Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Velgengni og velmegun Vals

Sagan á bak­við hinn mikla upp­gang Knatt­spyrnu­fé­lags­ins Vals á und­an­förnum árum er stór og mikil.

Velgengni og velmegun Vals
Mynd / Bára Huld Beck

Staðan félags­ins í dag er þannig að þrátt fyrir miklar áskor­anir og erf­ið­leika hefur stofnun Vals­manna hf., og þær ákvarð­anir félags­ins að ráð­ast í fast­eigna­við­skipti á Hlíð­ar­enda, skilað því að Knatt­spyrnu­fé­lagið Valur er lang­rík­asta íþrótta­fé­lag á Íslandi.

Upp­hæð­irnar sem runnið hafa inn til Knatt­spyrnu­fé­lags­ins Vals frá styrkt­ar­fé­lögum á und­an­förnum árum hlaupa á hund­ruð millj­ónum króna alls og hafa gert Vals­mönnum kleift að vera ann­að­hvort bestir eða á meðal þeirra bestu í öllum helstu hóp­í­þróttum beggja kynja hér­lendis: knatt­spyrnu, hand­bolta og körfu­bolta.

Heim­ild­ar­menn Kjarnans segja að virði þeirra heild­ar­eigna sem sitji eftir vegna alls þessa ævin­týris sé nú áætlað um fimm millj­arðar króna.

Hægt hefur verið að semja við eft­ir­sótta leik­menn, borga þeim laun sem aðrir geta ekki keppt við og jafn­vel boðið hluta þeirra að búa í ein­hverjum þeirra íbúða sem Vals­sam­steypan á enn á Vals­svæð­inu. Þetta er bæði gert með fjár­munum sem runnið hafa til Vals vegna fjár­fest­inga á Hlíð­ar­enda­svæð­inu en auk þess hafa sumir mjög fjár­sterkir stuðn­ings­menn tekið að sér að greiða kostnað við valda, og dýra leik­menn, úr eigin vasa.
Þá hefur Valur getað fjár­fest í afreks­stefnu sem er lík­lega sú metn­að­ar­fyllsta á Íslandi og dregur að leik­menn sem alist hafa upp í öðrum íþrótta­fé­lögum. Hæfir þjálf­arar sækja í að vinna hjá Val vegna þess að aðstaðan hjá félag­inu er ein­stök, æfinga­tím­inn er boð­legri en víða ann­ars staðar og Valur getur alltaf borgað laun á réttum tíma, sem er sann­ar­lega ekki eitt­hvað sem er raunin hjá mörgum öðrum íþrótta­fé­lögum.

Stefna að því að vera stór­veldi í öllum hóp­í­þróttum
Árang­ur­inn hefur ekki látið á sér standa og skýrasta birt­ing­ar­mynd þess er karla­lið félags­ins í knatt­spyrnu sem hefur unnið fjóra titla á fjórum árum, þar á meðal Íslands­meist­ara­tit­il­inn síð­ustu tvö ár. Þótt hökt hafi verið á gengi liðs­ins í fyrstu umferð­unum í ár blasir við að leik­manna­hóp­ur­inn sem var settur saman er þess eðlis að stefnt var að árangri í Evr­ópu­keppni, auk sig­urs í öllum inn­lendum keppnum. Jafn­aug­ljóst er á kvenna­liði Vals í knatt­spyrnu, sem er þétt­skipað risa­nöfnum, að það stefnir að því að vinna allt sem um er keppt í sumar.

Karla- og kvenna­lið Vals hafa landað stórum titlum, bæði Íslands- og bik­ar­meist­aratitlum, á und­an­förnum árum og í ár varð kvenna­lið Vals Íslands-, bikar- og deild­ar­meist­ari í körfu­bolta með Helenu Sverr­is­dóttur, bestu körfu­bolta­konu lands­ins, í far­ar­broddi. Karlalið Vals í körfu­bolta hélt sæti sínu í efstu deild og við­mæl­endur Kjarnans sem þekkja vel til í körfu­bolta­heim­inum búast við að liðið styrki sig veru­lega fyrir næsta tíma­bil til að keppa ofar í deild­inni.

Millj­arða­eignir
Sjálfs­eigna­stofn­unin Hlíð­ar­endi, sem hefur tekið við hlut­verki Vals­manna hf., á að geta stutt gríð­ar­lega vel við bakið á félag­inu í fram­tíð­inni ef haldið er vel á spil­unum. Stofn­unin átti, sam­kvæmt árs­reikn­ingi, 68,5 pró­sent hlut í Vals­mönnum og áður­nefnt Vals­hjarta 10,7 pró­sent hlut í því félagi í árs­lok 2017. Eign­ar­hlutur Hlíð­ar­enda ses hefur auk­ist síðan þá enda hafa fleiri útistand­andi hlut­hafar Vals­manna selt sinn hlut. Það sem eftir stendur er að mestu minni hlutir en virði hvers telst í tugum þús­unda. Mikil handa­vinna fylgir því að gera þá alla upp og ekki hefur verið lagt í hana. Eignir Hlíð­ar­enda ses voru bók­færðar á 1,6 millj­arð króna í árs­lok 2017 og eigið fé stofn­un­ar­innar var 1,3 millj­arður króna. Eignir Vals­manna hf. voru á sama tíma bók­færðar á 2,5 millj­arða króna og eigið fé félags­ins var þá sam­tals 722 millj­ónir króna. Þá eiga Valsmenn helm­ings­hlut í hlut­deild­ar­fé­lag­inu Hlíð­ar­fæti en hinn helm­ing­ur­inn var seldur til fjár­festa sem standa að félag­inu F-reitur ehf. á árinu 2017. Eignir Hlíð­ar­fóts voru metnar á 722 millj­ónir króna í árs­lok 2017 en félagið að fullu skuld­sett á móti.

Valsmenn hafa selt bygg­inga­rétti, byggt á Hlíð­ar­enda­svæð­inu, ann­að­hvort sjálfir eða í sam­vinnu við aðra, hafa gert samn­inga við Reykja­vík­ur­borg sem tryggt hafa ótrú­lega upp­bygg­ingu mann­virkja á svæði Vals og sitja enn á bygg­inga­rétti sem á eftir að selja.
Heim­ild­ar­menn Kjarnans segja að virði þeirra heild­ar­eigna sem sitji eftir vegna alls þessa ævin­týris sé nú áætlað um fimm millj­arðar króna. Á móti þeim eru þó ein­hverjar skuldir. Það er ágætis ávöxtun á þeim 43 millj­ónum króna sem greiddar voru inn í byrjun.
Um leið hafa Valsmenn líka skilað ýmsu til baka til sam­fé­lags­ins. Félagið greiddi Reykja­vík­ur­borg háar fjár­hæðir fyrir bygg­ing­ar­rétt­inn á sínum tíma og hefur auk þess greitt um 400 millj­ónir króna í skatta á síð­ustu árum.

Sagan öll er rakin í nýj­ustu útgáfu Mannlífs. Einnig er hægt að lesa hana á vef Kjarnans.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
6
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Pólitík

Rússar undr­andi á Þorgerði Katrínu

Deilan hófst eftir að Heimir Már Pétursson hvatti til að hermenn yrðu sendir til Úkraínu og kjarnorkuvopn undirbúin.
Innlent

Getur munað rúmum 22 þús­und krónum á umfelgun fólks­bíls

Innlent

Kona á fimm­tugs­aldri ákærð fyrir að aug­lýsa vændi á Akureyri

Heimur

Flug­velli í Póllandi lokað eftir sprengju­hótun

Peningar

Samherji hyggst reka vinnu­búðir með gist­ingu

Innlent

Innlent

Fór í búð í Graf­ar­vogi en end­aði í fanga­geymslu

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl