Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Gagnrýni á rannsókn lögreglu vísað frá: „Mikil vonbrigði”

Gagnrýni á rannsókn lögreglu vísað frá: „Mikil vonbrigði”

Nefnd um eft­ir­lit með lög­reglu tók mál Halldóru Bald­urs­dóttur fyrir á mánu­dag­inn, 25. júní, en Halldóra sendi nefnd­inni erindi þar sem hún gagn­rýndi rann­sókn á máli dóttur sinnar, Helgu Elínar. Mannlíf hefur fjallað ítar­lega um mál Halldóru og Helgu Elínar, en Helga Elín kærði lög­reglu­mann fyrir kyn­ferð­is­brot þegar hún var barn. Móðir hennar gagn­rýndi rann­sókn máls­ins harð­lega í við­tali við Mannlíf.

„Rík­is­lög­reglu­stjóri brást dóttur minni“

Þegar að Helga steig fram og sagði frá meintu broti höfðu tvær aðrar stúlkur kært lög­reglu­mann­inn fyrir kyn­ferð­is­brot; fyrr­nefnd stjúp­dóttir hans, Kiana Sif Limehouse, og Lovísa Sól. Halldóra hefur mikið út á rann­sókn máls­ins að setja og í vetur skrif­aði hún bréf til nefndar um eft­ir­lit með lög­reglu þar sem hún óskaði eftir því að máls­með­ferðin yrði skoðuð og gripið til við­eig­andi ráð­staf­ana. Gagn­rýndi hún meðal ann­ars að málin hefðu ekki verið rann­sökuð saman, að lög­reglu­mann­inum hefði ekki verið vikið úr starfi á meðan á rann­sókn stóð og að ummæli sak­born­ings­ins hefði ekki verið borin undir Helgu Elínu.

Erindi um óvandaða lögreglurannsókn vísað frá

Í nið­ur­stöðum nefnd­ar­innar, sem bár­ust Halldóru og fjöl­skyldu hennar á mánu­dag eins og áður segir, er erindi hennar sem snýr beint að óvand­aðri lög­reglu­rann­sókn vísað frá. Halldóra gerði einnig athuga­semdir við að lög­reglu­mað­ur­inn hafi haft útkalls­skyldu í hverfi fjöl­skyld­unnar og að þar með hafi Helga verið sett í óásætt­an­lega stöðu. Nefndin telur þá ábend­ingu mik­il­væga, eins og kemur fram í nið­ur­stöðum hennar, og hefur ákveðið að taka til athug­unar verk­lag og verk­ferla er varða ákvarð­anir innan lög­regl­unnar um störf og starfs­skyldur þeirra starfs­manna lög­regl­unnar sem sak­aðir eru um refsi­verð brot. Hins vegar hafa slíkar ábend­ingar þegar komið fram til dóms­mála­ráðu­neytis, til að mynda árið 2016 þegar sam­ráðs­hópur sendi til­lögur um með­ferð kyn­ferð­is­brota innan rétt­ar­vörslu­kerf­is­ins til ráðu­neyt­is­ins. Þar stendur orð­rétt:

„Útbúa þarf sam­ræmdar leið­bein­ingar sem lýsa verk­lagi hjá lög­reglu, þar með talið á fyrstu stigum máls og við fram­halds­rann­sókn. Meðal ann­ars verði tekið mið af leið­bein­ingum um rann­sókn nauðg­un­ar­mála sem fram koma í skýrslu starfs­hóps rík­is­sak­sókn­ara um með­ferð nauðg­un­ar­mála hjá lög­reglu og ákæru­valdi (2007). Þannig verði hægt að tryggja betur gæði rann­sóknar frá því rann­sókn hefst uns henni lýkur. Með gát­listum og verk­ferlum verði meðal ann­ars leit­ast við að tryggja að skýrslu­tökur upp­fylli gerðar kröfur. T.d að bera skuli fram­burð sak­born­ings undir brota­þola að jafn­aði. Þannig skipti ekki höf­uð­máli hvaða lög­reglu­maður taki fyrstu skýrslu eða komi að rann­sókn máls í upp­hafi. Með sam­ræmdum gát­lista verði leit­ast við að girða fyrir mis­tök við rann­sókn og tryggja öflun sönn­un­ar­gagna. Að auki þarf að sam­ræma verk­ferla á milli lög­reglu­emb­ætta, meðal ann­ars til að tryggja sam­ræmi í öflun og grein­ingu beinna og óbeinna sönn­un­ar­gagna, t.d. tölvu- og síma­gagna.“

„Kvöldið áður en ég sagði frá mis­not­aði hann mig í sein­asta skiptið“

Mikil vonbrigði

Nið­ur­staða nefnd­ar­innar er fjöl­skyld­unni mikil von­brigði.

„Það voru okkur, fjöl­skyldu Helgu Elínar, mikil von­brigði að lesa ákvörðun nefnd­ar­innar um að vísa frá þeim hluta erindis okkar sem snýr beint að óvand­aðri rann­sókn lög­reglu. Veiga­miklum athuga­semdum um að rann­sókn­ar­heim­ildir lög­reglu hafi ekki verið nýttar, til­teknar kærur hafi ekki verið rann­sak­aðar saman og að ummæli sak­born­ings hafi ekki verið borin undir brota­þola er vísað frá á grunni þess að athuga­semd­irnar lúti að rann­sókn máls og það sé ekki hlut­verk nefnd­ar­innar að end­ur­skoða rann­sókn mála hjá lög­reglu. Þeim lið kvört­unar minnar er lýtur að grund­velli nið­ur­fell­ingar máls­ins (ósann­reynt tíma­vinnu­skjal, fram­burður minn­is­lausra vitna o.fl.) hjá rík­is­sak­sókn­ara er vísað frá á grunni þess að nefndin hafi heldur ekki það hlut­verk að end­ur­skoða ákvörðun hand­hafa ákæru­valds um hvort ákæra er gefin út í ein­staka málum,“ stendur meðal ann­ars í yfir­lýs­ingu sem fjöl­skyldan sendi Mannlífi fyrir stundu.

Skora á dómsmálaráðherra

Í yfir­lýs­ing­unni skorar fjöl­skyldan einnig á dóms­mála­ráð­herra, Sigríði Á. Andersen, að beita sér fyrir því að lögum sé fylgt þegar kemur að málum þar sem emb­ætt­is­maður er sak­felldur um brot í starfi eða kærður fyrir alvar­leg brot, líkt og kyn­ferð­is­brot.

„Við fjöl­skylda Helgu Elínar, viljum skora á dóms­mála­ráð­herra, Sigríði Á. Andersen, sem er yfir­maður lög­reglu­mála í land­inu, að beita sér fyrir því að innan lög­regl­unnar starfi ein­göngu þeir sem upp­fylli skil­yrði lög­reglu­laga nr. 90/1996 en í lið 28a. gr. lag­anna um hæfi segir að: „Engan má skipa, setja eða ráða til starfa hjá lög­reglu sem hefur gerst sekur um refsi­vert athæfi sem telja má sví­virði­legt að almenn­ings­á­liti eða sýnt af sér hátt­semi sem getur rýrt það traust sem starfs­menn lög­reglu verða almennt að njóta“.

Við teljum að við­kom­andi lög­reglu­maður sem varð upp­vís að því að segja ósatt í dóms­máli gegn honum árið 2005 og hafi eftir það verið kærður í þrí­gang fyrir kyn­ferð­is­brot gegn börnum geti ekki upp­fyllt þessi skil­yrði lög­reglu­lag­anna. Lög­reglu­mað­ur­inn nýtur ein­fald­lega ekki traust og virð­ingar í sam­fé­lag­inu.“

„Við krefjumst breytinga“

Nefnd um eft­ir­lit með lög­reglu fer ekki með ákæru­vald, en fjöl­skylda Helgu skorar á Sigríði Á. Andersen að bæta úr því.

„Ef nefnd­ina skortir laga­heim­ildir til að geta beitt sér af fullri í hörku málum er varða öryggi almenn­ings gagn­vart lög­reglu og eft­ir­liti með lög­reglu, þá skorum við á dóms­mála­ráð­herra að bæta úr því,“ stendur í yfir­lýs­ing­unni. Jafn­framt krefst fjöl­skyldan breyt­inga er varðar með­ferð kyn­ferð­is­brota­mála innan rétt­ar­kerf­is­ins.

„Við viljum að tími afskipta­leysis, áhuga­leysis, sam­trygg­ingar og þögg­unar í með­ferð kyn­ferð­is­brota­mála sé lið­inn. Við krefj­umst við­ur­kenn­ingar á þeim mis­tökum sem gerð voru við rann­sókn kyn­ferð­is­brota­mál­anna sem við­kom­andi lög­reglu­maður var kærður fyrir. Við krefj­umst breyt­inga.“

„Þetta virð­ist vera tækni og þessi tækni heitir þöggun“

Tók fjóran og hálfan mánuð að fá niðurstöðu

Í reglum um Nefnd um eft­ir­lit með lög­reglu kemur fram að nefndin skuli hraða með­ferð máls eftir því sem kostur er og að jafn­aði ljúka með­ferð þess innan mán­aðar frá mót­töku til­kynn­ingar. Samkvæmt skrif­legum svörum frá Drífu Kristínu Sig­urð­ar­dóttur, lög­fræð­ingi hjá nefnd­inni, til Mannlífs hafa á árinu 2018 að með­al­tali liðið 67 dagar frá því að nefndin hefur tekið á móti erindi og þar til hún hefur lagt mat á það og komið því til með­ferðar réttum stað.

Halldóra Bald­urs­dóttir, móðir Helgu Elínar, sendi erindi til nefnd­ar­innar þann 14. febr­úar síð­ast­lið­inn. Máls­númer barst henni þann 6. apríl. Halldóra fékk nið­ur­stöðu nefnd­ar­innar í gær, mánu­dag­inn 25. júní. Það liðu því fjórir og hálfur mán­uður síðan hún sendi erindið. Aðspurð um þann langa tíma sem Halldóra og dóttir hennar hafa þurft að bíða eftir afgreiðslu segir Drífa ekki geta tjáð sig við fjöl­miðla um ein­staka mál.

Lesa má niðurstöðu nefndarinnar með því að smella á hlekkinn hér fyrir neðan:

NEL 18020004_ákvörðun 31.2018, dags. 25.6.2018

„Tími þagnar og afvega­leið­inga er lið­inn. Við krefj­umst breyt­inga“

Yfirlýsingu Halldóru Baldursdóttur og fjölskyldu hennar má lesa í heild sinni hér fyrir neðan:

Mos­fellsbæ 26.06.2018
Yfirlýsing vegna ákvörðunar NEL og áskorun til dómsmálaráðherra

Í gær barst okkur ákvörðun NEL, nefndar um eft­ir­lit með lögreglu vegna kvörtunar okkar frá 14. febrúar 2018. Í erind­inu var óskað eftir að nefndin tæki til skoð­unar málsmeð­ferð kyn­ferð­is­brota­kæru á hendur starf­andi lögreglu­manni og farið fram á úrbætur.

Það voru okkur, fjölskyldu Helgu Elínar, mikil von­brigði að lesa ákvörðun nefnd­ar­innar um að vísa frá þeim hluta erindis okkar sem snýr beint að óvand­aðri rannsókn lögreglu. Veiga­miklum athuga­semdum um að rannsóknar­heim­ildir lögreglu hafi ekki verið nýttar, til­teknar kærur hafi ekki verið rann­sak­aðar saman og að ummæli sak­born­ings hafi ekki verið borin undir brota­þola er vísað frá á grunni þess að athuga­semd­irnar lúti að rannsókn máls og það sé ekki hlut­verk nefnd­ar­innar að end­ur­skoða rannsókn mála hjá lögreglu. Þeim lið kvörtunar minnar er lýtur að grund­velli nið­ur­fell­ingar málsins (ósann­reynt tímavinnu­skjal, fram­burður minn­is­lausra vitna o.fl.) hjá ríkissaksóknara er vísað frá á grunni þess að nefndin hafi heldur ekki það hlut­verk að end­ur­skoða ákvörðun hand­hafa ákæru­valds um hvort ákæra er gefin út í ein­staka málum.

Nefnd um eft­ir­lit með lögreglu tekur heldur ekki afstöðu til athuga­semda um að sak­born­ingur hafi farið með á rannsóknar­vett­vang, þar sem brotið átti sér stað og að vitna­skýrslur hafi verið teknar á vinnu­stað vinar sak­born­ings. Þessum athuga­semdum vísar nefndin til Lögreglu­stjórans á Vest­ur­landi til með­ferðar. Vísað er til þess að við­kom­andi kvörtun á starfs­að­ferðum lögreglu heyri undir við­kom­andi lögreglu­stjóra en ekki nefnd­ina. Fram sé komin full­nægj­andi kvörtun í skiln­ingi lögreglu­laga sem lögreglu­stjóra ber að taka afstöðu til í sam­ræmi við lög um réttindi og skyldur starfs­manna ríkis­ins. Í þessu sam­hengi er vert að benda á að lögreglu­mað­ur­inn sem um ræðir starfar í dag undir yfir­stjórn lögreglu­stjórans á höfuð­borg­ar­svæð­inu.

Í erind­inu gerðum við m.a. athuga­semdir við það að lögreglu­mað­ur­inn sem við kærðum hafi ekki verið leystur undan vinnu­skyldu á meðan rannsókn málsins fór fram og hafi haft útkalls­skyldu í okkar hverfi og þar með hafi Helga Elín, sem þá var barn að aldri verið sett í þá stöðu að geta ekki með nokkru móti kallað eftir aðstoð lögreglu ef á þyrfti að halda. Nefndin telur þessa ábend­ingu mik­il­væga, og hefur ákveðið að taka til athug­unar verk­lag og verk­ferla er varða ákvarð­anir innan lögregl­unnar um störf og starfs­skyldur þeirra starfs­manna lögregl­unnar sem sak­aðir eru um refsi­verð afbrot. Jafn­framt hefur nefndin ákveðið að sam­hliða verði kallað eftir nánari upplýsingum og gögnum um ákvarð­anir að þessu leyti sem teknar voru við með­ferð þessa máls. Það er okkar mat að þessi staða megi aldrei koma upp aftur, að barn verði aldrei sett í þessa óvið­un­andi stöðu sem Helga Elín var sett í.

Við fjölskylda Helgu Elínar, viljum skora á dómsmálaráðherra, Sigríði Á. Andersen, sem er yfir­maður lögreglumála í land­inu, að beita sér fyrir því að innan lögregl­unnar starfi eingöngu þeir sem upp­fylli skil­yrði lögreglu­laga nr. 90/1996 en í lið 28a. gr. lag­anna um hæfi segir að: „Engan má skipa, setja eða ráða til starfa hjá lögreglu sem hefur gerst sekur um refsi­vert athæfi sem telja má svívirði­legt að almenn­ingsáliti eða sýnt af sér háttsemi sem getur rýrt það traust sem starfs­menn lögreglu verða almennt að njóta„.

Við teljum að við­kom­andi lögreglu­maður sem varð uppvís að því að segja ósatt í dómsmáli gegn honum árið 2005 og hafi eftir það verið kærður í þrígang fyrir kyn­ferð­is­brot gegn börnum geti ekki upp­fyllt þessi skil­yrði lögreglu­lag­anna. Lögreglu­mað­ur­inn nýtur ein­fald­lega ekki traust og virð­ingar í samfélag­inu.

Einnig krefj­umst við afstöðu dómsmálaráðherra sem yfir­valds lögreglumála til þeirra athuga­semda sem fram hafa komið um óvand­aða rannsókn lögreglu sem nefnd um eft­ir­lit með lögreglu vísar frá en vísar ekki til úrlausnar.
Við væntum þess að dómsmálaráðherra beiti sér fyrir því sam­hliða nefnd um eft­ir­lit með lögreglu að lögreglu­stjórar þeirra emb­ætta sem málið varðar sann­ar­lega í þessu til­viki, lögreglu­stjórinn á höfuð­borg­ar­svæð­inu og lögreglu­stjórinn á Vest­ur­landi ræki þá skyldu sína að taka afstöðu til þess hvort til­efni sé til að leysa við­kom­andi starfs­mann lögreglu frá emb­ætti eða hvort gera þurfi breyt­ingu á vinnu­skyldum eða verk­efnum við­kom­andi starfs­manns lögreglu í sam­ræmi við upp komin kyn­ferð­is­brotamál þar sem sak­born­ingur er starfs­maður lögreglu. Við treystum því einnig að hið sama gildi í öðrum málum eftir atvikum þar sem grunur vaknar um refsi­verð afbrot þar sem sak­born­ingur er starfs­maður lögreglu.

Ef nefnd­ina skortir laga­heim­ildir til að geta beitt sér af fullri í hörku málum er varða öryggi almenn­ings gagn­vart lögreglu og eft­ir­liti með lögreglu, þá skorum við á dómsmálaráðherra að bæta úr því.

Við viljum að tími afskipta­leysis, áhuga­leysis, sam­trygg­ingar og þöggunar í með­ferð kyn­ferð­is­brotamála sé lið­inn. Við krefj­umst við­ur­kenn­ingar á þeim mistökum sem gerð voru við rannsókn kyn­ferð­is­brotamálanna sem við­kom­andi lögreglu­maður var kærður fyrir. Við krefj­umst breyt­inga.

Halldóra Bald­ursdóttir

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Málið kemur upp eftir stjórnarskipti í Serbíu, þar sem barátta gegn spillingu var í forgrunni
Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð