Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Kári Stefánsson ætlar ekki að verða eins og Elísabet: „Þegar við deyjum þá fer þessi heimur“

Kári Stefánsson ætlar ekki að verða eins og Elísabet: „Þegar við deyjum þá fer þessi heimur“
Kári Stef­áns­son, for­stjóri Íslenskrar erfða­grein­ingar. (Mynd: Jón Gúst­afs­son).

Kári Stef­áns­son, for­stjóri Íslenskrar erfða­grein­ingar. Vís­inda­maður fram í fing­ur­góma, ljóð­unn­andi og ljóð­skáld. Hann seg­ist skilja gagn­rýni fólks í kjöl­far þess að ÍE var stofnað, hann talar um hugs­anir og geð­klofa, hann talar um hvers vegna hann sem er að verða 73 ára er ekki enn til­bú­inn að hætta að vinna og hann talar auð­vitað um fjár­ans veiruna og Þórólf Guðnason sótt­varna­lækni sem hann segir að sé séntíl­maður. Svo talar Kári um ljóð, dauð­ann og DNA í Mann­líf­inu með Reyni Trausta­syni.

Kári vakti fljót­lega athygli eftir að hann stofn­aði líf­tækni­fyr­ir­tækið Íslenska erfða­grein­ingu árið 1996. Hann stendur gjarnan í ólgu­sjó. Hvað veldur þessum ósköpum?

„Ég veit ekki hvort ólgu­sjór sé rétt lýs­ing. Ég kom til Íslands eftir að hafa verið búinn að vera í 20 ár í Banda­ríkj­unum þar sem ég lærði tauga­lækn­ingar og tauga­meina­fræði og var síðan pró­fessor fyrst við Uni­versity of Chicago og síðan við Harvard. Svo kom ég heim og setti saman fyr­ir­tæki sem byggði á því að rann­saka mann­lega fjöl­breytni að mestu leyti í gegnum mann­erfða­fræði en líka í gegnum aðrar aðferðir. Það var nýstár­legt á þeim tíma að fyr­ir­tæki væru að vinna að grund­vall­ar­rann­sóknum á líf­fræði manns­ins eins og við gerðum. Það olli því að það voru aðilar innan íslensks háskóla­sam­fé­lags sem urðu býsna móðg­aðir yfir því að svona rudda­legt fyr­ir­brigði eins og fyr­ir­tæki væri að vinna á þeirra helga svæði. Þetta tók dálít­inn tíma en hægt og hægt fór þetta sama háskóla­sam­fé­lag að umfaðma okkur og við erum núna órjúf­an­legur partur af þessu háskóla­sam­fé­lagi – hjá okkur í Vatns­mýr­inni vinna pró­fess­orar ofan úr háskóla og það eru starfs­menn hjá okkur sem eru í kennslu­stöðum uppi í háskóla. Þannig að sá árekstur var til­tölu­lega skamm­vinnur í stærra sam­hengi þótt hann hafi tekið kannski 20 ár.“

Kára er bent á að menn voru hræddir um líf­sýni og því sem tengd­ist per­sónu­vernd­ar­sjón­ar­miðum. Skilur hann þá gagn­rýni og var þetta ein­hvern tím­ann hættu­legt?

Þannig að það hefur ýmis­legt feng­ist við að taka þesssa áhættu og sú áhætta reynd­ist aldrei skað­leg.

„Ég skil mjög vel þessa gagn­rýni. Alltaf þegar þú ert að vinna við að gera eitt­hvað nýtt, þegar þú ert að vinna við að upp­götva eitt­hvað nýtt, þá ertu klof­vega á milli þess sem við þekkjum og þess sem við þekkjum ekki og þessi landa­mæri á milli þess þekkta og þess óþekkta valda gjarnan kvíða. En á þessu 25 ára tíma­bili þá veit ég ekki um eitt ein­asta fyr­ir­brigði sem gerði það að verkum að þátt­tak­endur í rann­sóknum okkar meidd­ust eða urðu fyrir skaða. Við höfum hins vegar á þessu tíma­bili birt í kringum 700 vís­inda­greinar, við höfum sett Ísland á kortið sem vís­inda­land eða okkar þjóð sem vís­inda­þjóð og við höfum aukið veg íslenskra vís­inda meira heldur en nokkuð annað í Íslands­sög­unni. Þannig að það hefur ýmis­legt feng­ist við að taka þesssa áhættu og sú áhætta reynd­ist aldrei skað­leg.“

Gjörsamlega með ólíkindum

Hver er stærsti sig­ur­inn hjá fyr­ir­tæk­inu út frá öllum þessum rann­sóknum og vinnu?

„Það sem við gerðum var að við bjuggum til ákveðna nálgun á mann­erfða­fræði sem stofn­anir, fyr­ir­tæki og háskólar út um allan heim hafa núna tekið upp. Og hún byggir á því að rann­saka fjöl­breytni í ákveðnum vel skil­greindum hópi meðal ákveð­innar þjóðar; að safna saman þátt­tak­endum sem eru reiðu­búnir til þess að taka þátt í rann­sóknum á mörgum sjúk­dómum þannig að í hvert sinn sem við gerum ein­hverja mæl­ingu þá nýt­ist hún ekki bara við eina rann­sókn heldur við óend­an­legan fjölda rann­sókna. Þetta er eitt af því sem Bretar hafa tekið upp í því sem heitir UK Biobank sem er raun­veru­lega hópur af fólki sem hefur fall­ist á að taka þátt í mjög víð­tækum rann­sóknum á bæði sjúk­dómum og heilsu. Þeir eru að setja saman annað sams konar verk­efni sem heitir á ensku A Future Health eða Fram­tíð­ar­heilsa okkar. Banda­ríkja­menn eru með frum­kvæði að þess­ari gerð sem þeir kalla All of Us eða Öll okkar. Finnar eru með svona verk­efni. Það er verið að vinna að rann­sóknum á mann­legri fjöl­breytni út frá þess­ari aðferð víða um heim í dag. Það er nátt­úr­lega gjör­sam­lega með ólík­indum að okkur hafi tek­ist – sem komum hingað fyrir tæp­lega 26 árum á stað þar sem var engin hefð, engin þekk­ing og engin reynsla var á þessu sviði – og að það hafi verið hægt að draga saman hóp af fólki til þess að vinna á þennan hátt. Og taktu eftir því að þetta eru næstum því alfarið Íslend­ingar sem vinna hjá okkur. Þeir útlend­ingar sem vinna hjá okkur eru þeir sem eru kvæntir íslenskum konum. Það eru tveir eða þrír af þeirri gerð sem vinna hjá okkur. En ég er mjög mont­inn af því hvernig okkur tókst að búa til svona hóp. Ég er mont­inn af því sem við höfum gert í rann­sóknum á hinum ýmsu sjúk­dómum svo sem hjarta­sjúk­dómum, krabba­meini og alzheimersjúkdómi. Það er varla til sá sjúk­dómur sem er algengur í okkar sam­fé­lagi þar sem við höfum ekki lagt af mörkum.“

„Ég er mont­inn af því sem við höfum gert í rann­sóknum á hinum ýmsu sjúk­dómum svo sem hjarta­sjúk­dómum, krabba­meini og alzheimersjúkdómi. Það er varla til sá sjúk­dómur sem er algengur í okkar sam­fé­lagi þar sem við höfum ekki lagt af mörkum.“ (Mynd: Jón Gúst­afs­son.)

Hugsanir og geðklofi

Kári segir að á meðal starfs­manna ÍE hafi verið ski­mað eftir kór­ónu­veirunni á hverjum mánu­dags­morgni í mjög langan tíma en því var hætt fyrir tveimur vikum. „Ef við tökum þá tvo síð­ustu mánu­daga þegar við skimuðum þá fannst eng­inn jákvæður af þessum 300 manns sem voru skimaðir. Og þá spyrðu hvernig það geti átt sér stað. Ástæðan er sú að COVID-19 er raun­veru­lega hegð­un­ar­sjúk­dómur. Hversu lík­legt það er að þú smit­ist fer eftir því hvernig þú hagar þér, hvernig þú umgengst annað fólk. Og þessar nei­kvæðu nið­ur­stöður hjá öllum tvo mánu­daga í röð benda til þess að niðri í Vatns­mýr­inni vinni mjög skrýtnir nördar sem umgang­ast ekki fólk á eðli­legan hátt.

Það er ótrú­lega flott fólk sem vinnur niðri í Vatns­mýr­inni. Þetta eru miklir snill­ingar og það liggur við að það líði ekki sú vika sem ekki ein­hver sniðug upp­götvun er gerð. Bara sem dæmi verðum við með fund í eft­ir­mið­dag­inn með erlendum sam­starfs­að­ilum til að fara yfir rann­sókn sem við höfum verið að gera á geð­klofa. Með okkur verður kona sem hefur verið að rann­saka tengslin á milli þess hvernig við hugsum og hversu lík­legt það er að við fáum ákveðna sjúk­dóma. Það sem hún var að skoða er það sem hún kallar á ensku cognition; það er að segja hugsun í sjálfu sér. Og aðferðir til að rann­saka cognition köllum við gjarnan gáfna­próf. Það má skipta cognition eða þessum gáfum í tvo meg­in­þætti – ann­ars vegar almenna greind sem er mæld með því sem kallað er G-faktor og G-fakt­or­inn er til vegna þess að allir mæli­kvarðar á hugsun, gáfum eða cognition tengj­ast á þann hátt að ef þú skorar hátt í einu þá skorar þú hátt í öðrum. En ef þú tekur þennan G-faktor í burtu þá situr þú uppi með ann­ars vegar það sem kallað er rým­is­greind og hins vegar ver­bal geta. Við skulum kalla það tungu­mála­getu. Við tókum allar breytur í erfða­meng­inu sem hafa áhrif á þessa rým­is­greind ann­ars vegar og allar breytur í erfða­meng­inu sem hafa áhrif á tungu­mála­get­una og við bjuggum til úr þessu mæli­kvarða. Og eftir því sem þú skorar hærra á þessum erfða­mæli­kvarða á rým­is­greind því lík­legra er að þú sért of feitur. Því lík­legra er að þú fáir þá sjúk­dóma sem fylgir því að vera of feitur; syk­ur­sýki, hjarta­bilun og svo fram­vegis. Þeim mun lægra sem þú skorar á þeim per­sónu­leika­mæli­kvarða sem kall­aður er openn­ess, sem teng­ist ann­ars vegar for­vitni og hins vegar sköp­un­ar­gáfu, þeim mun ólík­legra er að þú fáir hina ýmsu geð­sjúk­dóma eins og geð­klofa. Þeim mun hærra hins vegar sem þú mælist á þessum ver­bal þætti – við skulum bara kalla hann tungu­mála­þátt – þeim mun létt­ari ertu, þeim mun ólík­legra er að þú verðir of feitur og þeim mun ólík­legra er að þú fáir þá sjúk­dóma sem fylgja offitu. Þeim mun hærra sem þú skorar á þessum openn­ess skala, sem teng­ist for­vitni og sköp­un­ar­gáfu, þeim mun lík­legra er að þú fáir hina ýmsu geð­sjúk­dóma eins og geð­klofa.

Þú hugsar öðru­vísi og þess vegna færðu geð­klofa.

Þetta er kannski dálítið langur inn­gangur en það sem út úr þessu kemur er að hvernig þú hugsar hefur áhrif á svo margt. Maður hefur alist upp við að hugs­anir manns séu einka­mál sem við getum falið fyrir umheim­inum en þarna kemur í ljós að hvernig við hugsum hefur meira að segja áhrif á hvernig lík­ami okkar er sam­settur sem mér finnst feiki­lega spenn­andi. Það teng­ist vinnu sem við höfum gert áður sem fjall­aði um geð­klofa og ástæðan fyrir því að ég er svona fastur í þess­ari hugsun um geð­klofa er að geð­klofi er sjúk­dómur hugs­ana og til­finn­inga. Og hugs­anir og til­finn­ingar eru þeir eig­in­leikar sem skil­greina okkur sem dýra­teg­und og sem ein­stak­linga innan teg­und­ar­innar. En við höfum ekki hug­mynd um hvernig heil­inn hugsar. Ekki minnstu hug­mynd um það. Við getum ekki einu sinni skil­greint hugs­anir. En við vorum svo heppnir að við duttum ofan á þá hug­mynd að taka stökk­breyt­ingar sem auka líkur á geð­klofa, sjúk­dómi hugs­ana og til­finn­inga, og tíðni geð­klofa í okkar sam­fé­lagi er svona 1%. 1% af okkur fá geð­klofa. En ef þú ert með eina af þessum stökk­breyt­ingum þá eru 10% líkur á því að þú fáir geð­klofa og  90% líkur á að þú fáir hann ekki. Og við spurðum hvaða áhrif hafa þessar stökk­breyt­ingar á hugsun þeirra sem bera þær en fá ekki geð­klofa og við sýndum fram á að þeir eru með frá­vik í hugsun eða cognition sem er nákvæm­lega eins og hjá geð­klofa­sjúk­lingum. Og af hverju er það mik­il­vægt? Það er mik­il­vægt vegna þess að það þýðir að það er ekki þannig að þú fáir geð­klofa og þess vegna hugsir þú öðru­vísi. Þú hugsar öðru­vísi og þess vegna færðu geð­klofa. Það eru svona hlutir, það eru svona tæki­færi til þess að fá að taka þátt í svona rann­sóknum, sem gerir það að verkum að það hefur ekki einu sinni hvarflað að mér að fara að gera eitt­hvað annað.“

Árlegur fundur kvenna

Kári Stef­áns­son verður 73 ára eftir nokkrar vikur. Og hann er í fullri vinnu. Hann er spurður hvort hann ætli að verða eins og Elísabet Breta­drottn­ing sem er enn að 95 ára gömul.

„Ég ætla ekki að verða eins og Elísabet Breta­drottn­ing. Það sem kemur í veg fyrir það eru ýmsar líf­fræði­legar stað­reyndir. En það hefur hins vegar í gegnum tíð­ina verið gerð til­raun til að færa mig svo­lítið nær henni; til dæmis á hverju ein­asta ári síð­ast­liðin 20 ár hefur mér verið boðið að verða aðal­fyr­ir­les­ari á árlegum fundi kvenna í háskólum í Banda­ríkj­unum. Og í fyrra var ég val­inn the Female Entrepreneur of the Year hjá evr­ópsku tíma­riti. Það á rætur sínar í því að Kari er kven­manns­nafn í Skand­in­avíu og næstum því und­an­tekn­ing­ar­laust ganga menn út frá því að Kári sé kona. Ég hef meira að segja ferð­ast víða um heim að flytja fyr­ir­lestra og verið boðið að flytja fyr­ir­lestra á hinum og þessum stöðum og það hefur maður verið sendur til þess að ná í mig út á flug­völl; venju­lega endar það á því að ég verð að taka leigu­bíl vegna þess að það hvarflar ekki að þeim að þessi aldni, hvít­hærði, skeggj­aði maður sé Kari.“

Ég er að setja saman skipu­lag um það hverjir taki við.

Nei, Kári – með „á“ – er ekk­ert far­inn að hægja á. „Ég geri mér hins vegar grein fyrir því að ég er kom­inn á þann aldur að það má reikna með því að það þurfi ein­hver að taka við innan ein­hvers tíma. Ég veit ekki hvað það er. Ég er að setja saman skipu­lag um það hverjir taki við.“

Langar Kára ekk­ert til að fara að setj­ast í helgan stein?

„Ekki eins og stendur. En það getur breyst. Eins og stendur hef ég gíf­ur­lega gaman af þessu. Mér finnst þetta alveg feiki­lega spenn­andi.“

Búið í apríl

Fjárans veiran. ÍE, með Kára í broddi fylk­ingar, rétti þjóð­inni og í raun öðrum þjóðum hjálp­ar­hönd þegar á þurfti að halda og skimaði fyrir veirunni og rað­greindi.

Kári er spurður hvernig málin standi á milli þeirra Þórólfs Guðna­sonar sótt­varna­læknis. Það virð­ast hafa verið nún­ingar á köflum en alltaf hefur þetta smollið saman.

„Það hefur aldrei verið nún­ingur á milli okkar Þórólfs. Við höfum ekki alltaf haft nákvæm­lega sömu skoð­anir. Þegar verið er að takast á við fyr­ir­brigði sem er alveg nýtt í þessum heimi og þó að maður safni að sér öllum þeim for­sendum sem til eru þá er hægt að kom­ast að margs konar nið­ur­stöðum. En skoð­anir okkar hafa aldrei verið mjög ólíkar og þú mátt ekki gleyma því að ég get myndað mér skoðun og þar með er það búið. Þegar hann myndar sér skoðun þá hefur það afleið­ingar fyrir sam­fé­lagið. Þannig að það er miklu erf­ið­ara fyrir hann að taka afdrifa­ríkar ákvarð­anir heldur en fyrir mig að mynda kraft­miklar skoð­anir á því að nú eigum við að fara að aflétta og svo fram­vegis. Mér fannst fyrir svona rúmum mán­uði að við hefðum átt að vera búin að aflétta öllum tak­mörk­unum og mér fannst nokkuð ljóst svona strax um ára­mótin að þessi pest yrði búin í apríl. En ég get sagt þetta án þess að þurfa að svara fyrir það nokk­urs staðar. Mér finnst Þórólfur hafa gert þetta á mjög skyn­sam­legan hátt. Hann hefur oft og tíðum orðið að standa upp­réttur og bros­andi milli steins og sleggju og hann hefur gert þetta vel. Hann er mik­ill séntíl­maður og mér þykir alveg óend­an­lega vænt um Þórólf og mér finnst hann hafa staðið sig mjög vel. Auðvitað á tveggja ára tíma­bili þegar þú þarft raun­veru­lega að vera að tjá þig opin­ber­lega á hverjum ein­asta degi þá koma þau augna­blik þar sem þú segir eitt­hvað sem þú vildir kannski ekki hafa sagt en í hans til­felli þá er það mjög fágætt.“

Omikron-afbrigði veirunnar, sem veldur væg­ari ein­kennum en önnur, er alls­ráð­andi og aflétt­ingar voru boð­aðar 11. febr­úar: Sóttkví fellur niður og 200 mega koma saman. Verður þetta búið í apríl?

„Já.“

Hvað kemur svo?

„Svo kemur vorið, sauð­burð­ur­inn, slátt­ur­inn og allt sem því fylgir.“

Verður þetta gott sumar?

„Já, þetta verður gott sumar.“

Og við getum farið frjáls og grímu­laus ferða okkar?

„Já, við getum farið frjáls og grímu­laus ferða okkar og við getum farið upp í Borg­ar­fjörð, upp að Rauðs­gili og við getum látið okkur líða vel.“

„Já, við getum farið frjáls og grímu­laus ferða okkar og við getum farið upp í Borg­ar­fjörð, upp að Rauðs­gili og við getum látið okkur líða vel.“ (Mynd: Art Bicnick.)

Ljóðin

„Ég á góð börn og barna­börn og þau eru að reyna að draga mig upp úr hol­unni,“ segir Kári Stef­áns­son, for­stjóri Íslenskrar erfða­grein­ingar, en eig­in­kona hans, Val­gerður Ólafs­dóttir, lést fyrir þremur mán­uðum. Er Kári ein­mana? „Stundum. Ekki alltaf. Til dæmis þessa dag­ana þegar ég vakna á morgn­ana þá sest ég niður með kaffi­bolla og ræði stjórn­mál við Garp, kött­inn minn.“

Kári er mik­ill ljóð­unn­andi og eftir að eig­in­kona hans lést var birt ljóð eftir hann í fjöl­miðlum og las hann það á upp­töku við und­ir­leik tón­list­ar­manna. Val­gerður varð sjö­tug rúmum mán­uði áður en hún lést og hafði Kári ort ljóðið af því til­efni. Ljóðið heitir Kona.

Bærðist ekk­ert utan hjarta
einn á gangi og nóttin bjarta
bjó þig til.
Nætur sum­ars, sumar nætur
suma okkar heppna lætur
finna ást sem aldrei dvínar
ætíð finnur rætur sínar
þótt árin líði og öllu breyti
utan þér

Þú ert ennþá ilmur blóma
ennþá sveipuð skærum ljóma
seið­andi bjartrar sum­ar­nætur
sem mér ávallt finn­ast lætur
að frið­ur­inn sé hér.
Úr mínu gamla höfði og hjarta
hrekur burtu myrkrið svarta
kveikir ljós

Bærðist ekk­ert utan hjarta
einn á gangi og nóttin bjarta
bjó þig til.
Eins og blóm í hausts­ins haga
hátíð gerir alla daga,
það er ekk­ert eins og þú
ástin mín fagra þá og nú

„Ég hef reynt alla mína ævi að koma til­finn­ingum í orð. Oftast er það svo­lítið klaufa­legt en ekki alltaf. Ég hef mjög ákveðna skoðun á því hvernig til dæmis menntun eigi að vera. Tungu­málið er það tæki sem við hugsum með og án tungu­máls er engin hugsun. Ég hef í gegnum tíð­ina sem tauga­sjúk­dóma­læknir verið með sjúk­linga sem hafa lent í því að verða mál­stola; hafa fengið heila­blóð­fall sem hefur tekið frá þeim tungu­málið. Og þá á ég við tungu­mál sem allra abstrakt komm­úník­a­sjón. Ég hef verið með sjúk­linga sem hafa síðan náð sér og hafa fengið tungu­málið aftur og það sem þeir kvarta mest undan er að þeir gátu ekki hugsað sem er alveg skelfi­legt að horfast í augu við. Ég held að það sem við eigum að leggja áherslu á þegar við erum að mennta ungt fólk í grunn­skólum, mennta­skólum og svo fram­vegis sé að leggja fyrst og fremst áherslu á tungu­málið. Ef þú ætlar í þínu skóla­kerfi að búa til skap­andi vís­inda­menn þá gerir þú það ekki með því að byrja að kenna þeim raun­greinar mjög ungum. Þú átt að láta þá lesa góðar bók­menntir. Hjálpa þeim við að þjálfa sig í að nota tungu­málið með miklum sveigj­an­leika vegna þess að þá getur þú hugsað með miklum sveigj­an­leika. Auðvitað þarf að kenna þeim raun­greinar; auð­vitað þarf að kenna þeim stærð­fræði og svo fram­vegis en menn mega ekki van­meta mik­il­vægi þess að rækta hjá fólki góða til­finn­ingu fyrir tungu­mál­inu sem gerir því kleift að hugsa á nýstár­legan hátt.“

Kári er sonur Stefáns heit­ins Jóns­sonar, rit­höf­undar og frétta­manns. Hann hefur vænt­an­lega inn­rætt syni sínum þessa hluti.

Stundum er ég að skrifa blaða­greinar um til­tekin mál til þess að sinna þeirri skyldu minni að svekkja sam­borg­ara mína.

„Þetta er alltaf spurn­ing um hvað er með­fætt, hvað erf­ist og hvað á rætur sínar í umhverf­inu. Við erum að vissu leyti nátt­úr­lega ekk­ert annað en afleið­ing af nokkrum DNA-sam­eindnum sem eru í stöð­ugu jafn­vægi við sitt umhverfi. Og það má vel vera að faðir minn hafi haft þau áhrif á mig að ég hafi hneigst í þessa átt. Það má vel vera. En síðan er svo margt af þessu sem maður fæð­ist með. Jú, jú, hann lagði mikla áherslu á bók­menntir og bók­menntum var ýtt að okkur þegar við vorum korn­ung. Með fram minni vinnu hef ég alltaf lesið mjög mikið og síðan af og til hef ég sest niður og skrifað eitt­hvað. Stundum eru það ljóð. Stundum er ég að skrifa blaða­greinar um til­tekin mál til þess að sinna þeirri skyldu minni að svekkja sam­borg­ara mína.“

Voruð þeir feðgðar nánir?

„Nei, ekk­ert sér­stak­lega. Við vorum ekk­ert ólíkir.“

Skapmenn báðir?

„Það er ekki rétt. Ég hef ekk­ert skap. Einn af mínum áþreif­an­legu göllum er skortur á skapi.“

Kára er bent á að ímyndin sé önnur og að menn haldi að hann sé mik­ill skap­hundur.

„Það lenda allir í því að skipta skapi af og til. Ég á mjög góðan vin sem heitir Jóhann Hjart­ar­son skák­maður sem er yfir­lög­fræð­ingur fyr­ir­tæk­is­ins. Ég held að það sé rétt hjá mér að ég hafi rekið hann 45 sinnum. Hann kom einmitt inn á skrif­stofu til mín um dag­inn og sagði „Kári, er þér orðið illa við mig?“ Ég sagði „af hverju spyrðu?“. Hann sagði „það er svo langt síðan þú rakst mig síð­ast“.“

Kári er spurður hvort það sé þannig að hann hlaupi á sig en sé fljótur að ná tökum á hugs­un­inni aftur.

„Með­al­tími sem ég er reiður er ein­hvers staðar á milli tvær og fimm sek­úndur. Og ég skamm­ast mín fyrir að hlaupa í gönur eins og kemur fyrir. Maður á ekki að gera það.“

Dauðinn og DNA

Jú, Á Rauðs­gili Jóns Helga­sonar kom upp og Kári fer með hend­ingu; hann segir að sér finn­ist þetta vera fal­leg­asta erindið í íslenskum ljóð­heimi.

Enn ég um Fellafló­ann geng,

finn eins og titr­ing í gömlum streng,

hug­ann grunar hjá grass­ins rót

gam­alt spor eftir lít­inn fót.

„Ég skal segja þér það að þegar ég var í 6. bekk í MR þá sá ég um heim­sókn Jóns Helga­sonar. Hann kom og tal­aði við okkur í 90 mín­útur um ljóðin sín.“

Kári segir að Jón hafi verið stór­kost­legt skáld. „Ímyndaðu þér að sitja hérna full­orð­inn, gam­all maður og sjá þetta ljóð sem hljómar svona,“ segir Kári og fer með ljóð Jóns.

Það var eitt kvöld að mér heyrð­ist hálf­vegis barið
ég hlust­aði um stund og tók af kert­inu skarið
ég kall­aði fram og kvöld­golan veitti mér svarið:
Hér kvaddi Lífið sér dyra og nú er það farið.

Og Kári fer með fleiri ljóð Jóns Helga­sonar.

Séð hef ég skraut­leg suð­ræn blóm

sól­vermd í hlýjum garði;

áburð og ljós og aðra virkt

eng­inn til þeirra sparði;

mér var þó löngum meir í hug

melgras­skúf­ur­inn harði,

runn­inn upp þar sem Kalda­kvísl

kemur úr Von­ar­skarði.

„Þarna situr hann í Kaup­manna­höfn að drep­ast úr heim­þrá en þessi bölv­aði drullu­sokkur bara ákveður að setj­ast að í Kaup­manna­höfn og koma aldrei aftur. Þannig að ég held því fram að þessar til­finn­ingar þó þær séu fal­legar séu ekki ein­lægar. Af hverju kom hann ekki heim, mann­hel­vítið?“

Menn­irnir fæð­ast og menn­irnir deyja. Talið berst að lokun að Guði. Hvort Kári sé trú­aður maður.

„Þarna ertu að reyna af and­styggð þinni, þjóð­þekktri and­styggð, að koma mér í vand­ræði. Raun­veru­lega sú eina trú­ar­játn­ing sem ég get fall­ist á er eftir Stein­grím Thor­steins­son.

Trúðu á tvennt í heimi.
Tign sem æðsta ber.
Guð í alheims geimi.
Guð í sjálfum þér.

Ég held að það sé eng­inn guð æðri kær­leik­anum. Ég held því fram að það eina sem skipti máli raun­veru­lega í líf­inu sé ást og vænt­um­þykja.“

Hvað er hinum megin? Hvað er handan við dauð­ann?

„Ég held að við verðum að sætta okkur við að spurn­ingin hvað er handan við dauð­ann sé ekk­ert merki­legri í okkar til­felli heldur en öðrum ein­stak­lingum í líf­heim­inum. Hvað bíður grass­ins sem fölnar að hausti? Ég held að það sé ekk­ert merki­legra sem bíður okkar. Því miður þá held ég að við séum eins og aðrir í líf­heimi; við erum hér ein­göngu til þess að sjá til þess að DNA haldi áfram að vera til. Það er ekk­ert annað hlut­verk sem við höfum í sjálfu sér og þegar við deyjum þá fer þessi heimur sem býr innan höf­uð­skeljar okkar; hann fer. Okkar heimur er ósköp ein­fald­lega afleið­ing af því að við tökum inn hluti í gegnum sjón, heyrn og alls konar sner­ti­t­il­finn­ingar og úr því býr heil­inn okkar til ákveð­inn heim. Og minn heimur og þinn heimur – þó svo við lýsum honum á svip­aðan hátt – eru að öllum lík­indum mjög ólíkir.“

Podcast-við­talið við Reyni Trausta­son er að finna á vef Mannlífs og þar fjallar Kári meðal ann­ars um deil­urnar innan SÁÁ.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Málið kemur upp eftir stjórnarskipti í Serbíu, þar sem barátta gegn spillingu var í forgrunni
Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð