Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Þjálfari kvennaliðs Þróttar ósáttur við yfirlýsingu KRR: „Verið bara heiðarlegir“

Þjálfari kvennaliðs Þróttar ósáttur við yfirlýsingu KRR: „Verið bara heiðarlegir“
Nik Chamberlain Mynd: huldamargretsportphotography

Þjálfari kvenna­liðs Þróttar er ósáttur við útskýr­ingar Knatt­spyrnu­ráðs Reykja­víkur en í gær varð sá leiði atburður að eng­inn frá KRR mætti til að afhenda Þrótt­ara­konum bikar er þær tryggðu sér Reykja­vík­ur­meist­ara­tit­il­inn. KRR sendi frá sér yfir­lýs­ingu í dag sem féll í grýttan far­vel hjá þjálf­ara Þróttar.

Knatt­spyrnu­ráð Reykja­víkur hefur sent frá sér yfir­lýs­ingu þar sem beðist er afsök­unar á því sem kallað eru mis­tök í yfir­lýs­ing­unni en í gær mætti eng­inn frá ráð­inu til að afhenda kvenna­liði Þróttar bikar er þær tryggðu sér Reykja­vík­ur­meist­ara­tit­il­inn í gær. Valur vann tit­il­inn í karla­flokki á sunnu­dag­inn og fengu bikar afhent­ann í lok leiks. Segir í yfir­lýs­ing­unni að mis­tök hafi verið gerð af þeirra hálfu þegar leikir hefðu riðl­ast vegna veð­urs og Covid-19. Eft­ir­far­andi er yfir­lýs­ing KRR í heild sinni:

YFIRLÝSING KNATTSPYRNURÁÐS REYKJAVÍKUR
Á sama tíma og Knatt­spyrnu­ráð Reykja­víkur (KRR) óskar Reykja­vík­ur­meist­urum Þróttar í kvenna­flokki inni­lega til ham­ingju með tit­il­inn vill ráðið biðj­ast ein­læg­lega afsök­unar á að ekki hafi farið farið fram verð­launa­af­hend­ing að loknum síð­asta leik þeirra í mót­inu. Um mis­tök er að ræða en leikir höfðu riðl­ast vegna veð­urs og COVID 19 sem varð til þess að KRR yfir­s­ást tíma­setn­ing leiks­ins.

Þróttur hefur náð gríð­ar­legum árangri á þessu leik­tíma­bili og er vel að titl­inum komin.

Verið er að skoða hvenær verð­launa­af­hend­ing geti farið fram og í sam­ráði við Þrótt.

Við drögum lær­dóm af þessu og mun KRR í sam­ráði við aðild­ar­fé­lög bæta verk­lag sitt svo mis­tök sem þessi end­ur­taki sig ekki.

Virð­ing­ar­fyllst,

f.h. KRR

Steinn Hall­dórs­son
Formaður

Jónas Sig­urðs­son
Formaður móta­nefndar

Mannlíf hafði sam­band við Nik Sheila Chamberlain, þjálf­ara kvenna­liðs Þróttar og spurði hann út í yfir­lýs­ingu KRR og hvort hann væri sáttur við þær útskýr­ingar sem þar kæmu fram.

„Mér finnst þetta léleg afsökun í ljósi þess að þeir höfðu sagt öðrum aðila í sím­tali í gær að þeir hefðu þá reglu að afhenda ekki bikar fyrr en mót­inu er alveg lokið. Karlalið Vals fékk sinn bikar áður en mót­inu lauk og það sama má segja þegar kvenna­lið Fylkis vann mótið í fyrra, þær fengu bik­ar­inn afhent­ann áður en mót­inu lauk. Að gefa tvær mis­mun­andi ástæður er ekk­ert annað en und­an­skot.“

Nik sagð­ist þó geta gefið þeim það að þeir við­ur­kenna mis­tök, þó þeir geri það með lélegri afsök­un­ar­beiðni. „Verið bara heið­ar­legir. Við höfum enn ekki heyrt frá þeim þar sem þeir við­ur­kenna að hafa klúðrað og að þeir muni gera allt til að bæta fyrir það. Í stað­inn er okkur gefin ein afsökun og svo er ekki hægt að ná í þá. Í milli­tíð­inni hafa þeir nægan tíma til að finna nýja afsökun.“

Nik stillti sér upp í gær með bik­ar­inn sem aldrei kom

Nik bendir á að þetta er ekki eina skiptið nýverið sem kvenna­liði er sýnd óvirð­ing hér á landi.

„Þetta er í annað skiptið sem kven­menn er sýnd van­virð­ing á síð­ustu mán­uðum. Í októ­ber birt­ist aug­lýs­ing fyrir leik Breiða­bliks og Þróttar í Mjólk­ur­bik­arnum en á mynd­inni var ljós­mynd af Breiða­bliks­konu og Valskonu.“

Sagði Nik að þetta hafi fengið að hanga inni í nokkra klukku­tíma en svo tekið niður og sagt að aug­lýs­inga­fyr­ir­tækið hafi gert mis­tökin en eng­inn afsök­un­ar­beiðni gefin.

Breiða­blik á móti Val?
Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Menning

Kíkja í jóla­pakk­ann í Gerðu­bergi

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum