Fara í efni
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
„Fer svo heim að taka upp podcast þar sem hann titlar sig Ritstjórann“
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
Skoðun

Nakin og blaut í Reyn­is­fjöru

Fólk

Vigtuð viku­lega og sett á mat­ar­plan aðeins tíu ára gömul

Heimur

Macaulay Culkin snýr aftur sem Kevin McCallister

Innlent

Lög­reglan lýsir eftir Nikulási Snorra­syni

Heimur

„Guðfaðir gervi­greindar“ varar við yfir­vof­andi stór­slysi

Heimur

Faðir skaut eig­in­konu sína og þrjú ung börn til bana

Pólitík

„Af tvennu illu er skárra að böð­ull­inn sé ekki í felu­litum frjáls­lyndis“

Heimur

Banda­rísk stjórn­völd birta þrjú ný mynd­skeið af óþekktum fljúg­andi fyr­ir­bærum

Heimur

Kærasti Heidi Gardner lát­inn, 43 ára að aldri

Innlent

Ók á 126 km hraða þar sem hámarkið er 80

Kona frá Suður-Afríku opnar sig um mansal og nauðganir Epsteins

„Þetta var ótrú­lega rugl­ings­leg staða fyrir unga mann­eskju“

Juliette Bryant
Juliette Bryant Bryant segir frá raunum sínum í klóm Epsteins

Hin 43 ára Juliette Bryant lýsir „ósýni­legum fjötrum“ sem héldu henni í greipum Jeffrey Epstein árum saman. Bryant var nemi og dreymdi um fyr­ir­sætu­feril þegar Epstein lokk­aði hana frá Höfða­borg í Suður-Afríku.

Bryant var ráðin af honum árið 2002, þá á fyrsta ári í háskóla­námi, og segir frá reynslu sinni á sama tíma og kallað er eftir því að Andrew Mountbatten-Windsor skýri tengsl sín við Epstein á þeim tíma sem hann gegndi hlut­verki við­skipta­full­trúa Bret­lands. Andrew hefur ítrekað neitað allri sök.

Aðeins tví­tug að aldri taldi Bryant að líf hennar væri á barmi stórra tæki­færa. „Mér fannst eins og draumar mínir væru að ræt­ast, því fjöl­skyldan mín átti í fjár­hags­erf­ið­leikum og ég vildi svo gjarnan gera eitt­hvað til að hjálpa,“ segir hún.

Þremur vikum eftir að hún hitti Epstein fyrst á veit­inga­stað í Höfða­borg var hún á leið til New York í fyrstu utan­lands­ferð sinni. Þar var Epstein ásamt Bill Clinton, sem var í opin­berri AIDS-vit­und­ar­her­ferð, í fylgd leik­ar­anna Kevin Spacey og Chris Tucker.

Skömmu eftir kom­una til New York var henni sagt að ferð­inni yrði haldið áfram til Karí­ba­hafs­ins. Ökumaður flutti hana að flug­braut á Tet­er­boro-flug­velli í New Jersey, þar sem hún steig um borð í einka­þotu Epsteins. Þar voru einnig konur sem hún segir hafa ráðið hana upp­haf­lega í Höfða­borg, á leið til einka­eignar hans.

„Hann klapp­aði á sætið við hlið sér … og ég sett­ist þar. Þetta var ótrú­lega rugl­ings­leg staða fyrir unga mann­eskju,“ sagði Bryant í sam­tali við Sky News. „Þegar flug­vélin fór á loft byrj­aði hann að þukla mig harka­lega á milli lær­anna og ég frík­aði algjör­lega út. Þá átt­aði ég mig á því, guð minn góður, fjöl­skyldan mín mun aldrei sjá mig aftur, þetta fólk gæti drepið mig.“

Hún segir að kon­urnar um borð hafi hlegið. „Ég var skelf­ingu lostin,“ bætir hún við. Bryant segir að hún hafi ekki verið seld áfram til ann­arra karla, heldur verið ítrekað nauðgað af Epstein sjálfum.

Ólíklegt er að hún hafi verið eina unga konan sem Epstein not­aði í man­sal frá Höfða­borg. Tölvu­póstar úr Epstein-skjöl­unum sýna flugupp­lýs­ingar ónefndra kvenna sem voru fluttar frá Höfða­borg til Lundúna, Atlanta og New York allt fram á síðla árs 2018. „Ég sá hann í morg­un­verði, hádeg­is­verði og kvöld­verði, og síðan var ég kölluð inn í her­bergið hans. Annars sá ég lítið til hans, hann var alltaf við vinnu,“ segir hún. „Ég var oft ein. Sat við sund­laug­ina eða las bækur. Ég fann líka einnota mynda­vélar í eld­hús­inu og tók myndir meðan ég var þar.“

Myndir Bryant sýna ann­ars vegar bros­andi augna­blik í faðmi ann­arra ungra kvenna og hins vegar drauga­legar myndir af ein­angrun og tóm­leika. „Það var engin leið að kom­ast burt. Þau voru með vega­bréfið mitt og við vorum komin til einnar af Karí­ba­hafs­eyj­unum og flutt í þyrlu á eyj­una hans. Það var engin und­an­komu­leið. Ég er ekki nógu sterk til að synda í burtu.“

Árið 2022 sagði Bryant í við­tali við Mirror að Ghislaine Maxwell hefði „opnað dyr hel­vítis“, eftir að Maxwell var dæmd í 20 ára fang­elsi.

Bryant lýsti einnig fyrir dómi martröðum sínum eftir að Maxwell hafði platað hana til Epstein þar sem hún var í tvö ár og sagði: „Í stuttu máli: hún er skrímsli.“

Á þeim tíma hvatti lög­mað­ur­inn Brad Edwards, sem tryggði Virginia Giuffre 12 millj­óna punda sátta­greiðslu utan dóms, FBI til að hætta ekki rann­sókn sinni.

Aðspurður um aðra sem gætu tengst Maxwell og Epstein sagði hann: „Vonandi verða þeir næstir á list­anum. Ef við fáum ein­hverju ráðið, þá mun það ger­ast.“ Hann naut þar stuðn­ings lög­manns­ins Spencer Kuvin, sem fer með mál nokk­urra fórn­ar­lamba Epsteins og Maxwell.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Epstein-skjölin

Mest lesið í vikunni

Heimur

Hin sænska Karin hvarf áður en hún átti að sækja börnin sín

Sendi dularfull smáskilaboð viku fyrir hvarfið
Heimur

Þrír féllu þegar dróni réðst á bíl við mat­ar­út­hlutun á Gaza

Fólk

Fjórum árum eftir að heil­inn hót­aði upp­sögn á Karl Ágúst tvö verk á sviði

Heimur

Lögregla fjar­lægði mót­mæl­anda eftir að hafa rugl­ast á áletrun á bol hans

Fólk

Af hverju getur lyktin af mak­anum verið svona ómót­stæði­leg?

Heimur

Maður stung­inn í Las Palmas

Maður um fertugt hlaut alvarlega skurði og var fluttur á sjúkrahús eftir bráðameðferð á vettvangi.

Dán­ar­or­sök Sir Patricks Stewart stað­fest

Ljósmynd af logum ræsti sjálf­virkt slök­kvikerfi

Nýtt lyf í töflu­formi vekur vonir í bar­átt­unni við briskrabba­mein

Breskir grínistar héldu leyni­lega lista yfir kyn­ferð­is­leg rán­dýr

Dauði og eyði­legg­ing eykst á Gaza þrátt fyrir vopna­hlé