Fara í efni
Kristrún Frostadóttir
„Þegar við tókum við var gert ráð fyrir halla á ríkissjóði næstu fimm árin“
Kristrún Frostadóttir
Innlent

Dæmd fyrir að aka á gangandi mann og yfirgefa slysstað

Fólk

Áhorf­endur grunaði ekki hvernig Sölku Sól leið á meðan hún söng

Fólk

Reynslu­bolti úr frétta­heiminum stofnar eigið fyrirtæki

Heimur

Spákona varar við alheims­rafmagns­leysi í lok árs

Innlent

Börn tóku upp eigin blóðugu árás á feðga og hæddust að þeim

Innlent

Bjarni varar við týndum áratug í efnahags­málum

Fólk

Fegurðar­drottningin Karen Ósk stofnar félag um stafrænar eignir

Fólk

Við Blátún bíða bjartar stofur og skjólsæll garður

Innlent

Krefjast ákæru fyrir manndráp af gáleysi eftir bana­slysið í Grindavík

Heimur

Ferð fyrr­verandi klám­stjörnu til Sýrlands vakti deilu

Bensínsprengjunni í nótt var kastað í íbúð Jóns Péturs: „Þeir eru ekkert að fara að hætta“

Jón Pétur
Jón Pétur

Bensín­sprengju var kastað á svalirnar á íbúð Jóns Péturs Vågseið og konu hans í Hraunbæ í Árbæjar­hverfi  í nótt. Þetta er í þriðja sinn sem bensín­sprengjum er beitt gegn Jóni og konu hans. Fyrir rúmum tveimur árum var kveikt í bifreið nágranna­konu þeirra í Árbæ í misgripum fyrir bifreið Jóns Péturs. Fyrir nokkrum vikum var svo eldsprengu kastað í glugga á heimili þeirra, eins og Mannlíf greindi frá. Þá var Jón í varðhaldi vegna stungu­málsins á Banka­stræti Club og árásinni beint gegn konunni hans.

Mannlíf heyrði í Jóni Pétri fyrir stundu, og var honum eðlilega brugðið:

„Ég svaf ekki dúr í nótt, enda er þetta ansi svakalegt að lenda í, og það í annað sinn á skömmum tíma,“ segir Jón Pétur og bætir við:

„Ég er svo sem öllu vanur; vann lengi sem öryggis­vörður og hef séð eitt og annað í gegnum tíðina. En ég bý í hverfi þar sem fullt af fjölskyldu­fólki býr – fólk með börn, og eðlilega eru allir ótta­slegnir og mér þykir það miður.“

Aðkoman var skelfi­leg eins og sést.

Jón Pétur Vågseið var einn þeirra sem fóru inn á Banka­stræti Club þar sem menn úr svokölluðum „Latínohópi“ voru saman komnir.

Þar brutust út slagsmál sem enduðu með því að tveir menn voru stungnir, báðir úr fyrr­nefndum hópi.

Jón var sagður vera foringi hópsins sem réðst inn á skemmtistaðinn en hann var hand­tekinn og sat inni í sex daga.

ég er meira með áhyggjur af fólk­inu hér í kring

Jón Pétur ræddi málið í viðtali við Reyni Traustason í þættinum Mannlífið fyrir skemmstu:

„Við ætluðum að fara þangað til að fá þessa menn til þess að láta konurnar okkar og fjöl­skyldur í friði. Þeir voru búnir að vera síðustu viku að henda bensín­sprengjum, mæta með sveðjur og senda fullt af hótunum. Áður en við fórum af stað vorum við búnir að fá upplýsingar um að þeir væru að leita að heimilis­föngum og vinnu­stöðum hjá konunum okkar,“ sagði Jón Pétur.

Jón Pétur segir að honum finnist óeðlilegt að nú séu einungis þrír af þeim 17 sem eru í svokölluðum Latinohópi í fangelsi og hann vill að lögreglan taki mun harðar á þessum aðilum en gert hefur verið:

„Þeir eru ekkert að fara að hætta, það er á hreinu. Þeir voru byrjaðir á þessu fyrir þremur árum og það er ekkert lát á; löggan keyrir bara um og er vissulega sýnileg, en þeir þurfa að gera mun meira; það verður að stoppa þetta en það virðist hreinlega ekki hægt eins og ástandið er.“

Hvernig líður þér eftir nóttina?

„Eins og ég sagði þá er ég ýmsu vanur; ég ólst upp í Færeyjum þar sem var mikill rasismi og ég fékk alveg að kenna á því af því að ég er brúnn. En ég er meira með áhyggjur af fólkinu hér í kring en sjálfum mér, og það segir sig sjálft að þessu verður að linna.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Frétt

Stjórn­völd efla eftirlit með drónum og viðbúnað sérsveit­ar­innar

Ráðherrar segja þróun heimsmála og breyttar áskoranir kalla á sterkari borgarlega innviði. Samningarnir voru undirritaðir að loknum fundi þjóðaröryggisráðs.
Innlent

Þvingaði fyrr­verandi eiginkonu sína inn í bíl

Innlent

Stór nöfn vilja upp á RÚV

Fólk

Rán Flygenring opnar sig um krabbameins­greiningu

Heimur

Tveir menn hafa látist við íbúðar­skoðun í sama turni á sex árum

Innlent

Fáir Íslendingar vilja selja Lands­bankann

Skiptar skoðanir meðal Sjálfstæðismanna um sölu á Landsbankanum

Lögregla leitaði að vopnuðum einstak­lingum í Breið­holti

Stella segir kven­fyrirlitningu þrífast á netinu í skjóli tjáningar­frelsis

Unnar hótaði mæðginum og fjöl­skyldan fór í felur

„Ég vil ekki að Ísland upplifi bakslag“

Það verður fjör í fána­stöngunum síðdegis