Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Refurinn Ottó slapp úr loðdýrabúi: „Hann er ljúfur, forvitinn og félagslyndur“

Nokkrir með­limir úr Samtökum græn­kera á Íslandi eru um þessar mundir staddir í Finn­landi. Val­gerður Árna­dóttir, vara­for­maður sam­tak­anna, er ein þeirra. Í heim­sókn sinni til Finn­lands heim­sótti hóp­ur­inn dýra­at­hvarfið Eläinsu­ojelu­keskus Tuu­lispää og þar kynnt­ust þau refnum Ottó.

„Samtök græn­kera á Íslandi, í Finn­landi og Eist­landi fengu sam­starfs­styrk frá Norrænu ráð­herra­nefnd­inni og við erum núna í Finn­landi að kynna okkur starfs­semi sam­tak­anna hér og á leið til Eist­lands í sama til­gangi á morgun,“ segir Val­gerður.

Spurð út í dýra­at­hvarfið sem hóp­ur­inn heim­sótti í gær segir Val­gerður: „Eläinsu­ojelu­keskus Tuu­lispää dýra­at­hvarfið er það þekktasta og stærsta í Finn­landi og hýsir um 70 dýr, aðal­lega hús­dýr en einnig refi og minnka sem sloppið hafa frá loð­dýra­búum.“

Hún segir ref­inn Ottó hafa hitt hana í hjarta­stað. „Ottó er silf­ur­refur eða svo­kall­aður Blue fox og fannst árið 2015 í nágrenni við loð­dýrabú hér í Finn­landi. Það er aug­ljóst að hann hefur sloppið frá loð­dýra­búi vegna þess að refir eins og hann finn­ast ekki villtir í nátt­úr­unni. Þessa teg­und er bæði búið að rækta þannig þeir hafa óeðli­lega mik­inn feld miðað við stærð og fætur þeirra verða van­skap­aðir eftir að hafa alist upp í stál­grind­ar­búri,“ útskýrir Val­gerður.

„Nýlega þurfti að svæfa félaga hans sem einnig bjó í athvarf­inu vegna þess að fætur hans gáfu sig enda veik­burða eftir vist­ina í búr­inu, fæturnir þoldu ekki þunga búks­ins. Ottó er því eini ref­ur­inn í athvarf­inu eins og er. En hann er ljúfur, for­vit­inn og félags­lyndur, leikur sér við fólk og eltir það þó hann vilji ekki mikið klapp.“

Ottó fannst árið 2015 í nágrenni við loð­dýrabú í Finn­landi. Hann býr núna í dýra athvarf­inu Eläinsu­ojelu­keskus Tuu­lispää.

Ef Ottó hefði ekki sloppið úr loð­dýra­bú­inu á sínum tíma væri feldur hans ef til vill orð­inn að loðskrauti á úlpu­hettu í dag.

„Ég held að fólk sé almennt aftengt við vörur sem það kaupir í versl­unum, hvort sem það er í kjöt­borð­inu eða í fata­versl­un­inni. Það hugsar ekki út í það að loð­krag­inn á úlp­unni eða pels­inn var eitt sinn lif­andi dýr með vit­und og þarfir á við hunda og ketti. Fólki býður við hunda­áti og reið­ist þegar það heyrir af illri með­ferð gælu­dýra en tengir ekki sömu til­finn­ingar við litlu bræður hund­anna sem enn eru fastir í litlum stál­búrum um allan heim. Ég trúi ekki að fólk sé í eðli sínu vont og að því sé sama, ég held að það sé í alvöru ekki að tengja. Enda er þetta nákvæm­lega það við­horf sem brans­inn berst við að við­halda.“

„Það hugsar ekki út í það að loð­krag­inn á úlp­unni eða pels­inn var eitt sinn lif­andi dýr með vit­und og þarfir á við hunda og ketti.“

Val­gerður tekur þó fram að mörg stærstu og vin­sæl­ustu tísku­hús heims hafa sagt skilið við loð­feld­inn og veiti von­andi hönn­uðum og fyr­ir­tækjum víða um heim inn­blástur til að gera slíkt hið sama.

„Notkun loð­felda er sem betur fer á und­an­haldi hjá stærstu tísku­húsum heims, Armani, Gucci, Michael Kors, Hugo Boss og fleiri hafa gefið út að þau muni aldrei aftur nota ekta loð­feld. Sama á við um flest úti­vist­ar­merki, sem dæmi má nefna Pata­gonia, North Face og Fjäll­räven. Þess vegna skýtur það skökku við að íslenskir fata­fram­leið­endur á borð við 66°Norður og Cintamani séu enn að nota loð­feldi. Það er bara alls ekki í tísku heldur ein­hver furðu­leg gam­al­dags stefna eig­enda þess­arra fyr­ir­tækja,“ segir Val­gerður sem þekkir brans­ann vel en hún vann hjá 66°Norður sem inn­kaupa­stjóri.

„Þá sá um að versla hrá­efni í fram­leiðsl­una. Ég veit fyrir víst að gervi­loðið seld­ist jafn vel ef ekki betur en dýra­loð­kragar og að hönn­un­ar­deild fyr­ir­tæk­is­ins vildi ásamt fleirum innan fyr­ir­tæk­is­ins stefna í þá átt að hætta að nota loð­feldi. Þrátt fyrir þetta ákvað stjórn fyr­ir­tæk­is­ins að bæta í loð­felda­notkun frekar en að draga úr henni á þeim for­sendum að það vildi vera þekkt „lúxus” vöru­merki.“

Valgerði þykir þetta sorg­leg stað­reynd. „Þetta er sorg­legt þar sem 66°Norður er að gera góða hluti á mörgum sviðum, kaupir umhverf­is­vottuð gæða­efni og fleira. Ég er viss um að túrist­arnir kaupi ekki minna af hinum úti­vist­ar­merkj­unum sem ég nefndi. Þetta er spurn­ing um að fyr­ir­tæki sýni ábyrgð og hafi ein­hverjar sið­ferð­is­legar við­mið­un­ar­reglur.“

Val­gerður tekur fram að hún hafi hingað til hikað við að tjá sig um loð­feld­inn sem 66°Norður notar mikið. „Mér þykir vænt um fyrrum sam­starfs­fé­laga mína og veit að þau eru mörg hver ósam­mála þess­ari stefnu rétt eins og ég. En þegar ég hitti Ottó þá brast stíflan, ég hugs­aði bara: ef ég segi ekki frá honum, frá örlögum millj­óna bræðra hans og systra um allan heim sem ekki sluppu úr klóm loð­dýra­bænda, hver gerir það þá?“

Að lokum bendir Val­gerður áhuga­sömum á skýrslu frá sam­tök­unum Animalia og Noah þar sem svokölluð „vel­ferð­arbú“ eru afhjúpuð.

„Finnland er afkasta­mest í loð­felda­fram­leiðslu í Evrópu og notar það í mark­aðs­setn­ingu að vera með ein­hvers­konar dýra­vel­ferð­ar­vott­anir á borð við þær sem fyr­ir­tækið Saga furs nota. 66°Norður versla einmitt við Saga furs. Það er þó löngu búið að afhjúpa þessi svoköll­uðu „vel­ferð­arbú“ Saga furs. Í skýrsl­unni má meðal ann­ars sjá myndir sem sýna að alls ekki er verið að huga að vel­ferð dýr­anna heldur er þetta vel mark­aðs­sett lygi til að sann­færa kaup­endur um að dýrin í loð­dýra­iðn­að­inum á Norð­ur­löndum hafi það betra en dýr í iðn­að­inum ann­ars staðar í heim­inum.“

Umrædda skýrslu má sjá hér.

View this post on Instagram

Oh hi! ✨✨ Just came here to rem­ind everybody that my fur does not belong on hood trims, pompoms, coats or embell­is­h­ments. It belongs to me. And I am your fri­end. Love, Otto, a fur farm fugitive. #tuu­lispää #animalsanctuary #sanctuarylife #fri­endnot­fur #fox #blu­efox #foxfri­end #furban #nofur #tar­hauski­elto #tur­kist­ar­haus­hi­stor­i­aan #notyourfur #animalrescue #rescueanimals #safefrom­harm #kindisthenewcool

A post shared by Eläinsu­ojelu­keskus Tuu­lispää (@esk_tuulispaa) on Nov 6, 2019 at 7:11am PST

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
6
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Geymdi milljón myndir og mynd­skeið af mis­notkun eig­in­kon­unnar

Níu aðrir menn neita sök
Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ