Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Þetta fá börnin á Seltjarnarnesi að borða í skólanum – „Ok hvaða djók er þetta!“

Þetta fá börnin á Seltjarnarnesi að borða í skólanum – „Ok hvaða djók er þetta!“
Myndin teng­ist frétt­inni ekki með beinum hætti.

Fyrr­ver­andi ráð­herr­ann, Gylfi Magn­ús­son, furðar sig á því fæði sem nem­endum á Sel­tjarn­ar­nesi er boðið upp á. Hann virð­ist ekki sá eini því fjöl­margir bæj­ar­búar taka undir með honum eftir að hann birti mynd af mat­ar­diski sem börnum var boðið uppá.

Þennan mat fengu nem­endur í Val­húsa­skóla og kall­ast rétt­ur­inn „Hakk­réttur með kart­öflumús“.

Gylfi birti mynd­ina í hópi hverf­is­búa á Facebook og í kjöl­farið varð allt vit­laust í hópnum þar sem flestir íbú­arnir eru ósáttir með skólamat­inn. En þó ekki allir og Konráð nokkur er einn þeirra sem tekur til varna fyrir fæðið. „Lítur ekki illa út. Sé ekk­ert að þess,“. segir Konráð. Ásdís er sam­mála. „Er ég ein um að finn­ast þetta bara girni­legur hakk­réttur? Einhvers konar grýta/chili con carne. Strák­ur­inn minn elskar svo­leiðis,“ segir Ásdís.

Heiður er ein þeirra mörgu sem hneyksl­ast hins vegar á skólamatnum. „Ok hvaða djók er þetta!,“ spyr hún. Og Elísabet og dætur hennar geta ekki meir. „Dætur mínar eru að gef­ast upp á skóla­mat. Eru núna tvisvar í viku í mat en samt alltaf tekið með nesti þá daga ef mat­ur­inn skyldi vera óætur,“ segir Elísabet.

Sigurði finnst þetta fyrir neðan allar hellur. „Þessi matur frá Skólamat er hrylli­legur. Er ekki bara hægt að end­ur­vekja eld­hús bæj­ar­fé­lags­ins og fara að elda góðan heim­il­is­mat úr góðum hrá­efnum?,“ spyr Sigurður.

Hvar er fjöl­breytnin, spyr Dóra. „Þetta er í þriðja sinn í haust, skv. viku­mat­seðli frá Skólamat sem þessi sami réttur er boð­inn börn­unum: Hakk­réttur með kart­öflumús. Hinir hakk­rétt­irnir eru víst „eins” á bragðið en þeir eru víst reglu­lega á boðstólnum líka.“

Karl Pétur Jónsson, tenga­sonur Ólafs Ragnars Gríms­sonar, fyrr­ver­andi for­seta, lét ekki bjóða sér skóla­fæðið lengur. „Öll börnin okkar eru hætt í mat og taka með sér mat að heiman,“ segir Karl Pétur.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

„Þetta er ekki bara eitthvert mál, þetta er grafalvarlegt mál,“ sagði Stefán Vagn
Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Menning

Kíkja í jóla­pakk­ann í Gerðu­bergi

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Að lokinni fimm vikna þjálfun hafa nemendurnir réttindi til að kafa niður á 30 metra dýpi
Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ