Fara í efni
Kristrún Frostadóttir
„Þegar við tókum við var gert ráð fyrir halla á ríkissjóði næstu fimm árin“
Kristrún Frostadóttir
Fólk

„Ég er orðinn leiður á að vera veikur“

Innlent

Perla Líf dæmd fyrir að aka á gangandi mann og yfirgefa slysstað

Innlent

Grun­semdir vöknuðu þegar sonurinn sagðist fá fría ferð til Taílands

Heimur

Spákona varar við alheims­rafmagns­leysi í lok árs

Fólk

Áhorf­endur grunaði ekki hvernig Sölku Sól leið á meðan hún söng

Pólitík

Stefán Einar svarar Þorgerði með orðum Heiðu Kristínar

Fólk

Reynslu­bolti úr frétta­heiminum stofnar eigið fyrirtæki

Heimur

Kynþokka­fyllsti maður heims afskrifar 200 milljónir dala í læknis­skuldum

Innlent

Sakar ríkis­stjórnina um að gera lítið úr vinnu láglauna­fólks og foreldra

Innlent

Kökuboð á Patreks­firði endaði fyrir dómi

Ragnheiður virkilega glöð með árangurinn: „Þetta er lúxusvandamál“

Ragnheiður veit hvað hún syngur
Ragn­heiður veit hvað hún syngur Mynd: Shawn Kosel

Flúða­sveppir og Farmers Bistro eru tvö af mest spennandi fyrir­tækjum á landinu þessa stundina, en þau eru bæði í eigu sömu fjöl­skyldunnar. Fyrir­tækin hafa vaxið og dafnað mikið undan­farin ár og erfitt að fá borð á Farmers Bistro yfir sumar­tímann vegna vinsælda veitinga­staðarins. Fyrir­tækin eru skiljanlega í miklu samstarfi, en stór hluti hráefna Farmers Bistro er ræktaður af fjöl­skyldunni.

Með græna fingur frá pabba

Það er auðvelt að skilja af hverju fyrir­tækin hafa vaxið og dafnað, enda eru þau staðsett á Flúðum, einu fallegasta bæjar­félagi landsins, og rekin af fólki sem fæddist á svæðinu. Ragn­heiður Georgs­dóttir er verkefna­stjóri Flúða­sveppa og rekstrar­stjóri Farmers Bistro en hún hefur verið með puttana í ræktun frá fæðingu. „Pabbi minn stofnaði Garðyrkju­stöðina Jörfa og keypti Flúða­sveppi árið 2005,“ sagði Ragn­heiður um hvernig ævintýrið byrjaði. Þó að hún hafi verið mikið inni í starfinu frá unga aldri flutti hún til Danmerkur til að fara í háskólanám. „Ég fór í alþjóðleg fyrirtækja­samskipti og ensku og tók svo master í viðburðar­stjórnun og þjónustu­hagfræði,“ segir Ragn­heiður og segir að námið hjálpi mikið til í rekstri fyrir­tækjanna, enda að ýmsu sem þarf að huga þegar kemur að svo fjölþættu fyrirtæki. Hún kláraði námið árið 2015 og sneri heim með gráður í hendi og reynslunni ríkari og hefur verið lykil­starfsmaður í fyrir­tækjunum síðan.

Með sveppi á heilanum, en fjöl­skyldu í hjartanu

En þó að Ragn­heiður sé að hugsa um sveppi stóran hluta dags þá setur hún fjöl­skylduna í fyrsta sætið. „Í frístundum mínum þá er ég voðalega mikið að verja tíma með fjöl­skyldu minni. Svo er ég aðeins í hesta­mennsku og körfu­bolta,“ en að stunda hesta­mennsku er hálfgerð skylda á Flúðum að sögn Ragn­heiðar. Þá eru þau einnig mjög virk í menningar­lífinu í sveitinni.

En af hverju fór fjöl­skyldan í sveppa­ræktun? „Þetta var fjár­festing sem pabbi sá að gæti orðið eitthvað meira en hún var. Fyrr­verandi eigandi og hann unnu mjög vel saman í þessu og svo erum við auðvitað búin að gera svo mikið í viðbót. Pabbi hefur mikinn áhuga á ræktun og hann er svo mikill sveita­karl. Hann vill alltaf verða betri og betri og gera meira fyrir markaðinn á Íslandi.“

Por­to­bell­oborg­arar Famers Bistro eru stór­kost­legir

Hugmynda­fræði sem byggir á nánd og nágrenni

Farmers Bistro vinnur eftir „slow food“-hugmynda­fræðinni en hún snýst um að notast við nærumhverfið þegar kemur að matargerð. Því liggur það í raun í augum uppi að notast við slíkt í tilfelli Farmers Bistro. „Við erum í grænmetismekka Íslands og við erum að rækta svo mikið af þeim afurðum sem eru í almennri matargerð. Okkur langaði að búa til veitingahús sem er með mestmegnis af okkar afurðum. Þannig að við séum að teygja okkur beint í hlutina og þetta sé það ferskasta sem þú getur fengið,“ sagði Ragn­heiður um málið. „Kjötið okkar er frá Laugar­dalshólum í Bláskóga­byggð og kjúklingurinn kemur frá Ísfugli frá bæjum í nærsveitum okkar. Við bökum öll brauðin. Við erum að nota gulræturnar, paprikuna, spergil­kálið, blómkálið, allar týpurnar af sveppum. Í við reynum í raun að búa til rétti sem að mestu leyti saman­standa af okkar eigin vörum.“

Lúxus­vandamál sem þarf að leysa

„Markmiðin næstu þrjú árin eru að stækka. Við náum ekki að anna öllum viðskipta­vinum okkar yfir sumar­tímann,“ sagði Ragn­heiður um fram­tíðina. „Við erum ekki búin að festa nein plön, en við erum byrjuð að teikna upp áætlun um hvernig við ætlum að stækka, hversu mikið og allt í þeim dúr. Það eru svo margir Íslendingar á svæðinu og auðvitað líka túristar, þannig að yfir sumar­tímann verður að bóka borð vel fram í tímann. Ég myndi gera það fyrr frekar en seinna. Þetta er lúxus­vandamál og álag yfir sumar­tímann, en þetta er virkilega gaman.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Heimur

Bæjar­kötturinn skrópaði á athöfn

Bronsstytta af kettinum Susie var afhjúpuð í Dorchester á sunnudag. Myndhöggvarinn Ama Menec sótti innblástur í rómverska sögu bæjarins.
Pólitík

Snorri varar við því að menn geti misst stjórn á gervi­greind

Pólitík

Þingmenn fara yfir bréf frá fólki með þroska­hömlun

Heimur

Mette hafnar tengslum við hægri­öfgamenn eftir ummæli um „útskiptin miklu“

Innlent

Í sex af hverjum tíu tilvikum var morðinginn úr fjöl­skyldunni

Kynning

Efni unnið í samstarfi við auglýsendur