Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Stefán lýsir spillingu bæjarstjórans og Húsavík logar: „Beitir sér óspart í samkeppni frænda sinna“

Stefán lýsir spillingu bæjarstjórans og Húsavík logar: „Beitir sér óspart í samkeppni frænda sinna“
Kristján Þór Magn­ús­son

Hörku­á­tök  geisa á Húsavík vegna fram­göngu Krist­jáns Þórs Magn­ús­sonar, sveit­ar­stjóra á Húsavík, gagn­vart hvala­skoð­un­ar­fyr­ir­tæk­inu Gentle Giants. Aðal­eig­andi fyr­ir­tæk­is­ins, Stefán Guð­munds­son, segir bæj­ar­stjór­ann hafa beitt sér gegn fyr­ir­tæk­inu og í þágu sam­keppn­is­að­ila. Harðorð færsla hans á Facebook um bæj­ar­stjór­ann í fyrra­dag vakti gríð­ar­lega athygli.

„Allt stjórn­laust undir hans for­ystu og allt í steik. Vinir og kunn­ingjar ráðnir á jöt­una…jafn­vel án aug­lýs­inga. Beitir sér óspart í sam­keppni frænda sinna og sam­starfs­fé­laga gegn keppi­nautum – van­hæfur međ öllu. Óheið­ar­legur,“ segir í færslu Stefáns.

Stefán Guð­munds­son, aðal­eig­andi Gentle Giants.

Óhætt er að segja að um fátt annað var rætt á Húsavík í gær­dag. Fólk skipt­ist í tvær fylk­ingar í mál­inu. Sumir töldu Stefán hafa gengið of langt í ummælum sínum um spill­ing­una í bænum, en aðrir voru honum sam­mála. Stefán skrif­aði aðra færslu í gær­kvöld þar sem hann fjall­aði um við­brögðin.

„Aðeins meira um skoðun mína á bæj­ar­stjór­anum frá í gær­kvöldi. Dagurinn í kjöl­farið hefur um margt verið áhuga­verður. Lygi­legur fjöldi skila­boða með und­ir­tektum og frek­ari upp­lýs­ingum. Svo eru nokkur skila­boð frá mann­vits­brekkum sem bera sig aum­lega … yfir minni skoðun á minni síðu og þá helst tíma­setn­ing­unni. Enn fremur hafa auð­vitað fylgt comment frá aðilum sem skamm­ast yfir hrein­skiptn­inni. Sömu aðilar hafa fasta við­komu á helstu kjafta-búllum stað­ar­ins og telja ekki eftir sér að spinna upp hálf­kveðnar vísur og dreifa öðrum með kunn­ug­legum endi. Jafnvel halda úti lok­aðri FB kjafta­síðu um menn og mál­efni,“ skrifar Stefán.

Hann fékk meðal ann­ars skammir fyrir að setja færsl­una inn á sama tíma og bæj­ar­stjór­inn væri í veik­inda­leyfi um ófyr­ir­sjá­an­legan tíma. Stefán segir að tíma­setn­ingin á sinni skoðun hafi verið algjör til­viljun. Hann hafi ekki haft minnstu hug­mynd um hvernig þetta gæti mögu­lega verið röng tíma­setn­ing.

En ef hann á um sárt að binda í sínu einka­lífi og veik­inda­leyfi – þá óska ég honum alls hins besta

„Enda býsna fjöl­breytt að því er virð­ist á hvaða for­sendum starfs­menn stjórn­lauss stjórn­sýslu­húss­ins fara í svo­kallað veik­inda­leyfi und­an­farnar vikur á fullum launum eftir því sem mér skilst best og mán­uðum saman…og gjarnan tengt svo­kall­aðri „kulnun“ í starfi. En eru um leið hopp­andi og skopp­andi út um allar koppa­grundir á okkar kostnað. Svo er hitt. Sumir virðđ­ast ekki geta skilið á milli póli­tíkur og einka­mála. Hafa ekk­ert endi­lega greind eða vilja til þess. Þá verður gjarnan til hræri­grautur skrít­inna til­finn­inga og skoð­ana­skipta. Skoðun mín á bæj­ar­stjóra og hans fram­göngu und­an­farin ár er óbreytt. Meira síðar. En ef hann á um sárt að binda í sínu einka­lífi og veik­inda­leyfi – þá óska ég honum alls hins besta og góðs bata. Dreg þar skýra línu,“ segir Stefán.

Ekki hefur náðst í Kristján Þór Magn­ús­son sveit­ar­stjóra þrátt fyrir ítrek­aðar til­raunir.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi