Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Dísella og Bragi eiga von á barni: „Algjört kraftaverk“

Dísella og Bragi eiga von á barni: „Algjört kraftaverk“
Dísella Lár­us­dóttir. Mynd / Heiða Helga­dóttir Birtíngur

Óperu­söng­konan Dísella Lár­us­dóttir og Bragi Jónsson rekstr­ar­stjóri Leigu­mark­aðar BYKO eiga von á sínu þriðja barni, en fyrir eiga þau tvo syni.

„Þetta er stór­kost­legt og ynd­is­legt en líka svo­lítið erfitt. Þessir furðu­legu tímar vekja auð­vitað upp hjá manni alls konar efa­semdir og hræðslu,“ segir Dísella, spurð hvernig til­finnig sé að vera barns­haf­andi. „Svo getur með­ganga líka endað á alls konar vegu,“ bætir hún við. „Við erum alveg með­vituð um þá stað­reynd en reynum bara að halda í jákvæðn­ina og vonum nátt­úru­lega að allt fari vel.“

Dísella er hálfnuð á með­göng­unni, komin 20 vikur á leið og segir að hingað til „líti allt vel út“. „Það vekur hjá manni von um að eitt­hvað sé alla vega að ganga upp á þessu furðu­lega ári,“ segir hún glað­hlakka­lega.

„Þetta er stór­kost­legt og ynd­is­legt en líka svo­lítið erfitt. Þessir furðu­legu tímar vekja auð­vitað upp hjá manni alls konar efa­semdir og hræðslu.“

Fyrir eiga Dísella og eig­in­maður hennar Bragi Jónsson tvo syni, Jökul Orra, fimm ára og Bjart Lárus, tíu ára. Að sögn Dísellu bíður yngri son­ur­inn í ofvæni eftir því að eign­ast systk­ini. „Hann er svaka­lega kátur með að verða stóri bróðir og er búinn að tala um systur sína síðan síð­asta haust, kom meðal ann­ars heim með mál­aða fjöl­skyldu­mynd um jólin þar sem hann hafði bætt henni við inn á mynd­ina,“ segir hún og hlær.

„Við vitum reyndar ekk­ert hvort þessi lang­þráða ósk hans um að eign­ast systur verður að veru­leika eða ekki,“ tekur hún fram, „þar sem við vitum ekki hvort þetta er stelpa eða strákur, fengum upp­lýs­ingar um það afhentar en höfum enn ekki kíkt í umslagið og ég veit hrein­lega ekki hvort við gerum það. Ég vissi aldrei kynið á fyrri með­göngum, fannst það bara algjört auka­at­riði og Bjartur Lárus vill ekki að við kíkjum, alla vega ekki strax.“

Dísella svarar aðspurð að barn­eignir hafi verið á dag­skránni. „Okkur lang­aði í annað barn, já,“ segir hún. „Auðvitað er samt erfitt að skipu­leggja barn­eignir fyrir mann­eskju eins og mig, sem starfs síns vegna er stöðugt á ferð og flugi og mikið fjar­ver­andi. Fyrir utan það að það má helst ekki sjást á mér á sviði. Við höfum alveg reynt þetta áður, innan þessa þrönga ramma sem það leyfir, og þá er auð­vitað ýmis­legt sem maður þarf að taka með í dæmið, ekki bara með­göng­una heldur líka aðlög­un­ina eftir fæð­ingu,“ nefnir hún sem dæmi. „En þetta ger­ist bara þegar þetta ger­ist og í hvert skipti er þetta algjört krafta­verk.“

Dísella er hálfnuð á með­göng­unni, komin 20 vikur á leið og segir að hingað til „líti allt vel út“.

Eins og kunn­ugt er hefur Dísella verið að syngja og leika á sviði Metropolitan-óper­unnar í New York og gert þar góða hluti. Óperan hefur hins vegar verið lokuð frá 12. mars vegna kór­ónu­veiru­far­ald­urs­ins og segir Dísella að enn sé óljóst hvenær hún hefji starfs­semi á nýjan leik. Framtíð óperu­húsa yfir­leitt sé frekar óljós vegna ástands­ins í heim­inum.

„Eina sýn­ingin sem ég tek þátt í, sem hefur ekki verið aflýst eða frestað, er sýn­ing í Nice, í Frakk­land núna í haust. Þeir hjá óperu­hús­inu þar vita af með­göng­unni og sögðu að það yrði ekki vanda­mál þótt það sæist á mér þar sem ég fer með hlut­verk móður í sýn­ing­unni. Annað er ekki á döf­inni hjá mér. Þannig að ég ætla bara að taka eitt skref í einu og svo njóta þess að vera róleg með litla barnið og fjöl­skyld­unni heima á Íslandi í jan­úar,“ segir hún full til­hlökk­unar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Geðlæknirinn Haraldur lætur allt flakka
Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Menning

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Hrósar lýsingum Laxness á íslenskri náttúru og árstíðunum
Myndband
Menning

Luthers­son frum­sýnir blóð­uga ást­ar­sögu í eyði­mörk Kali­forníu

Menning

Sendu sím­ann í svefn­poka og fáðu smá frið

Menning

Ást, missir og barn­þrá í upp­seldri skáld­sögu Mar­grétar

Menning

Frá Rocky og Springsteen til aftöku í Sádi-Arabíu