Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Guðmundur Árni: „Þegjandi samkomulag milli okkar um að tala um drengina okkar og slysið“

Guð­mundur Árni Stef­áns­son sendi­herra, sem er aðal­ræð­is­maður í Winnipeg og meðal ann­ars fyrr­ver­andi ráð­herra, alþing­is­maður og bæj­ar­stjóri í Hafn­ar­firði, hefur ákveðið að gefa kost á sér fyrir Sam­fylk­ing­una vegna kom­andi bæj­ar­stjórn­ar­kosn­ingar í Hafn­ar­firði og tekur því þátt í próf­kjöri flokks­ins 12. febr­úar. Hann vill odd­vita­sætið. Hann segir í við­tali við Mannlíf meðal ann­ars frá þess­ari ákvörðun og áherslu­málum og hann talar um póli­tík­ina og sendi­herra­starfið í Svíþjóð, Banda­ríkj­unum, á Indlandi og í Winnpeg. Guð­mundur Árni talar líka um sorg­ina en hann missti tvo syni sína árið 1985.

„And­skot­inn,“ segir Guð­mundur Árni Stef­áns­son, aðal­ræð­is­maður Íslands í Winnipeg, þar sem hann situr við tölvu­skjá­inn á skrif­stofu í Winnipeg. Íslenski fán­inn sést efst á hillu fyrir aftan hann. Lands­liðs­leik Dana og Frakka á EM í hand­bolta var rétt að ljúka og Danir töp­uðu þannig að Ísland spilar um fimmta sæti. Það er kvöld á Íslandi. Miður dagur í Kanada. „Ég er gam­all hand­bolta­hundur; ég spil­aði hand­bolta alveg fram á elliár liggur við. Var og er FH ingur og elska íþróttir.“

Guð­mundur Árni hefur ákveðið að gefa kost á sér fyrir Sam­fylk­ing­una vegna kom­andi bæj­ar­stjórn­ar­kosn­ingar í Hafn­ar­firði og tekur því þátt í próf­kjöri flokks­ins 12. febr­úar. Hann vill odd­vita­sætið. Og hann er á leið­inni heim.

„Auðvita er þetta rugl. En mér finnst að ég geti komið að gagni í heima,“ segir hann. „Stundum er þetta ekki flókn­ara.“

Hann segir að það sé búið að blunda í sér í þó nokkurn tíma að gefa kost á sér en að hann hafi tekið ákvörð­un­ina fyrir um hálfum mán­uði. Síð­ast­liðin tvö ár hafa verið skrýtin í starfi aðal­ræð­is­manns­ins en heims­far­ald­ur­inn teng­ist því; starf aðal­ræð­is­manns­ins felst meðal ann­ars í því að hitta fólk og standa að við­burðum en lítið hefur verið um slíkt heldur meira um sam­skipti á Zoom, Teams og Facebook.

Það eru kassar á skrif­stof­unni enda er aðal­ræð­is­mað­ur­inn að fara að flytja heim. Heim til Íslands. Eig­in­kona hans, Jóna Dóra Karls­dóttir, er komin heim. „Hún veikt­ist illa um jólin, bless­unin. Hún varð alvar­lega veik en það fór betur en á horfð­ist og hún er á góðum bata­vegi. Ég væri ann­ars ekki í fram­boði; það gefur auga leið.“

Svo hjálp­aði heims­far­ald­ur­inn til að ég tók ákvörðun um að óska eftir heim­flutn­ingi og koma heim í heima­byggð á nýjan leik.

Hann segir það vera dálítið skrýtið að vera að fara að flytja. „Það voru flutn­inga­karlar hérna hjá mér áðan að setja búslóð­ina mína í kassa. Jú, jú, þetta eru kafla­skipti en ég var í hjarta mínu búinn að segja mér að þetta væri orðið ágætt; ég er búinn að vera á flandri meira og minna í 17 ár og það hefur nátt­úr­lega verið gríð­ar­lega skemmti­legt en ein­hvern veg­inn flýgur lífið fram hjá manni og heima eru börn og barna­börn. Þetta var orðið ágætt og við hjónin nutum þess til fulln­ustu. Svo hjálp­aði heims­far­ald­ur­inn til að ég tók ákvörðun um að óska eftir heim­flutn­ingi og koma heim í heima­byggð á nýjan leik. Það var ekk­ert erfið ákvörðun; ég meina – lífið er allt í köflum og mitt líf hefur verið það líka.“

Guð­mundur Árni ætlar að ræða þetta kvöld – þennan dag – um nokkra kafla í lífi sínu.

Vill oddvitasætið

Guð­mundur Árni til­kynnti um fram­boð sitt á Facebook-síðu sinni 12. jan­úar. Til­kynn­ingin er eft­ir­far­andi:

„Góðu vinir.

Ég hef ákveðið að gefa kost á mér til fram­boðs vegna kom­andi bæj­ar­stjórn­ar­kosn­inga í Hafn­ar­firði fyrir Sam­fylk­ing­una – jafn­að­ar­manna­flokk Íslands. Fyrsta skrefið í þeirri veg­ferð er þátt­taka í próf­kjöri flokks­ins sem fer fram 12. febr­úar næst­kom­andi þar sem ég óska eftir stuðn­ingi í 1.sæti list­ans.

Umliðin rúm 16 ár hef ég starfað í utan­rík­is­þjón­ust­unni sem sendi­herra, m.a. í Stokk­hólmi, Washington, Nýju Delí og nú síð­ast á slóðum Vestur- Íslend­inga í Winnipeg í Kanada. Þessara starfa hef ég notið til fulln­ustu og öðl­ast vini og nýja reynslu. Í des­em­ber síð­ast­lið­inum óskaði ég eftir heim­flutn­ingi vegna fjöl­skyldu­að­stæðna og einnig verð ég í leyfi næstu mán­uði frá störfum í utan­rík­is­ráðu­neyt­inu.

Á síð­ustu vikum hafa margir jafn­að­ar­menn í Hafn­ar­firði sett sig í sam­band við mig og óskað eftir því að ég legði lið við að styrkja stöðu jafn­að­ar­manna í bænum, en honum hefur verið stjórnað af Sjálf­stæð­is­flokknum umliðin átta ár, en Sam­fylk­ingin verið í minni­hluta. Áður og fyrr stjórn­uðu jafn­að­ar­menn í Hafn­ar­firði, þegar kraftur og fram­sýni í sam­starfi við bæj­ar­búa var ein­kenn­andi.

Ég hef ákveðið að verða við þessu kalli og er þess full­viss, að með góðri liðs­heild, skýrri stefnu og mark­vissum vinnu­brögðum geti Sam­fylk­ingin orðið stærsti flokkur bæj­ar­ins. Fái ég stuðn­ing flokks­fé­laga minna í próf­kjör­inu, þá stefni ég óhikað að því að Sam­fylk­ing vinni góðan sigur í bæj­ar­stjórn­ar­kosn­ingum í maí og tvö­faldi bæj­ar­full­trúa­tölu sína, þ.e. úr tveimur í fjóra. Og að afloknum kosn­ingum geti Sam­fylk­ingin í góðu sam­starfi við aðra flokka tekið við for­ystu um stjórn bæj­ar­ins.

Það er sann­ar­lega verk að vinna í Hafn­ar­firði og í mörg horn að líta. Átta ára þreytu­leg valda­tíð Sjálf­stæð­is­flokks­ins í bænum kallar á ný vinnu­brögð þar sem verkin þurfa að tala í sam­ráði við ólíka hópa og ein­stak­linga. Ég veit að Sam­fylk­ingin er til­búin í þau verk. Mála­flokk­arnir þar sem þarf að taka á eru um allt; má nefna mál sem varða skipu­lag, félags­mál, atvinnu­mál, leik­skóla, grunn­skóla, íþróttir, umhverf­is­mál, jafn­rétti, hús­næði fyrir alla, svo fátt eitt sé talið.

Það er mik­il­vægt að allir Hafn­firð­ingar geti verið stoltir af bænum sínum. Það kallar á ný vinnu­brögð, opið stjórn­kerfi, kraft­mikla upp­bygg­ingu og virka aðkomu bæj­ar­búa að end­ur­bótum.

Ég hætti í póli­tík 2005. Hafði þá setið í bæj­ar­stjórn í Hafn­ar­firði í 12 ár, þar af bæj­ar­stjóri í 7 ár. Og síðan þing­maður í 13 ár, þar af ráð­herra í hálft annað ár.

Ég hef því all­nokkra reynslu að baki, en einnig kem ég að þessum verkum fullur af krafti og eft­ir­vænt­ingu eftir að hafa sinnt öðrum störfum um ára­bil. Það er verk að vinna. Hafn­ar­fjörður hefur alla burði til að vera fyr­ir­mynd­ar­sveit­ar­fé­lag, en snúa þarf vörn í sókn. Ég vil gjarnan taka þátt í þeirri upp­bygg­ingu með ungum jafnt sem eldri Hafn­firð­ingum á næstu árum.

Ég hlakka til bar­átt­unnar sem er framundan.“

Aftur að við­tal­inu.

Guð­mundur Árni seg­ist vilja sjá Hafn­ar­fjörð sem fyr­ir­mynd­ar­sveit­ar­fé­lag. „Ég var þarna bæj­ar­stjóri í sjö ár á sínum tíma, 1986-1993, og vann þar góð verk með vinum mínum jafn­arð­ar­mönnum og það var gjarnan horft til Hafn­ar­fjarðar á þessum árum. Ég vil sjá meira þrek og þor í Hafn­ar­firði; að bær­inn standi með sjálfum sér. Á árunum mínum sem bæj­ar­stjóri tal­aði ég um stór-Hafn­ar­fjarð­ar­svæðið; ekki stór-Reykja­vík­ur­svæðið. Þegar ég var bæj­ar­stjóri bjuggu um 16.000 manns í bænum en nú eru þeir um 30.000. Samt hefur engin fólks­fjölgun verið í Hafn­ar­firði síð­ast­liðin tvö ár á sama tíma og íbúum nágranna­sveit­ar­fé­laga hefur fjölgað um 3-4% eins og vera ber. Ástæðan er sú að menn í Hafn­ar­firði hafa ekki staðið vakt­ina til að mynda varð­andi hús­næði fyrir unga fólkið; það er auð­vitað sam­starfs­verk­efni sveit­ar­fé­laga og rík­is­ins en það er ekki gott þegar ungir Hafn­firð­ingar sem vilja vera í bænum sínum eiga þess ekki kost. Ég ætla að breyta því ef ég fæ til þess styrk og stuðn­ing. Svo vil ég leggja áherslu á hluti eins og meiri metnað í grunn­skólum; ég vil sjá það til fram­tíðar að grunn­skóla­nem­endur standi jöfnum fæti þegar kemur að heitum mál­tíðum í hádeg­inu og að þeir þurfi ekki að greiða fyrir mat­inn af því að sumir hafa ein­fald­lega ekki efni á því. Ég vil að það verði pláss fyrir 12 mán­aða gömul börn í leik­skól­unum þegar fæð­ing­ar­or­lofi lýkur; það hefur gengið erf­ið­lega að ná því saman þar sem það gengur illa að manna leik­skól­ana. Kjörin eru ekki nógu góð og það er verk að vinna.

Ég er eng­inn krafta­verka­maður en ég held að ég geti komið að liði.

Grund­vall­ar­gildin í þessu öllu saman er að það er ekki öfl­ugt atvinnu­líf ef það er engin vel­ferð. Ef fólk hefur ekki til hnífs og skeiðar þá geldur atvinnu­lífið þess og svo öfugt. Mest er um vert að ég vil hlusta á fólk. Þegar búið er að funda um málin og taka ákvarð­anir þá verður þeim fylgt eftir til enda og málin kláruð. Ég er eng­inn krafta­verka­maður en ég held að ég geti komið að liði. Ég er reynsl­unni rík­ari; ég hef séð sumt, annað hef ég ekki séð og sumt þarf ég að læra. En ég er hand­viss um að ég geti hjálpað til.“

Guð­mundur Árni segir að þar sem hann hafi komið að virkri póli­tík og verið kjör­inn til trún­að­ar­starfa í pól­tík þá sé eins og hann sé með ein­hvern vírus. „Þessi póli­tík er þannig að maður losnar aldrei við hana. Hún leggst í lág­ina í langan tíma og svo allt í einu poppar hún upp. Ég fylgist auð­vitað vel með og hef gert síðan ég hætti í póli­tík og auð­vitað verður maður stundum hálf­gal­inn þegar maður les um eitt­hvað en minn­ist samt ekki á. Ég vil taka það fram að mér hefur ekk­ert reynst það erfitt þó ég hafi þessar sterku skoð­anir af því að starf sendi­herra er fólgið í því að fylgja ríkj­andi stefnu ráða­manna, þar á meðal utan­rík­is­ráð­herra hverju sinni, og ég held að það hafi verið sex eða sjö rík­is­stjórnir við völd á Íslandi frá því ég byrj­aði í utan­rík­is­þjón­ust­unni sem sendi­herra og alltaf er það hlut­verk mitt að fylgja eftir þeirri stefnu sem hver rík­is­stjórn setur.“

Hvað ef þetta gengur svo ekki upp? Ætlar hann þá að halda áfram að starfa í utan­rík­is­þjón­ust­unni?

„Ég veit það ekki. Það er eig­in­lega best alltaf í líf­inu, ef við erum að tala um kafla og lífið, að taka ekk­ert of margar ákvarð­anir í einu. Næst er að fá stuðn­ing flokks­fé­laga minna og sam­herja í Hafn­ar­firði um að ég fái kosn­ingu í efsta sæti list­ans og von­andi tekst það. Ég hef svo sem áður farið í próf­kjör og veit að það er ekki á vísan að róa í því. Stundum gengur það og stundum ekki.“

Lærir af mistökum

Fyrr­ver­andi blaða­maður, lög­reglu­maður, bæj­ar­full­trúi, bæj­ar­stjóri, alþing­is­maður og ráð­herra; hann var heil­brigðis- og trygg­inga­mála­ráð­herra 1993–1994 og félags­mála­ráð­herra 1994. Vara­for­maður Alþýðu­flokks­ins um tíma.

Guð­mundur Árni sagði af sér ráð­herra­emb­ætt­inu í nóv­em­ber 1994. Hann var harð­lega gagn­rýndur fyrir póli­tískar ákvarð­anir sem leiddu til þess að hann sagði af sér emb­ætti. „Já, ég hefði getað gert hlut­ina betur. En ég var sá fyrsti sem tók ábyrgð á gerðum mínum. Þetta var erf­iður tími en ég átta mig á því að ég gerði rétt; póli­tík snýst ekki bara um eigið egó heldur líka hina stóru mynd.”

Þetta voru erf­iðir tímar og mér fannst líf og fer­ill­inn á enda­punkti en ég var sáttur í sinni; sér­stak­lega þegar frá leið.

Svo kom út bók fyrir jólin þetta ár, sem var 1994, eftir að Guð­mundur Árni sagði af sér sem ráð­herra: Bókin heitir „Hreinar línur“. „Þetta voru erf­iðir tímar og mér fannst á ein­hverjum tíma­punkti að fer­ill­inn væri á enda en þegar frá leið var ég sáttur í sinni. Ég fékk sím­tal örfáum dögum eftir afsögn, 11.nóv­em­ber, og ég spurður hvort ég vildi ekki bara dúndra þessu á bók einn, tveir og þrír. Ég og Kristján Þor­valds­son, vinur minn og blaða­maður, tókum höndum saman og kláruðum bók­ina á 10 dögum.“

„Allt á hreinu.“ Er Guð­mundur Árni alltaf með allt á hreinu? „Nei, alls ekki. Ég ætla að vona að eng­inn sé með það.“

Guð­mundur Árni Stef­áns­son hélt áfram í póli­tík; var end­ur­kjör­inn á þing 1995, 1999 og 2003 en hætti svo árið 2005.

„Ég hætti ekki í póli­tík vegna þess að ég væri búinn að fá nóg af henni sér­stak­lega heldur hitt að ég og flokk­ur­inn minn hafði verið í stjórn­ar­and­stöðu í 10 ár og það er aga­legt hlut­skipti. Þeir þekkja það sem hafa verið nán­ast algjör­lega áhrifa­lausir í þing­inu. Það reyndi á þol­rifin og ég hugs­aði með mér hvort það væri ekki komið að kafla­skiptum; ég var fimm­tugur og hugs­aði með mér hvort það væri ekki bara ágætt ef mér gæf­ist tæki­færi til þess að skipta um hlut­verk. Og það á fólk að gera reglu­lega og ég hef gert það í gegnum tíð­ina.“ Og Guð­mundur Árni varð svo sendi­herra í Svíþjóð. Meira um það síðar.

Fólk talar oft um að póli­tíkusar séu svona og hinsegin og að póli­tíkin sé skítug og að henni fylgi spill­ing.

Jú, það er þessi póli­tík sem togar núna í Guðmund Árna þar sem hann situr í Winnipeg. Hann tal­aði um vírus. „Það er eig­in­lega allt,“ segir hann þegar hann er spurður hvað það sé nákvæm­lega sem heillar hann svona við póli­tík­ina. Stjórn­málin. „Fólk talar oft um að póli­tíkusar séu svona og hinsegin og að póli­tíkin sé skítug og að henni fylgi spill­ing. Það getur vel verið að það sé eitt­hvað til í því en fólk gleymir því oft að oft hafa póli­tískar ákvarð­anir áhrif á dag­legt líf fólks í smáu og stóru og fólk leiðir ekki hug­ann að því að ein­hvers staðar hefur þetta verið ákveðið; verð til dæmis á mjólk­ur­lítra er meira og minna ákveðið af stjórn­mála­mönnum með beinum eða óbeinum hætti.

Það er skylda stjórn­mála­manna sem kjörnir eru til trún­að­ar­starfa, hvort sem það er á þing eða sveit­ar­stjór­ar­mála, að hafa ein­hverja stefnu og vita hvert þeir eru að fara. Þeir mega aldrei gleyma því að þeir eru í þjón­ustu­störfum fyrir fólk. Þeir þurfa að hlusta eftir því sem það segir og síðan þurfa þeir að taka ákvarð­anir og standa og falla með þeim. Ég hef verið tal­inn maður verka; mér leið­ist of mikið hangs yfir hlut­unum og vil láta verkin tala. En það þarf að vinna und­ir­bún­ings­vinnu og það er nauð­syn­legt að vera búinn að hlusta áður og líka eftir að ákvörðun er tekin því stundum gera menn mis­tök. Ég hef gert fullt af mis­tökum í minni póli­tík og ætla ekk­ert að víkj­ast undan því en maður lærir af þeim.“

Ég er sæmi­lega sáttur en ég hef auð­vitað gert ein­stök mis­tök eins og fólk gerir í líf­inu sjálfu.

Guð­mundur Árni segir að ekki sé um nein stór mis­tök að ræða. „Ég er sæmi­lega sáttur en ég hef auð­vitað gert ein­stök mis­tök eins og fólk gerir í líf­inu sjálfu. Ég hef verið gæfu­samur í mínum störfum í gegnum tíð­ina og þar með póli­tík­inni og ég held að ég hafi komið að gagni og vil gera það áfram.

Fólk gerir stór og smá mis­tök í líf­inu. Ég hef stundum sagt að póli­tík sé ekk­ert öðru­vísi heldur en lífið sjálft. Ég ætla ekki að fara að pikka út eitt eða annað; fólk þekkir það. En það eru engin þannig mis­tök að ég sofi ekki á nótt­unni.“

Hafði þetta áhrif á svefn­inn á sínum tíma?

„Að gera mis­tök? Ég neita því ekki. Ég svaf ekk­ert sér­lega vel þegar ég var ráð­herra félags­mála og var í minni bar­áttu við fjöl­miðla og fleiri. Á þeim tíma, í nóv­em­ber 1994, tók ég bara þá yfir­veg­uðu ákvörðun að stíga til hliðar og gefa eftir því að stundum gerir maður meira gagn með því að víkja úr vegi og byrja upp á nýtt í stað þess að þrjóskast við og sitja kannski í óþökk ein­hverra og kannski fjöl­margra.“ Og Guð­mundur Árni stóð upp úr ráð­herra­stólnum eins og þegar hefur verið minnst á en hélt áfram í póli­tík­inni í um ára­tug og þá lenti flokk­ur­inn hans, Alþýðu­flokk­ur­inn og síðan Sam­fylk­ingin, í stjórn­ar­and­stöðu.

Hvað stóð upp úr í póli­tík­inni?

„Sam­starfið við fólk skiptir öllu máli; innan þings og utan. Það stendur upp úr Ég hef eign­ast stóran hóp af vinum og von­andi ekki allt of marga mjög vonda óvini – í póli­tík og dag­legu lífi. Ég er satt að segja vina­margur því mér þykir vænt um fólk.

Þegar ég var í þing­inu í 13 ár tók­ust menn oft á í ræðu­stól og rifust harka­lega. Svo sett­ust menn niður og fengu sér kaffi­sopa. Héldu stundum áfram að ríf­ast en án leið­inda.

Mínir fyrr­ver­andi sam­starfs­menn í þing­inu eru ekk­ert síður úr öðrum flokkum heldur en mínum eigin. Þetta end­ur­speglar það sem mér finnst skipta máli en það er að þó að menn geti verið harð­orðir í garð stjórn­mála­manna þá eru stjórn­mála­menn í öllum flokkum að gera sitt besta. Ég bara veit það. Stundum bara taka þeir rangar ákvarð­anir eins og ger­ist. Ég líka.”

Sá eini sem mætti

Guð­mundur Árni Stef­áns­son og Jóna Dóra fluttu til Stokk­hólms árið 2005 þar sem hann tók við stöðu sendi­herra Íslands. Hann sagði að það væri kom­inn tími á breyt­ingar. Svo voru það Banda­ríkin, Indland og Winnipeg. Hann talar um fjóra pósta.

„Sænska sam­fé­lagið er fyr­ir­mynd­ar­sam­fé­lag að mörgu leyti, alls ekki galla­laust, en þar hafa jafn­að­ar­menn lagt gjörva hönd að því sam­fé­lagi.

En ég neita því ekki það var snúið að breyta úr póli­tík yfir í emb­ætt­is­mennsku; að láta aðra segja sér fyrir verkum.

Ég kom nátt­úr­lega beint úr póli­tík­inni frá Íslandi og þekkti marga sem voru að stjórna málum í Svíþjóð; þing­menn, ráð­herra og aðra en ég hafði verið í norð­ur­landa­sam­starf­inu í þing­inu á Íslandi þannig að það létti mér fyrstu skrefin. En ég neita því ekki það var snúið að breyta úr póli­tík yfir í emb­ætt­is­mennsku; að láta aðra segja sér fyrir verkum.

Það búa þús­undir Íslend­inga í Svíþjóð og það var gott að eiga sam­skipti við þá og þjón­usta þá eins og unnt var. Við hjónin nutum svo sann­ar­lega sam­skipti við þús­undir Íslend­inga í Svíþjóð og gátum stundum hjálpað til. Það var stundum eins og vera bæj­ar­stjóri í pínu­litlu íslensku þorpi að vera sendi­herra í Svíþjóð; anna­samt en gaman.“

Næst varð Guð­mundur Árni sendi­herra í Banda­ríkj­unum og bjó þá í Washington DC. „Þar eru ákvarð­an­irnar teknar í heim­inum öllum; stórar ákvarð­anir. Ja, eða það er sagt.

Banda­ríkin og árin þar voru svo sann­ar­lega dásam­leg að mörgu leyti; ekki síst þegar maður bjó í höf­uð­borg­inni, Whashington DC., þar sem allt ger­ist. En í Banda­ríkj­unum, þessu gríð­ar­stóra ríki, sér maður það besta í heim­inum og maður sér líka það versta en þar er mikil mis­skipt­ing.

Þetta var á tíma Obama; ég var feg­inn að ég skyldi vera far­inn þegar maður sem heitir Trump tók við.

Þar voru auð­vitað við­skipta­málin ofar­lega á baugi í mínu starfi og sam­verka­manna eins og alls staðar og síðan auð­vitað þessi póli­tísku tengsl Banda­ríkj­anna og Íslands; varn­ar­málin. Póli­tíkin auð­vitað var stór hluti þar og mér fannst ég vera á heima­velli. Þetta var á tíma Obama; ég var feg­inn að ég skyldi vera far­inn þegar maður sem heitir Trump tók við.“ Sendi­herra­stöð­unni í Banda­ríkj­unum fylgdu sendi­herra­stöður ýmissa landa í Suður-Ameríku. „Ísland er lítið land með litla utan­rík­is­þjón­ustu og þetta víkk­aði sjón­deild­ar­hring­inn.

Svo var ég kall­aður heim til Íslands í þrjú ár. Það er líf sendi­herra: Úti stundum, heima annað slagið til að fá jarð­festu sem er góð regla finnst mér.

Heima í utan­rík­is­ráðu­neyt­inu sá ég meðal annar um Eystra­salts­ráðið í utan­rík­is­ráðu­neyt­inu sem er hópur 11 ríkja og Ísland var í for­mennsku 2017 og í miðju „köldu stríði” tókst okkur að ná saman góðum fundi for­ystu­manna sem ekki hafði gengið vegna Úkraínu. Ég var dálítið stoltur af því; svo­lítil diplom­asía þar.”

Þriðji póst­ur­inn var Nýja-Delí á Indlandi og segir Guð­mundur Árni að meðal ann­ars hafi verið lögð áhersla á að marka stöðu Íslands í hinu stóra ríki. „Það var þrátt fyrir allt vin­ar­hugur og við­skipta­tæki­færi milli þess­ara þjóða; annað með 1,4 millj­arða íbúa og hitt með um 370.000.“

And­stæð­urnar eru miklar á Indlandi.

„Ég var búinn að lesa mér vel til eins og hægt var og við hjónin höfðum bæði reynt að und­ir­búa okkur eins og hægt var. Maður vissi auð­vitað stærð­irnar í þessu; íbúar Indlands eru um 1,4 millj­arður og fátækt er mikil. Um 30% þjóð­ar­innar hafa ekki aðgang að sal­erni og ólæsi er í kringum 30%. Þetta eru grófar tölur. Svo er meng­unin yfir­þyrm­andi til dæmis í Nýju-Delí þar sem um 30 millj­ónir búa. Lytktin er öðru­vísi. Svo voru götu­börnin alls staðar og millj­ónir tæp­ast með þak yfir höf­uðið. Ég hafði lesið, lært og heyrt en að sjá, lykta og skynja! Það var allt annað. Þá loks­ins vissi ég smá­vegis.“

Guð­mundur Árni talar um menn­ing­ar­mun­inn og mun­inn á lífs­við­horfum til dæmis Indverja og Íslend­inga; „Sam­ferða­fólk mitt þarna var dásam­legt. Vinir mínir þarna – hár­sker­inn, blóma­sal­inn og karl­inn með eplin – senda mér stöðugt kveðjur ennþá. Indland und­ir­strik­aði margt. Við getum gert þetta betur. Miklu betur. Viðhorf þeirra til lífs­ins er af allt öðrum toga en ég hef kynnst áður. Lífið er ekki beinn og breiður vegur. En á Indlandi lærir maður! Það er ekk hægt annað. Þar eru erf­ið­leik­arnir meiri en hægt er að ímynda sér. Stór­ríkir and­skotar og svo fólk, börn sem eiga ekki fyrir brauði. Ég hata svona ömur­lega mis­skipt­ingu! Mun berj­ast gegn henni eins lengi og ég lifi.

Mér var einmitt boðið á sam­komu hjá þeim sem og öllum sendi­herrum erlendra ríkja í Nýju-Delí sem eru á annað hund­rað og ég var eini sendi­herr­ann sem mætti.

Guð­mundur Árni talar um sam­kyn­hneigða á Indlandi og segir að á tíma­bili hafi verið leyfi­legt að hand­taka fólk fyrir sam­kyn­hneigð.

„Það urðu breyt­ingar varð­andi rétt­ar­stöðu sam­kyn­hneigðra á meðan ég bjó á Indlandi. Mér var einmitt boðið á sam­komu hjá þeim sem og öllum sendi­herrum erlendra ríkja í Nýju-Delí sem eru á annað hund­rað og ég var eini sendi­herr­ann sem mætti. Ég vildi sýna þeim stuðn­ing og virð­ingu. Mér var í kjöl­farið þakkað vel fyrir og ég lýsti fyrir þeim hvaða afstöðu við hefðum til mála af þessum toga. Þettta var gott fólk eins og fólk er yfir­leitt.“

Svo skall heims­far­ald­ur­inn á tveimur mán­uðum áður en hjónin fluttu frá Indlandi.

„Ég hugs­aði með mér hvað Ind­verjar gætu gert. Ég meina; heil­brigð­is­kerfið er auð­vitað ekki fyrir alla og mann­fjöld­inn er svo gríð­ar­legur. Þeir settu á útgöngu­bann og ég hugs­aði með sjálfum mér að það gæti aldrei virkað og það gerði það eig­in­lega ekki. Daginn eftir að útgöngu­bannið var sett á hófst ferða­lag tug­þús­unda ef ekki hund­ruð þús­unda ein­stak­linga sem voru dag­launa­verka­menn í Nýju-Delí en áttu rætur í sveitum Indlands og þeir gengu heim. Öll ferða­lög voru bönnuð þannig að þeir gátu hvorki tekið rútur né lestir.“

Á meðal verk­efna sendi­ráðs­starfs­manna íslenska sendi­ráðs­ins í Nýju-Delí eftir að heims­far­ald­ur­inn skall á var að tryggja ferðir Íslend­inga heim frá Indlandi og til dæmis Sri Lanka og Bangla­desh. „Menn vissu ekk­ert hvað væri fram undan og allir vildu komst heim í skjól. Fólki fannst það vera örugg­ara heima eftir að heims­far­ald­ur­inn hófst. Þetta tókst býsna vel og fólk var þakk­látt.“

Guð­mundur Árni og eig­in­kona hans yfir­gáfu Indland þar sem hann segir að einn dag­inn hafi hit­inn verið 52 gráður og þau fluttu til Winnipeg í Kanada þar sem hann tók við stöðu aðal­ræð­is­manns. Þar var frostið nýlega 51 gráða.

Mér finnst stundum Vestur-Íslend­ingar þykja vænna um Ísland heldur en Íslend­ingum sjálfum.

„Starfið í Winnipeg felst fyrst og fremst í að vera í sam­starfi við Vestur-Íslend­inga sem búa í Manitoba-fylki, Winnipeg og ekki síst í Gimli sem er lít­ill, „íslenskur“ bær í rúm­lega klukkku­tíma akst­urs­fjar­lægð frá Winnipeg. Dugn­að­ur­inn í þessu fólki er ótrú­legur. Maður hittir ennþá fólk sem talar íslensku og sem hafði lært tungu­málið á æsku­heim­ilum sínum en því fer því miður fækk­andi en vilj­inn er svo sann­ar­lega fyrir hendi. Mér finnst stundum Vestur-Íslend­ingar þykja vænna um Ísland heldur en Íslend­ingum sjálfum. Það eru tugir Íslend­inga­fé­laga í Kanada og raunar einnig handan landamær­anna svo sem í Norður-Dakóta, Minnisota og víðar í Banda­ríkj­unum. Það er dásam­legt að finna hlý­hug­inn frá Vestur-Íslend­ingum. Það er dálítið á reiki hversu margir þeir eru en menn nefna allt frá 100.000 og upp í 200.000. Þetta er stór hópur í ljósi þess að íbúar á Íslandi eru um 370.000.

Hér er hald­inn Íslend­inga­dagur um versl­un­ar­manna­helg­ina hvert ár í Gimli og taka almennt þátt um 50.000 manns en þeir voru ein­ungis um 7000 í fyrra vegna Covid.“

Sorgin

Guð­mundur Árni og Jóna Dóra eiga fjögur börn á lífi en þau misstu tvo syni sína í bruna árið 1985. „Þeir brunnu ekki; það var reyk­eitrun sem varð þeim að ald­urtila.“ Guð­mundur Árni talar um hið óskilj­an­lega og segir að dag­inn fyrir brun­ann hafi yngri sonur sinn teiknað mynd. Hann teikn­aði mynd af brenn­andi húsi, fólki í glugga og slökkvi­liðs­bíla. „Það er margt sem maður á ekki að skilja og það er kannski dálítið gott. Maður á ekki að hafa skýr svör við öllu.“

Synirnir sem lét­ust voru frum­burð­ur­inn Fannar Karl, átta ára, og Brynjar Freyr, fjög­urra ára. Þeir áttu tvö yngri systk­ini, Margréti Hildi og Heimi Snæ. Hjónin eign­uðst tvo syni eftir að þau misstu dreng­ina sína. Sá eldri fædd­ist ári eftir brun­ann. Hann heitir Fannar Freyr og yngstur í systk­ina­hópnum er Brynjar Ásgeir sem er sex árum yngri.

„Fannar Karl var svo glaður en samt alltaf svo ábyrgð­ar­fullur.

Brynjar Freyr var að verða fimm ára þegar hann kvaddi þetta líf. „Hann var  skemmti­legur sprelli­gosi og fannst gaman af líf­inu og til­ver­unni eins og börn á þessum aldri. Eldri bróðir hans, Fannar Karl, pass­aði upp á hann þá og gerir enn.

Bræð­urnir, synir mínir, voru mjög ein­huga í öllu þó það væri þessi áramunur á þeim, Þeir voru svo sann­ar­lega vinir. Og eru áfram. Þeir voru jarð­aðir í sömu kistu. Annað kom aldrei til greina. Þeir dóu saman og eiga að vera saman. Hverjum þykir ekki vænt um börnin sín? Þeir voru bara dásam­legir eins og börnin sem eru eftir hjá okkur.

Við vorum aldrei að hugsa um að þeir kæmu í stað­inn fyrir þá sem voru farnir heldur lang­aði okkur bara til að heyra nöfnin end­ur­óm­ast.

Við hjónin síðar meir, þegar við eign­uð­umst tvo drengi, tókum þá ákvörðun að láta nöfnin þeirra end­ur­birt­ast í bræðrum þeirra sem fædd­ust eftir að þeir dóu; þeir heita líka Fannar og Brynjar en eru ekki alnafnar. Við vorum aldrei að hugsa um að þeir kæmu í stað­inn fyrir þá sem voru farnir heldur lang­aði okkur bara til að heyra nöfnin end­ur­óm­ast. Þannig að það eru ýmsar til­finn­ingar og ákvarð­anir sem þurfti að taka í þessu.“

Sorgin fer aldrei.

Hvernig hefur þessi mikla sorg markað líf Guð­mundar Árna?

Þögn.

„Ég veit það ekki. Ég held hún hafi ekki gert mig að verri manni. Þetta var nátt­úr­lega afskap­lega sárt og er ennþá þungt.

Sorgin fer aldrei. Hún býr innra með manni en maður getur ein­hvern veg­inn lært að lifa með henni. Ég held ég hafi til­einkað mér smá­auð­mýkt. Konan mín hefur verið dug­legri í því að miðla af reynslu sinni til þeirra sem hafa misst til dæmis börn eða maka og það var líka hjá okkur mikið hjálp­ræði fólgið í því að geta hitt fólk sem hafði misst og sagði að þetta væri erfitt og yrði erfitt en að það væri hægt að lifa með sorg­inni; ég trúði ekki að það yrði hægt fyrr en ég heyrði að það yrði mögu­legt. Ég lít á mig sem gæfu­mann þrátt fyrir áföll og mót­vind og eru góðu stund­irnar miklu betri og miklu fleiri þannig að ég er þakk­látur fyrir lífið.“

Guð­mundur Árni segir að þau hjónin hafi strax verið ákveðin í að vera opin hvað sorg­ina varðar. „Við vissum auð­vitað ekki neitt í febr­úar 1986 en þegj­andi sam­komu­lag var milli okkar um að tala um dreng­ina okkar og slysið. Og það gekk eftir. Fólk á ekk­ert að vera feimið við það að syrgja og líða illa og við höfum ekki verið það. En það var líka ákveðin hjálp í því að vera þannig og raunar var það svo að við vildum endi­lega tala um strák­ana okkar. Ein ástæðan var sú að að við vorum svo hrædd um að þeir myndu gleym­ast í tím­ans rás sem var nátt­úr­lega algjör­lega kjána­legt. En maður hugs­aði þannig og það var mikil hjálp í því fólgin að geta talað um þá enda­laust.

Guð minn almátt­ugur hvað maður hefur skynjað hvað það er víða mikil sorg. Ég les til dæmis fréttir af slysum og veik­indum með öðrum hætti en áður og átta mig á að það er svo margt þarna á bak við. Það eru heilu fjöl­skyld­urnar; það eru börn, for­eldrar og hvað eina. Þetta er lær­dómur og eins og ég sagði þá hefur hann ekki gert mig að verri manni. Öll reynsla kemur til góða. Ég hef reynt á langri ævi að vera auð­mjúkur og þetta víkkar sjón­deild­ar­hring­inn og skiln­ing minn á stöðu fólks. Umfram allt á maður að reyna að gera lífið eins gott og unnt er. Þetta er ekki beinn og breiður vegur.“ Guð­mundur Árni talar um að njóta augna­bliks­ins af því að eng­inn veit hvort morg­un­dag­ur­inn renni upp í lífi við­kom­andi.

„Fólk á að þakka fyrir hið góða og von­ast eftir hinu besta og það á að njóta dags­ins ef kring­um­stæður bjóða upp á það.“

Guð­mundur Árni talar um þetta „ef“. „Maður fer alltaf í gegnum þetta „hefði ég ekki gert þetta í stað­inn fyrir að gera þetta þá hefðu þeir ekki verið þarna“. „Ef„ og „kannski“. Maður fór í gegnum þetta aftur og aftur mán­uðum saman og það fór öll til­finn­inga­flóran í gang. Sekt­ar­kenndin. Gat ég ekki verið betri? Átti ég sem pabbi ekki að passa upp á dreng­ina mína? Ég varð vondur út í guð og spurði hann hvers þeir ættu að gjalda; þeir voru að byrja sitt líf og mér fannst guð hafa tekið af þeim mögu­leik­ann á að lifa ham­ingju­sömu lífi næstu ára­tugi. Af hverju gat hann ekki tekið mig í stað­inn? Öll þessi til­finn­inga­flóra fór af stað og var lengi til staðar. Það er ekki hægt að lýsa þessu almenni­lega með orðum en ég hugsa að margir þekki þetta sem hafa lent í svip­uðum kring­um­stæðum. Ég bjó að barna­trúnni minni og hún hjálp­aði mér. Svo vorum við Jóna Dóra það lánsöm að geta talað saman og verið saman í sorg­inni og lært að lifa með henni. Við höfum átt góð ár og líka okkar erf­ið­leika. Barna­börnin eru níu og bón­us­börn og vinir í tuga­tali. Ég elska lífið.“

Guð­mundur Árni trúir því að synir hans séu á góðum stað og að hann eigi eftir að hitta þá aftur sem og for­eldra sína og systur sem eru látin. „Það er bara ein­fald­lega þannig. Mér finnst ekki bara huggun í því heldur ákveðin til­hlökkun þegar sá dagur rennur upp að ég verði kall­aður í burtu. En það sem máli skiptir er að vera til; gera sitt besta.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi