Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Veit fátt betra en að láta hræða sig

Draugar, upp­vakn­ingar, blóðsugur og alls kyns fleiri óhugn­an­legar verur verða á sveimi á hryll­ings­mynda­há­tíð­inni Frost­biter sem fer fram á Akranesi helg­ina 23.-25. nóv­em­ber.

Veit fátt betra en að láta hræða sig
||
Lovísa Lára Hall­dórs­dóttir er einn skipu­leggj­enda hryll­ings­mynda­há­tíð­ar­innar Frost­biter.

„Þetta er alþjóð­leg hátíð, þar sem við erum að taka inn hryll­ings­myndir alls staðar að úr heim­inum. Bæði eldri klass­ísk og nýjar myndir þannig að áhorf­endur munu sjá þarna ferska strauma í hryll­ings­mynda­gerð,“ segir Lovísa Lára Hall­dórs­dóttir en hún og maður hennar, Ársæll Rafn Erlings­son, standa fyrir hroll­vekju­há­tíð­inni Frost­biter á Akranesi helg­ina 23.-25. nóv­em­ber.
Fjöldi kvik­mynda verður sýndur á hátíð­inni og að sögn Lovísu mun fjöl­breytni ráða ríkjum. „Já, þarna verða sígildar myndir í fullri lengd og svo 43 stutt­myndir af öllum gerðum og í öllum lengdum, alveg frá einni mín­útu og upp í hálf­tíma,“ segir hún og getur þess að stutt­mynd­unum komi til með að verða skipt í fjóra flokka: Skrímsli og álög, drauga­gang, óhugnað og furðu­verur og hið illa að innan. „Síðan erum við með partí­sýn­ingu á upp­runa­legu Little Shop of Horrors þar sem kjöt­súpa og brenni­vín verða í boði. Sjálfur Páll Óskar kemur svo á sunnu­dag og sýnir gamla hryll­ings­mynd á super8 filmu­vél og hroll­vekju­stiklur sem hann hefur klippt sjálfur.“

Íslenska hroll­vekjan í sókn
Þetta er í þriðja sinn sem Frost­biter fer fram og segir Lovísa gaman að sjá hversu ólíkar mynd­irnar á hátíð­inni eru eftir því hvaðan þær koma. „Það er líka skemmti­legt að sjá að pen­ingar skipta ekki höf­uð­máli í gerð góðrar hroll­vekju. Sumar myndir eru til dæmis teknar upp með lélegri mynda­vél og tækni­brell­urnar ekk­ert spes en það er eitt­hvað frá­bært við þær í grunn­inn sem hefur áhrif á áhorf­endur.“
Íslenska hroll­vekjan fær að sjálf­sögðu veiga­mik­inn sess á Frost­biter en Lovísa segir að hátíð­inni hafi aldrei borist jafn­margar inn­lendar myndir og í ár. Mikill upp­gangur sé greini­lega í gerð íslenskra hroll­vekja. „Sem dæmi erum við að sjá leik­stjóra eins og Erling Óttar Thorodd­sen gera frá­bæra hluti með sínum hryll­ings­myndum Child Eater og Rift, sem er því­lík hvatn­ing fyrir íslenskt kvik­mynda­gerð­ar­fólk sem hefur áhuga á gerð hryll­ings­mynda. Þannig að íslenska hroll­vekjan er í mik­illi sókn og kom­inn tími til því Íslend­ingar hafa alla burði til að gera góðar hryll­ings­myndir. Bæði státum við af góðu kvik­mynda­gerð­ar­fólki og góðum efni­við, gömlum þjóð­sög­unum sem hægt er að sækja inn­blástur í.“
Hún segir sömu­leiðis gaman að sjá þró­un­ina sem er að eiga sér stað í gerð íslenskra hryll­ings­mynda. „Fyrsta árið voru íslensku stutt­mynd­irnar ótrú­lega fjöl­breyttar og áttu kannski ekki margt sam­eig­in­legt, fyrir utan það að margar þeirra voru greini­lega undir amer­ískum áhrifum. Núna erum við hins vegar að sjá myndir um álfa, Grýlu og fleira í þeim dúr þannig að það er virki­lega skemmti­legt að sjá þró­un­ina.“

„Núna erum við hins vegar að sjá myndir um álfa, grýlu og fleira í þeim dúr þannig að það er virki­lega skemmti­legt að sjá þró­un­ina.“
Páll Óskar sýnir Equinox á super8 filmu­vél og hroll­vekju­stiklur sem hann hefur klippt sjálfur. Mynd / Aldís Páls­dóttir

Ótrú­legir mögu­leikar
Sjálf er Lovísa menntuð í kvik­mynda­gerð og á meðal ann­ars að baki nokkrar hryll­ings­myndir. „Ég gerði á sínum tíma nokkrar stuttar hroll­vekjur sem vöktu athygli erlendis en mér fannst vanta vett­vang á Íslandi til að sýna þær. Ég ræddi þetta við Ársæl sem er líka í kvik­mynda­gerð og hann stakk upp á því að við færum sjálf af stað með hryll­ings­mynda­há­tíð í heima­bænum hans Akranesi. Þannig byrj­aði þetta.“
Hún seg­ist von­ast til að sjá sem flesta á hátíð­inni í næstu viku, ekki síst ungt kvik­mynda­gerð­ar­fólk. „Vonandi, því hryll­ings­formið er ótrú­lega skemmti­legt og býður upp á alls kyns mögu­leika og hátíð eins og þessi gæti orðið því hvatn­ing til að spreyta sig í gerð slíkra mynda. Fyrir utan það hefðu auð­vitað bara flestir hrika­lega gaman af því að mæta því ég get lofað þér því að það jafn­ast fátt á við það að vera með vinum sínum inni á köldum vetr­ar­degi og láta hræða úr sér líf­tór­una,“ segir hún og glottir.

Nánari upp­lýs­ingar um hátíð­ina og dag­skránna má finna á Facebook-síð­unni Frost­biter: Icelandic hor­ror film festi­val.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
6
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fór í búð í Graf­ar­vogi en end­aði í fanga­geymslu

Heimur

Geymdi milljón myndir og mynd­skeið af mis­notkun eig­in­kon­unnar

Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Myndir
Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum