Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Haraldur Logi missti allt í hruninu – Rekur nú stórveldi og er ástfanginn upp fyrir haus

Haraldur Logi missti allt í hruninu – Rekur nú stórveldi og er ástfanginn upp fyrir haus
Haraldur Logi

Haraldur Logi ólst upp í Hafn­ar­firði, er útlærður fram­reiðslu­maður en hefur frá því eftir útskrift aðal­lega unnið við sölu- og ráð­gjafa­störf eða þar til hann stofn­aði eigið fyr­ir­r­tæki fyrir um ára­tug. Og fyr­ir­tækj­unum hans fjölgar.

„Ég vann hjá Glitni fyrir hrun, var í útlánum, og það var ofboðs­lega skrýt­inn tími að vinna þar dag­ana fyrir hrun. Í hvert skipti sem yfir­mað­ur­inn gekk fram hjá þá hugs­aði ég með mér hvort ég yrði næst kall­aður inn því það voru upp­sagnir allt í kringum okkur.“

Svo rann sá dagur upp sem Haraldur Logi var kall­aður inn til yfir­manns­ins og honum rétt upp­sagn­ar­bréf. Hann segir að bank­inn hafi gert vel við þá starfs­menn sem misstu vinn­una varð­andi upp­sagn­ar­frest og fleira.

„Ég var far­inn að vinna hjá Korta­þjón­ust­unni um viku síðar. Ég starf­aði svo sem aug­lýs­inga­stjóri fyrir WOW air flug­fé­lagið frá 2012 og til síð­asta dags þess ágæta flug­fé­lags. Mér leið vel hjá WOW og er ég ánægður með þann góða tíma sem ég átti þar.“

Haraldur Logi átti íbúð fyrir hrun og hann missti hana.

„Það var mik­ill skellur að missa allar eigur sínar; það fór nán­ast allt í kringum hrunið. Ég var alls ekki skuld­sett­ari en hver annar en hús­næð­is­lánin hækk­uðu og launin lækk­uðu og þá var bara ekk­ert hægt að ráða við það. Lánin fóru vel yfir verð­mæti eign­ar­innar. Þetta var óyf­ir­stíg­an­legt.“

Haraldur Logi segir að þessi reynsla hafi styrkt sig.

„Það var erfitt að fara í gegnum þetta en ég held að þetta hafi styrkt mig í að vera ákveðn­ari í að skuld­setja mig ekki. Allt sem við eigum í dag höfum við byggt upp saman frá grunni,“ segir Haraldur Logi.

„Við“ er hann og ástin í lífi hans og eig­in­kona, Drífa Björk Linnet, en þau eiga fyr­ir­tæki hér á landi og erlendis. Nei, þau hafa ekki tekið lán varð­andi fyr­ir­tækin.

Ástin og rómantíkin

Haraldur Logi varð skot­inn í ungri konu, Drífu Björk Linnet, í apríl árið 2008; hru­nárið mikla. Hann segir að hún hafi ekki orðið jafn­skotin í sér.

„Ég gafst hins vegar ekki upp á þver­móðsk­unni í þess­ari sveita­stelpu og var sann­færður um að hún yrði konan mín. Við hitt­umst svo 31. ágúst í gegnum sam­eig­in­lega vini. Ég bauð henni í kaffi­bolla.“

Drífa þáði loks­ins kaffi­boll­ann.

„Og við erum ennþá að drekka það kaffi.“

Hún varð bál­skotin í honum. Það var ekki aftur snúið.

Hvað er ástin?

„Ástin er vin­átta, virð­ing, feg­urð og auð­mýkt myndi ég segja.“

Hann er spurður hvort hann sé róm­an­tískur.

„Oftast já,“

Í hverju felst það?

„Hún felst í þessum litlu hlutum. Að leggja teppi yfir kon­una mína, bjóða henni góða nótt og svo góðan dag með kossi, senda henni fal­leg skila­boð yfir dag­inn, færa henni ristaða brauð­sneið og útbúa morg­un­mat­inn hennar áður en ég fer í vinn­una fyrir utan svo allt hitt eins og að fara út að borða og hafa það kósí.“

Haraldur Logi og Drífa giftu sig á Ítalíu og eiga tvö börn sem eru sjö og níu ára, þau Björk Linnet og Harald Loga yngri.

Reykjavík Warehouse og leyndarmálið

Aftur til baka í tíma.

Haraldur Logi vann jú hjá Glitni og Drífa var fast­eigna­sali. Þau áttu von á eldra barni sínu og segir Haraldur Logi að þá hafi í raun­inni dottið í hend­urnar á þeim lager af arga­nolíu sem er fágæt en hún er unnin úr hnetum argan­trjáa sem eru upp­runnin í Marokkó og þykir olían vera góð fyrir húð, hár og neglur.

„Drífa heill­að­ist af þessu undra­efni og byrj­aði að leita að vöru­merkjum sem inni­héldu arga­nolíu og þá byrj­aði þetta að vinda upp á sig. Þetta átti bara að vera hobbí í bíl­skúrnum en svo úr varð að heild­versl­unin Reykja­vík Warehouse var stofnað árið 2011 með mörg vöru­merki en þar má m.a nefna ELEVEN AUSTRALIA, BALMAIN PARIS HAIR COUTURE, K18 og ítalska hára­liti.. Við ein­blínum helst á vörur sem eru hreinar, það er að segja lausar við skað­leg eit­ur­efni, umhverf­is­vænar og ekki próf­aðar á dýrum. Við sinnum aðal­lega hár­greiðslu­stofum út um allt land. Ég ætl­aði aldrei að verða sjampósölu­maður en það er bara gaman,“ segir Haraldur Logi og hlær.

Hjónin keyptu fyrir átta árum síðan sum­ar­bú­stað í Hraun­borgum á Suð­ur­landi; þau höfðu átt sum­ar­bú­stað ann­ars staðar sem þau seldu en heill­uð­ust af Hraun­borgum meðal ann­ars vegna þjón­ust­unnar sem sum­ar­húsa­eig­endum sem og gestum á tjald­stæð­inu þar er boðið upp á. Þar er til dæmis sund­laug, golf­völlur og þjón­ustu­mið­stöð þar sem er veit­inga­staður. Þá er hægt að leigja sum­ar­hús með heitum potti á svæð­inu. Hjónin keyptu svo allan rekstur í Hraun­borgum af land­eig­anda árið 2018.

„Við höfum hækkað tölu­vert þjón­ustu­stigið á svæð­inu. Það eru um 300 sum­ar­bú­staðir á svæð­inu og opn­uðum við bar og veit­ing­ar­stað sem heitir Þorp­bar­inn; þetta er eins og þorp fyrir utan gesti tjald­stæð­is­ins. Þetta er leynd perla. Hraun­borgir er algjör para­dís og frá­bær­lega stað­sett.“

Núna eru Hraun­borgir til sölu vegna þess að suðrið kallar á hjónin. Tenerife.

Þau eru að fara að opna heild­sölu á Tenerife en þau eru komin með leyfi fyrir öll merkin sem þau flytja inn hér á landi til að selja á öllum Kanarí­eyj­unum en þær eru átta tals­ins.  „Þetta er risamark­aður með mörgum millj­ónum íbúa svo ekki sé talað um ferða­menn­ina. Við munum því hefja dreif­ingu merkj­anna okkar þar á haust­mán­uðum.“ Og svo eru þau nýbúin að kaupa veit­inga­stað í versl­un­ar­mið­stöð­inni The Duke Shops á Tenerife en það er við Duque-strönd­ina.

„Við höfum farið mjög þétt í frí fjöl­skyldan til Tenerife síðan 2008 og höfum eign­ast þar marga góða vini. En það var svo 2018 sem við ákváðum að eiga þar annað heim­ili og tókum við þá hús á leigu í lang­tíma­leigu. Svo hófust plön og alls konar hug­myndir fædd­ust og við ákváðum því nú að fylgja þessu eftir með heild­söl­una og að opna veit­inga­stað sem yrði heilsu­tengdur. Svo fundum við drauma­stað­setn­ingu og drauma­stað. Við kynnt­umst eig­anda versl­un­ar­mið­stöðv­ar­innar The Duke Shops í gegnum sam­eig­in­lega vini og keyptum svo veit­inga­stað­inn af honum eftir nokkrar við­ræður en hann var ekki á sölu og það stóð ekki til að selja hann en honum leist vel á hug­mynd­irnar og sló til. Við erum núna að vinna í mat­seðlum og fleiru og opnum hann með okkar hug­myndum haust.“

Fjöl­skyld­unni líður vel á Tenerife.

„Ég finn mun á lík­am­legri og and­legri heilsu að vera þar miðað við að vera á Íslandi. Það er sólin og hvað fólk er slakt. Það er ekki þessi asi og læti eins og hér. Ég var kom­inn á blóð­þrýst­ings­lyf áður en ég flutti til Tenerife en ég hætti á þeim eftir að ég flutti út. Ég finn strax mun á mér þegar ég kem til Íslands. Íslend­ingar eru öðru­vísi en Spán­verjar. Ísland er æðis­legt. Ísland er best í heimi. En ég get alltaf komið heim til Íslands aftur. Börnin eru ánægð og eru að öðl­ast frá­bær tæki­færi þar.“

Það er ekki „bara“ heild­sala og veit­inga­staður á Tenerife. Hjónin eru með fleiri járn í eld­inum og hug­mynd­irnar eru margar.

„Við erum með ákveðna hug­mynd í gangi sem við erum búin að vera að vinna að síð­ustu mán­uði. Þetta er leynd­ar­mál ennþá en það má segja að við séum að vinna að fleiri hlutum þarna úti sem verða sýni­legri í nán­ustu fram­tíð.“

Heild­sala, Hraun­borgir sem eru til sölu, veit­inga­staður og svo leynd­ar­málið.

„Ef fók fær ekki hug­mynd þá ger­ist ekki neitt. Ef það væri ekki til fólk sem fær hug­myndir þá myndi allt verða eins.“

Haraldur Logi segir að Drífa sé meiri „hug­myndamask­ína“ en að hann sé meira „down to earth“. „Þess vegna gengur okkur vel að vinna saman, hún fær hug­mynd­irnar og ég fram­fylgi þeim og útfæri.“

Hvað með áhættu hvað varðar fjár­magn?

„Við myndum aldrei setja allt okkar fjár­magn í eitt­hvað sem myndi setja fjöl­skyld­una á hlið­ina. Við tryggjum að fjöl­skyldan lifi öruggu lífi og svo förum við í fjár­fest­ingar með það sem við eigum. Við erum ekk­ert að skuld­setja okkur. Það er svo­lítið íslenska leiðin að taka stór lán en við gerum það ekki.“

Taka þau engin lán?

„Nei. Við ákváðum það eftir hrunið árið 2008 að taka engin lán. Auðvitað hefur Covid-19 haft áhrif á rekst­ur­inn en við erum ekki á þeim stað að þurfa fjár­mögnun ann­ars staðar frá.“

Hann vill vera sinn eigin herra.

„Mér finnst það vera þægi­legt. Þegar ég fer að sofa á kvöldin og þegar ég vakna á morgn­ana þá get ég ekki beðið eftir að takast á við nýjasta verk­efnið hverju sinni. Ég er fullur af eld­móði.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Fólk

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Myndir
Fólk

Sögu­frægt sýslu­manns­setur við sjó­inn komið á sölu

Fólk

Fimm hlutir sem geta reynt á sam­bandið þegar mak­inn er með ADHD

Viðtal
Fólk

Ekkert minni konur en aðrar konur

Myndir
Fólk

Óvenju­legt sölu­til­boð í Reykja­vík þar sem maka­skipti koma til greina

Fólk

Nabblinn leggur bleyj­una á hill­una