Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

„Ég missti öll tengsl við raunveruleikann“

Snemma árs 1996 bank­aði ókunnur maður að dyrum hjá Sig­ur­steini Mássyni sem þá var ungur frétta­maður á Stöð 2. Hann kynnti sig sem Sævar Ciesielski og hafði undir höndum gögn um umfangs­mesta saka­mál Íslands­sög­unnar, Guð­mundar- og Geir­finns­málið, og fór fram á að hann skoð­aði það ofan í kjöl­inn. Sig­ur­steinn var tregur í fyrstu en ákvað að sökkva sér ofan í málið. Það reynd­ist afdrifa­rík ákvörðun. Ekki bara áttu sjón­varps­þættir Sig­ur­steins stóran þátt í því að opna augu þjóð­ar­innar fyrir því rétt­ar­fars­hneyksli sem málið var heldur átti líf Sig­ur­steins eftir að taka stakka­skiptum og marka upp­hafið að bar­áttu hans við geð­hvörf.

„Ég missti öll tengsl við raunveruleikann“
Sig­ur­steinn Másson

Sögu­legar mála­lyktir urðu í Guð­mundar- og Geir­finns­mál­inu á dög­unum þegar Hæsti­réttur sýkn­aði þá Kristján Viðar Júlí­us­son, Sæv­ar Marinó Ciesi­elski, Tryggva Rún­ar Leifs­son, Al­bert Kla­hn Skafta­son og Guðjón Skarp­héð­ins­son af því að hafa orðið þeim Guðmundi og Geir­finni að bana, eftir að end­ur­upp­töku­nefnd féllst á að taka málið upp að hluta. Má segja að dóm­ur­inn ljúki því ferli sem Sig­ur­steinn hóf fyrir 22 árum þegar vinna við sjón­varps­þætt­ina Aðför að lögum hófst. Þeir þættir opn­uðu augu almenn­ings fyrir því hversu mein­gölluð rann­sókn máls­ins og með­ferð þess fyrir dóm­stólum var og gjör­breyttu almenn­ings­á­lit­inu sem fram að því hafði ekki verið hlið­hollt sak­born­ing­unum. Sig­ur­steinn lítur hins vegar ekki svo á að mál­inu sé lokið enda hafi nafn sak­born­inga í mál­inu ekki verið hreinsað að fullu. Eftir stendur að þau eru enn sek fyrir rangar sak­ar­giftir. „Þetta er í raun­inni hálf­leikur. Þessi nið­ur­staða Hæsta­réttar og í raun með hvaða hætti end­ur­upp­töku­nefndin og sak­sókn­ar­inn settu þetta upp er hneisa, að mínu mati. Þau höfðu tæki­færi til að laga málið allt saman og hreinsa allt málið en þau fóru bara hálfa leið. Að halda eftir röngum sak­ar­giftum er full­kom­lega út í hött, algjör­lega ábyrgð­ar­laust, óskamm­feilið og virð­ist gert til þess að vernda kerfið, að vernda þá aðila sem raun­veru­lega bera ábyrgð á því hvernig þetta fór allt saman. Þetta er ein­fald­lega gert til að koma í veg fyrir að kerfið standi allt saman ber­háttað í mál­inu eins og það í raun ætti að vera.“

Sáum strax að málið var meingallað

Sig­ur­steinn var barn að aldri þegar Guð­mundar- og Geir­finns­málið stóð sem hæst og hafði hann aðeins óljósa minn­ingu um málið þegar Sævar Ciesielski bók­staf­lega færði það upp í hend­urnar á honum. „Ég man þetta eins og það hafi gerst í gær. Ég bjó á Kapla­skjóls­veg­inum á annarri hæð í lít­illi tveggja her­bergja íbúð. Eitt kvöldið, frekar seint, var bankað að dyrum hjá mér og á gang­inum stóð þessi lág­vaxni granni maður með tvö þykk hefti í hönd­unum og hann kom sér beint að efn­inu sem var hans stíll: „Sæll, Sig­ur­steinn. Ég heiti Sævar Ciesielski. Mér var sagt að tala við þig og ég vil spyrja þig hvort þú sért til­bú­inn til að skoða Guð­mundar- og Geir­finns­málin“.“

Þá voru liðin 16 ár frá því Sævar var dæmdur í 17 ára fang­elsi í Hæsta­rétti. Sig­ur­steinn, þá 29 ára og þegar orð­inn einn af þekkt­ari frétta­mönnum lands­ins, tók við gögn­unum en tjáði Sævari um leið að hann væri ekki viss hvort hann gæti nokkuð gert við þau. Fyrst og fremst spáði Sig­ur­steinn í það hvernig Sævar hefði kom­ist inn í stiga­gang­inn án þess að hringja dyra­sím­anum í and­dyr­inu. Nokkrum dögum síðar bank­aði Sævar aftur upp á, og aftur án þess að hringja dyra­sím­anum, og afhenti Sig­ur­steini öll gögnin sem lágu fyrir í mál­inu.

Eftir stutta yfir­ferð varð honum ljóst að eitt­hvað veru­lega hafði farið úrskeiðis við rann­sókn máls­ins. „Þarna um sum­arið 1996 opin­ber­að­ist fyrir mér ljót­leiki máls­ins og ég átt­aði mig fljót­lega á því að þetta væri mein­gallað mál.“ Sig­ur­steinn ákvað fljót­lega að gera heim­ilda­mynd í tveimur þáttum um málið og fékk til liðs við sig þá Einar Magnús Magn­ús­son og Kristján Guy Burgess. „Þá hófst þessi vinna fyrir alvöru og maður sá strax að það vant­aði rosa­lega mikið í gögnin. Til að mynda ótal margar yfir­heyrslur sem voru ekki til staðar. Þetta sást til að mynda glögg­lega þegar við komumst í dag­bækur Síðu­málafang­elsis sem var ævin­týra­legt. Þá sáum við að það höfðu farið fram yfir­heyrslur sem tóku marga klukku­tíma en ekk­ert var til um.“

„Þarna um sum­arið 1996 opin­ber­að­ist fyrir mér ljót­leiki máls­ins og ég átt­aði mig fljót­lega á því að þetta væri mein­gallað mál.“

Gagna­öflun gekk þokka­lega þótt þeir hafi víða mætt tregðu í kerf­inu við að veita upp­lýs­ingar. „Við létum ekk­ert vita af þess­ari vinnu okkar opin­ber­lega fyrr en í sept­em­ber þegar hún hafði staðið yfir í ein­hverja níu mán­uði. Þá, ein­hvern veg­inn, fór ýmis­legt að breyt­ast.“

Sig­ur­steinn nefnir að þeir hafi verið í sam­starfi við þýskan blaða­mann sem hafði það verk­efni að hafa uppi á Karli Schütz, þýskum rann­sókn­ar­for­ingja á eft­ir­launum sem feng­inn var til að aðstoða við rann­sókn Guð­mundar- og Geir­finns­máls­ins. Margt var á huldu um Schütz, bæði hvað varðar for­tíð hans sem og hvers vegna hann var feng­inn til að koma að rann­sókn manns­hvarfs­máls á Íslandi. „Þetta var ekki venju­legur lög­reglu­maður. Þetta var maður sem hafði verið innsti koppur í búri varð­andi póli­tíska þróun Vestur-Þýska­lands eftir stríð. Við komumst að því að hann var for­ingi í SS-sveitum nas­ista en ekki nákvæm­lega hvar hann var og hvað hann gerði. Þessi blaða­maður hafði sam­band við okkur eftir að við gerðum þetta opin­bert og sagði að skyndi­lega hafi allt lok­ast honum. Hann til­kynnti okkur að hann gæti ekki haldið áfram að vinna fyrir okkur því allar dyr höfðu lok­ast í Þýska­landi.“

Missti öll raunveruleikatengsl

Um sama leyti fór Sig­ur­steinn að fá á til­finn­ing­una að honum væri veitt eft­ir­för. „Ég hafði tekið eftir bíl, brúnum Ford, sem dúkk­aði alltaf upp og fylgdi mér þegar ég var að fara til Krist­jáns Guy sem bjó í Þing­holt­unum eða Einars Magnúsar sem bjó á Rán­ar­göt­unni.“ Sig­ur­steinn rifjar upp atvik þar sem umræddur bíll ók á eftir bíl hans upp Melhaga eitt kvöldið. „Ég stopp­aði bíl­inn og þeir komu alveg aftan að mér, það nálægt mínum bíl að ég sá ekki núm­era­plöt­una á bílnum þeirra. Ég horfði í bak­sýn­is­speg­il­inn til að reyna að átta mig á hverjir þetta væru en þeir sátu báðir með hend­urnar fyrir and­lit­inu og ég sá að þeir voru að ræða sín á milli. Ég hef oft hugsað um það eftir á hvað hefði gerst ef ég hefði farið út úr bílnum og gengið á þá þarna á staðnum. En ég mat það á þessum örfáu sek­úndum, þótt þetta hafi liðið eins og heil eilífð fyrir mér, að það væri best að bruna í burtu. Ég spændi því upp Mel­hag­ann á Renault-bílnum mínum. Þeir urðu eftir og færðu sig ekki.“

„Ég var algjör­lega sann­færður um að skruðn­ing­arnir sem ég heyrði í heima­sím­anum dag­ana á undan væru merki um að það væri verið að hlera mig“

Það var á þessum tíma sem Sig­ur­steinn byrj­aði að „missa fót­anna“ og upp­lifa fyrstu ein­kenni geð­hvarfa. Dagana á eftir fór hann í felur, úr einu húsi í annað. „Ég gisti hjá vinum mínum, í sum­ar­bú­stað úti á landi og svo fram­vegis. Ég var algjör­lega sann­færður um að skruðn­ing­arnir sem ég heyrði í heima­sím­anum dag­ana á undan væru merki um að það væri verið að hlera mig. Ég var orð­inn svo ofsóknaróður að þetta end­aði á því að ég gat hvorki sofið né borðað. Ég varð að vera full­viss um hvaðan mat­ur­inn væri og ég van­treysti öllum. Ég var sann­færður um að það væri setið um mig og það að væri mark­mið ákveð­inna afla, valda­mik­illa aðila, að koma í veg fyrir dag­skrár­gerð­ina. Ég missti öll raun­veru­leika­tengsl.“

Gerði Davíð Oddssyni tilboð

Úr varð að Sig­ur­steinn var nauð­ung­ar­vi­staður á geð­deild Land­spít­al­ans í fyrsta skipti. „Ég fór og hitti lækni inni á geð­deild ásamt móður minni. Þar í raun­inni lagði ég árar í bát. Þá voru hugs­anir mínar orðnar mjög óskýrar, mjög fantasíu­kenndar. Þarna hélt ég til dæmis að ég væri að fara að hitta rík­is­stjórn­ina. Áður hafði ég farið til Davíðs Odds­sonar og sagt við hann: „Ég skal hætta þess­ari dag­skrár­gerð ef þú bara borgar fyrir mig far úr landi og uppi­hald.““

Hvernig brást Davíð við?

„Hann spurði hvort ég hefði talað við lækni.“

Sig­ur­steinn telur þó að eftir á að hyggja hafi falist ákveðin blessun í því að hafa veikst á þessum tíma­punkti. „Af því að ég held að þá hafi ég verið afskrif­aður af mörgum. Þar með fengum við kannski tæki­færi til að klára þetta í meiri friði en ann­ars hefði verið. Mín geð­hvörf urðu til þarna við þessar aðstæður og spurn­ing hvort ég hefði yfir­höfuð fengið geð­hvörf ef ég hefði ekki tekið að mér þetta verk­efni. Ég sé hins vegar ekk­ert eftir því.“

Á þessum tíma var Sig­ur­steinn rek­inn frá Stöð 2. Skýr­ingin sem for­svars­menn Íslenska útvarps­fé­lags­ins sem þá rak Stöð 2 var sú að Sig­ur­steinn gæti ekki sinnt starf­inu sam­hliða þátta­gerð­inni. Sig­ur­steinn segir málið hins vegar hafa snú­ist um söl­una á sýn­ing­ar­rétti á þátt­unum. Bæði RÚV og Íslenska útvarps­fé­lagið vildu kaupa þætt­ina og var það síð­ar­nefnda til­búið að borga meira fyrir þá. „En þeir voru ekki til­búnir til að tryggja sýn­ingu þátt­anna á Stöð 2. Þeir ætl­uðu að sýna þá á Sýn sem á þeim tíma hafði bara tak­mark­aða útbreiðslu á höf­uð­borg­ar­svæð­inu, þætt­irnir hefðu ekki einu sinni sést í Keflavík. Ég gat ekki sætt mig við það. Ég upp­lifði þetta þannig að það ætti að kaupa þætt­ina, jafn­vel dýru verði, en sópa þeim undir teppið. Það var partur af því sem klár­lega veikti mig á þeim tíma, hvernig við­skiln­að­ur­inn við Stöð 2 var. Það var ekki til að bæta stöð­una og ekki til að minnka sam­sær­is­kenn­ingar mínar í þessu öllu saman.“

Eftir sex vikur á geð­deild Land­spít­al­ans og tvær vikur í end­ur­hæf­ingu í Hvera­gerði flaug Sig­ur­steinn til Texas í Banda­ríkj­unum þar sem þáver­andi sam­býl­is­maður hans starf­aði og not­aði hann tím­ann til að safna orku áður en hann sneri til baka til að ljúka gerð þátt­anna. Óhætt er að segja að þætt­irnir hafi vakið upp sterk við­brögð og skömmu eftir að þætt­irnir voru sýndir var gerð skoð­ana­könnun í Mannlífi sem sýndi að 90 pró­sent lands­manna taldi að dóm­arnir í Guð­mundar- og Geir­finns­mál­inu hafi verið rangir. En í raun gerð­ist ekk­ert í mál­inu sjálfu og haustið 1997 var beiðni Sævars um end­ur­upp­töku í mál­inu hafnað.

„Ég man alltaf eftir sam­tali sem ég átti við Guðjón Skarp­héð­ins­son [einn sak­born­inga í mál­inu, innsk. blaðam.] sem var þá orð­inn prestur á Snæ­fells­nesi. Hann sagði: „Sig­ur­steinn, þú ert að gera þetta 20 árum of snemma. Þú verður að bíða í 20 ár, það eru allir á sínum stað.“ Það þurfti að bíða eftir því að þessir menn létu af störfum. En það var ákveðið áfall fyrir marga að fara í gegnum þessa þætti því núna, 21 ári síðar, hefur ekki eitt ein­asta atriði í þeim verið hrakið.“

Hélt þau myndu stúta mér í Kaupmannahöfn

Þótt þessum hluta Guð­mundar- og Geir­finns­máls­ins væri lokið var bar­áttan við geð­rösk­un­ina rétt að hefj­ast. Næsta orr­usta fór fram í Kaup­manna­höfn vorið 1998. Sig­ur­steinn var þá nýkom­inn frá Balkanskaga þar sem hann vann að heim­ilda­mynd um flótta­fólk í Serbíu. „Við heyrðum þegar við vorum í Belgrad að það væru hafnar þjóð­ern­is­hreins­anir í Kosovo og við vorum með fyrstu tökuliðum á stað­inn. Það hafði mjög mikil áhrif á mig og ég var á þessum tíma orð­inn mjög ör. Á leið­inni heim stopp­aði ég í Kaup­manna­höfn og lenti þá í því að Serbar voru með úti­fund á Ráð­hús­torg­inu til stuðn­ings Slobodan Milosevic. Ég var ekki alveg í stuði fyrir þetta og var í raun og veru hepp­inn að lenda ekki í meiri­háttar vand­ræðum því ég ætl­aði að fara upp á svið og halda ræðu. Eitt leiddi af öðru þar, ég var svefn­laus og upp­tek­inn af því að það væru leyni­þjón­ustur á eftir mér, að hót­elið væri njósn­a­greni og svo fram­vegis. Ég var kom­inn vel yfir strikið, búinn að gera allt vit­laust á hót­el­inu og það var ekk­ert annað að í stöð­unni en að hringja á lög­regl­una og hún, ásamt móður minni, fylgdu mér á sjúkra­húsið í Hvidovre. Það var ekki um annað að ræða því ég vildi alls ekki fara til Íslands. Það var tengt Geir­finns­mál­inu.“

„Eitt leiddi af öðru þar, ég var svefn­laus og upp­tek­inn af því að það væru leyni­þjón­ustur á eftir mér, að hót­elið væri njósn­a­greni og svo fram­vegis. Ég var kom­inn vel yfir strikið, búinn að gera allt vit­laust á hót­el­inu og það var ekk­ert annað að í stöð­unni en að hringja á lög­regl­una.“

Þótt Kaup­manna­höfn sé ekki fram­andi staður í augum Íslend­inga, segir Sig­ur­steinn að það séu mjög fram­andi aðstæður að vera vistaður á geð­sjúkra­húsi í Danmörku. Aðferð­irnar þar séu tölu­vert frá­brugðnar því sem ger­ist á Íslandi. Þar tíðkast til að mynda enn að óla niður þá sjúk­linga sem eru óró­legir. „Það að vera bund­inn svo­leiðis niður og vakna svo múl­bund­inn, þving­unin og ofbeldið, að vera mat­aður, fá ekki að fara á kló­sett, öll þessi nið­ur­læg­ing sem fylgir þessu, þetta er rosa­lega vond til­finn­ing. Ég var alveg sann­færður um það fyrstu dag­ana í Kaup­manna­höfn að þetta væri ekki spurn­ing um hvort heldur hvenær og hvernig þau myndu stúta mér. Þetta var ekki auð­veldur tími en hann var mjög áhuga­verður.“

Taldi mig kominn á lygnan sjó

Eftir þetta kom Sig­ur­steinn heim og sneri sér aftur að þátta­gerð. Hann gerði úttekt á vændi og fíkni­efna­neyslu í Reykja­vík svo og eft­ir­minni­lega seríu, Sönn íslensk saka­mál. Sjúk­dóm­ur­inn hélt þó áfram að láta á sér kræla. „Árið 1999 fór ég í væga maníu en samt nægi­lega hressi­lega að talin væri ástæða til að vista mig. Eftir það hélt ég að ég væri alveg kom­inn á lygnan sjó. Það liðu 11 ár og ég var allt í einu kom­inn í dýra­vernd­un­ar­mál og var að vinna með þá stöðu sem kom upp í Eyja­fjalla­jök­uls­gos­inu. Ég var þar dag eftir dag að vinna undir Eyja­fjöllum, með mér var Banda­ríkja­maður sem mjög erfitt var að eiga við. Í þessum aðstæðum veikt­ist ég aftur.“

Þar sem geð­rösk­unin hefur fylgt Sig­ur­steini und­an­farið 21 ár er hann far­inn að þekkja vel inn á ein­kenni sjúk­dóms­ins. „Það sem ger­ist í öllum þessum til­vikum sem ég hef veikst er að ég er í streitu­um­hverfi, ég missi svefn og hætti að borða. Það er ákveðin rútína sem ég þarf að hafa og ef hún er í lagi, get ég farið í gegnum alls konar álag án þess að veikj­ast. Þá hef ég fulla stjórn á geð­hvör­f­unum. En þegar þetta fer úrskeðis er voð­inn vís.“

Í öll þau skipti sem Sig­ur­steinn hefur veikst hefur hann verið fljótur að jafna sig og snúið aftur til vinnu enda sé nauð­syn­legt að hafa eitt­hvað fyrir stafni þegar bata­ferlið hefst. „Eitt af því versta sem ger­ist hjá fólki þegar það veik­ist og er tekið úr leik úr sam­fé­lag­inu, að það sé mán­uðum eða árum saman án verk­efna – án hlut­verks og til­gangs. Það er alveg glatað.“

„Það er ákveðin rútína sem ég þarf að hafa og ef hún er í lagi, get ég farið í gegnum alls konar álag án þess að veikj­ast. Þá hef ég fulla stjórn á geð­hvör­f­unum. En þegar þetta fer úrskeðis er voð­inn vís.“

Guðs lifandi feginn geðhvörfunum

Sig­ur­steinn hefur nýlokið við að skrifa bók um geð­hvörfin sem hann lýsir sem per­sónu­legu upp­gjöri við sjálfan sig. Segir hann að bókin sem ber tit­il­inn Geðveikt með köflum, hafi upp­haf­lega verið skrifuð sem sjálfs­hjálp­ar­bók fyrir hann sjálfan. Þegar líða tók á verk­efnið hafi hann kynnt hug­mynd­ina fyrir Páli Valssyni útgef­anda sem ákvað að slá til og gefa bók­ina út. „Ég sveifl­að­ist til og frá með þetta því ég efað­ist um að svona per­sónu­legar sögur ættu erindi við almenn­ing. En þegar ég fór að skoða þetta fannst mér mjög áhuga­vert að sjá í hvaða umhverfi ég var þegar ég veik­ist, hvers konar aðdrag­andi var að veik­ind­unum, hvernig þau lýstu sér og hvernig ég vann eða vann ekki úr þeim á mis­mun­andi tímum. Að hafa geð­röskun er ekki veik­leiki, þetta er styrk­leiki. Þetta er veik­leiki ef þú ert á valdi geð­sjúk­dóms­ins. Ef þú ert með geð­sjúk­dóm sem þú hefur tök á, er þetta styrk­leiki þinn. Þar með er ég ekki að óska fólki þess að fá geð­sjúk­dóma en ef það er þannig, þá gefur þetta þér inn­sæi – þetta gefur þér reynslu sem er ekki hægt að fá með öðrum hætti. Þannig að ég er guðs lif­andi feg­inn geð­hvör­f­unum og vildi ekki án þeirra vera.“

„Að hafa geð­röskun er ekki veik­leiki, þetta er styrk­leiki. Þetta er veik­leiki ef þú ert á valdi geð­sjúk­dóms­ins.“

Sig­ur­steinn seg­ist oft vera spurður að því hvort hann muni eftir þeim tíma þegar hann hefur verið hvað veikastur. „Ég man þetta mjög vel. Ég man mjög vel ótrú­lega rugl­ings­lega kafla í lífi mínu, inni á geð­deildum, í ein­hverjum aðstæðum sem eru að hluta súr­r­eal­ískar. Ég man þetta allt saman og ég lýsi því í bók­inni. En það er eins og sumir telji að minni okkar og reynslu sem höfum gengið í gegnum þetta, sé ekki treystandi. En þetta eru auð­vitað jafn­mikil sann­indi og stað­reyndir eins og upp­lif­anir ann­arra af okkur.“

Er gott að muna þetta?

„Það hefði stundum verið gagn­legt að gleyma meiru. En núna, þegar ég er í þessu upp­gjöri, er mjög gott að muna. En það er ofsa­lega gott líka að skrifa sig frá þessum erf­iðu köflum.“

Sævar hefði aldrei sætt sig við niðurstöðuna

Einn af þessum erf­iðu köflum er vinnan að þátt­unum um Guð­mundar- og Geir­finns­málið sem Sig­ur­steinn segir að hafi tekið mik­inn toll. Við gerð þátt­anna kynn­ist Sig­ur­steinn Sævari Ciesielski vel og segir hann að Sævar heit­inn hefði aldrei sætt sig við þessi mála­lok. „Af því að hann er sak­laus af því að hafa orðið manni að bana en hann er áfram sekur um að hafa verið að búa til sögur. Ef það var eitt­hvað sem hann lfiði fyrir var það að nafn hans yrði hreinsað alger­lega af þessu. Ekki bara að afsanna eða lýsa yfir sýknu varð­andi þessi manns­hvörf heldur að sann­leik­ur­inn kæmi í ljós. Ég held að það muni ger­ast. Ég býst við að þetta muni taka eitt eða tvö ár í við­bót en von­andi ekki svo lengi. Þegar málið verður skoðað getur þetta ekki staðið eftir.“

Mynd / Hallur Karlsson

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi