Fara í efni
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
„Fer svo heim að taka upp podcast þar sem hann titlar sig Ritstjórann“
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
Skoðun

Nakin og blaut í Reyn­is­fjöru

Heimur

Macaulay Culkin snýr aftur sem Kevin McCallister

Fólk

Björgvin Franz fagnar eins árs sam­bands­af­mæli með kærust­unni

Innlent

Lög­reglan lýsir eftir Nikulási Snorra­syni

Heimur

Hin sænska Karin hvarf áður en hún átti að sækja börnin sín

Pólitík

„Af tvennu illu er skárra að böð­ull­inn sé ekki í felu­litum frjáls­lyndis“

Heimur

Banda­rísk stjórn­völd birta þrjú ný mynd­skeið af óþekktum fljúg­andi fyr­ir­bærum

Fólk

Fjórum árum eftir að heil­inn hót­aði upp­sögn á Karl Ágúst tvö verk á sviði

Heimur

Lögregla fjar­lægði mót­mæl­anda eftir að hafa rugl­ast á áletrun á bol hans

Heimur

Prestur rifjar upp óþægi­lega reynslu úr æsku

Brexit átti að færa Bretum völd yfir eigin málum en Finnar taka nú ESB ákvarðanir fyrir þá

Finnland kemur til með að ráð­stafa atkvæðum Bret­lands innan fram­kvæmda­stjórnar Evr­ópu­sam­bands­ins að ósk Boris Johnson, for­sæt­isáð­herra Brelands. Ástæðan er ákvörðun Boris um að hætta þátt­töku á fundum sam­bands­ins.

|
| Mynd: Sendiráð Bretlands í Tokyo Japan

Í aðdrag­anda kosn­inga um úrsögn Bret­lands úr Evr­ópu­sam­band­inu héldu stuðn­ings­menn úrsagnar því fram að Brexit snérist um aukið sjálf­stæði og heima­stjórn Bret­lands. Nýjasta vend­ing þess er þó að evr­ópskt ríki fari með bresk atkvæði. Sú til­högun er þó tíma­bundin.

Samkvæmt breska blað­inu Independent er þetta hluti af áætl­unum Boris um útgöngur úr Evr­ópu­sam­band­inu í lok októ­ber. Hann vilji sýna stuðn­ings­mönnum Brexit að honum sé alvara. Fram að útgöngu er Bretland þó full­gildur með­limur með atkvæð­is­rétt.

Atkvæð­is­rétt­ur­inn fer til Finn­lands sem gegnir for­manns­emb­ætti sam­bands­ins út des­em­ber 2019. Samkvæmt til­kynn­ingu er þetta gert til að „leyfa starf­semi Evr­ópu­sam­bands­ins að halda áfram án rask­ana.” Ákvörð­unin getur þó haft verri afleið­ingar fyrir Bretland. Rík­is­stjórn Bret­lands mun ekki geta haft neitt að segja um nýjar reglu­gerðir. Þá gætu þær haft áhrif á Bretland um óákveð­inn tíma.

Tytti Tupp­urainen, Evópu­ráð­herra Finn­lands, tekur nú ákvarð­anir fyrir Bret­lands hönd um hvernig bresk atkvæði falla í starfi fram­kvæmda­nefndar ESB.

Tytti Tupp­urainen, Evr­ópu­ráð­herra Finn­lands, segir við Helsinki Times að for­sæt­is­ráð­herra Bret­lands hafi óskað eftir því að Finnar fari með atkvæði Bret­lands á fundum fram­kvæmda­stjórnar Evr­ópu­sam­bands­ins.

Guardian birti á mið­viku­dag „óop­in­bert bréf“ þar sem bresk yfir­völd lýsa yfir fyr­ir­ætlan sinni að taka ekki fullan þátt í póli­tískri starf­semi Evr­ópu­sam­bands­ins. Þar er Finnland beðið um að fara með atkvæði Bret­lands og nýta með þeim hætti að Sam­bandið geti hugað að fram­tíð­inni og komið sé í veg fyrir að fjar­vera Bret­lands trufli slíka fyr­ir­ætl­anir.

Stjórn­ar­and­stöðu­þing­menn í Bret­landi hafa gagn­rýnt ákvörðun rík­is­stjórnar Boris Johnson um að mæta ekki til funda nema að slíkt sé sér­stak­lega aðkallandi enda sé það Bret­landi í hag að fylgj­ast með störfum sam­bands­ins með þátt­töku fram á síð­asta dag.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

Heimur

Kærastan fann dag­bæk­urnar og sleit sam­band­inu við David Walliams

„Ég var orðinn kynlífsfíkill“
Innlent

„Sterkar vís­bend­ingar eru núna um að hryðju­verk­a­ríkið Ísrael hafi gert tölvu­árás á íslenska inn­viði“

Innlent

Ekið á mann á raf­hlaupa­hjóli

Innlent

Að minnsta kosti þrjár Palest­ínu­tengdar vef­síður eyði­lagðar í netárásinni á 1984

Heimur

Raun­veru­leika­stjarnan Sheila Mangubat látin 35 ára að aldri

Heimur

Þrír féllu þegar dróni réðst á bíl við mat­ar­út­hlutun á Gaza

Bíllinn hafði stoppað til að gefa börnum mat og drykk.

Kærasti Heidi Gardner lát­inn, 43 ára að aldri

Ljósmynd af logum ræsti sjálf­virkt slök­kvikerfi

„Guðfaðir gervi­greindar“ varar við yfir­vof­andi stór­slysi

Faðir skaut eig­in­konu sína og þrjú ung börn til bana