Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Reynir og nafnlausa blaðakonan: „Fæ oft skilaboð í þessum dúr frá vinkonum sem ég hef sofið hjá“

Reynir og nafnlausa blaðakonan: „Fæ oft skilaboð í þessum dúr frá vinkonum sem ég hef sofið hjá“

„Reglu­lega fæ ég skila­boð í þessum dúr frá gömlum vin­konum sem ég hef sofið hjá eitt­hver­tíman á lífs­leið­inni… Þar sem þær eru spurðar um kyn­lífið með mér eða hvort við höfum sofið saman“

Svo hefst pist­ill Reynis Bergmann, eig­anda veit­inga­stað­ar­ins Vefj­unnar, sem hann birti á Facebook-síðu sinni í fyrra­kvöld.

Pistli Reynis fylgja skjá­skot sem hann segir koma frá vin­konu sinni og inni­haldi sömu­leiðis send­ingar frá ónefndri blaða­konu til hennar. Auk þess eru með­fylgj­andi skjá­skot af spjalli Reynis við vin­kon­una í gegnum sam­skipta­for­ritið Snapchat, þar sem kemur fram að hún heiti Guðrún.

Skjáskot af spjalli Reynis og Guðrúnar á Snapchat.

Samtal Reynis og Guðrúnar á Snapchat:

Guðrún:

„Hvað seigir fræg­asti vinur minn ?“ 

Reynir:

„Frægasti ojjj þetta orð

Nei ann­ars er ég bara flenni fín en hvernig er Gunnsan mín ?“ 

Guðrún:

„Haha bara stríða þér

En mig langar að seigja þér eitt það var stelpa að senda mér skila­boð og reyna að spurja mig hvort þú hafir verið vondur við mig eitt­hver­tíman haha“ 

Reynir:

„Haaa ? Ertu ekki að djóka eitt­hvað að þessu me2 hreyf­ingu kannski ? Þetta er vel þreytt

Þeir/þær/það eru búnin að senda á fleirri vin­konur mínar sem ég hef sofið hjá og nán­ast beðið þær um að finna eitt­hvað til að kæra mig og koma fram obin­ber­lega sjúkasta sem ég hef séð bara til að níð­ast á mer af því eg sagði ovart fukk you bla bla

Má ég spyrja áttu þetta viltu senda mer það

Gunnsa plís það þarf að stoppa þessa plön­uðu glæpa­vinnu­brögð hjá þeim á fólk sem á það ekki skilið“

Blaðakonan

Í skjá­skot­unum sem Guðrún sendir Reyni í fram­hald­inu má sjá spurn­ingar nafn­lauss aðila um kynni hennar af honum.

Skjáskot af sam­skiptum Guðrúnar og meintrar blaða­konu.

„Sæll Guðrún. 

Ég sendi þér þennan póst í 100% trún­aði ekki sem blaða­kona heldur sem kona sem hefur lent í alvar­legri nauðgun. Þekkir þú Reynir Bergmann mér var bent á að þið hefðuð sofið saman mér kemur það svo sem ekk­ert við en lang­aði bara að for­vit­ast aðeins. von­andi er ég ekki að opna á gömul sár“ 

Guðrún:

„Hæhæ opna á gömul sár ? Já ég þekki hann en ekk­ert þannig en jú samt smá  eða þekkti hann betur í den og hvað kemur þér við hverjum ég sef hjá en ef þér líður betur já ég svaf hjá honum með vin­konu minni fyrir meira að seigja  svona 15 árum hvað ertu að hugsa og hver sagði þét frá þessu ég var næstum búin að gleyma þessum getnað ?“

Ónefndur send­andi:

„Okey mér lang­aði bara að spyrja þig var það með þínu sam­þykki ? Fór hann yfir ein­hver  mörk þegar þessi atburða­rás átti sér stað ég tek það fram ég er bara að hugsa um þinn hag og þína líðan bara sent í kær­leika. 

Mér var bent á að þið hafið sofið saman inn á lok­aðri grúppuná facebook þar sem er verið að reyna að finna meinta ger­endur ofbeldis hvort sem það er and­legt lík­am­legt eða kyn­fær­is­legt“ 

Guðrún:

„Ertu að grín­ast ??

Af hverju ert þú að spá í mínum hags­munum sem gerð­ust fyrir 15 árum ertu að spyrja hvort hann hafi meitt mig eða nauðgað ÞÁ ER SVARIÐ NEI viltu fá nafnið á stelp­unni sem var með okkur kannski líka von­andi hugasru jafn fal­lega til hennar eins og þú gerir til mín

Er í alvöru verið að ræða kyn­líf fólks inn á lok­aðri grúppu viltu vin­sam­lega sjá þig þess að mitt nafn fari út af þess­ari grúppu og það strax“

Ónefndur send­andi:

„Nei ég vill það nafn alls ekki vildi bara aðeins fá að for­vitn­ast ég biðst en og aftur afsök­unar á þessu og ég skal láta eyða út þínu nafni og takk fyrir spjallið.“

Reynir segir þrýstingi og heilaþvotti beitt

Í pistli sínum segir Reynir, um það meinta áreiti sem vin­konur hans hafa mátt þola:

„Eitt málið gekk svo rosa­lega langt að það var verið að reyna að fá konu sem ég svaf hjá nokkrum sinnum til að koma fram í podcast þætti sem var klár­lega settur upp til að taka mig af lífi (vegna orða sem ég sagði óhugsað fyrir nokkrum mán­uðum og baðst strax afsök­unar á) með sam­eig­in­lega átaki nokkra aðila og blaða­manns.

Og átti hún að seigja að ég hafi nauðgað sér og ef ég hefði verið henni reiður áttu menn að stúta mér(hún átti að fá fullt backup) það var þjar­mað svo að henni að hún hringdi í mig hágrát­andi og sagð­ist næstum hafa trúað þessu upp á mig því mind fokkið og sann­fær­ing­ar­kraft­ur­inn var svo rosa­legur.

Þessi stelpa er btw ennþá rosa­lega góð vin­kona mín og stóð ég þétt við bakið á henni þegar hún lenti í alvar­legri nauðgun sem hún kærði árið 2004. Og næstum því var þessi stelpa bara kom­inn fram í podcasti og ásaka mig um það sama vegna þrí­st­ings og heila­þvotts.“

Líkindin

Á sam­fé­lags­miðlum hefur nokkuð borið á því að fólk setji spurn­inga­merki við upp­runa færsl­anna sem sjá má í skjá­skotum Reynis. Þegar vel er að gáð megi nefni­lega sjá þar nokkur lík­indi á milli skrifa Reynis, Guðrúnar vin­konu hans og ónefndu blaða­kon­unnar.

Til að mynda nota allir þrír aðil­arnir stafa­bil fyrir framan spurn­inga­merki.

Öll þrjú hafa sömu­leiðis nokkuð líkt rit­færi. Til dæmis er ekk­ert þeirra er gjarnt á að nota punkta í máli sínu.

Bæði Reynir og meint blaða­kona nota orða­lagið „lent í alvar­legri nauðgun“.

Bæði Reynir og Guðrún vin­kona hans skrifa „seigja“ í stað­inn fyrir „segja“.

Öll eru þau gjörn á að setja tvö­falt bil á milli orða.

Bæði Reynir og Guðrún vin­kona hans skrifa „eitt­hver­tíman“ í stað­inn fyrir „ein­hvern tíma“.

Athug­ulir not­endur Twitter virð­ast ekki hafa farið var­huga af lík­ind­unum, ef marka má umræð­una þar – en sitt sýn­ist hverjum.

Ekki náð­ist í Reyni Bergmann við vinnslu frétt­ar­innar, þrátt fyrir ítrek­aðar til­raunir.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina