Fara í efni
Grímur Grímsson
„Afleiðingar ofbeldis og hótana um slíkt eru þær að óöryggi eykst"
Grímur Grímsson
Innlent

Innkalla eitt þekktasta orku­stykki landsins

Fólk

Selja risa einbýli á spottprís

Frétt

Allir skip­verjarnir hífðir upp úr sjónum

Innlent

Tvær konur höfðu betur gegn fyrr­verandi vinnu­veitanda

Innlent

Börnin geta faðmað pabba sinn á ný

Skoðun

Ég ber virðingu fyrir öllum

Minning

Þrír skip­verjar fórust

Innlent

Gleymdi klukkunni og fékk að finna fyrir tímans tönn

Innlent

Fréttir af Jökli minntu Sigurð á biðina við símann á jóladag

Innlent

Útgerð Jökuls heitir skip­verjum og aðstand­endum stuðningi

Páll segir almenning féflettann: „Plata nógu marga til að halda svikamyllunni gangandi“

Páll Vilhjálmsson. Samsett mynd.
Páll Vil­hjálms­son. Samsett mynd.

Páll Vilhjálmsson, bloggari á Morgun­blaðinu er ekki sáttur við það sem hann kallar vinstri­fjölmiðla. „Vinstri­flokkar og fjöl­miðlar þeirra eru fitulag á þjóðar­líkamanum sem þykknar með aukinni velmegun.“

Hann gefur ekki mikið fyrir íslenska fjölmiðla sem hann segir stofna flokka til að komast á ríkis­jötuna. „Markmiðið er að ná í nægilega mörg atkvæði, um 2,5%, og fá ríkisfé.“

En aðal­markmiðið að hans mati, er að fá þægilega innivinnu, velborgaða með frjálsum vinnutíma.

Hér má rýna betur í það sem Páll er ósáttur við:

„Nýr fjöl­miðill sósíalista­foringjans Gunnars Smára bætist við flóru vinstri­fjölmiðla. Fyrir á fleti eru RÚV, Stundin og Kjarninn, RSK-miðlar. Nú kemur í góðar þarfir ríkis­styrkur Sósíalista­flokksins. RSK-miðlar eru á ríkis­framfæri, RÚV alfarið.

Aðrir miðlar með sömu ritstjórnar­stefnu eru Mannlíf og Frétta­blaðið. Báðar útgáfurnar eru með auðmannaívafi.

Á fjölmiðla­markaði má þekkja aðferða­fræði vinstri­manna úr flokks­pólitík. Þeir stofna flokka til að komast á ríkis­jötuna. Flokkarnir fara hver í sínu lagi á kosninga­veiðilendur að elta uppi kjósendur fyrir hvert kjör­tímabil. Markmiðið er að ná í nægilega mörg atkvæði, um 2,5%, og fá ríkisfé.

Flokkar vinstri­manna bjóða hver upp á sína útgáfuna af vinstri­pólitík og sama gera vinstri­miðlarnir. Þar er bitamunur en ekki fjár. Að baki liggur hugsunin að á hverjum tíma sé hægt að plata nógu marga til að fylkja liði um einhverja vinstri­sérvisku.

Í leiðangri Gunnars Smára er endurnýtt samfylkingar­fólk, Ólína fyrrum þingmaður, Vg-liðinn Þóra Ásgeirs og eflaust fleiri.

Bæði í flokks­pólitík og fjölmiðla­rekstri er markmiðið það sama; að fá þægilega innivinnu velborgaða með frjálsum vinnutíma. Herfræðin er alltaf að féfletta almenning með einum eða öðrum hætti.

Einu liðamótin sem vinstri­menn nenna að hreyfa eru þar sem kjálki mætir kúpu. Málbeinið gefur sístreymi orða er flæða fram í fjöl­miðlum og á þjóðar­samkundunni. Vitanlega er ekkert að marka orðin. En, sem sagt, á hverjum tíma er hægt að plata nógu marga til að halda svika­myllunni gangandi. Þannig er tryggt framlag úr ríkis­sjóði og þannig er almenningur féflettur.

Vinstri­flokkar og fjöl­miðlar þeirra eru fitulag á þjóðar­líkamanum sem þykknar með aukinni velmegun.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Húsið var reist árið 2024
Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Innlent

Einn fluttur á bráða­móttöku

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Innlent

Blaða­maður fær ekki gögn um fund Tony Blair með sendi­herra Íslands

Innlent

Þingmenn risu úr sætum til að heiðra sjómennina á Jökli

„Við syrgjum sjómennina þrjá sem létu lífið í sjóslysinu í gær“

„Girðið ykkur í brók og komið þessu í lag“

Góðkunningi lögreglu tvívegis með vopn á sér í Reykjavík

Mosfellingur fékk ársfangelsi fyrir ítrekuð brot eftir flótta

Rauði krossinn veitir sálrænan stuðning

Annar björgunar­báturinn var fastur og hinn rak frá skip­verjum