Fara í efni
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
„Fer svo heim að taka upp podcast þar sem hann titlar sig Ritstjórann“
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
Heimur

Kærastan fann dag­bæk­urnar og sleit sam­band­inu við David Walliams

Fólk

Björgvin Franz fagnar eins árs sam­bands­af­mæli með kærust­unni

Heimur

Prestur rifjar upp óþægi­lega reynslu úr æsku

Fólk

Fjórum árum eftir að heil­inn hót­aði upp­sögn á Karl Ágúst tvö verk á sviði

Innlent

Grun­semdir vökn­uðu þegar son­ur­inn sagð­ist fá fría ferð til Taílands

Heimur

Hin sænska Karin hvarf áður en hún átti að sækja börnin sín

Fólk

„Ég er orð­inn leiður á að vera veikur“

Heimur

Lögregla fjar­lægði mót­mæl­anda eftir að hafa rugl­ast á áletrun á bol hans

Heimur

Raun­veru­leika­stjarnan Sheila Mangubat látin 35 ára að aldri

Heimur

Kyn­þokka­fyllsti maður heims afskrifar 200 millj­ónir dala í lækn­is­skuldum

Öfugt sáðlát – „Aukaverkun sem ég vona að ég muni aldrei kynnast“

Þórarinn Þórarinsson.
Þórarinn Þór­ar­ins­son. Mynd: Hanna Andresdottir

Þórarinn Þór­ar­ins­son, blaða­maður, deildi í opin­berri færslu á Facebook raunum sínum og kvölum sem hann upp­lifði á föstu­dag­inn síð­ast­lið­inn. Þórarinn var staddur á bráða­mót­tök­unni sökum nýrna­steins sem olli honum tals­verðum þján­ingum. Í for­látum lazyboy með flat­skjá fyrir framan sig sat hann og beið end­an­legra nið­ur­stöðu lækna. Færsla Þórarins er lit­rík og skemmti­leg og lýsir hann bið­inni og fyr­ir­litn­ingu sinni á dag­skrá­efni RÚV svo­leiðis:

„Þar sat ég síðan tímunum saman í ótta­blöndnu verkja­lyfja­móki og kvíða­kasti yfir þeim ill­bæri­legu þján­ingum sem biðu mín þegar virkni spraut­unnar góðu fjar­aði út.
Eftir kvöld­fréttir, íþrótta­f­réttir (sem ég hata og fylgist ann­ars aldrei með), veð­ur­fréttir (sem ég hef næstum jafn lít­inn áhuga á og sporti), óþægi­lega óin­tressant Kastljós og hálfan vand­ræða­lega leið­in­legan þátt, með ein­hverjum leppalúðum að erf­iða við að vera fyndnir í grein­ingu á tón­list Bergþóru Árna­dóttur, hellt­ist yfir mig lam­andi ótti og óbæri­leg ang­ist sem hafði, merki­legt nokk, ekk­ert með nýrna­stein­inn minn að gera og ég hugs­aði með mér:
Ef þau ætla að láta mig hanga hérna mikið lengur og sitja nauð­ugan undir Gísla Marteini þá drep ég mig!

Sem betur fer kom lækn­ir­inn á síð­ustu stundu, mess­aði nið­ur­stöður rann­sókna yfir mér, skrif­aði út mátt­lítil verkja­lyf og ein­hverjar pillur með mjög svo fram­andi auka­verkun, sem ég vona að ég muni aldrei kynn­ast og kall­ast „öfugt sáð­lát“, og sendi mig heim.„

Í athuga­semdum við færsl­una deilir Þórarinn lít­illi ljós­mynd af fylgiseðli lyfs­ins sem útskýrir hug­takið öfugt sáð­lát. Er það seðl­inum sam­kvæmt þegar sæðið skilar sér ekki út um þvag­rás karl­manns­ins heldur upp í þvag­blöðr­una.

Ein auka­verkun lyfj­anna sem Þórarinn fékk er öfugt sáð­lát. Mynd/skjá­skot

Þórarinn var frels­inu feg­inn og ekki síst að sleppa við að vera nauð­beygður til áhorfs á Vikunni með Gísla Marteini:

„Ég komst þannig naum­lega undan óbæri­legum létt­leika GMB og reglu­legra fasta­gesta hans en tel mig um leið hafa reynt á eigin and­lega skinni að þessi meinti skemmti­þáttur er meira krípí og frá­hrind­andi en „sáð­láts­brestur“ og sárs­auka­fyllri og hræði­legri en nýrna­steinakast.
Geri aðrir betur!“

Hér að neðan má sjá færslu Þórarins í heild:

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

Heimur

Ný UFO-skjöl afhjúpa áform um neð­an­jarð­ar­hvelf­ingu fyrir „fram­andi efni“

Gögnin eru hluti af 43 skjölum sem voru birt nýlega. Þar er einnig fjallað um óútskýrðar ratsjármælingar frá árinu 2023.
Menning

Tvenns konar bað í boði og aðeins annað þeirra er blautt

Pólitík

Stefán Einar svarar Þorgerði með orðum Heiðu Krist­ínar

Pólitík

Kristrún segir halla­laus fjár­lög sleggj­una sem þurfi til að ná vöxtum niður

Heimur

Sam­sær­is­kenn­ingar spretta upp eftir und­ar­legt augna­blik á blaða­manna­fundi

Innlent

Sendi sak­sókn­ara falsað lækn­is­vott­orð og hlaut árs­fang­elsi

Sakaferill mannsins nær aftur til ársins 2010

Sakar rík­is­stjórn­ina um að gera lítið úr vinnu lág­launa­fólks og for­eldra

Innkalla vin­sælt jóla­smáköku­deig vegna aðskota­hluts

Kökuboð á Pat­reks­firði end­aði fyrir dómi

Hrafn­hljóð flýgur inn á manna­nafna­skrá

Sverrir spyr hvað heilli karla við ofbeldið í Grand Theft Auto