Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Ferðamálastofa gaf Farvel frest í 14 mánuði – viðskiptavinir íhuga að gera kröfu á stofnunina

Ferðamálastofa gaf Farvel frest í 14 mánuði – viðskiptavinir íhuga að gera kröfu á stofnunina
|||||

Ferða­skrif­stof­unni Farvel bar að skila hækk­aðri trygg­ingu í lok októ­ber 2018 sam­kvæmt ákvörðun Ferða­mála­stofu en fékk ítrek­aðan frest, allt þar til fyr­ir­tækið var loks svipt starfs­leyfi 18. des­em­ber 2019. Þá var hópur af Íslend­ingum erlendis á vegum Farvel án þess að ferða­skrif­stofan hefði greitt fyrri hót­elgist­ingu eða flug heim og fjöldi hafði greitt inn á ferðir í jan­úar 2020.

Hópur fólks sem var svikið af Farvel, 30 til 40 manns, ráða nú ráðum sínum í lok­uðum afkima á Facebook en sam­kvæmt til­kynn­ingu Ferða­mála­stofu um nið­ur­fell­ingu leyf­is­ins liggur fyrir að þar sem Farvel hafði ekki skilað inn hækk­aðri trygg­ingu myndi trygg­ingafé ekki duga til að greiða áætl­aðar kröfur. Það er undir hverjum og einum komið að freista þess að end­ur­heimta útlagðan kostnað, hvort sem er frá Farvel eða korta­fyr­ir­tækj­unum, en í Facebook hópnum er rætt að gera kröfu á Ferða­mála­stofu um það sem útaf stendur, þar sem stofn­unin hafi ekki sinnt eft­ir­lits­hlut­verki sínu sem skyldi.

„Þessi stofnun er búin að vita það í 14 mán­uði að ferða­skrif­stofan upp­fyllir ekki skil­yrði laga til að halda starfs­leyf­inu. Þetta eru dýrar ferðir og Ferða­mála­stofa veit að fólk er að leggja út mikla pen­inga í þeirri trú að eft­ir­litið virki. En þeir horfa á þetta ger­ast eins og með­vit­und­ar­lausir ein­stak­lingar,“ segir Eiríkur Jónsson, sem var einn þeirra sem hafði greitt fyrir ferð með Farvel. Eiríkur hefur átt í sam­skiptum við Ferða­mála­stofu og óskað eftir upp­lýs­ingum. Einhver svör hafa borist en það vekur athygli að þau eru óund­ir­rituð og aðeins merkt með kveðju frá starfs­fólki stofn­un­ar­innar.

Veittu fyrirtækinu ítrekað frest, í meira en ár

Í fyr­ir­spurn Eiríks til Ferða­mála­stofu 19. des­em­ber sl. segir m.a. að ljóst sé af tölvu­pósti stofn­un­ar­innar til við­skipta­vina Farvel þar sem til­kynnt var um nið­ur­fell­ingu leyf­is­ins að starfs­mönnum hennar hefði mátt vera ljóst að á meðan ferða­skrif­stofan fékk ítrekað frest til þess að koma trygg­inga­málum sínum í lag væri fjöldi fólks að greiða hund­ruð þús­unda inn á reikn­ing fyr­ir­tækis sem ekki upp­fyllti skil­yrði laga til að stunda ferða­skrif­stofu­rekstur. „Það má leiða líkur að því að með þessu hafi stofn­unin ekki upp­fyllt skyldur sínar varð­andi upp­lýs­inga­gjöf og með því stefnt fjár­munum fjölda fólks í hættu,“ sagði Eiríkur.

Svör Ferða­mála­stofu, sem bár­ust 10. jan­úar sl., voru á þá leið að jafn­vel þótt stofn­unin hefði heim­ild til að fella niður leyfi í til­vikum á borð við þetta, væri henni það ekki skylt. Ferða­mála­stofa þyrfti að gæta þess sér­stak­lega að ganga ekki lengra en nauð­syn bæri til og þar sem nið­ur­fell­ing væri mjög íþyngj­andi væri henni aðeins beitt þegar önnur úrræði væru að fullu tæmd. Slíkt ferli gæti tekið langan tíma.

Sú var enda raunin í til­viki Farvel. Samkvæmt svörum Ferða­mála­stofu var stofn­unin ítrekað í sam­skiptum við Farvel og veitti for­svars­mönnum fyr­ir­tæk­is­ins ítrekað frest.

Farvel átti að skila hækk­aðri trygg­ingu í lok októ­ber 2018. Í nóv­em­ber sendi Ferða­mála­stofu fyr­ir­tæk­inu ítrekun og veitti því frest til að skila inn gögnum til mán­að­ar­loka. Innan frests­ins skil­uðu for­svars­menn Farvel gögnum þar sem óskað var eftir end­ur­skoðun á trygg­inga­fjár­hæð­inni. Gögnin voru ófull­nægj­andi og var svarað með athuga­semdum. Í jan­úar 2019 fékk Ferða­mála­stofa upp­lýs­ingar um að Farvel hefði leitað til umboðs­manns erlends trygg­inga­fé­lags og fyr­ir­tækið fékk í kjöl­farið frest til febr­ú­ar­loka til að skila inn hækk­aðri trygg­ingu og ítar­legum gögnum.

Í lok febr­úar barst Ferða­mála­stofu beiðni frá lög­manni Farvel um frest til loka mars þar sem unnið væri að því að útvega banka­á­byrgð. Ferða­mála­stofa hafn­aði því en veitti fyr­ir­tæk­inu „svig­rúm“ til að klára að ganga frá trygg­ing­unni gegn fram­lagn­ingu stað­fest­ingar frá banka um að unnið væri að mál­inu. Farvel var í mars send ítrekun en brást við með því að senda fyr­ir­spurn um hvernig fyr­ir­tækið ætti að snúa sér í því að fá leyfið nið­ur­fellt. Upp­lýs­ingar voru veittar en engin slík beiðni barst Ferða­mála­stofu.

„Ekkert á þessum tíma­punkti gaf til kynna annað en að Farvel ehf. væri að standa við gerða pakka­ferða­samn­inga og taldi Ferða­mála­skrif­stofa ekki til­efni til að fella leyfið niður“

Í apríl fékk stofn­unin þau svör að Farvel ætti í samn­inga­við­ræðum við aðra ferða­skrif­stofu um að taka rekst­ur­inn yfir og í maí að samn­ingar væru á loka­metr­unum. Í stuttu máli barst síðan stað­fest­ing frá umræddri ferða­skrif­stofu í júní að umræddir samn­ingar væru í höfn og var þá veittur frestur til að skila inn nýjum gögnum til að end­ur­út­reikna trygg­inga­fjár­hæð sam­ein­aðs fyr­ir­tækis en í ágúst bár­ust þær fregnir að hætt hefði verið við sam­ein­ing­una. Farvel óskaði í kjöl­farið eftir frest til að athuga með trygg­ingu hjá skand­in­av­ísku trygg­inga­fé­lagi, sem var veittur.

„Ekkert á þessum tíma­punkti gaf til kynna annað en að Farvel ehf. væri að standa við gerða pakka­ferða­samn­inga og taldi Ferða­mála­skrif­stofa ekki til­efni til að fella leyfið niður,“ segir í svari stofn­un­ar­innar til Eiríks en ljóst er að Farvel hafði á þessum tíma ekki upp­fyllt skil­yrði laga í marga mán­uði.

Hagsmunir lögbrjótsins settir framar hagsmunum neytenda

Ferða­mála­stofa sendi enn ítrekun í sept­em­ber en þá stöðv­að­ist eft­ir­fylgni með mál­inu vegna ann­ríkis í kjöl­far rekstr­ar­stöðv­unar Gaman ehf. Málið var tekið upp að nýju í byrjun nóv­em­ber. „Eftirlit Ferða­mála­stofu leiddi í ljós að Farvel ehf. hafði aukið umsvif sín og aug­lýsti nýjar og dýrar ferðir á nýju ári. Ferða­mála­stofa reyndi ítrekað að ná í for­svars­mann Farvel ehf. til að fara yfir stöð­una en hann lét ekki ná í sig. Á þeim tíma­punkti rann upp fyrir Ferða­mál­stofu að rekstr­ar­hæfni fyr­ir­tæk­is­ins væri mögu­lega brostin og í kjöl­farið var Ferða­mála­stofu þá nauð­ugur einn kostur að nýta heim­ild­ar­á­kvæði stofn­un­ar­innar og fella niður leyfi Farvel ehf. áður en umsvifin myndu aukast frekar,“ segir í svar­inu til Eiríks.

Farvel var til­kynnt 29. nóv­em­ber að starfs­leyfi fyr­ir­tæk­is­ins yrði fellt niður 16. des­em­ber ef umbeðin gögn bær­ust ekki Ferða­mála­stofu. Engin svör bár­ust og þá náð­ist ekki í for­svars­menn ferða­skrif­stof­unnar þegar óskað var upp­lýs­inga um við­skipta­vini sem voru í ferðum eða áttu pant­aðar ferðir. Leyfið var loks, eins og fyrr segir, fellt niður 18 des­em­ber. „Eftir ítrek­anir bár­ust umbeðnar ferða- og far­þega­upp­lýs­ingar í lok dags 19. sept­em­ber. Þá fyrst varð Ferða­mála­stofu ljóst hversu slæm staðan var.“

Eiríkur segir þessa afgreiðslu máls­ins með ólík­indum.

„Það er greini­legt að ferða­skrif­stofan ætl­aði aldrei að [ganga frá trygg­ing­unni]. Þeir nota tím­ann þarna og hringja í fólk til að minna á að það sé komið að loka­gjald­daga. Það er kannski alvar­leg­ast,“ segir Eiríkur en Ferða­mála­stofa stað­festir í svörum sínum að Farvel hafi sent fólk í ferð þrátt fyrir að hafa vitað að til stæði að fella niður leyfið og vit­andi það að ekki var búið að greiða fyrir hót­elgist­ingu eða heim­flug. Þá hafi Ferða­mála­stofa fengið vit­neskju um að for­svars­menn Farvel hefðu haft sam­band við ein­hverja við­skipta­vini og óskað eftir því að þeir gengju frá greiðslu jafn­vel þótt að þeir hefðu vitað „að þjón­ustan sem verið var að greiða fyrir yrði ekki fram­kvæmd sam­kvæmt samn­ingi.“

„Þeir hafa bara látið fara með sig eins og apa“

Ferða­mála­stofa hefur sagt að til skoð­unar sé að til­kynna málið til lög­reglu. Eiríkur segir und­ar­legt að það hafi ekki þegar verið gert. „Þetta er nátt­úr­lega bara glæp­a­starf­semi,“ segir hann. Hann er hins vegar ekki síður harð­orður í garð Ferða­mála­stofu. „Farvel hefur verið að fók­usa á dýrar vetr­ar­ferðir. Af hverju leyfðu þeir þeim að aug­lýsa vetr­ar­ferð­irnar og taka fé af fólki?“ spyr hann.

Eiríkur seg­ist einnig spyrja sig að því hvaða hags­muni sé verið að verja, þegar aðilum á borð við Farvel sé ítrekað veittur frestur þrátt fyrir að þeir fari ekki að lögum. „Það vissu allir sem voru að kaupa ferðir með WOW air að þeir væru að hætta fé. En í þessu til­felli hefur ekki komið hóst eða stuna um að þarna sé eitt­hvað í gangi,“ segir hann. „Það er svo skrýtið að verja við­skipta­hags­muni þeirra sem eru að brjóta lögin og koma í veg fyrir að við­skipta­vinir fái upp­lýs­ingar.“ Fólk hafi tapað allt að 2 millj­ónum á við­skiptum sínum við Farvel.

Þess ber að geta að þrátt fyrir að leyfi Farvel hafi verið fellt niður hefur fyr­ir­tækið ekki verið lýst gjald­þrota. For­svars­menn þess hafa ekki tjáð sig um málið né liggur neitt fyrir um hvert sá pen­ingur fór sem var inn­heimtur af við­skipta­vinum allt þar til upp­lýst var að fleiri ferðir yrðu ekki farnar á vegum ferða­skrif­stof­unnar

Veistu meira? Hafðu sam­band við okkur á ritstjó[email protected].

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi