Fara í efni
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
„Fer svo heim að taka upp podcast þar sem hann titlar sig Ritstjórann“
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
Heimur

Kærastan fann dagbækurnar og sleit sambandinu við David Walliams

Fólk

„Ég er orðinn leiður á að vera veikur“

Innlent

Grun­semdir vöknuðu þegar sonurinn sagðist fá fría ferð til Taílands

Pólitík

Stefán Einar svarar Þorgerði með orðum Heiðu Kristínar

Heimur

Kynþokka­fyllsti maður heims afskrifar 200 milljónir dala í læknis­skuldum

Heimur

Spákona varar við alheims­rafmagns­leysi í lok árs

Fólk

Átta mistök sem fólk ætti að forðast ef það flýgur um jólin

Innlent

Kökuboð á Patreks­firði endaði fyrir dómi

Fólk

Hlýlegt heimili við Efri Hól bíður nýrra eigenda

Innlent

Sakar ríkis­stjórnina um að gera lítið úr vinnu láglauna­fólks og foreldra

Ráð til þess að efla líkamsmynd barna

Rann­sóknir hafa sýnt að neikvætt viðhorf til líkama og útlits tengist margskonar geðrænum vanda meðal ungmenna, s.s. kvíða, átröskunum, þunglyndi og jafnvel sjálfsvígs­tilraunum. Einnig hefur komið í ljós að líkams­mynd hefur áhrif á heilsu og lífs­venjur.

Mynd / Unsplash
Mynd / Unsplash

Embætti land­læknis hefur birt nokkur ráð til þess að efla líkams­mynd barna:

  1. Allir eru öðruvísi

Kenndu barninu þínu að fjöl­breytileiki í líkams­vexti sé eðlilegur. Við erum mismun­andi í laginu, það er sjálfsögð staðreynd sem allir ættu að virða.

  1. Útrýmum fordómum

Kenndu barninu þínu að það sé ekki rétt að stríða eða tala illa um aðra vegna þess hvernig þeir líta út. Fordómar vegna holdafars og útlits eru alveg jafn slæmir og skaðlegir og aðrir fordómar.

  1. Elskaðu líkama þinn

Aldrei tala illa um vaxtarlag þitt svo barnið þitt heyri. Lærðu að þykja vænt um líkama þinn þótt hann sé ekki full­kominn því þannig lærir barnið að bera virðingu fyrir sínum líkama.

  1. Eflum gagnrýna hugsun

Fræddu barnið um óraunhæf útlits­viðmið í samfélaginu og hvernig þau birtast, t.d. í fjöl­miðlum, barnaefni og leik­föngum. Storkaðu fordómum vegna holdafars hvenær sem þú rekst á þá.

  1. Kenndu barninu þínu að líkami þess sé góður líkami

Kenndu barninu þínu að vera stolt af sínum sérkennum. Aldrei segja neitt neikvætt um líkama barnsins þíns og taktu hart á því ef einhver annar gerir það.

  1. Hlustaðu á barnið þitt

Ef barnið lýsir áhyggjum af líkams­vexti sínum er mikilvægt að hlusta. Reyndu að komast að því hvað býr þarna að baki. Sýndu stuðning og ekki líta svo á að holdafari barnsins sé um að kenna. Ef barnið hefur orðið fyrir höfnun vegna þess hvernig það lítur út þá er vanda­málið í umhverfinu, ekki hjá barninu.

  1. Hegðun en ekki holdafar

Ef þú hefur áhyggjur af lífs­venjum barnsins þíns skaltu beina sjónum að hegðun þess en ekki holdafari. Skapaðu umhverfi þar sem barnið fær næg tækifæri til að borða hollan mat og hreyfa sig sér til ánægju.

Hvorki þú né barnið ættuð hins vegar að líta á heilbrigðar lífs­venjur sem grenningar­aðferð, heldur eitthvað sem allir þurfa að gera til þess að halda heilsu og líða vel.

Sjá einnig: „Líkami okkar elskar fitu“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Lögregla leitar ökumanns eftir að ekið var á stúlku á Akureyri

Stúlkan var á rafmagnsreiðhjóli á Byggðavegi við Vanabyggð. Lögregla óskar eftir upplýsingum frá vitnum.
Innlent

Grunsamlegar manna­ferðir án manna

Fólk

Áhorf­endur grunaði ekki hvernig Sölku Sól leið á meðan hún söng

Innlent

Börn tóku upp eigin blóðugu árás á feðga og hæddust að þeim

Innlent

Krefjast ákæru fyrir manndráp af gáleysi eftir bana­slysið í Grindavík

Innlent

Sendi saksóknara falsað læknis­vottorð og hlaut ársfangelsi

Sakaferill mannsins nær aftur til ársins 2010

Innkalla vinsælt jólasmáköku­deig vegna aðskotahluts

Hrafn­hljóð flýgur inn á manna­nafnaskrá

Sverrir spyr hvað heilli karla við ofbeldið í Grand Theft Auto