Fara í efni
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
„Fer svo heim að taka upp podcast þar sem hann titlar sig Ritstjórann“
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
Skoðun

Nakin og blaut í Reyn­is­fjöru

Heimur

Macaulay Culkin snýr aftur sem Kevin McCallister

Fólk

Björgvin Franz fagnar eins árs sam­bands­af­mæli með kærust­unni

Innlent

Lög­reglan lýsir eftir Nikulási Snorra­syni

Heimur

Hin sænska Karin hvarf áður en hún átti að sækja börnin sín

Heimur

Banda­rísk stjórn­völd birta þrjú ný mynd­skeið af óþekktum fljúg­andi fyr­ir­bærum

Pólitík

„Af tvennu illu er skárra að böð­ull­inn sé ekki í felu­litum frjáls­lyndis“

Fólk

Fjórum árum eftir að heil­inn hót­aði upp­sögn á Karl Ágúst tvö verk á sviði

Heimur

Lögregla fjar­lægði mót­mæl­anda eftir að hafa rugl­ast á áletrun á bol hans

Heimur

Maður stung­inn í Las Palmas

David Walliams sakaður um að hafa tælt unglingsstúlkur

„Mig langar að kasta upp. Ég hata hann. Líkaminn bregst við þegar ég hugsa um þetta“

Ásakanir um misnotkun
Ásakanir um mis­notkun David Walliams hefur verið sak­aður um að mis­nota frægð sína í sam­skiptum við ungar konur. Hann hafnar ásök­un­unum. Mynd: PHILIP TOSCANO / POOL / AFP

Breski grínist­inn og rit­höf­und­ur­inn David Walliams hefur verið sak­aður um að hafa mis­notað frægð sína og áhrif til að kom­ast í kyn­ferð­is­leg sam­skipti við ungar konur, þar á meðal stúlkur sem hann kynnt­ist þegar þær voru aðeins 15 ára. Þetta kemur fram í umfangs­mik­illi rann­sókn­ar­frétt The Guardian og ITV News.

Konurnar lýsa því hvernig Walliams hafi haft sam­band við þær í gegnum sam­fé­lags­miðla, tölvu­póst og síma, boðið þeim aðstoð við feril þeirra og veitt þeim sér­staka athygli áður en sam­skiptin tóku að snú­ast um kyn­líf.

Ein þeirra, sem blaðið kallar Alex, segir að hún hafi verið 15 ára þegar Walliams hafði fyrst sam­band við hana árið 2004. Hann var þá 32 ára og hafði nýlega öðl­ast frægð með gam­an­þátt­unum Little Britain. Hún hafði sent honum hand­rit sem hún hafði skrifað og segir hann hafa boðið henni leið­sögn og aðstoð við að koma sér áfram í grín­heim­inum.

Í frétt The Guardian segir að Alex hafi veirð nýkomin heim úr skól­anum og setið í svefn­her­berg­inu sínu að horfa á The Simpsons þegar sím­inn hringdi. Hún man vel fyrstu orð hans:

„Hæ, þetta er David Walliams. Þú veist, þessi úr sjón­varp­inu!“

Þetta var í jan­úar 2004. Alex var 15 ára og und­ir­bjó sig fyrir loka­próf í skól­anum. Walliams var þá 32 ára og rísandi stjarna í gam­an­þátt­unum Little Britain.

Nokkrum dögum áður hafði Alex hitt Walliams á aðdá­enda­við­burði þar sem hann árit­aði myndir í hlut­verki sínu sem Lou. Hún man eftir því að hann sagði við hana: „Þú ert mjög aðlað­andi ung kona.“

Alex dreymdi um að verða hand­rits­höf­undur og hafði afhent honum nokkur hand­rit sem hún hafði skrifað. Hún bjóst ekki við að hann hefði sam­band, en þegar hann hringdi varð hún svo spennt að hún skrif­aði sam­talið niður á fjórar A4-síður.

„David Walliams hringdi í mig!!“ skrif­aði hún og bætti við að honum hefðu þótt hand­ritin hennar „MJÖG SKEMMTILEG“. Hún tók einnig fram að hann hefði orðið hissa þegar hún sagði honum að hún væri aðeins 15 ára.

Þau ræddu meðal ann­ars um prófin hennar og mögu­leik­ann á að hann útveg­aði henni miða á sýn­ingu á Little Britain. Í lok sím­tals­ins gaf hann henni net­fangið sitt eftir að hún lof­aði að deila því ekki með öðrum.

„Hann sagð­ist treysta mér,“ skrif­aði hún.

Næstu tvö árin áttu þau nokkur sím­töl og skipt­ust á fjölda tölvu­pósta. Alex seg­ist hafa verið undr­andi á því að svo þekktur grínisti skyldi bjóða henni aðstoð við að koma sér áfram. Þegar hún var orðin 17 ára voru þau farin að stunda kyn­líf, sam­kvæmt frá­sögn hennar.

„Mig langar að kasta upp. Ég hata hann. Líkaminn bregst við þegar ég hugsa um þetta,“ er haft eftir henni í frétt­inni.

Önnur kona, sem kölluð er Jade í frétt­inni, segir Walliams hafa haft sam­band við sig á MySpace þegar hún var 15 ára og hann 36 ára. Hún lýsir því að hann hafi boðið henni á fund í Lundúnum, spurt hana hvort hún hefði áður stundað kyn­líf og síðar boðið henni heim til sín. Hún segir að hann hafi reynt að eiga við hana kyn­ferð­is­leg sam­skipti en hætt þegar hún dró sig undan.

Fleiri konur lýsa sam­bæri­legri hegðun. Ein þeirra segir Walliams hafa ítrekað leitað eftir kyn­ferð­is­legum sam­skiptum þrátt fyrir að hún hefði aðeins áhuga á vin­áttu. Önnur segir hann hafa reynt að kyssa sig og beðið hana um að gista hjá sér.

Rann­sóknin tekur einnig til hegð­unar hans á vinnu­stöðum. Fyrr­ver­andi sam­starfs­fólk úr sjón­varps­þætt­inum Britain’s Got Talent segir að hann hafi sent ungum kven­kyns starfs­mönnum per­sónu­leg skila­boð og gert athuga­semdir við útlit þeirra. Þá hafi starfs­fólk HarperCollins, útgef­anda bóka hans, rætt áhyggjur af fram­komu hans við yngri konur.

HarperCollins hóf innri rann­sókn árið 2023 eftir að starfs­fólk lýsti áhyggjum af hegðun hans. Að minnsta kosti fimm konur ræddu reynslu sína við stjórn­endur. Fyr­ir­tækið hætti síðar að gefa út verk hans og til­kynnti í sept­em­ber að það myndi ekki lengur gefa út bækur hans.

Hafnar ásökununum

Walliams hafnar ásök­un­unum. Lögmenn hans segja hann ekki hafa beitt ungar konur tæl­ingu eða mis­notað aðstöðu sína til að fá þær til kyn­ferð­is­legra sam­skipta. Hann neitar einnig ásök­unum um kyn­ferð­is­lega áreitni á vinnu­stöðum.

Í bréfi til blaða­manna sagð­ist Walliams sjá eftir því að hafa stundum verið hugs­un­ar­laus í sam­skiptum við konur sem hann hefði átt laus­leg kyn­ferð­is­leg sam­bönd við. Hann sagð­ist þó aldrei hafa mis­notað frægð sína eða valda­stöðu.

„Ég er ekki kyn­ferð­is­legt rán­dýr. Ég hef ekki brotið lög,“ sagði hann meðal ann­ars.

The Guardian og ITV News ræddu við yfir 100 ein­stak­linga við gerð rann­sókn­ar­innar. Nokkrir lýstu jákvæðri reynslu af sam­skiptum sínum við Walliams, en margir höfðu áhyggjur af fram­komu hans við konur.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

Heimur

Kærastan fann dag­bæk­urnar og sleit sam­band­inu við David Walliams

„Ég var orðinn kynlífsfíkill“
Heimur

Prestur rifjar upp óþægi­lega reynslu úr æsku

Innlent

„Sterkar vís­bend­ingar eru núna um að hryðju­verk­a­ríkið Ísrael hafi gert tölvu­árás á íslenska inn­viði“

Innlent

Ekið á mann á raf­hlaupa­hjóli

Innlent

Að minnsta kosti þrjár Palest­ínu­tengdar vef­síður eyði­lagðar í netárásinni á 1984

Heimur

Raun­veru­leika­stjarnan Sheila Mangubat látin 35 ára að aldri

Unnusti hennar, David Dangerfield, greindi frá því að hún hefði látist á Filippseyjum, samkvæmt upplýsingum frá fjölskyldu hennar.

Kærasti Heidi Gardner lát­inn, 43 ára að aldri

Þrír féllu þegar dróni réðst á bíl við mat­ar­út­hlutun á Gaza

Ljósmynd af logum ræsti sjálf­virkt slök­kvikerfi

„Guðfaðir gervi­greindar“ varar við yfir­vof­andi stór­slysi

Faðir skaut eig­in­konu sína og þrjú ung börn til bana