Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

„Nei, barnið má ekki heita Facebook!“

Manna­nafna­nefnd hefur gætt þess að börn okkar fái ekki að bera neins konar „ónefni“. Nafna­reglur eru þó til víðar í heim­inum en hér og eru mis­jafn­lega sveigj­an­legar.

„Nei, barnið má ekki heita Facebook!“
barn

Konur á Íslandi mega ekki heita Kona en karlar heita margir Karl sem þykir hið besta nafn. Karlar mega heita Víkingur en það nafn, eða Viking, er harð­bannað í Portúgal, ásamt nöfn­unum Jimmy, Rihanna og Sayonara, og þar í landi er eins gott að staf­setja Katrín­ar­nafnið rétt. Caterina er hin opin­bera og leyfi­lega staf­setn­ing á nafn­inu. Einnig banna Portú­galar nöfn eins og Emily, George, Thomas og Charlotte sem eru til dæmis afar vin­sæl í Bret­landi.

Í Noregi gilda reglur um að ekki megi nota ætt­ar­nöfn sem eig­innöfn, til dæmis Hansen, Johansen og Olden. Í Sádi-Arabíu árið 2014 var opin­ber­aður listi yfir 51 bannað nafn og þar má til dæmis ekki heita Alice eða Maya. Danir geta valið nöfn af lista yfir 7.000 leyfð nöfn og ef þeir kjósa nafn utan list­ans á barn sitt verður nafnið að fara í gegnum sér­stakt ferli til sam­þykkis, ef það verður þá sam­þykkt. Nýja-Sjáland hefur einnig gefið út lista yfir leyfi­leg nöfn og sjálf­sagt fleiri lönd.

 Kynlaus

Margir muna eftir bar­átt­unni fyrir því að stúlka fengi að heita Blær. Fram að því mátti ein­ungis nefna drengi því nafni. Sigur vannst með dómi árið 2013 og nú mega bæði kynin heita Blær. Kynlaus nöfn sem hafa bæst í hóp­inn síðan þá eru meðal ann­ars Auður, Eir, Elía, Karma, Júlí, Júní og Maríon.

Í Danmörku og Þýska­landi má ekki heita kyn­lausum nöfnum á borð við Taylor, Ashley, Morgan og Jordan.

Börn fræga fólks­ins

Hér á landi má víst ekki heita Epli en dóttir leikkon­unnar Gwyneth Paltrow ber það nafn, eða Apple. Og hún Norður litla, dóttir Kanye West and Kim Kar­dashian, heitir fullu nafni North West, eða Norður Vestur. Dóttir söng­kon­unnar Beyoncé heitir Blue Ivy, eða Blá Berg­flétta. Á Íslandi má reyndar alveg nefna dóttur sína nafn­inu Dimmblá Fura, svo dæmi sé tekið. Sonur Forest Whitaker heitir Ocean, Haf … eða bara Sjór og, eins og þekkt er, ber einn sonur Michaels Jackson nafnið Blanket, eða Teppi.

 Trúarleg

Í Sviss er harð­bannað að heita Júdas eða öðrum „nei­kvæðum“ Bibl­íu­nöfnum, svo er einnig víða um heim. Ekki er langt síðan þýsk yfir­völd komu í veg fyrir að barn fengi nafnið Lúsífer sem er einnig bannað til dæmis á Nýja-Sjálandi. Malak sem þýðir Engill er bannað í Sádi-Arabíu, ásamt fleiri trú­ar­legum nöfnum en á Íslandi er nafnið Engill gott og gilt karl­manns­nafn. Þeir Íslend­ingar sem trúa á álfa, og auð­vitað fleiri, hafa nú í örfá ár mátt láta dóttur sína heita Álfmey.

 Dýr

Dýranöfn eins og Úlfur og Birna eru heldur betur leyfð á Íslandi en í Malasíu þykja þau afar óvið­eig­andi. Dæmi um bönnuð nöfn þar eru Björn og Snákur.

 Öðruvísi

Víða um heim er harð­bannað að nefna börn sín skrítnum og óvenju­legum nöfnum. Franska hag­stofan lætur yfir­völd hik­laust vita ef und­ar­leg nöfn eru skráð sem þá neita að sam­þykkja þau. Í Þýska­landi, Danmörku, Svíþjóð, Mexíkó og mörgum fleiri löndum gilda reglur um slík nöfn til að börn verði ekki fyrir ein­elti vegna þeirra. Hér eru nokkur nöfn sem hlutu ekki náð fyrir augum yfir­valda:

Prince William (Frakk­land)

Osama bin Laden (Þýska­land)

Adolf Hitler (Þýska­land)

Anus/Enda­þarmsop (Danmörk)

Elvis (Svíþjóð)

Metallica (Svíþjóð)

Rambo (Mexíkó)

Batman (Mexíkó)

Lyktandi Höfuð (Malasía)

Samfarir (Malasía)

Pungur (Mexíkó)

 Vöru­merki

Eft­ir­far­andi nöfn voru ekki sam­þykkt:

Facebook (Mexíkó)

Ikea (Svíþjóð)

Mercedes (Sviss)

Nutella (Frakk­land)

Mini Cooper (Frakk­land)

Chanel (Sviss)

Carlsberg (Ísland, milli­nafn)

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Að lokinni fimm vikna þjálfun hafa nemendurnir réttindi til að kafa niður á 30 metra dýpi
Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina