Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Tugmilljóna undirfjármögnun

Tugmilljóna undirfjármögnun
Mynd / Unnur Magna

Krabba­meins­fé­lagið hefur í mörg ár búið við skamm­tíma­samn­inga við ríkið um krabba­meins­skimun­ina, sem hefur verið und­ir­fjár­mögnuð og kallað á tug­millj­óna útgjöld af hálfu félags­ins til að brúa bilið.

Að sögn Höllu Þor­valds­dóttur, fram­kvæmda­stjóra Krabba­meins­fé­lags­ins, var félag­inu til­kynnt vorið 2017 að til stæði að semja til lengri tíma en áður, til þriggja eða fimm ára, en síðan var tekin u-beygja og ákveðið að skoða að færa verk­efnin annað. Halla seg­ist telja þá ákvörðun fyrst og fremst póli­tíska en segir Krabba­meins­fé­lagið hins vegar alls ekki á móti því að skimunin fær­ist annað.

„Félagið hefur sett á stofn alls konar verk­efni sem ekki voru áður til staðar en sem hafa síðan sannað gildi sitt og orðið hluti af sjálf­sagðri opin­berri þjón­ustu,“ útskýrir hún og nefnir sem dæmi íbúðir fyrir krabba­meins­sjúka af lands­byggð­inni og líkn­ar­þjón­ustu í heima­húsum. Hún segir verk­efni félags­ins mörg og áskor­an­irnar sömu­leiðis. Starf félags­ins standi hvorki né falli með hóp­leit­inni. Raunar muni létta á Krabba­meins­fé­lag­inu að því leyti að það muni ekki lengur þurfa að leggja fjár­magn í þjón­ust­una.

„Ég hef ekki heyrt að það séu hag­ræð­ing­ar­sjón­ar­mið sem ráða för. Ég hef ekki heyrt nein rök sem hníga að því að þjón­ustan verði betri. Og ég hef ekki heldur heyrt neinn rök­stuðn­ing fyrir því að ætla megi að árang­ur­inn verði meiri.“

Félagið sé hins vegar ugg­andi yfir því hvernig staðið sé að málum.

„Við lögðum fram ákveðna hug­mynd þar sem við lögðum áherslu á að starf­sem­inni yrði ekki skipt upp, að hún yrði áfram ein heild, þ.e.a.s. stýr­ingin, skipu­lagið og skimunin sjálf; að það yrði komið á skimun­ar­mið­stöð,“ segir Halla. Stærð þjóð­ar­innar gerði það að verkum að sam­legð­ar­á­hrifin af því að hafa allt á sama stað væru veru­leg, bæði varð­andi kostnað og sér­fræði­þekk­ing­una. Hún seg­ist ekki hafa heyrt neinn rök­stuðn­ing fyrir því að verk­efn­inu yrði betur fyrir komið þegar það færð­ist til spít­al­anna og heilsu­gæsl­unnar; Krabba­meins­fé­lagið hefði aldrei sætt gagn­rýni fyrir fyr­ir­komu­lag hóp­leit­ar­innar og þá hefðu kann­anir leitt í ljós að konur væru almennt mjög ánægðar með þjón­ust­una.

Halla Þor­valds­dóttir fram­kvæmda­stjóri Krabba­meins­fé­lags Íslands

„Ég hef ekki heyrt að það séu hag­ræð­ing­ar­sjón­ar­mið sem ráða för. Ég hef ekki heyrt nein rök sem hníga að því að þjón­ustan verði betri. Og ég hef ekki heldur heyrt neinn rök­stuðn­ing fyrir því að ætla megi að árang­ur­inn verði meiri,“ segir Halla. „Krabba­meins­fé­lagið er alls ekki að setja sig upp á móti því að þetta verk­efni fær­ist til,“ ítrekar hún. „En við teljum mesta vitið ef það á að færa starf­sem­ina að hún sé þá tekin héðan og flutt í heild sinni. Og við höfum verið að leggja áherslu á að þetta er flókið verk­efni; miklu flókn­ara en að mynda brjóst og taka strok. Það eru alls konar þættir sem þurfa að vera í lagi og það er örugg­lega hægt að koma þeim þannig fyrir. En það kostar tíma og und­ir­bún­ing og heil­miklar pen­inga að útbúa þau kerfi sem þurfa að vera til staðar til að þetta gangi. Og ég hef ekki séð neina kostn­að­ar­grein­ingu, hvorki í sam­bandi við und­ir­bún­ing­inn né hvernig þetta verður fjár­magnað á hverjum stað til fram­tíðar,“ segir Halla, sem á þó sæti í áður­nefndri verk­efna­stjórn.

„Við höfum ákveðnar áhyggjur af því að þegar þetta verk­efni er komið inn á stofn­anir sem fyrir eiga fullt í fangi með að sinna sínum verk­efnum, þá muni skimunin ekki verða í for­gangi, ekki síst ef fjár­mögnun stjórn­valda er ekki nægi­leg, líkt og verið hefur. Ég vona sann­ar­lega að verk­efnið verði fjár­magnað til fulls, það er for­senda þess að vel tak­ist til, en á sama tíma væri líka merki­legt ef hægt væri að finna meira fjár­magn til verk­efn­is­ins allt í einu.“

Landlæknir deilir áhyggjum af álagi

„Ég deili áhyggjum af því að starfs­fólk Land­spít­al­ans hefur auð­vitað mikið að gera; ég get alveg tekið undir þær áhyggjur,“ segir Alma D. Möller land­læknir, spurð að því hvernig henni hugn­ast það fyr­ir­komu­lag sem heil­brigð­is­ráð­herra hefur boðað. Hún seg­ist hins vegar leggja mikla áherslu á að flutn­ingur hóp­leit­ar­innar verði unn­inn í sam­vinnu og sam­ráði við Krabba­meins­fé­lagið og starfs­fólk þess.

Alma D. Möller land­læknir.

Meira en tíu ár eru liðin frá því að Alþingi fól heil­brigð­is­ráð­herra og land­lækni að hefja und­ir­bún­ing að hóp­leit að ristil- og enda­þarmskrabba­meinum sem átti að hefj­ast í júlí 2007. Síðan hefur vinna að verk­efn­inu staðið yfir með hléum. Sú spurn­ing vaknar hvernig hún standi í dag.

„Af hverju ætti að fara í svona breyt­ingar ef það á ekki að fjár­magna þær?“

Alma segir þrjá fag­hópa hafa verið skip­aða um fyr­ir­komu­lag skim­ana; einn fyrir brjósta­skimanir, annan fyrir leg­háls­skimanir og þann þriðja fyrir ristil- og enda­þarms­skimanir. Það sé á þeirra borði að skila til­lögum um til­högun skimunar, t.d. aðferðum og tíðni, og heil­brigð­is­ráðu­neytið bíði nið­ur­staða þeirrar vinnu. „Þetta er búið að taka lengri tíma en reiknað var með en skimun­ar­ráð mun fara yfir þessar til­lögur og skila til mín og ég mun svo skila ráð­legg­ingum til ráðu­neyt­is­ins.“

Alma seg­ist von­ast til að það verði um miðjan febr­úar en áður mun hún sækja skimun­ar­ráð­stefnu á vegum Evr­ópu­deildar Alþjóða­heil­brigð­is­stofn­un­ar­innar og sjá hvað fram kemur þar.

En hvað með fjár­mögn­un­ina? Hefur hún trú á því að skimunin verði full­fjár­mögnuð á nýjum stað?

„Ég get ekki ímyndað mér annað,“ svarar hún. „Af hverju ætti að fara í svona breyt­ingar ef það á ekki að fjár­magna þær?“

Mannlíf leit­aði til heil­brigð­is­ráðu­neyt­is­ins og óskaði eftir upp­lýs­ingum en fékk aðeins þau svör að mál myndu skýr­ast þegar verk­efna­stjórnin hefði skilað af sér.

Lestu meira um málið í nýjasta tölu­blaði Mannlífs.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
6
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Geymdi milljón myndir og mynd­skeið af mis­notkun eig­in­kon­unnar

Níu aðrir menn neita sök
Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Innlent

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ