Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Hörð viðbrögð við umfjöllun um Samherja – „Íslenskt arðrán á fátæku fólki“

Umfjöllun Kveiks og Stund­ar­innar í gær­kvöldi um Samherja, þar sem stað­hæft er að stjórn­mála­mönnum og emb­ætt­is­mönnum hafi verið greiddar hund­ruð millj­óna króna í mútur til að fá úthlut­aða fisk­veiði­kvóta við Namibíu hefur vakið hörð við­brögð í sam­fé­lag­inu og um fátt var meira rætt í gær­kvöldi manna á milli og á sam­fé­lags­miðlum.

Hörð viðbrögð við umfjöllun um Samherja – „Íslenskt arðrán á fátæku fólki“

Fjöldi ein­stak­linga tjáði sig um málið á Facebook í gær:

„Hver eru næstu skref þjóðar sem í kvöld fékk inn­sýn í starf­semi og starfs­hætti stór­fyr­ir­tækis sem hagn­ast hefur ævin­týra­lega á sjáv­ar­auð­lind íslensku þjóð­ar­innar?,“ segir Ragnar Þór Ing­ólfs­son for­maður VR.

„Þvílíkt hug­mynda­flug eða hvaðan í ósköp­unum ætli Þor­steinn Már hafi eig­in­lega fengið þessa hug­mynd að kvóta­kerfi geti fram­kallað ofsa­gróða og til að það geti gengið smurt þurfi að væta gogga vald­hafa?,“ segir Jakob Bjarnar Grét­ars­son blaða­maður á Vísi.

„BEHAVING LIKE THE LOWEST OF THE LOW. Íslenskt arð­rán á fátæku fólki,“ segir Viðar Egg­erts­son leik­hús­stjóri.

„Samherji fær ekki nægi­legan afslátt af íslenskum auð­lindum, þeir virð­ast þurfa að arð­ræna almenn­ing í Namibíu og Angóla og flytja gróðan í skatta­skjól. Hversu brengl­aðir eru hvat­arnir í kerfi sem skilar til sam­fé­lags­ins svona botn­lausri græðgi og sví­virði­legri van­virð­ingu og skeyt­ing­ar­leysi fyrir manns­lífum?,“ segir Halldóra Mogensen þing­maður Pírata.

Tón­list­ar­mað­ur­inn Pétur Örn Guð­munds­son slær á létta strengi: „Namibískir dagar á Dalvík hljómar ekki alveg eins þjált og Fiski­dag­ur­inn mikli.“

Gunnar Smári Egilsson leggur til að skatt­rann­sókn­ar­stjóri fari í yfir­vinnu: „Þar sem mútur eru ekki frá­drátt­ar­bærar frá skatti væri klókt af skatt­rann­sókn­ar­stjóra að taka bók­hald og öll gögn Samherja í nótt. Þangað má örugg­lega sækja hund­ruð millj­óna í rík­is­sjóðs, bara af þeim málum sem Kveikur/Stundin eru að fjalla um. Svo má senda málið til sak­sókn­ara, en ekki er hægt að greiða stórar mútur út úr fyr­ir­tækjum án þess að falsa bók­hald.“

Drífa Snædal for­maður ASÍ segir um umfjöllun Kveiks: „Myndin sem Kveikur og Stundin teikna upp er af heims­valdasinn­uðum, gráð­ugum arð­ræn­ingjum sem einskis svífast. Körlum sem þykj­ast sam­fé­lags­lega ábyrgir hér á landi en gæti ekki verið meira sama um aðstæður þjóðar suður í Afríku. Körlum sem komu í kjöl­far vel heppn­aðar þró­un­ar­sam­vinnu og ryksug­uðu upp auð­lindir í eigin þágu, hög­uðu sér eins og sví­virði­leg­ustu nýlendu­herrar. Þró­un­ar­sam­vinn­unni var hætt vegna hruns­ins sem varð einmitt vegna svona hegð­unar. Ógeðs­legt!“

„Ég var að horfa á Kveik sem ásamt Stund­inni afhjúp­uðu spill­ingu og mútu­greiðslur eins stærsta útgerð­ar­fyr­ir­tækis Íslands, Samherja. Engin stjórn­mála­mann­eskja sem vill láta taka sig alvar­lega er að hugsa um neitt annað í dag en hvernig verði brugð­ist við þessu. Á næstu dögum munum við sjá skýrar línur í íslenskum stjórn­málum og hvernig póli­tíkin skipt­ist á Íslandi milli þeirra sem ætla að verja og líða svona aðferðir og þeirra sem standa fyrir það að svona líð­ist ekki,“ segir Dóra Björt Guð­jóns­dóttir odd­viti Pírata í borg­ar­stjórn.

Blaðamönnum hrósað

Nokkrir hrósuðu frétta­mönnum og blaða­mönnum:

„Ég er alveg dösuð eftir allt upp­lýs­inga­flæðið. Blaða­menn­irnir sem stóðu að þessu eru meist­arar og hafi ein­hver efast um gildi góðra blaða­manna, þá ætti sá efi að far­inn núna.
En mikið væri gott að búa í landi þar sem það væri hægt að treysta því að það yrðu afleið­ingar eftir svona risa upp­ljóstrun. Ætli það sé séns á því?,“ skrifar Heiða B. Heiðars.

„Kveikur kvölds­ins er enn ein stað­fest­ing þess hversu mik­il­vægt er að við eigum sjálf­stætt Rík­is­út­varp. Og engin furða þó að voldug öfl í land­inu vilji það feigt,“ segir Jón Viðar Jónsson gagn­rýn­andi.

Frétt­irnar voru síðan snöggar að slá þessu upp í kald­hæðið grín.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Plastbiti fannst í 200 gramma dós af jógúrt
Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina