Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Guðmundur Felix vill sjá gosið og safna hrauni um jólin: „Verð farinn að heilsa með handabandi“

Guðmundur Felix vill sjá gosið og safna hrauni um jólin: „Verð farinn að heilsa með handabandi“

„Í dag er brak­andi sól en búið að rigna stans­laust í mánuð og það á víst að halda áfram. Ég hef ekki upp­lifað svona skíta­veður í þau átta ár sem ég hef búið hérna, Frakk­land er búið að vera á floti síðan í apríl. En þegar því lýkur verður maður verður fljót­lega far­inn að kvarta yfir hit­anum, hér er yfir 40 stiga hiti í júlí og ágúst og bull­andi raki,“ segir Guð­mundur Felix Grét­ars­son, heims­ins fyrsti maður til að fá á sig grædda hand­leggi.

Þegar Mannlíf tal­aði síð­ast við Guðmund Felix í mars var hann byrj­aður að fá til­finn­ingu í aðra öxl­ina og áætl­aði að vera kom­inn með til­finn­ingu í hend­urnar eftir tvö ár. Hann var von­góður um að sú áætlun myndi stand­ast en nú er breyt­ing á.

Eins og bank í vitlausa beinið

„Þetta gengur betur en nokkuð hefði þorað að vona. Mér var sagt að taug­arnar yxu enn milli­metra á dag og sam­kvæmt því ætti ég að fá til­finn­ingu í oln­boga ári eftir aðgerð og niður í fingur eftir tvö ár. En núna finn ég fyrir taugum í báðum oln­bogum og úln­lið hægra hægra megin. Þetta er dásam­leg en rosa­lega skrítin til­finn­ing, svipuð því þegar það er bankað í vit­lausa beinið á manni”.

Guð­mundur Felix er glaður og bjart­sýnn. „Ég er búin að ná sama árangri á fjórum árum og gert var ráð fyrir á tveimur árum. Það verður rosa­lega spenn­andi að fylgj­ast með hvað ger­ist næstu vik­urnar og mán­uði. Ef tauga­grein­arnar halda áfram að vaxa á þesu hraða ætti ég að geta hreyft hend­urnar fyrir lok sum­ars­ins. Þetta er alveg magnað, eng­inn átti von á þessu og ég skil þetta ekki frekar en aðrir. Ég tal­aði við skurð­lækn­inn í dag og nú er bara beðið eftir að sjá hvað ger­ist næst. Það hefur eng­inn neina hug­mynd”.

Betra að hafa hendur en ekki

Guð­mundur Felix segir að ef taug­arnar haldi áfram að vaxa á sama hraða verði hann far­inn að heilsa með handa­bandi um jólin. „Það er magnað eftir að hafa ekki haft hendur í 23 ár. Nú er ég búin að prófa að vera með hendur og vera án þeirra og hef kom­ist að þeirri nið­ur­stöðu að það er betra að hafa hendur. Allt er auð­veld­ara því við skynjum heim­inn og nærum­hverfi okkar svo mikið snert­ingu. Mig langar að snerta kon­una mína og klóra mér í nef­inu þegar mig klæjar, í dag þarf ég að finna eitt­hvað horn að nudda mér í. Það er þessi litlu atriði sem fólk hugsar kannski ekki út í. Það er alltof mikið raus í fólki sem hefur það bara hel­víti gott“.

Alltaf pikk í gangi

Hann segir að nú séu að opn­ast dyr sem veiti öðrum í sömu stöðu von en eng­inn vissi á hverju mætti eiga von þegar hann fór í ágræðsl­una.

„Þetta var mikið álita­mál á sínum tíma en manns­lík­am­inn er magn­aður. Ég fæ einnig mikla og góða þjálfun við að styrkja mig, hún er reyndar strembin. Ég fer alla daga vik­unnar og tvisvar í viku í blóðprufur. Í sjúkra­þjálfun­inni rækta ég lík­amann til að stífna ekki upp og geri heila- og tauga­æf­ingar sem ég finn að eru að virka. Það er verið að búa til nýjar tauga­brautir, ekki bara fyrir með­vitað virkni heldur líka ómeð­vit­aðar eins og þegar æðarnar draga sig saman eða þenja sig út eftir hita­stigi. En almennt er heilsan á mér góð og ég finn að vöðvarnir í öxl­unum eru alltaf að verða sterk­ari”.

Guð­mundur Felix hefur þó lent í áföllum í ferl­inu. Hann vill samt ekki gera mikið úr því

„Ég fékk blóð­tappa í lærið og hend­urnar stokk­bólgn­uðu en en það er allt í góðu núna, tapp­inn og bólg­urnar farnar. Það þarf alltaf að vera að pikka eitt­hvað í mig og opna mig hér og þar en skrokk­ur­inn á mér er orð­inn svo vanur þessu. Það hefði örugg­lega verið hægt að fljúga flug­vél í gegnum öll götin sem hafa verið skorin í mig!” segir hann og hlær.

Kannski bara vanur þessu

Ein mesta hættan við ágræðslur er hvort fólk þoli þau gríð­ar­lega sterku ónæm­is­bælandi lyf sem nauð­syn­leg eru.

„Ég var full­komið til­rauna­dýr þar sem ég hafði farið í lifr­ar­skipti en sumir eru að fá hrika­lega slæmar auka­verk­anir. Ég þekki konu sem fékk ágræddar á sig hendur og það gekk svo vel að hún var farin að spila tölvu­leiki. Hún lét aftur á móti taka af sér hend­urnar því hún þoldi ekki lyfin. Ég finn ekk­ert fyrir þeim eða er kannski er ég bara vanur þeim, ég veit það ekki”.

Hann losn­aði af sjúkra­hús­inu í síð­asta mán­uði og er því guðslif­andi feg­inn.

„Ég er bara heima núna, það munar öllu. Þetta er eins og hver önnur vinna, ég mæti á sjúkra­húsið átta eða níu á morgn­ana og er til fjögur og fæ að borða og sofa heima hjá mér. Ég tek meira að segja með mér nesti í því það er bara ekki hægt að slafra sífellt í sig sama óætið á þessu sjúkra­húsi dag­inn út og inn“.

Langar á gosstöðvarnar

Hann hlakkar til sum­ars­ins og ætlar með fjöl­skyld­unni í hjól­hýsa­ferð í ágúst.

„Ég elska Frakk­land í ágúst. Það er svo mikið af fal­legum stöðum hérna auk þess sem allt er svo rólegt þar sem Frakkar fara almennt í frí í ágúst. Svo stefni ég á að koma heim um jólin. Ég fékk nýtt barna­barn í fyrra sem ég er ekki enn farin að sjá og á von á öðru.

Ég vona bara að gosið verði áfram, helst myndi ég vilja arka dag­lega að gos­s­töðv­unum og sanka að mér hrauni, ég er viss um að það myndi rokselj­ast á ebay! Nýjasta hraun í heimi, ekki spurn­ing,” segir Guð­mundur Felix og hlær.

Hann seg­ist auð­vitað verða stundum þreyttur og sumir dagar séu erf­ið­ari en aðrir.

„En ég fékk mestu og bestu gjöf sem hægt er að fá í heim­inum og get ekki kvartað, segir Gummi Felix, bjart­sýnn um að óska fólki gleði­legra jóla með handa­bandi.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Málið kemur upp eftir stjórnarskipti í Serbíu, þar sem barátta gegn spillingu var í forgrunni
Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð