Fara í efni
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
„Fer svo heim að taka upp podcast þar sem hann titlar sig Ritstjórann“
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
Heimur

Kærastan fann dag­bæk­urnar og sleit sam­band­inu við David Walliams

Fólk

Björgvin Franz fagnar eins árs sam­bands­af­mæli með kærust­unni

Heimur

Prestur rifjar upp óþægi­lega reynslu úr æsku

Innlent

Grun­semdir vökn­uðu þegar son­ur­inn sagð­ist fá fría ferð til Taílands

Fólk

Fjórum árum eftir að heil­inn hót­aði upp­sögn á Karl Ágúst tvö verk á sviði

Heimur

Hin sænska Karin hvarf áður en hún átti að sækja börnin sín

Fólk

„Ég er orð­inn leiður á að vera veikur“

Heimur

Lögregla fjar­lægði mót­mæl­anda eftir að hafa rugl­ast á áletrun á bol hans

Heimur

Raun­veru­leika­stjarnan Sheila Mangubat látin 35 ára að aldri

Heimur

Kyn­þokka­fyllsti maður heims afskrifar 200 millj­ónir dala í lækn­is­skuldum

Góð vika/slæm vika

Góð vika

Notendur Rík­is­út­varps­ins áttu góða viku en ekki aðeins birt­ist enn einn snilld­ar­þátt­ur­inn af Ver­búð­inni á sunnu­dags­kvöld heldur sneri ein skærasta stjarna Rásar 2 aftur í útvarpið. Þar er auð­vitað um að ræða Guðrúnu Dís Emils­dóttur eða Gunnu Dís eins og hún er kölluð.

Gunna Dís gekk til liðs við Síð­deg­is­út­varpið á Rás 2. Hulda Geirs­dóttir, útvarps­kona á Rás 2, kom öllum á óvart með þess­ari til­kynn­ingu á Facebook.

Gunna Dís hefur um ára­bil verið ein vin­sælasta fjöl­miðla­kona lands­ins en hún sá meðal ann­ars um spurn­inga­þætt­ina Útsvar og var partur af stór­góðu tvíeyki í Virkum morgnum ásamt Andra Frey Við­ars­syni.

Gunna Dís hefur búið á Húsavík síð­ustu ár ásamt eig­in­manni sínum og börnum en ákvað í haust að flytja aftur til borg­ar­innar, en mikið hefur gengið á í sveit­ar­stjórn­ar­málum fyrir norðan og eig­in­maður hennar, Kristján Þór Magn­ús­son, er sveita­stjóri Norð­ur­þings.


Slæm vika

Hrottar hafa átt frekar slæma viku. Texas­hrott­inn var hand­tek­inn á dög­unum vegna heim­il­is­of­beldis en hann réðst á fjöl­skyldu­með­limi þegar þeir mættu heim til hans í afmæl­is­mat­ar­boð.

Hópur af lög­reglu­mönnum mætti á heim­ili Magnúsar til að hand­taka hann. Vitni sögðu atgang­inn hafa verið mik­inn.
„Málið er bara í rann­sókn, það er bara stutt komið. Það er búið að ræða við máls­að­ila og við gefum ekk­ert frekar upp um fram­vindu rann­sókn­ar­innar,“ sagði Guð­mundur Ásgeirs­son lög­reglu­full­trúi í við­tali við Mannlíf.

Þá steig Hödd Vil­hjálms­dóttir fram og lýsti ofbeldi sem hún segir fyrr­ver­andi eig­in­mann hennar, Ragnar Gunn­ars­son, hafa beitt hana. Ein af fyrr­ver­andi kærustum Ragnars þakk­aði henni fyrir að stíga fram, á Facebook-vegg Haddar.

„Hugrakka hug­rakka kona
Takk elsku Hödd fyrir að stíga fram, fyrir mig, fyrir þig og allar hinar. Megi hug­rekki þitt veita öðrum í sömu sporum kjark til að gera slíkt hið sama.
Ég stend með þér og stað­festi jafn­framt frá­sögn þína.“

Í yfir­lýs­ing­unni sem Ragnar skrif­aði á Facebook-síðu sína segir hann: „Deilur okkar, sem varða for­ræði, eru í sínu rétta ferli.“

Í við­tal­inu við Hödd er hvergi talað um for­ræð­is­deilu milli hennar og fyrr­ver­andi eig­in­manns hennar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

Heimur

Ný UFO-skjöl afhjúpa áform um neð­an­jarð­ar­hvelf­ingu fyrir „fram­andi efni“

Gögnin eru hluti af 43 skjölum sem voru birt nýlega. Þar er einnig fjallað um óútskýrðar ratsjármælingar frá árinu 2023.
Menning

Tvenns konar bað í boði og aðeins annað þeirra er blautt

Pólitík

Stefán Einar svarar Þorgerði með orðum Heiðu Krist­ínar

Pólitík

Kristrún segir halla­laus fjár­lög sleggj­una sem þurfi til að ná vöxtum niður

Heimur

Sam­sær­is­kenn­ingar spretta upp eftir und­ar­legt augna­blik á blaða­manna­fundi

Innlent

Sendi sak­sókn­ara falsað lækn­is­vott­orð og hlaut árs­fang­elsi

Sakaferill mannsins nær aftur til ársins 2010

Sakar rík­is­stjórn­ina um að gera lítið úr vinnu lág­launa­fólks og for­eldra

Innkalla vin­sælt jóla­smáköku­deig vegna aðskota­hluts

Kökuboð á Pat­reks­firði end­aði fyrir dómi

Hrafn­hljóð flýgur inn á manna­nafna­skrá

Sverrir spyr hvað heilli karla við ofbeldið í Grand Theft Auto