Fara í efni
Grímur Grímsson
„Afleiðingar ofbeldis og hótana um slíkt eru þær að óöryggi eykst"
Grímur Grímsson
Innlent

Innkalla eitt þekktasta orku­stykki landsins

Fólk

Selja risa einbýli á spottprís

Frétt

Allir skip­verjarnir hífðir upp úr sjónum

Innlent

Tvær konur höfðu betur gegn fyrr­verandi vinnu­veitanda

Innlent

Börnin geta faðmað pabba sinn á ný

Skoðun

Ég ber virðingu fyrir öllum

Minning

Þrír skip­verjar fórust

Innlent

Gleymdi klukkunni og fékk að finna fyrir tímans tönn

Innlent

Fréttir af Jökli minntu Sigurð á biðina við símann á jóladag

Innlent

Útgerð Jökuls heitir skip­verjum og aðstand­endum stuðningi

Þórhildur hefur lifað lengst allra Íslendinga: „Dansaði fram yfir miðnætti“

Á myndinni er Þórhildur Magnúsdóttir með elsta barnabarni sínu, Þórhildi Eggertsdóttur.
Á mynd­inni er Þór­hildur Magn­ús­dóttir með elsta barna­barni sínu, Þórhildi Egg­erts­dóttur. Mynd: Langlífi

Þórhildur Magnúsdóttir er nú elsti lifandi Íslend­ingurinn. Hún er orðin 104 ára og sjö mánaða. Þetta kemur fram á Facebook-síðunni Langlífi sem Jónas Ragnarson ritstýrir. Það er ekki af ástæðu­laus sem aldur hennar er talinn í mánuðum því sex elstu Íslendingarnir eru allir 104 ára. Langlífi segir marga í ætt Þórhildar hafa náð háum aldri.

„Þórhildur Magnúsdóttir er orðin elst Íslendinga, 104 ára og sjö mánaða. Hún er fædd í Miðhúsum í Árnes­sýslu 22. desember 1917 og flutti með foreldrum sínum og systkinum til Reykja­víkur árið 1923. Áslaug systir Þórhildar varð 94 ára, Gísli bróðir hennar varð 92 ára og Hulda systir hennar er að verða 96 ára.“

Þórhildur hlýtur að teljast sérstak­lega hress miðað við aldur en til marks um það dansaði hún fram yfir miðnætti á dögunum. „Gústaf Adolf Lárusson húsa­smiður, maður Þórhildar, varð 95 ára. Þau eignuðust sex börn, allt stúlkur, og eru fimm þeirra á lífi. Þórhildur bjó í Jöldugróf 8 í Reykjavík frá 1947 og þar til hún fór á Hrafnistu á Sléttu­vegi vorið 2020. Afkomendurnir eru orðnir rúmlega áttatíu. Hún er hress, miðað við aldur, fer út að ganga reglulega og mætir í fjöl­skylduboð. Fór í brúðkaup í byrjun júlí og dansaði fram yfir miðnætti.“

Hér fyrir neðan má svo sjá 10 elstu Íslendingana í dag. Þess má geta að Íslands­metið í aldri er tæplega 110 ár. Fimm konur hafa náð þeim aldri: Guðrún Björg Björns­dóttir, Jensína Andrésdóttir, Sólveig Páls­dóttir, Guðfinna Einars­dóttir og Guðríður Guðbrands­dóttir.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Húsið var reist árið 2024
Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Innlent

Einn fluttur á bráða­móttöku

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Innlent

Blaða­maður fær ekki gögn um fund Tony Blair með sendi­herra Íslands

Innlent

Þingmenn risu úr sætum til að heiðra sjómennina á Jökli

„Við syrgjum sjómennina þrjá sem létu lífið í sjóslysinu í gær“

„Girðið ykkur í brók og komið þessu í lag“

Góðkunningi lögreglu tvívegis með vopn á sér í Reykjavík

Mosfellingur fékk ársfangelsi fyrir ítrekuð brot eftir flótta

Rauði krossinn veitir sálrænan stuðning

Annar björgunar­báturinn var fastur og hinn rak frá skip­verjum