Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Lýsir reynslu sinni af því að missa barn vegna mistaka heilbrigðisstarfsfólks í nýrri bók

Lýsir reynslu sinni af því að missa barn vegna mistaka heilbrigðisstarfsfólks í nýrri bók
Mynd / Ernir Eyj­ólfs­son fyrir Vikuna árið 2013|Jóel á leið heim af vöku­deild

Auðbjörg Reyn­is­dóttir hjúkr­un­ar­fræð­ingur hefur opnað vef­síðu í tengslum við útgáfu raf­bókar sem ber tit­il­inn Stærri en ban­væn mis­tök. „Hún fjallar um líf og dauða yngri sonar míns Jóels, sem lést eftir víta­vert gáleysi starfs­manna (röð atvika) á barna­spít­ala Hrings­ins í febr­úar 2001,“ skrifar Auðbjörg um bók­ina á nýjum vef sínum.

Hún segir bók­ina einnig fjalla um lífið eftir son­ar­miss­inn.

Auðbjörg segir bók­ina og sömu­leiðis vef­síð­una eiga erindi við alla. Hún segir að vef­síð­unni sé ætlað að verða eins konar fræðslu­setur um öryggi sjúk­linga. „Er sjónum beint sér­stak­lega að almenn­ingi sem vill læra meira um það hvernig fólk eigi að tryggja sitt öryggi innan heil­brigð­is­þjón­ust­unnar. Á vef­síð­unni verða bæði góðar og óþægi­legar sögur. Vonandi einnig heil­ræði og miðlun þekk­ingar milli fag­fólks og sjúk­linga.“

Hjúkrunarfræðingar hlustuðu ekki

Í for­síðu­við­tali við Vikuna árið 2013 sagði Auðbjörg frá þeim röðum atvika á barna­spít­ala Hrings­ins sem urðu til þess að Jóel lést.

Hún sagði meðal ann­ars frá því hvernig hún reyndi að fá frek­ari aðstoð lækna á barna­spít­ala Hrings­ins þegar Jóel veikt­ist í febr­úar 2001.

Jóel á leið heim af vöku­deild, 21. jan­úar 2000.

Meðferð Jóels var m.a. sú að hann fékk vökva í æð en mikil upp­köst ollu því að hann hafði orðið fyrir miklu vökva­tapi. En Jóel hresstist ekki við það og Auðbjörg varð sífellt óró­legri og vildi fá lækni til að líta á hann. „Ég kvart­aði við hjúkr­un­ar­fræð­ing­ana og bað þá að sækja lækni því ég var hætt að ná sam­bandi við Jóel og leist hrein­lega ekk­ert á ástandið. En ekk­ert gerð­ist og aldrei kom neinn læknir.

„Mestu mis­tök sem heil­brigð­is­starfs­fólk getur gert er að hlusta ekki á sjúk­ling­ana.“

Eftir á að hyggja þá er mín til­finn­ing sú að hjúkr­un­ar­fræð­ing­arnir sem voru á vakt hafi gert ráð fyrir því að ég væri bara með allt á hreinu þar sem ég er hjúkr­un­ar­fræði­menntuð sjálf og því sett ábyrgð­ina ómeð­vitað á mig. En skila­boð eins og þau að ég var hætt að ná sam­bandi við dreng­inn eru greini­leg merki um að eitt­hvað alvar­legt sé að. Mestu mis­tök sem heil­brigð­is­starfs­fólk getur gert er að hlusta ekki á sjúk­ling­ana. Um hálf­sjöleytið var hann sendur í sónar á höfði en lækn­ir­inn sem sá um það horfði hvorki á mig né Jóel og yrti ekki á okkur. Á þessum tíma­punkti var Jóel orð­inn nær með­vit­und­ar­laus. Klukku­tíma síðar hætti hann að anda og fór í dá og þá loks­ins fór allt í gang. Í ljós kom að són­ar­inn sýndi að ventill­inn [sem hafði verið komið fyrir í höfði hans vegna vökva­söfn­unar í höfði] var stíflaður sem þýddi að Jóel var í lífs­hættu, en lækn­ir­inn gerði ekk­ert. Þetta á ég ofboðs­lega erfitt með,“ sagði Auðbjörg.

Auðbjörg hefur sett af stað söfnun á Karolina Fund fyrir bóka­út­gáf­unni, hægt er að nálg­ast nán­ari upp­lýs­ingar um söfn­un­ina á Karolina Fund.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina