Fara í efni
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
„Fer svo heim að taka upp podcast þar sem hann titlar sig Ritstjórann“
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
Heimur

Kærastan fann dagbækurnar og sleit sambandinu við David Walliams

Fólk

Björgvin Franz fagnar eins árs sambands­afmæli með kærustunni

Innlent

Grun­semdir vöknuðu þegar sonurinn sagðist fá fría ferð til Taílands

Fólk

„Ég er orðinn leiður á að vera veikur“

Heimur

Prestur rifjar upp óþægilega reynslu úr æsku

Fólk

Fjórum árum eftir að heilinn hótaði uppsögn á Karl Ágúst tvö verk á sviði

Heimur

Hin sænska Karin hvarf áður en hún átti að sækja börnin sín

Heimur

Lögregla fjarlægði mótmælanda eftir að hafa ruglast á áletrun á bol hans

Heimur

Raun­veruleika­stjarnan Sheila Mangubat látin 35 ára að aldri

Pólitík

Stefán Einar svarar Þorgerði með orðum Heiðu Kristínar

Drífa Snædal: „Konum hefur hefnst grimmilega í gegnum tíðina fyrir að segja frá“

Drífa Snædal.
Drífa Snædal.

Talskona Stígamóta, Drífa Snædal, skrifar grein er ber yfir­skriftina: Metoo hvað nú?

„Stígamót voru stofnuð 1990 – rúmum þrjátíu árum síðar er loksins til farvegur fyrir konur að segja frá, segja sögu sína og jafnvel vera svo forhertar að ljóstra upp um ofbeldis­menn.

Konum hefur hefnst grimmilega í gegnum tíðina fyrir að segja frá, hafa jafnvel þurft að flýja land; þeim verið útskúfað fyrir það eitt að segja frá.“

Drífa ljær máls á því að „lengi hefur samfélagið viðurkennt að vald­bundið kynferðis­ofbeldi er til og það sé vandamál. En um leið og ofbeldis­maðurinn er einhver sem við þekkjum, berum virðingu fyrir og þykir vænt um brestur samstaðan. Við vitum ekki hvað við eigum að gera – handritið er ekki til. Vald­bundið ofbeldi, þar með talið kynbundið ofbeldi er svo inngróið í menningu okkar að flest eru hætt að kippa sér upp við tölur úr ársskýrslum Kvenna­athvarfsins og Stígamóta.

„Já voru þetta svona mörg hundur konur sem sóttu viðtöl og dvöl í fyrra – áhugavert!“

En með tilkomu allra litlu og stóru byltinga síðustu ára eru komin andlit og nöfn á þá þolendur sem stíga fram. Þá er erfiðara að þagga. Þegar andlit og nöfn á ofbeldis­mönnum bætast við flækist málið.“

Bætir við:

„Fyrst um sinn er þolendum trúað og svo kemur bakslagið. Það getur komið í formi þess að vettvangur frásagnarinnar er véfengdur, gert er lítið úr brotaþolanum eða að „dómstóll götunnar“ hafi nú tekið völdin og sé stjórn­laus. Neyðar­úrræði Það sem ýmsir kalla dómstól götunnar má líka kalla neyðar­úrræði brotaþola. Þegar þolendum er ekki trúað og þeim neitað um réttlæti innan kerfisins er tilefni til að vantreysta kerfinu. Þegar mál eru felld niður og réttar­kerfið eru svipugöng fyrir brotaþola þá stendur eftir hinn opinberi vettvangur til að finna eitthvað réttlæti og koma í veg fyrir að fleiri verði þolendur.

Þolendur segja sögu sína opinber­lega á meðan annað réttlæti er ekki í boði. Og það er óþolandi staðreynd að þurfa að berskjalda sig frammi fyrir alþjóð og vera sett á mælistiku kommenta­kerfanna af því annað hefur brugðist.

Ofbeldis­mennirnir koma svo af fjöllum, senda frá sér yfir­lýsingar þar sem þeir þykjast gangast við brotunum en gera það í raun ekki. Handritið er ekki til. Þeir eru aldir upp í ofbeldis­menningu kynja­kerfisins og datt aldrei í hug að brot þeirra yrðu að einhverju stórmáli. Þeir eru stein­hissa og finnst jafnvel á þeim sjálfum brotið.“

Hún nefnir að „á þessum stað erum við stödd nú þrjátíu og þremur árum eftir stofnun Stígamóta. Við getum ekki skellt skuldinni á menningu liðinna tíma því hér á Stíga­mótum getum við staðfest að kynferðis­brot eru ekki kynslóða­bundin.

Unga fólkið okkar er ekki öruggara en eldri kynslóðir voru. Hvað gerum við nú? Getum við mótað nýjan samfélags­sáttmála þar sem við tryggjum í fyrsta lagi öryggi fólks, hlúum í öðru lagi að þolendum og tryggjum loks að ofbeldis­menn þurfi að vera ábyrgir gjörða sinna?

Það er eina leiðin fram á við – hin leiðin er hin óþolandi berskjöldun þolenda á opinberum vettvangi – það sem sum vilja kalla „dómstól götunnar.““

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

Heimur

Ný UFO-skjöl afhjúpa áform um neðan­jarðar­hvelfingu fyrir „framandi efni“

Gögnin eru hluti af 43 skjölum sem voru birt nýlega. Þar er einnig fjallað um óútskýrðar ratsjármælingar frá árinu 2023.
Menning

Tvenns konar bað í boði og aðeins annað þeirra er blautt

Pólitík

Kristrún segir hallalaus fjárlög sleggjuna sem þurfi til að ná vöxtum niður

Heimur

Samsæris­kenningar spretta upp eftir undarlegt augnablik á blaðamanna­fundi

Innlent

Sendi saksóknara falsað læknis­vottorð og hlaut ársfangelsi

Innlent

Innkalla vinsælt jólasmáköku­deig vegna aðskotahluts

Neytendur eru beðnir um að farga vörunni eða skila henni.

Kökuboð á Patreks­firði endaði fyrir dómi

Hrafn­hljóð flýgur inn á manna­nafnaskrá

Sverrir spyr hvað heilli karla við ofbeldið í Grand Theft Auto

Sakar ríkis­stjórnina um að gera lítið úr vinnu láglauna­fólks og foreldra