Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Fólk

Selja eitt minnsta einbýli Reykja­víkur á ótrúlegu verði

Innlent

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Innlent

Ásta Bjarney valin framyfir sjö aðra

Innlent

Ísland gefur þrjá sjúkra­bíla og 33 mótorhjól til Malaví

Innlent

Matvæla­stofnun fylgist náið með útbreiðslu veiru í hundum

Heimur

Kona lést eftir að hafa gengið á flugvélar­skrúfu

Peningar

Kröfur upp á rúmar 33 milljónir fengust ekki greiddar

Innlent

Eftir­lýstur maður óvænt gripinn

Innlent

Móðir lýsir biðinni eftir fréttum af frumburði sínum

Fólk

GusGus uppfyllir GusGus gildin

Viðspyrna stjórnvalda vegna COVID-19 heimsfaraldursins – 550 milljónir króna í viðbótarfjármagn

Lilja Dögg Alfreðsdóttir, ferðamálaráðherra, og Pétur Þ. Óskarsson, framkvæmdastjóri Íslandsstofu, undirrituðu í dag samning um framhald „Ísland saman í sókn“ sem er markaðsverkefni fyrir íslenska ferðaþjónustu. Skjáskot/Íslandsstofa
Lilja Dögg Alfreðs­dóttir, ferða­mála­ráð­herra, og Pétur Þ. Ósk­ars­son, fram­kvæmda­stjóri Íslands­stofu, und­ir­rit­uðu í dag samn­ing um fram­hald „Ísland saman í sókn“ sem er mark­aðs­verk­efni fyrir íslenska ferða­þjón­ustu. Skjáskot/Íslands­stofa

„Ísland saman í sókn fór vel af stað, vakti mikla og verðskulda athygli og skilaði góðum árangri. Í ljósi þess að faraldurinn hefur dregist töluvert á langinn er nauðsynlegt að halda verk­efninu áfram og byggja þannig undir nauðsyn­lega viðspyrnu ferða­þjónustunnar á árinu 2022,“ segir Lilja Dögg Alfreðs­dóttir, ferðamála­ráðherra þegar samningur var undir­ritaður ásamt Pétri Þ. Óskars­syni, framkvæmda­stjóra Íslands­stofu um framhald „Ísland saman í sókn“ sem er markaðs­verkefni fyrir íslenska ferða­þjónustu.

Verkefnið er hluti af viðspyrnu stjórn­valda vegna COVID-19 heims­faraldursins. Með samningnum eru verk­efninu tryggðar 550 milljónir króna í viðbótar­fjármagn sem nýttar verða til að fram­lengja markaðs­verkefnið í ár.

„Í gegnum faraldurinn hefur tekist að viðhalda miklum áhuga á ferða­lögum til Íslands með mark­vissum aðgerðum. Markaðs­setning áfanga­staðar er langhlaup, og nú þegar gera má ráð fyrir að ferða­þjónusta sé að taka við sér á ný þurfum við að vera tilbúin til þess að mæta þeirri miklu samkeppni sem gera má ráð fyrir frá öðrum áfanga­stöðum og breyta þessum uppsafnaða áhuga í heim­sóknir til landsins. Við erum spennt fyrir því verkefni sem framundan er í samstarfi við íslenska ferða­þjónustu,“ segir Pétur Þ. Óskarsson, framkvæmda­stjóri Íslands­stofu.

Tilgangur verk­efnisins er að styrkja ímynd Íslands sem áfanga­staðar, auka eftir­spurn og viðhalda samkeppnis­stöðu íslenskrar ferða­þjónustu og annarra útflutnings­greina. Verkefnið er unnið í samræmi við fram­tíðarsýn og leiðar­ljós íslenskrar ferða­þjónustu til 2030 sem ber yfir­skriftina „Leiðandi í sjálf­bærri þróun“ og langtíma­stefnu stjórn­valda og atvinnu­lífs fyrir íslenskan útflutning.

„Það er mjög mikilvægt og í raun nauðsynlegt fyrir greinina og áfanga­staðinn Ísland að fá þennan stuðning núna þegar allir áfanga­staðir heims fara að keppast um að ná til sín takmörkuðum fjölda ferða­manna. Ég vil hrósa ríkis­stjórninni fyrir að taka þetta skref núna. Þessi fjár­festing mun skila sér í hraðari viðspyrnu fyrir ferða­þjónustuna í landinu og efnahags­lífið í heild,“ segir Bjarnheiður Halls­dóttir, formaður Samtaka ferða­þjónustunnar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Heimur

Náttfata­veisla unglings­stúlkna endaði í harmleik

Um 50 ungmenni mættu í veisluna eftir að hún hafði verið auglýst á netinu
Heimur

„Þekktasta klámstjarna Ítalíu“ vill verða borgar­stjóri Rómar

Heimur

Tveggja barna faðir skotinn til bana á þakkar­gjörðar­daginn

Heimur

Sautján ára skóla­stúlka lést eftir árás

Innlent

Húsfélagi óheimilt að rukka skrópara

Innlent

Mál vegna gruns um kynferðis­brot í Garðaseli fellt niður

Maðurinn var handtekinn 17. mars en sleppt skömmu síðar. Honum var vikið úr starfi meðan rannsóknin stóð yfir.

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Kveikti í íbúð með vél úr mótor­hjóli

Innbrot og þjófnaður í heimahúsi í Árbæ

Sex dæmdir í fangelsi fyrir umferðar­lagabrot sama dag

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu