Fara í efni
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
„Fer svo heim að taka upp podcast þar sem hann titlar sig Ritstjórann“
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
Skoðun

Nakin og blaut í Reyn­is­fjöru

Fólk

Vigtuð viku­lega og sett á mat­ar­plan aðeins tíu ára gömul

Heimur

Macaulay Culkin snýr aftur sem Kevin McCallister

Innlent

Lög­reglan lýsir eftir Nikulási Snorra­syni

Heimur

„Guðfaðir gervi­greindar“ varar við yfir­vof­andi stór­slysi

Heimur

Faðir skaut eig­in­konu sína og þrjú ung börn til bana

Pólitík

„Af tvennu illu er skárra að böð­ull­inn sé ekki í felu­litum frjáls­lyndis“

Heimur

Banda­rísk stjórn­völd birta þrjú ný mynd­skeið af óþekktum fljúg­andi fyr­ir­bærum

Heimur

Kærasti Heidi Gardner lát­inn, 43 ára að aldri

Innlent

Ók á 126 km hraða þar sem hámarkið er 80

Ostabakki í partýið

Full­komn­aðu osta­bakk­ann með þessu góð­gæti.

|
|
Smjör­k­urnar eru fyrir miðju. Vínberin neðst til vinstri og krydd­m­aukið efst til hægri.

ANANAS-KRYDDMAUK

Ananas krydd­mauk er mjög gott með ostum, það passar líka vel sem með­læti með kjöti og ind­verskum mat. Prófið að setja svo­lítið af anana­skrydd­m­auki á skinku­pítsu, það smakk­ast mjög vel.

olía til steik­ingar

4-6 skalot­laukar, smátt saxaðir

2 rauð chili-aldin, smátt skorin

1 ferskur ananas, afhýddur, kjarn­hreins­aður og skor­inn í bita

1 1/2 dl púð­ur­sykur

1 dl hrís­grjóna­edik

1 msk. ferskt engi­fer, fínt rifið

1 1/2 tsk. kar­rí­duft

3-4 dl vatn, meira ef þarf

1/2 tsk. gróft sjáv­ar­salt

nýmal­aður svartur pipar

Hitið olíu á pönnu og steikið lauk­inn við með­al­hita þannig að hann verði mjúkur og glær, en brenni ekki. Bætið chili saman við ásamt ananas. Steikið í 5-10 mín. Setjið þá púð­ur­sykur og hrís­grjóna­edik saman við ásamt engi­fer og kar­rí­dufti. Bætið vatni út í og látið sjóða í 30-40 mín. Eða þar til ananas­inn er orð­inn vel mjúkur og allt vatnið gufað upp. Mögulega þarf að bæta vatni á pönn­una til þess að maukið nái að sjóða nógu lengi. Bragð­bætið með salti og pipar.

KRYDDLEGIN VÍNBER

u.þ.b. 400 g stein­laus vín­ber

3 dl hvítvín

2 msk. ljóst bals­amedik

1 msk. sykur

3 greinar ferskt rós­marín

3-4 greinar ferskt tímían

Skolið vín­berin og þerrið. Setjið þau í krukku með rest­inni af hrá­efn­inu og látið standa í kæli í 1-2 sól­ar­hringa. Berin geym­ast í allt að viku í kæli. Þegar búið er að borða öll berin má gjarnan nota krydd­lög­inn í sósur eða súpur eða setja hann í frysti­poka og nota síðan í mat­ar­gerð.

SMJÖRKEX MEÐ DÖÐLUM OG PEKANHNETUM

u.þ.b. 30 stk.

Mjög fljót­legt er að skella í þetta kex, sér­stak­lega ef notað er ófrosið smjör­deig sem hægt er að kaupa útflatt og upprúllað. Það er best nýbakað eða sam­dæg­urs því það geym­ist ekk­ert sér­stak­lega vel.

270 g smjör­deig

6 döðlur, smátt skornar

20-30 g pek­an­hnetur, gróft skornar

1 eggjarauða

gróft sjáv­ar­salt

Stillið ofn á 180°C. Hitið pönnu og ristið pek­an­hnet­urnar. Fletjið deigið út ef þarf, stráið döðlum og pek­an­hnetum yfir og brjótið í tvennt. Rúllið létt með köku­kefli yfir deigið þannig að það fest­ist vel saman. Pikkið með gaffli og skerið út kex­kökur. Penslið með eggjar­auðu, stráið svolitlu salti yfir og bakið í u.þ.b. 10 mín. eða þar til kök­urnar hafa tekið fal­legan lit.

Texti / Kristín Dröfn Ein­ars­dóttir
Myndir / Bragi Jós­efs­son
Stílisti / Ólöf Jakobína Ernu­dóttir

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

Heimur

Hin sænska Karin hvarf áður en hún átti að sækja börnin sín

Sendi dularfull smáskilaboð viku fyrir hvarfið
Heimur

Þrír féllu þegar dróni réðst á bíl við mat­ar­út­hlutun á Gaza

Fólk

Fjórum árum eftir að heil­inn hót­aði upp­sögn á Karl Ágúst tvö verk á sviði

Heimur

Lögregla fjar­lægði mót­mæl­anda eftir að hafa rugl­ast á áletrun á bol hans

Fólk

Af hverju getur lyktin af mak­anum verið svona ómót­stæði­leg?

Mannlífið

Myndir

Novasvellið rís á Ing­ólfs­torgi

Jólin nálgast óðfluga

Opn­un­ar­veisla Bryggju­húss­ins að hefj­ast

Mæður sem taka sjálfur eiga dætur sem vilja frekar fegr­un­ar­að­gerðir

Hvers vegna eru börn oft að segja þessa setn­ingu?

Bæj­ar­há­tíðin Í tún­inu heima stendur með miklum blóma í Mos­fellsbæ

Bangsa­fé­lagið heldur upp á afmæli með stór­há­tíð og nýrri keppni