Fara í efni
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
„Fer svo heim að taka upp podcast þar sem hann titlar sig Ritstjórann“
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
Heimur

Kærastan fann dag­bæk­urnar og sleit sam­band­inu við David Walliams

Fólk

Björgvin Franz fagnar eins árs sam­bands­af­mæli með kærust­unni

Heimur

Prestur rifjar upp óþægi­lega reynslu úr æsku

Innlent

Grun­semdir vökn­uðu þegar son­ur­inn sagð­ist fá fría ferð til Taílands

Fólk

Fjórum árum eftir að heil­inn hót­aði upp­sögn á Karl Ágúst tvö verk á sviði

Heimur

Hin sænska Karin hvarf áður en hún átti að sækja börnin sín

Fólk

„Ég er orð­inn leiður á að vera veikur“

Heimur

Lögregla fjar­lægði mót­mæl­anda eftir að hafa rugl­ast á áletrun á bol hans

Heimur

Raun­veru­leika­stjarnan Sheila Mangubat látin 35 ára að aldri

Heimur

Kyn­þokka­fyllsti maður heims afskrifar 200 millj­ónir dala í lækn­is­skuldum

„Golíat kærir Davíð. Þetta verður fjör“- ÁTVR kærir heimsendingar á guðaveigum og saka um skattsvik

Arnar Sigurðsson.
Arnar Sig­urðs­son. Mynd: Skjáskot á Facebook.

ÁTVR hefur lagt fram kæru á hendur Arnari Sig­urðs­syni, frönsku net­versl­un­inni Santewines SAS og inn­flutn­ings­fyr­ir­tæk­inu Sante til lög­reglu og skatta­yf­ir­valda.

Samkvæmt heim­ildum Mannlífs hafa kærur líka verið lagðar fram gegn Bjór­landi, Brugg­hús­inu Steðja sem og eig­endum þess­ara fyr­ir­tækja.

Arnar Sig­urðs­son – eig­andi Santewines SAS og Sante – rekur net­verslun með áfengi sem er með lager hér á landi, og í maí síð­ast­liðnum hóf net­versl­unin að bjóða upp á heim­send­ingu á áfengi.

Þetta fór ekki vel í stjórn ÁTVR sem gaf út skömmu seinna að unnið væri að því að fá lög­bann lagt á þessa starf­semi; ÁTVR taldi að um væri að ræða brot á einka­leyfi þess til að selja og afhenda áfengi í smá­sölu.

Geta meint brot net­versl­unar Arnars að mati ÁTVR varðað sektum og/eða fang­elsi.

Arnar virð­ist sam­kvæmt sam­fé­lags­miðlum njóta tals­verðs stuðn­ings og margir sem telja kæru ÁTVR vera dæmi um klass­íska ein­ok­un­ar­starf­semi og óþörf rík­is­af­skipti. Til að mynda segir Magnús Ragn­ars­son fram­kvæmd­ar­stjóri sölu hjá Símanum á Twitter:

„Golíat kærir Davíð. Þetta verður fjör. Þykist vita að Arnar sé helpepp­aður!“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

Heimur

Ný UFO-skjöl afhjúpa áform um neð­an­jarð­ar­hvelf­ingu fyrir „fram­andi efni“

Gögnin eru hluti af 43 skjölum sem voru birt nýlega. Þar er einnig fjallað um óútskýrðar ratsjármælingar frá árinu 2023.
Menning

Tvenns konar bað í boði og aðeins annað þeirra er blautt

Pólitík

Stefán Einar svarar Þorgerði með orðum Heiðu Krist­ínar

Pólitík

Kristrún segir halla­laus fjár­lög sleggj­una sem þurfi til að ná vöxtum niður

Heimur

Sam­sær­is­kenn­ingar spretta upp eftir und­ar­legt augna­blik á blaða­manna­fundi

Innlent

Sendi sak­sókn­ara falsað lækn­is­vott­orð og hlaut árs­fang­elsi

Sakaferill mannsins nær aftur til ársins 2010

Sakar rík­is­stjórn­ina um að gera lítið úr vinnu lág­launa­fólks og for­eldra

Innkalla vin­sælt jóla­smáköku­deig vegna aðskota­hluts

Kökuboð á Pat­reks­firði end­aði fyrir dómi

Hrafn­hljóð flýgur inn á manna­nafna­skrá

Sverrir spyr hvað heilli karla við ofbeldið í Grand Theft Auto