Foundation, góð­gerð­ar­sam­tökum Vilhálms og eig­in­konu hans, Katrínar, sem mun leggja áherslu á að skilja orsök sjálfs­víga og veita aðgengi­legan stuðn­ing.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

Fólk

Björgvin Franz fagnar eins árs sam­bands­af­mæli með kærust­unni

„Lífið er svo miklu betra með þér“
Heimur

Þrír féllu þegar dróni réðst á bíl við mat­ar­út­hlutun á Gaza

Fólk

Fjórum árum eftir að heil­inn hót­aði upp­sögn á Karl Ágúst tvö verk á sviði

Heimur

Lögregla fjar­lægði mót­mæl­anda eftir að hafa rugl­ast á áletrun á bol hans

Fólk

Af hverju getur lyktin af mak­anum verið svona ómót­stæði­leg?

Heimur

Maður stung­inn í Las Palmas

Maður um fertugt hlaut alvarlega skurði og var fluttur á sjúkrahús eftir bráðameðferð á vettvangi.

Dán­ar­or­sök Sir Patricks Stewart stað­fest

Ljósmynd af logum ræsti sjálf­virkt slök­kvikerfi

Nýtt lyf í töflu­formi vekur vonir í bar­átt­unni við briskrabba­mein

Breskir grínistar héldu leyni­lega lista yfir kyn­ferð­is­leg rán­dýr

Dauði og eyði­legg­ing eykst á Gaza þrátt fyrir vopna­hlé