Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Fólk

Selja eitt minnsta einbýli Reykja­víkur á ótrúlegu verði

Innlent

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Innlent

Ásta Bjarney valin framyfir sjö aðra

Innlent

Ísland gefur þrjá sjúkra­bíla og 33 mótorhjól til Malaví

Innlent

Matvæla­stofnun fylgist náið með útbreiðslu veiru í hundum

Heimur

Kona lést eftir að hafa gengið á flugvélar­skrúfu

Peningar

Kröfur upp á rúmar 33 milljónir fengust ekki greiddar

Innlent

Eftir­lýstur maður óvænt gripinn

Innlent

Móðir lýsir biðinni eftir fréttum af frumburði sínum

Fólk

GusGus uppfyllir GusGus gildin

Tekur ekki áhyggjur úr vinnunnu með sér heim – væri besta starf í heimi ef launin væru hærri

Rúnar Gunnarsson ljósmyndari
Rúnar Gunn­ars­son ljós­mynd­ari

„Ég fékk myndavél í fermingar­gjöf og ég hef verið með ljósmynda­dellu síðan. Filmu­safnið mitt er gullnáma og ómetanleg heimild,“ segir Rúnar Gunnarsson ljós­myndari og eftirlauna­þegi sem hefur myndað lífið í borginni frá því á sjötta áratug síðustu aldar og er enn að.

Hann er íbúi í Hlíða­hverfi og segir lífið gott þar: „Ef ég á að segja alveg eins og er þá finnst mér ekkert vanta í þessu hverfi,“ segir Rúnar í samtali við Elfu Björk Ellerts­dóttur, upplýsinga­fulltrúa hjá Reykja­víkurborg.

Rúnar Gunnarsson, ljós­myndari og eftirlauna­þegi, þekkir Reykjavík betur en margur annar og fáir hafa beint linsunni eins oft og lengi að húsum og fólki bæjarins. Rúnar býr í Hlíða­hverfi og hefur ákveðna sýn á hverfið;

„Ég hef eiginlega alltaf búið í Vestur­bænum, Melunum, Högunum og á Granda, ef frá eru talin nokkur ár sem ég bjó í Hafnar­firði. Þegar aldurinn færðist yfir ákváðum við hjónin að finna góða íbúð sem hentaði okkur á efri árum. Við vildum ekki að börnin þyrftu að standa í þvi að flytja okkur þegar við værum orðin of hrum til að ráða við það sjálf,“ segir Rúnar. Úr varð að þau hjónin fluttu í Bólstaðar­hlíð 41-45 þar sem eru íbúðir fyrir aldraða og samfélagshús.

Rúnar, sem er 77 ára gamall, vann í 50 ár hjá Sjón­varpinu. „Ég var með frá byrjun sem var mikið ævintýri. Ég vann m.a. sem kvik­mynda­tökumaður, dagskrár­gerðarmaður og ég var framkvæmda­stjóri í nokkur ár og lengst af var ég dagskrár­stjóri innlendrar dagskrár.  Það gat nú verið meira kvabbið, segir hann og hlær.“  Hann rifjar upp árin hjá RÚV og segir það að mestu góðar minningar en þetta hafi oft verið mikið álag.

Eftir að hann fór á eftirlaun tók hann í smá tíma upp gamalt starf sem bréfberi hjá Póstinum. Hann segir það gott starf með útiveru og hreyfingu. Hann gat líka kippt mynda­vélinni með og fangað stemninguna hverju sinni. „Sem bréfberi tekur þú sjaldan eða aldrei áhyggjur vinnunnar með þér heim og þetta væri besta starf í heimi ef launin væru hærri“ , segir Rúnar kankvís.

Það er einstak­lega áhugavert að sjá myndirnar hans Rúnars af mann­lífinu í Reykjavík í gegnum tíðina.

Úr ljósmyndasafni Rúnars Gunnarssonar:

Rúnar Gunn­ars­son ljós­mynd­ari
Rúnar Gunn­ars­son ljós­mynd­ari
Rúnar Gunn­ars­son ljós­mynd­ari
Rúnar Gunn­ars­son ljós­mynd­ari
Rúnar Gunn­ars­son ljós­mynd­ari

Lesa má viðtalið í heild sinni hér.

Heimild:

Elfa Björk Ellerts­dóttir. 2022, 1. febrúar. Borgin er eins og lifandi vera. Reykja­víkurborg.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Heimur

Náttfata­veisla unglings­stúlkna endaði í harmleik

Um 50 ungmenni mættu í veisluna eftir að hún hafði verið auglýst á netinu
Heimur

„Þekktasta klámstjarna Ítalíu“ vill verða borgar­stjóri Rómar

Heimur

Tveggja barna faðir skotinn til bana á þakkar­gjörðar­daginn

Heimur

Sautján ára skóla­stúlka lést eftir árás

Innlent

Húsfélagi óheimilt að rukka skrópara

Innlent

Mál vegna gruns um kynferðis­brot í Garðaseli fellt niður

Maðurinn var handtekinn 17. mars en sleppt skömmu síðar. Honum var vikið úr starfi meðan rannsóknin stóð yfir.

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Kveikti í íbúð með vél úr mótor­hjóli

Innbrot og þjófnaður í heimahúsi í Árbæ

Sex dæmdir í fangelsi fyrir umferðar­lagabrot sama dag

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu