Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Eik fjármagnaði námið sitt með þjórfé: ,,Mætti með feitt umslag…“

Eik fjármagnaði námið sitt með þjórfé: ,,Mætti með feitt umslag…“
Eik með hund­inn Stínu. Mynd / Tova Maria Rud

,,Ég borg­aði námið mitt með öllu tips-inu sem ég fékk á Hard Rock,“ segir Eik Arn­ars­dóttir, marg­faldur meist­ari í hunda­snyrt­ingum og eig­andi hunda­snyrti­stof­unnar Sassy Dogs í Gauta­borg. Eik flutti til Sví­þjóðar fyrir tæpum tíu árum síðan, um leið og 18 ára afmæl­is­dag­ur­inn rann upp. Ákvað hún að segja engum frá fyr­ir­hugðum flutn­ingum heldur sagð­ist hún ein­ungis ætla að heim­sækja vin­konu sína þar. ,,Mig vant­aði svo að flýja stað og stund. Þannig ég stökk liggur við bara upp í flug­vél með nokkrar nær­buxur í bak­poka og tíu þús­und kall í vas­anum.“ segir hún kímin.

Á sófanum hjá vinum og vandamönnum

Fyrst um sinn bjó hún í raun hvergi. ,,Ég fékk að gista á sóf­anum hjá hinum og þessum þar til ég fékk svo loks­ins leigt her­bergi. Ég er búin að flytja svona hund­rað sinnum síðan ég flutti hingað en það kom aldrei til greina að fara aftur heim til Íslands.“ Það var mikið gæfu­spor fyrir Eik að fá vinnu sem þjón­ustu­stúlka á veit­inga­staðnum Hard Rock tveimur dögum eftir að hún lenti í Svíþjóð. ,,Ég kunni ekki staf í  sænsku eða neitt og var engan veg­inn að búast við því að fá vinnu svona fljótt,“ segir hún. Hún segir það jafn­framt hafa bjargað öllu að hafa fengið starf með jafn skjótum hætti, þá aðal­lega vegna þjórfé menn­ing­ar­innar sem ríkir í Svíþjóð. ,,Ég fékk pen­ing strax! Því meira sem ég vann því meira tips gat ég fengið. Ég sá það frekar fljótt að þannig gæti ég sett meira og meira fyrir.“

Nám í hundasnyrtingu

,,Ég vissi að ég ætl­aði ekki að vinna á Hard Rock alla ævi og ákvað á ein­hverjum tíma­punkti að skrá mig í hunda­snyrti­nám og vann með­fram nám­inu. Hundar hafa alltaf verið stór partur af mér. Ég og hund­arnir skiljum hvort annað ein­hvern veg­inn,“ segir Eik sann­fær­andi. Læri­meist­ari Eikar sá strax hvaða hæfi­leikum hún bjó yfir og fyrr en varði var Eik boðið starf á hunda­snyrti­stofu. ,,Ég þáði það auð­vitað með þökkum og vann á hunda­snyrti­stof­unni á dag­inn og tók vaktir á Hard Rock á kvöldin og um helgar. Maður vann í raun­inni allan sól­ar­hring­inn,“ segir hún. Þessi mikli dugn­aður bjarg­aði Eik, því hún gat greitt fyrir námið sitt með pen­ing­unum sem hún hafði þjénað í gegnum þjórfé á veit­inga­staðnum. ,,Ég mætti bara með feitt umslag og borg­aði fyrir námið, það var góð til­finn­ing að geta gert þetta sjálf,“ segir Eik, stolt af sjálfri sér. Stuttu síðar kveður hún þjóna­starfið á Hard Rock. Hunda­snyrtir­inn átti hug hennar allan. ,,Ég byrja á fullu á hunda­snyrti­stof­unni, fæ mikið af nýjum kúnnum og svona. Svo ger­ist það að eig­andi stof­unnar þarf skyndi­lega að fara í veik­inda­leyfi og þá þurfti ég bara að gjöra svo vel að standa mig,“ segir hún, og þurfti á þeim tíma­punkti að sjá alfarið um stof­una upp á sitt eins­dæmi um nokk­urt skeið. ,,Mér er bara grýtt í djúpu laug­ina þarna, tví­tugri stelpu. En vá, hvað ég lærði mikið.“

Hundar skipa stóran sess í lífi Eikar. Mynd / Tova Maria Rud.

Keppnir víða um heim með sænska landsliðinu í hundasnyrtingu

Þegar þarna var við sögu komið ákvað Eik einnig að taka þátt í sinni fyrstu keppni í hunda­snyrt­ingu. Þar kom hún, sá og sigr­aði í sínum flokki. ,,Ég vann í byrj­enda­hópnum með kóngapúðla og fékk þar með dell­una fyrir því að keppa. Ég er keppn­is­mann­eskja inn við beinið.“ Eik hefur keppt á hunda­snyrti­mótum víðs vegar um heim­inn og oftar en ekki unnið til verð­launa fyrir verk sín. ,,Ég hef til dæmis farið til Írlands, Noregs, Belgíu og svo auð­vitað keppt hér inn­an­lands í Svíþjóð. Ég fer ekki á mót til þess að tapa. Mér finnst alltaf jafn erfitt að keppa á mótum. Ég eig­in­lega hata það á sama tíma og ég elska það. Skil ekki afhverju ég geri mér þetta aftur, og aftur, og aftur. Ég held að ég elski ég að ögra sjálfri mér,“ segir hún ákveðin. Eik hefur unnið til fjölda verð­launa og er Svíþjóða- og Nor­egs­meist­ari í hunda­snyrt­ingu í púðlu­flokki og einnig yfir alla flokka fyrir árið 2019. En sökum Covid heims­far­ald­urs­ins þá var mótið blásið af árið 2020 og einnig heims­meist­ara­mótið sem átti að fara fram í Frakk­landi. Á sama tíma var hún valin hunda­snyrtir árs­ins í Svíþjóð. ,,Það er erfitt að keppa á svona mótum. Hafa ein­hvern dóm­ara hang­andi yfir sér allan tím­ann og dæma það sem maður er að gera. Svo eru keppn­is­að­stöð­urnar jafn mis­jafnar og þær eru margar, plássið og ljósið og allt þetta. Þetta getur allt skipt mjög miklu máli.“

Þrátt fyrir þessar blendnu til­finn­ingar sem Eik hefur fyrir keppn­unum þá er hún ein af sex liðs­konum sænska lands­liðs­ins í hunda­snyrt­ingum. ,,Ég sver það, ég skil ekk­ert hvernig stendur á því að ég sé í lands­lið­inu. Ég á það til að brjóta mig sjálfa niður og finn­ast það sem ég geri ekki nógu gott. Það er það fyndna við það. En af ein­hverri ástæðu er ég á þessum stað – það hlýtur að vera,“ segir Eik og hlær.

Stína fína með feld­inn í lagi. Mynd / Tova Maria Rud.

Kaup á stofu

Fyrir um fimm árum síðan ákvað Eik að festa kaup á stof­unni sem hún hafði starfað hjá. ,,Eigandi stof­unnar hafði ákveðið að hætta þannig ég sá tæki­færi í því,“ segir Eik sem á og rekur nú eina vin­sæl­ustu hunda­snyrtis­of­una í Gauta­borg í Svíþjóð. Fyrst um sinn fann hún fyrir miklum for­dómum, bæði hvað varðar kyn hennar og aldur. ,,Það vill eng­inn lána lít­illi stelpu pen­ing fyrir þess­ari glöt­uðu hug­mynd. Ég þurfti svo­leiðis að höstla mig í gegnum það að fá lán,“ segir Eik og hlær. Hún seg­ist hafa þurft að ganga á milli fjár­mála­fyr­ir­tækja og hafi alltaf komið að lok­uðum dyrum hvert sem hún leit­aði. Það var þó einn aðili sem svar­aði kall­inu sem varð svo til þess að Eik gat loks­ins fest kaup á stof­unni. ,,Ég fann ein­hvern skrýt­inn mann sem átti eitt­hvað lítið lána­fyr­ir­tæki sem var til í að lána mér pen­ing. En það var bara af því að ég var frá Íslandi og hann elskaði íslenska hesta – ég nýtti mér það.“

Í dag starfa fjórir hunda­snyrtar hjá Sassy Dogs og segir Eik stof­una rekna með hagn­aði. ,,Við erum allar full­bók­aðar alla daga og getum ekki tekið inn nýja kúnna, þannig það er nóg að gera,“ segir hún, sann­fær­andi. ,,Ég er með góða verð­skrá og fag­menn í vinnu og það skapar gott orð­spor. Svo legg ég líka mikið upp úr því að reka stof­una með gleði og traust að vopni, bæði fyrir starfs­fólkið mitt og við­skipta­vin­ina. Það hefur gert mér og rekstr­inum gott.“

Eik hefur unnið til fjölda verð­launa eins og sjá má. Mynd / Tova Maria Rud.

Aukin tækifæri í heimsfaraldrinum

Eik hefur ekki setið auðum höndum síð­ast­liðið ár. Í miðjum heims­far­aldri sá hún tæki­færi í því að setja á lagg­irnar verslun sem selur gæða­vott­aðar vörur fyrir hunda. ,,Það hefur verið mikið að gera hjá okkur í Covid. Ég held að það sé vegna þess að fólk er meira heima og hefur haft tíma til þess að pæla í dýr­unum sínum. Ég ákvað svo að nýta tím­ann og láta verða að hug­mynd­inni um að opna búð með ýmsum vörum fyrir hunda, eins og föt og svona. Mér fannst vöntun á svona verslun hér í Gauta­borg og þetta smellpassar við ,,concept-ið“ mitt.“ Aðspurð seg­ist Eik ekki vera á leið­inni heim til Íslands á næstu miss­erum. „Nei, ég held að það sé ekki að fara ger­ast strax. Kærast­inn minn er sænskur og hér höfum við komið okkur vel fyrir. Svo er ég líka svo­lítið stjórn­söm. Held ég myndi ekki geta verið á Íslandi og látið ein­hvern annan stjórna á stof­unni sem ég hef lagt jafn mikla vinnu í að eign­ast og gera að minni. En maður veit aldrei – aldrei að segja aldrei,“ segir þessi hörku­dug­legi hunda­snyrtir að lokum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Málið kemur upp eftir stjórnarskipti í Serbíu, þar sem barátta gegn spillingu var í forgrunni
Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Fólk

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Fólk

Nabblinn leggur bleyj­una á hill­una

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Fólk

Fimm hlutir sem geta reynt á sam­bandið þegar mak­inn er með ADHD

Viðtal
Fólk

Ekkert minni konur en aðrar konur

Myndir
Fólk

Óvenju­legt sölu­til­boð í Reykja­vík þar sem maka­skipti koma til greina