Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Fólk

Selja eitt minnsta einbýli Reykja­víkur á ótrúlegu verði

Innlent

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Innlent

Ásta Bjarney valin framyfir sjö aðra

Innlent

Ísland gefur þrjá sjúkra­bíla og 33 mótorhjól til Malaví

Innlent

Matvæla­stofnun fylgist náið með útbreiðslu veiru í hundum

Heimur

Kona lést eftir að hafa gengið á flugvélar­skrúfu

Peningar

Kröfur upp á rúmar 33 milljónir fengust ekki greiddar

Innlent

Eftir­lýstur maður óvænt gripinn

Fólk

„En svo lenti ég í því að eignast mann“

Innlent

Móðir lýsir biðinni eftir fréttum af frumburði sínum

Einar Hermannsson og listi hans kjörinn á aðalfundi SÁÁ

Ein­ar Her­manns­son og listi hans báru sigur í býtum á aðalfundi SÁÁ sem hófst kl. 17 í dag. Einar og Þór­ar­inn Tyrf­ings­son sóttust báðir eftir sæti for­manns.

Aðal­fundur SÁÁ hófst klukkan 17 í dag á Hilton Reykjavik Nordica við Suður­landsbraut.

Dagskrá fundarins er samkvæmt fundar­boði:
1. Skýrsla stjórnar
2. Reikningar samtak­anna lagðir fram
3. Laga­breytingar
4. Kosning í stjórn
5. Ákvörðun félags­gjalda
6. Önnur mál

Ljós­myndara Mannlífs var vísað frá fundi. Sama var með ljós­myndara DV, eins og greint var frá í frétt miðilsins, en hann fékk þau svör að það væri vegna samkomu­banns.

Mynd / Hákon Davíð

Samkvæmt heimilda­manni Mannlífs eru um 500 manns á fundinum. Samkvæmt samkomu­bann mega viðburðir, líkt og aðal­fundurinn nú, ekki fara yfir 500 manns.

Samkvæmt heimildar­manni Mannlíf tók meira en klukku­tíma að ákveða hver ætti að vera fundar­stjóri. Kosið var á milli Harðar Oddfríðar­sonar, sem fékk 55% og Jóns Magnússonar, sem fékk 42,86%. Önnur atkvæði voru auð.

Aðal­stjórn SÁÁ er skipuð 48 manns, en á hverjum aðalfundi eru kosnir 16 þeirra. Aðal­stjórn kýs sér formann samkvæmt 7. grein laga SÁÁ eins og henni var breytt á aðalfundi 1. júní 2017.

Aðal­stjórn samtak­anna skipa 48 menn. Kjörtími stjórnar­manna er þrjú ár og skulu 16 kjörnir á hverjum aðalfundi auk 7 varamanna til eins árs. Endur­kosning stjórnar­manna er heimil. Kjör­gengir eru, auk einstaklinga sem aðild eiga að samtökunum, fyrirsvars­menn félaga sem aðild eiga. Séu slíkir menn kjörnir í stjórnina sitja þeir út kjörtíma sinn þó þeir hætti sem fyrirsvars­menn þess félags sem aðildina á að samtökunum. 

Allir þeir sem buðu sig fram í stjórn Einars Hermanns­sonar náðu kjöri sem stjórnar­meðlimir SÁÁ. Varamenn á lista Einars náðu einnig kjöri.

Samkvæmt 7. gr. er Einar því enn ekki formaður, og leið­réttist það hér með, en líklegt verður að telja að hann njóti fylgis í það starf.

Kári Stef­áns­son, for­stjóri Íslenskr­ar erfða­grein­ing­ar, kem­ur inn sem aðalmaður í stjórn í stað Lindu Pét­urs­dótt­ur, til eins árs.

Framboð Einars og Þórarins dreifðu listum á fundinum, þar sem fram komu nöfn þeirra sem bjóða sig fram í stjórn og vara­stjórn SÁÁ.

Listi fram­boðs Einars

Í stjórn eru kjörin: Anna Hildur Guðmunds­dóttir, Berglind Þöll Heimis­dóttir, Frosti Logason, Gróa Ásgeirs­dóttir, Haukur Einarsson, Hekla Jóseps­dóttir, Héðinn Eyjólfsson, Hilmar Kristensson, Hörður Svavarsson, Ingibergur Ragnarsson, Sigur­björg Anna Þór Björns­dóttir, Sigurður Ragnar Guðmundsson, Steinunn Valdís Óskars­dóttir, Valgerður Rúnars­dóttir, Þóra Kristín Ásgeirs­dóttir og Þráinn Farestveit.

Í vara­stjórn eru Ásmundur Friðriksson, Grétar Örvarsson, Hörður J. Oddfríðarson, Ingunn HansdóttirÓskar Torgi Viggósson, Ragnar Þór Reynisson og Rúnar Freyr Gíslason.

Listi framboðs Þórarins

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Heimur

Náttfata­veisla unglings­stúlkna endaði í harmleik

Um 50 ungmenni mættu í veisluna eftir að hún hafði verið auglýst á netinu
Heimur

„Þekktasta klámstjarna Ítalíu“ vill verða borgar­stjóri Rómar

Heimur

Tveggja barna faðir skotinn til bana á þakkar­gjörðar­daginn

Heimur

Sautján ára skóla­stúlka lést eftir árás

Innlent

Húsfélagi óheimilt að rukka skrópara

Innlent

Mál vegna gruns um kynferðis­brot í Garðaseli fellt niður

Maðurinn var handtekinn 17. mars en sleppt skömmu síðar. Honum var vikið úr starfi meðan rannsóknin stóð yfir.

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Kveikti í íbúð með vél úr mótor­hjóli

Innbrot og þjófnaður í heimahúsi í Árbæ

Sex dæmdir í fangelsi fyrir umferðar­lagabrot sama dag

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu