Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Lögðu Pétursborg að fótum sér

Lögðu Pétursborg að fótum sér

Því miður urðu þau leiðu mis­tök við umbrot á 38.tbl. Vikunnar að kafli úr við­tali við Gerði Bolla­dóttur datt út. Hér birt­ist því við­talið í heild.

Gerður Bolladóttir, sópransöngkona og tónskáld, er nýkomin heim úr ferð til Rússlands þar sem hún kom fram á tónleikum í kastala í Pétursborg ásamt Alexöndru Chernyshovu, sópransöngkonu og tónskáldi. Gerður segir ferðina og tónleikana hafa verið alvörudívuupplifun og þær stöllur stefna að því að halda þessa tónleika fyrir íslenska áheyrendur fyrr en síðar.

En hver er bak­grunnur Gerðar og hvernig kom það til að hún tróð upp í Pét­urs­borg?

„Jú, jú, það stemmir, ég er ein af Bollastell­inu,“ svarar Gerður hlæj­andi þegar hún er spurð hvort hún sé ekki dóttir Bolla Gúst­avs­sonar, sókn­ar­prests í Laufási í Þing­eyj­ar­sýslu og seinna vígslu­bisk­ups, en þau systk­inin eru sex tals­ins og hafa mörg hver verið áber­andi í þjóð­fé­lag­inu. „Ég átti ynd­is­lega barn­æsku,“ heldur hún áfram. „Það var dásam­legt að alast upp á svona fal­legum stað og hafa mömmu og pabba alltaf heima. Það voru for­rétt­indi.“

Heillaðist af fiðluleik Guðnýjar

En hvernig stóð á því að Gerður lagði tón­list­ina fyrir sig, kom aldrei til greina að feta í fót­spor föður síns og fara í guð­fræði eins og sum systk­ini hennar hafa gert?

„Nei, það kom aldrei til greina,“ segir hún ákveðin. „Tón­list­ar­fer­ill­inn byrj­aði strax þegar ég var barn. Þá fór ég á tón­leika til Greni­víkur með mömmu og pabba og þar var Guðný Guð­munds­dóttir fiðlu­leik­ari í aðal­hlut­verki. Ég varð svo rosa­lega heilluð af hennar leik að ég til­kynnti það þegar við komum heim að ég vildi læra á fiðlu. Þá voru góð ráð dýr þar sem ekki var neinn fiðlu­kenn­ari í sveit­inni en það var samt ákveðið að ég fengi að læra á fiðlu, mamma og pabbi reyndu alltaf að koma til móts við það sem okkur systk­inin lang­aði til að gera þótt við værum sex. Þannig að ég byrj­aði að læra á fiðlu á Akureyri, fór þangað einu sinni í viku með þeim sem átti erindi þangað á hverjum tíma.

Þegar ég varð dálítið eldri kom bresk söng­kona til lands­ins, Antonia Ogonov­sky að nafni, og byrj­aði að kenna við Tón­list­ar­skól­ann á Akureyri. Þá var fólk farið að hafa það á orði að ég hefði ágæta rödd og ég var alltaf sísyngj­andi. Það var oft gert grín að því þar sem ég var svo upp­tekin af því að syngja að ef ég átti til dæmis að þeyta rjóma varð hann yfir­leitt að smjöri því ég gaulaði út í eitt og var ekki með hug­ann við það sem ég var að gera. Þegar ég var sautján ára fór ég svo í söng­tíma hjá Antoniu og féll alveg fyrir söngnum þannig að ég hætti bara að læra á fiðl­una og sneri mér að söngnum og hef verið að syngja síðan

„Það var oft gert grín að því þar sem ég var svo upp­tekin af því að syngja að ef ég átti til dæmis að þeyta rjóma varð hann yfir­leitt að smjöri því ég gaulaði út í eitt og var ekki með hug­ann við það sem ég var að gera.“

Svo fór ég nátt­úr­lega suður og fór í Söng­skól­ann í Reykja­vík og síðan í Tón­list­ar­skól­ann í Reykja­vík og útskrif­að­ist með burt­far­ar­próf árið 1995. Eftir það fór ég til Banda­ríkj­anna og lærði við  Indiana Uni­versity, School of Music sem þó nokkuð margir íslenskir söngv­arar hafa lært við, meðal ann­arra Bergþór Pálsson og Sólrún Braga­dóttir. Þetta þykir einn besti og virt­asti tón­list­ar­há­skóli í Banda­ríkj­unum þannig að ég var voða glöð að fá að læra þar.“

Fékk grænt ljós á lögin sín

Varstu þá bara í söng­námi eða lærð­irðu tón­smíðar þar líka? „Nei, það er nefni­lega málið, ég hef ekk­ert lært tón­smíðar,“ segir Gerður.

„Fyrir nokkrum árum síðan kom and­inn bara yfir mig. Ég hafði nátt­úr­lega alltaf haft mikla ást á ljóðum, kunni skóla­ljóðin utan að þegar ég var barn og þá byrj­aði ég svo­lítið að semja lög við ljóðin. Svo gerð­ist það þegar ég fór að kenna við Tón­list­ar­skóla hér í Reykja­vík og var að kenna ungum nem­endum á hljóð­færi og söng að ég fór aðeins að prófa að semja lög fyrir þau. Árið 2015 hefði pabbi orðið átt­ræður og mig lang­aði til að halda minn­ing­ar­tón­leika um hann. Og flytja á þeim tón­leikum stóran ljóða­flokk eftir hann sem Anna Þorvalds hafði samið tón­list við nokkrum árum áður. Þá hafði ég verið að starfa mikið með hörpu­leik­ara frá Belgíu og hún vissi af því að ég hafði verið að semja lög fyrir krakk­ana og spurði hvers vegna ég semdi ekki bara lag við ljóð eftir föður minn.

Mér fannst það frekar djörf til­laga en fór samt heim og valdi fal­legt ljóð eftir pabba, Lífið sækir fram, ég próf­aði að semja lag við það og þá bara kemur þetta fal­lega lag upp í koll­inn á mér og þá sá ég í fyrsta skipti að ég gat þetta. Þannig að ég fór að semja meira af lögum við ljóð og fann að mér fannst það bara mjög skemmti­legt. Ég samdi aðal­lega lög við ljóð eftir frænd­fólk mitt frá Sandi í Aðaldal en líka við eigin ljóð sem ég hafði verið að semja í gegnum tíð­ina. Ég kunni svo sem ekk­ert til verka þannig að ég lét Báru Gríms­dóttur fara yfir þessi lög og hún gaf mér grænt ljós á það að ég gæti alveg flutt þau á tón­leikum. Það varð úr að ég hélt tón­leika í Lista­safni Íslands 2017 þar sem ég flutti lög eftir sjálfa mig og fleiri sjálf­lærð tón­skáld.“

Aðdáendur báðu um eiginhandaráritanir

Þessir tón­leikar urðu til þess að Gerður bætti enn einni fjöður í hatt­inn og fór að syngja í óperu eftir Alexöndru Chernyshovu.

„Alex­andra mætti á þessa tón­leika í Lista­safn­inu og hún varð svo hrifin þegar hún hlust­aði á mig flytja þessi lög að hún bauð mér hlut­verk í óper­unni sinni, Ævin­týr­inu um norð­ur­ljósin, sem var sýnd í Hörpu í fyrra. Þar lék ég babúsku, svona rúss­neska ömmu, og það gekk bara prýði­lega vel, þótt ég segi sjálf frá. Alex­andra varð alltaf hrifn­ari og hrifn­ari af vin­konu sinni og bauð mér í fram­hald­inu með sér til Rúss­lands núna í sumar. Ég hélt nú bara að við værum að syngja eitt­hvað rúss­neskt og íslenskt eftir þekkta höf­unda, en þá til­kynnti Alex­andra mér að hún vildi að við kæmum fram sem tvær dívur sem flytja eigin verk. Við gerðum það þann 21. ágúst á tón­leikum í Kamennoostrovskiy sem er kast­ali í Pét­urs­borg. Tón­leik­arnir hétu „Russian Souvenir: Introducing Iceland“ og ég get alveg sagt þér það að mér hefur aldrei verið sýndur eins mik­ill heiður. Ég hugs­aði bara: vá! Það eru fjögur ár síðan ég fór að fikta við að skrifa tón­list og hér var ég að flytja mín eigin lög í kast­ala í Rúss­landi. Þetta sýnir glögg­lega að ævin­týrin geta gerst.“

„Tón­list­ar­fer­ill­inn byrj­aði strax þegar ég var barn.“

Með dívunum í för var Kjartan Valdi­mars­son píanó­leik­ari og með þeim á tón­leik­unum söng rúss­neski bass-baritón söngv­ar­inn Sergei Telenkov, sem söng sitt hlut­verk á íslensku. Gerður segir við­tök­urnar hafa verið stór­kost­legar.

„Rússar hlusta auð­vitað mjög mikið á sín stór­kost­legu tón­skáld en þarna komu bara tvær konur, ljós­hærð og dökk­hærð, og sungu sín eigin verk sem þótti saga til næsta bæjar.“

„Það var fullur salur og fólk varð alveg rosa­lega hrifið,“ segir hún. „Rússar hlusta auð­vitað mjög mikið á sín stór­kost­legu tón­skáld en þarna komu bara tvær konur, ljós­hærð og dökk­hærð, og sungu sín eigin verk sem þótti saga til næsta bæjar. Þetta varð helj­ar­innar ævin­týri, við komum líka fram á elstu útvarps­stöð í Pét­urs­borg þannig að lögin okkar og verkin hljóm­uðu líka í útvarp­inu. Þetta gekk allt saman ægi­lega vel og var stór­kost­leg upp­lifun. Það hóp­uð­ust að okkur aðdá­endur sem vildu fá eig­in­hand­ar­á­rit­anir eftir tón­leik­ana, þetta var alveg alvöru­dívu­upp­lifun. Ég er enn þá að ná mér niður eftir þessa ferð.“

Skapa sér verkefnin sjálfar

Verður eitt­hvert fram­hald á þessu ævin­týri? Ætlið þið ekki að leyfa íslenskum áheyr­endum að heyra þetta pró­gramm?

„Við erum eig­in­lega enn þá í sælu­vímu eftir þetta, þannig að við erum ekki búnar að skipu­leggja það,“ segir Gerður og hlær. „Við Alex­andra eigum það sam­eig­in­legt að hafa verið rosa­lega dug­legar við það að koma okkur áfram sjálfar. Við sitjum ekk­ert og bíðum eftir verk­efnum heldur sköpum þau sjálfar. Þegar við hitt­umst þá gerð­ist eitt­hvað og við fundum að það er margt líkt með okkur, þótt við séum ekki líkar í útliti; við hugsum mjög líkt og ég tel það hafa verið mikla gæfu fyrir mig að hitta þessa konu. Við ætlum auð­vitað að flytja þessa tón­leika eins og þeir voru úti í Rúss­landi fyrir Íslend­inga en við erum ekki búnar að ákveða hvenær og hvar. En það er mikið til­hlökk­un­ar­efni og við vitum líka að við eigum eftir að starfa mikið saman áfram. Við erum þegar farnar að hugsa um fram­hald á þessu öllu saman en hvað það verður skýrist betur síðar.“

Gerður er tón­list­ar­kenn­ari við Tónskóla Eddu Borg og auk þess tón­list­ar­stjóri fyrir leik­skól­ann Vinaborg, hvernig kom það til?

„Ég er líka lærður leik­skóla­kenn­ari og vann mikið við það að kenna tón­list inni á leik­skólum fyrst eftir að ég kom heim frá Banda­ríkj­unum,“ útskýrir Gerður.

„Ég ákvað að fara aðeins í það aftur vegna þess að mér finnst svo gef­andi að kenna ungum börnum og það veitir mér mik­inn inn­blástur. Það heldur mér ansi ungri og ferskri.“

Aldrei að segja aldrei

Eins og fram hefur komið hefur Gerður lagt áherslu á ljóða­söng und­an­farin ár, var ljóða­söngur það sem hún stefndi að í sínu námi?

„Nei,“ segir hún hlæj­andi. „Ég var í námi hjá rosa­legum dívum sem vildu auð­vitað að ég yrði óperu­söng­kona, sem ég varð, en ég fann það þegar ég var að verða búin með námið að ljóða­söng­ur­inn kall­aði alltaf á mig. Ég hef svo mikla ást á ljóðum og finnst þau svo ynd­is­leg og oft fannst mér óperu­text­inn ekki merki­legur. Hann er ansi oft ekki merki­legar bók­menntir. Ég fann það samt þegar ég fór að syngja á svið­inu í Hörpu fyrir ári síðan að ég hef mjög gaman af því að leika, en það er líka hægt að túlka ljóðin með leik­rænum hætti.“

Þú ert samt ekki farin að semja óperu eftir þessa reynslu?

„Ég er ekki farin að semja óperu, nei, en maður á aldrei að segja aldrei,“ segir Gerður og glottir.

Myndir / Unnur Magna

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Fólk

Fólk

Fimm hlutir sem geta reynt á sam­bandið þegar mak­inn er með ADHD

Fólk

Keath Ósk slær í gegn á heims­vísu og segir Ísland hafa mótað sköp­un­ina

Viðtal
Fólk

Ekkert minni konur en aðrar konur

Myndir
Fólk

Óvenju­legt sölu­til­boð í Reykja­vík þar sem maka­skipti koma til greina

Fólk

Nabblinn leggur bleyj­una á hill­una

Myndir
Fólk

Sögu­frægt sýslu­manns­setur við sjó­inn komið á sölu