Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Fólk

Selja eitt minnsta einbýli Reykja­víkur á ótrúlegu verði

Innlent

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Innlent

Ásta Bjarney valin framyfir sjö aðra

Innlent

Ísland gefur þrjá sjúkra­bíla og 33 mótorhjól til Malaví

Innlent

Matvæla­stofnun fylgist náið með útbreiðslu veiru í hundum

Heimur

Kona lést eftir að hafa gengið á flugvélar­skrúfu

Peningar

Kröfur upp á rúmar 33 milljónir fengust ekki greiddar

Innlent

Eftir­lýstur maður óvænt gripinn

Fólk

„En svo lenti ég í því að eignast mann“

Innlent

Móðir lýsir biðinni eftir fréttum af frumburði sínum

Býðst til að stíga til hliðar í von um að Valgerður dragi uppsögn sína til baka

Gunnar náði Bjarna ansi vel.
Gunnar náði Bjarna ansi vel.

Enginn einstaklingur er mikil­vægari en SÁÁ. Þetta skrifar Arnþór Jónsson, formaður SÁÁ, í opið bréf sem hann hefur sent til stjórnar SÁÁ. Í bréfinu býðst hann til að stíga til hliðar í von um að Valgerður Á. Rúnars­dóttir, forstjóri sjúkra­hússins Vogs, dragi sína uppsögn til baka.

 „Atburða­rásin í dag er hröð, staðan er hættuleg og þá þarf að taka erfiðar ákvarðanir og ég hef ekki vikið mér undan því. En enginn einstaklingur er mikil­vægari en SÁÁ. Mikill óróleiki er innan samtak­anna og ég hef því ákveðið að bjóðast til að stíga til hliðar sem formaður í þeirri von að forstjórinn dragi uppsögn sína til baka og finni betri lausn á rekstrar­vanda samtak­anna,“ skrifar Arnþór m.a. í bréf sitt.

Hann skorar í leiðinni á stjórn­völd og almenning að standa með SÁÁ í erfiðri stöðu sem upp er komin.

Sjá einnig: Segir upp eftir 20 ár hjá SÁÁ

Arnþór lýsir rekstri meðferðar­sviðs SÁÁ í bréfi sínu. Hann segir rekstrar­kostnað hafa vaxið mjög.

„Kostnaður fer upp þótt afköst þjónustunnar standi í stað eða minnki jafnvel og ástæðan er ráðningar háskóla­menntaðs starfs­fólks til að mæta faglegum áherslum forstjóra sjúkra­hússins Vogs. SÁÁ hefur mætt þessum stöðugt vaxandi útgjöldum með því að auka fjár­aflanir sínar sem hafa vaxið samhliða útgjöldunum. Þetta jafnvægi milli vaxandi útgjalda á meðferðar­sviði SÁÁ sem eigin fjár­aflanir borga jafn­harðan er auðvitað hættuspil. Stjórn­völd vita af þessari stöðu en láta það gott heita að SÁÁ starfi samkvæmt 12 ára gömlum þjónustu­samningum,“ skrifar Arnþór í bréf sitt.

Hann segir framkvæmda­stjórn hafa undan­farið gert áætlanir sem eiga að draga úr „spennu“ en segir að stjórn­endur á meðferðar­sviði hafa gengið erfiðlega að halda sig innan ramma þeirra. Staðan versnar í ljósi útbreiðslu COVID-19. „Stór hluti af sjálfs­aflafé SÁÁ hverfur í einni svip­hendingu og eftir stendur SÁÁ með allt of dýran rekstur,“ skrifar Arnþór.

Bréf hans má lesa í heild sinni á vef SÁÁ.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Heimur

Náttfata­veisla unglings­stúlkna endaði í harmleik

Um 50 ungmenni mættu í veisluna eftir að hún hafði verið auglýst á netinu
Heimur

„Þekktasta klámstjarna Ítalíu“ vill verða borgar­stjóri Rómar

Heimur

Tveggja barna faðir skotinn til bana á þakkar­gjörðar­daginn

Heimur

Sautján ára skóla­stúlka lést eftir árás

Innlent

Húsfélagi óheimilt að rukka skrópara

Innlent

Mál vegna gruns um kynferðis­brot í Garðaseli fellt niður

Maðurinn var handtekinn 17. mars en sleppt skömmu síðar. Honum var vikið úr starfi meðan rannsóknin stóð yfir.

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Kveikti í íbúð með vél úr mótor­hjóli

Innbrot og þjófnaður í heimahúsi í Árbæ

Sex dæmdir í fangelsi fyrir umferðar­lagabrot sama dag

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu