Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Hvað er hægt að lesa úr líkamstjáningu?

Allir tjá sig með lík­am­anum á ein­hvern hátt og alþjóð­legu svip­brigðin sem flestir skilja er gleði, leiði, hræðsla, and­styggð, undrun og reiði. Gæta verður að aðstæðum þegar greina á lík­ams­tján­ingu, þar sem ein­hver sem nuddar augu sín getur verið með ert­ingu í auga í stað þess að við­kom­andi sé þreyttur eða í upp­námi. Eins getur sá sem er með kross­lagðar hendur verið að reyna að halda á sér hita frekar en að vera í varn­ar­stöðu. Hafa verður í huga erfitt getur verið að lesa í lík­ams­tján­ingu en hér eru nokkrar leið­bein­ingar.

Hvað er hægt að lesa úr líkamstjáningu?

Ef viðkomandi …

… horfir til hægri og upp getur það verið merki um lygar. Þessi augn­hreyf­ing er tengd hægra heila­hvelinu sem er ímynd­unar- og sköp­un­ar­heila­hvelið. Hún gæti verið merki um til­bún­ing ef mann­eskjan á að vera að segja frá stað­reyndum.

… horfir til hægri og niður efast við­kom­andi mögu­lega um eigin til­finn­ingar. Þessi augna­gota er tengd sköp­un­ar­gleð­inni en þetta er ekki merki um upp­spuna. Aðrar hreyf­ingar lík­am­ans segja meira til um þetta merki.

… horfir beint í augu við­mæl­anda á meðan talað er, er það yfir­leitt merki um sann­sögli. Hins vegar eru vanir lygarar gjarnir á að horfa beint í augu við­mæl­anda einmitt út af þessu.

… brosir með hallandi höfuð og horfir upp er það merki um stríðni og glettni.

… bítur í vör sína getur það verið merki um tauga­spennu eða stress. Það gæti verið vegna mik­illar ein­beit­ingar en lík­legra er það vegna kvíða.

… er með kross­lagðar hendur þá getur hann eða hún verið í varn­ar­stöðu eða treg(ur) til ein­hverra gjörða. Þetta getur líka verið merki um að við­kom­andi sé að búa til vegg milli sín og við­mæl­anda. En orsak­irnar geta verið marg­vís­legar. Allt frá leið­indum til fjand­skapar eða jafn­vel að við­kom­andi sé of þreyttur til að sýna mik­inn áhuga. En fólk getur líka kross­lagt hendur þegar því er kalt.

… krossar, önnur höndin yfir búk­inn og heldur í hina sem liggur niður með hlið búks­ins, er það merki um óró­leika. Kvenmenn gera þetta miklu frekar en karl­menn og þetta er varn­ar­merki, eins ef við­kom­andi umfaðmar sjálfa/n sig.

… bendir á við­mæl­anda er það merki um ágengni eða áherslu. Það er talið vera merki um að vera til­bú­inn í átök. Algengt er að eldra fólk geri þetta við það yngra. Ef sá sem bendir er að benda á aðra eldri mann­eskju er það talið bera merki um hroka og litla sjálfs­stjórn. Ef mann­eskjan bendir og blikkar augum á sama tíma er það hins vegar merki um við­ur­kenn­ingu.

… gerir hring með vísi­fingri og þum­al­putta er það merki um ánægju og að allt sé í lagi. Þetta merki er svipað og þegar maður setur báða þumla upp í loft. Þetta getur líka merkt að eitt­hvað sé akkúrat eins og það á að vera.

… klórar sér í nef­inu á meðan talað er, er merki um lygar eða ýkjur. Að klóra sér í nef­inu er varn­ar­merki, nema auð­vitað ef við­kom­andi virki­lega klæjar í nefið. Þetta er oft gert þegar verið að rifja upp atburði.

… borar í nefið er það merki um að hann eða hún sé að dreyma dagdrauma, ekki að fylgj­ast nógu vel með eða undir álagi. Algengt er að full­orðnir bori í nefið en það er ekki talið hjálpa manni í félags­líf­inu og er því yfir­leitt gert í ein­rúmi. Hins vegar ef fólk gerir það innan um aðra getur það verið merki um mis­mun­andi hug­ar­á­stand en ekk­ert af þessu er jákvætt.

… er með kross­lagðar fætur getur það verið merki um lít­inn áhuga eða varúð sem getur stafað af ógn eða óör­yggi. Hins vegar er þetta stell­ing sem margir sitja í og því er vert að hafa vara á þegar greina á hana.

… situr með útglennta fætur er það merki um hroka og getur stell­ingin verið álitin kyn­ferð­is­leg. Karlmenn eiga það oftar til að sitja svona en kven­menn. Stell­ingin sýnir mikið sjálfs­ör­yggi og ekki er algengt að karl­menn sitji svona við form­lega atburði, þar sem hún er álitin kyn­ferð­is­leg. Stell­ingin lætur fólk líka líta út fyrir að vera stærra þar sem það tekur meira pláss. Ef hand­leggirnir eru einnig í opinni stell­ingu, eykur það á ímynd sjálfs­ör­ygg­is­ins.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Að lokinni fimm vikna þjálfun hafa nemendurnir réttindi til að kafa niður á 30 metra dýpi
Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Geðlæknirinn Haraldur lætur allt flakka
Myndir
Fólk

Óvenju­legt sölu­til­boð í Reykja­vík þar sem maka­skipti koma til greina

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Fólk

Fimm hlutir sem geta reynt á sam­bandið þegar mak­inn er með ADHD

Viðtal
Fólk

Ekkert minni konur en aðrar konur