Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Taktu Eurovision-veitingarnar upp á næsta stig

Nú eru margir Íslend­ingar í óða­önn að und­ir­búa tryllt Eurovision-partí enda langt síðan atriði frá Íslandi hefur kom­ist áfram í loka­keppn­ina. En það er ekki nóg að klæða sig í svartan bún­ing með göddum og leður­ólum því veit­ing­arnar þurfa að vera í takt og okkur á Gest­gjaf­anum finnst þær reyndar mik­il­væg­asti hluti kvölds­ins.

Taktu Eurovision-veitingarnar upp á næsta stig
|afmæli

Óþarfi er samt að hafa hlut­ina of flókna og þess vegna mælum við með að útbúa ýmis mauk og salöt sem sett eru ofan á brauð eða svo­kall­aðar brúsk­ettur. En þær eru gerðar úr snittu­brauði (bagu­ette) sem smurt er á olíu, áður en það fer undir grillið í ofn­inum í nokkrar mín­útur og svo er sár­inu á hálfum hvít­lauks­geira nuddað létt yfir og þá er bara að raða brauð­sneið­unum á miðj­una á upp­dúk­uðu borði og setja alls­konar álegg, mauk, salöt og ídýfur í kring. Þá má gleðin byrja.

Hér eru fjórar afar skemmti­legar upp­skriftir sem gaman er að bjóða upp á með öllu hinu álegg­inu og spurn­ing hvort við lendum ekki bara í fjórða sæti þ.e.a.s. ef Ísland vinnur ekki. Gleði­lega Eurovision helgi!

Bakaður camembert með eplum og hnetum

1 stk. camembert-ostur
½  grænt epli, skorið í litla bita
¼  tsk. kanill
u.þ.b. 1 dl gróft saxaðar hnetur, t.d. pek­an­hnetur og val­hnetur
4-6 msk. hlynsíróp, eins má nota hun­ang
örlítið sjáv­ar­salt
nýmal­aður svartur pipar

Bakaður camembert með eplum og hnetum.

Hitið ofn í 180°C. Setjið ost­inn í lítið eld­fast mót. Dreifið epla­bitum yfir ásamt kanil og hnetum. Dreypið 3-4 msk. af hlynsírópi yfir, ásamt salti og pipar. Bakið í 15-20 mín. Hellið gjarnan 1-2 msk. til við­bótar af hlynsírópi yfir og berið strax fram með góðu brauði eða kexi.

Hummus með bökuðum hvítlauk

2 stórir heilir hvít­laukar
1 dós kjúklinga­baunir
u.þ.b. ½ dl góð ólífu­olía
safi úr ½ -1 sítrónu
1 msk. sesamsmjör (tahini)
gróft sjáv­ar­salt
nýmal­aður svartur pipar

Hummus með bök­uðum hvít­lauk.

Hitið ofn í 180°C. Skerið topp­inn ofan af hvít­lauknum þannig að rétt grilli í rifin. Pakkið hvorum hvít­lauk fyrir sig inn í álp­appír með 1 msk. af olí­unni og salti og pipar. Bakið í u.þ.b. 45 mín. Takið þá út og látið kólna þannig að hægt sé að hand­leika hvít­l­auk­inn. Kreistið rifin út úr hýð­inu og setjið í mat­vinnslu­vél ásamt rest­inni af hrá­efn­unum, nema því sem eftir er af olí­unni. Látið vél­ina ganga og hellið olí­unni saman við þar til maukið er hæfi­lega þykkt. Bragð­bætið með salti og pipar, sítrónusafa eða tahini eftir smekk.

Satay-kjúklingasalat

500 g kjúklinga­kjöt, t.d. úrbeinuð læri
2-3 vor­laukar, smátt saxaðir
1 dl kjúklinga­soð
1 dl kókos­mjólk
1 dl hnet­ums­jör
3 msk. sojasósa
safi úr 1 límónu
4 msk. púð­ur­yskur
1/2 tsk. cayenne-pipar
50 g salt­hnetur, saxaðar gróft
1 rautt chili-aldin, fræ­hreinsað og smátt saxað
1 búnt stein­selja, söxuð
hnefa­fylli ferskur kórí­ander, smátt saxaður (má sleppa)

Satay-kjúklinga­salat.

Raðið kjúklingi í mót og dreifið vor­lauk yfir. Setjið rest­ina af hrá­efn­unum í mat­vinnslu­vél og blandið þar til allt er slétt og fellt. Hellið sós­unni yfir kjúkling­inn og eldið hann í u.þ.b. 40 mín. eða þar til hann er eld­aður í gegn. Látið kjúkling­inn kólna og skerið síðan í litla bita. Setjið sós­una sem eftir er í mót­inu í pott og sjóðið hana niður við vægan hita þar til u.þ.b. 1/2-1 dl er eftir. Látið kólna. Blandið saman kjúklingi, chili-ald­ini, sós­unni, salt­hnetum og krydd­jurtum og bragð­bætið með salti og pipar ef þarf. Berið gjarnan fram með mangói og fersku græn­meti, ásamt góðu brauði eða kexi.

Rjómaostur með reyktum laxi

100 g rjóma­ostur, við stofu­hita
1 dl grísk jógúrt
100 g reyktur lax, skor­inn smátt
3 vor­laukar, smátt saxaðir
hnefa­fylli ferskt dill, smátt saxað
væn skvetta af tabasco-sósu
2 msk. sítrónu­safi
2 tsk. worcestershire-sósa
2 tsk. pip­ar­rót­ar­mauk
gróft sjáv­ar­salt
nýmal­aður svartur pipar

Rjóma­ostur með reyktum laxi.

Setjið allt saman í skál og hrærið vel. Bragð­bætið með salti og pipar og sítrónusafa eins og þarf. Berið fram með góðu brauði eða kexi.

Upp­skriftir / Kristín Dröfn Ein­ars­dóttir
Myndir / Hákon Davíð Björns­son
Stílisti / Hanna Ingi­björg Arn­ars­dóttir

Sjá einnig: Heit sælkera ostaídýfa í partíið
Sjá einnig: Ostabakki í partýið

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
6
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fór í búð í Graf­ar­vogi en end­aði í fanga­geymslu

Heimur

Geymdi milljón myndir og mynd­skeið af mis­notkun eig­in­kon­unnar

Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Mannlífið

Myndir
Mannlífið

Novasvellið rís á Ing­ólfs­torgi

Jólin nálgast óðfluga
Mannlífið

Opn­un­ar­veisla Bryggju­húss­ins að hefj­ast

Mannlífið

Mæður sem taka sjálfur eiga dætur sem vilja frekar fegr­un­ar­að­gerðir

Mannlífið

Hvers vegna eru börn oft að segja þessa setn­ingu?

Mannlífið

Bæj­ar­há­tíðin Í tún­inu heima stendur með miklum blóma í Mos­fellsbæ

Mannlífið

Bangsa­fé­lagið heldur upp á afmæli með stór­há­tíð og nýrri keppni