Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Á enga sök á ástandinu: „Ég er bara gamall karl og því verður ekki breytt“

Á enga sök á ástandinu: „Ég er bara gamall karl og því verður ekki breytt“
Þórarinn Tyrf­ings­son

Ósætti hefur ríkt innan veggja SÁÁ um nokk­urt skeið. Spjótin hafa m.a. beinst að Þórarni Tyrf­ings­syni, fyrr­ver­andi yfir­læknis og stjórn­anda á Vogi. Þrátt fyrir að Þórarinn hafi hætt klínísku starfi í maí 2017 og ekki unnið við með­ferð­ina á stofn­un­inni síðan þá gegnir hann enn hlut­verki innan sam­tak­anna, jafn­vel of stóru að mati ýmissa heim­ilda­manna Mannlífs og er hann sak­aður um að hafa að tjald­ar­baki unnið gegn núver­andi yfir­mönnum heil­brigð­is­sviðs­ins. 

„Ég reyni að segja allt gott, það eru ekki góðir tímar,“ segir Þórarinn Tyrf­ings­son, fyrr­ver­andi yfir­læknir og fram­kvæmda­stjóri Vogs, þegar við­bragða hans var leitað um deil­urnar sem uppi eru innan SÁÁ. Þar vísar hann til útbreiðslu kór­ónu­veirunnar en hann er heldur ekki par hrif­inn af umræðu und­an­far­inna daga um starf­semi SÁÁ og því að vera dreg­inn inn í umræð­una þar sem hann hefur meðal ann­ars verið sak­aður um svo­kall­aðar hrút­skýr­ingar á stjórn­ar­fundum.

„Ég er bara gam­all karl og því verður ekki breytt. Ég fer ekki að fara í kyn­skipti­að­gerð orð­inn þetta gam­all og menn mega alveg kalla mig hrút. Ég skamm­ast mín ekk­ert fyrir það að vera karl­maður og ekki heldur fyrir það sem ég hef gert fyrir sam­tökin SÁÁ,“ segir Þórarinn.

Enginn leppur

Aðspurður seg­ist Þórarinn ekki vera sá áhrifa­maður sem haldið hefur verið fram í umræð­unni síðstu daga. Hann segir það ljóst að Arnþór stjórn­ar­for­manni sé ekki fjar­stýrt.

„Starf­semi SÁÁ stendur ekki og fellur með einum manni. Sú umræða er rugl og ég skil að hún komi upp þegar fólk verður hrætt eða óör­uggt. Kjöl­festa sam­tak­anna er 48 manna aðal­stjórn, það er eng­inn einn maður sem þarna ræður. Hlutverk stjórnar er að gæta hag­muna sam­tak­anna enda miklar eignir sem þau eiga og vernda alla þá þekk­ingu sem þarna má finna, meðal ann­ars hjá þeim sem þarna starfa og þeim sem eru þarna hættir,“ segir Þórarinn.

Ítar­legri umfjöllun í helg­ar­blað­inu Mannlíf.

„Ég geri mér ekki grein fyrir því af hverju er verið að mála mig sem vonda kall­inn. Þarna hef ég unnið frá því ég varð til sem læknir og ég vissi ekki betur en að þarna væri allt í lukk­unnar vel­standi. Ég er ósköp venju­legur maður og treysti á það sjálfur að ég sé góð mann­eskja. Það verður ekki af stjórn­ar­for­mann­inum tekið að hann var kos­inn þarna inn og situr þar í fullu umboði aðal­stjórnar. Mér finnst verið að gera lítið úr fólki þegar gefið er í skyn að honum sé fjar­stýrt fram og til baka. Arnþór er ekki minn leppur, hann er sjálf­stæður maður með mikla reynslu úr líf­inu og í starfi.“

Hryggur yfir stöðunni

Aðspurður hafnar Þórarinn því alfarið að bak­við tjöldin beiti hann áhrifum sínum til að sverta starf núver­andi stjórn­enda Vogs. Hann gefur ekki mikið fyrir umræðu um að hann fari fram af karl­rembu á stjórn­ar­fundum. „Ég get ekki svarað þessu öðru­vísi en að ég hef ekk­ert verið þarna á þess­ari starf­stöð. Ég er kom­inn út úr þessu öllu og sit ekki í fram­kvæmda­stjórn. Ég er hryggur yfir því hvernig staðan er. Ég á enga sök á því og hef hvergi komið þarna nærri á nokkurn hátt enda ekki með neitt umboð til þess. Fólk verður bara að axla sína ábyrgð í þessu,“ segir Þórarinn og ítrekar að hjá SÁÁ séu tveir stjórn­endur að heil­brigð­is­stofn­unum sam­tak­anna.

„Fólk verður bara að axla sína ábyrgð í þessu.“

„Það er ann­ars vegar fram­kvæmda­stjórn SÁÁ sem leggur til gríð­ar­legt fjár­magn og starfs­menn­irnir eru ekki full­trúar þess fjár­magns. Svo eru það yfir­menn og milli­stjórn­endur, þar er heldur eng­inn einn maður sem ber ábyrgð á öllu saman. Núna verður stjórn­skipu­lag sam­tak­anna, fram­kvæmda­stjórnin og starfs­fólkið, að takast á við þetta og leysa þetta.“

Nánar um málið í helgarblaðinu Mannlíf.

Sjá einnig: Dropinn sem fyllti mæl­inn

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi