Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Þórdís Sif Sigurðardóttir: Viljum göng á milli Patreksfjarðar, Tálknafjarðar og Bíldudals

Þórdís Sif Sigurðardóttir: Viljum göng á milli Patreksfjarðar, Tálknafjarðar og Bíldudals
Þórdís Sif Sig­urð­ar­dóttir

„Það er ótrú­lega spenn­andi að fá tæki­færi til að vinna með Vesur­byggð að áfram­hald­andi upp­bygg­ingu sveit­ar­fé­lags­ins. Það eru spenn­andi tæki­færi fyrir Vest­ur­byggð, fjölgun íbúa og atvinnu­tæki­færa. Ég hlakka til að vinna með bæj­ar­full­trúum, íbúum og fyr­ir­tækjum á svæð­inu. Það er algjör draumur að fara aftur að vinna með Vest­firð­ingum á Vest­fjörðum, enda ein­stak­lega gott fólk og fal­legt umhverfi,“ segir Þórdís Sif Sig­urð­ar­dóttir, nýráð­inn bæj­ar­stjóri Vest­ur­byggðar.

Á hvað vill hún leggja áherslu í starf­inu?

„Samstarf er eitt­hvað sem ég legg alltaf mikla áherslu á sem og vand­aða stjórn­sýslu og góðar ákvarð­anir. Það liggur fyrir að það þarf að ráð­ast í alls kyns upp­bygg­ing­ar­verk­efni, fjölgun íbúð­ar­hús­næðis og leik­skóla­plássa. Ég vil enn fremur halda áfram að vinna með íbúum að efl­ingu tóm­stunda og menn­ingar á svæð­inu.“

Ég er að taka við mjög góðu búi.

Hvað með nýj­ungar?

„Ég er að taka við mjög góðu búi þar sem búið er að vinna mjög gott starf í skipu­lagi stjórn­sýsl­unnar. Það er ekk­ert sem ég get bent á núna sem ég mun breyta áður en ég tek til starfa en með nýju fólki koma alltaf ein­hverjar nýj­ungar.“

Þurfum að hugsa stórt

Hvers vegna sótti Þórdís eftir að vera í starfi bæj­ar­stjóra?

„Starf bæj­ar­stjóra er mjög fjöl­breytt og skap­andi. Þú þarft að hafa þekk­ingu á mörgum ólíkum mál­efnum og vera góður í mann­legum sam­skiptum. Það er gef­andi að taka þátt í upp­bygg­ingu sam­fé­lags og þeim verk­efnum sem verða á leið manns hverju sinni. Þetta er fram­kvæmda­stjóra­starf en miklu umfangs­meira og fjöl­breytt­ara en hefð­bundin fram­kvæmda­stjóra­störf. Það sem er mest gef­andi er sam­fé­lags­legi vink­ill­inn; að kynn­ast nýju sam­fé­lagi og taka þátt í því. Það að geta með störfum sínum haft jákvæð áhrif á þróun sam­fé­lags hvort sem er að auka fjöl­breyti­leika starfa, taka þátt í gerð hjóla­brautar eða vinna í ímynd­ar­málum sam­fé­lags­ins.

Í Vest­ur­byggð er mikil upp­bygg­ing í tengslum við fisk­eldið og kalk­þör­ung­ana sem og þjón­ustu við ferða­menn og því fylgir aukin eft­ir­spurn eftir vinnu­afli, hús­næði og bættri aðstöðu við hafn­ar­svæði. Það er nán­ast ekk­ert atvinnu­leysi í Vest­ur­byggð og skortur á hús­næði. Fjölgun íbúð­ar­hús­næðis er hafin en bæði á Bíldudal og Pat­reks­firði eru íbúð­ar­hús í bygg­ingu í sumar. Það þarf svo að skoða leik­skóla­málin og aðra almenna þjón­ustu í þessu sam­hengi og passa upp á að allir inn­viðir séu til staðar. Það er mik­il­vægt að upp­bygg­ing inn­viða og fjölgun starfa hald­ist eins vel í hendur og hægt er og er það eitt af þeim verk­efnum sem við stöndum frammi fyrir.

Það er mik­il­vægt að greina mögu­leik­ana og tæki­færin sem sam­ein­ingu myndu fylgja.

Við þurfum að hugsa stórt og vera óhrædd við að skipu­leggja fram­tíð­ina. Eitt af því sem við viljum sjá eru göng á milli Pat­reks­fjarðar, Tálkna­fjarðar og Bíldu­dals en Hálfdán-heiðin við Bíldudal á það til að vera ófær og því ekki hægt að líta á svæðið sem eitt atvinnu­svæði. Annað spenn­andi verk­efni er að hefja óform­legar sam­ein­ing­ar­við­ræður milli Vest­ur­byggðar og Tálkna­fjarð­ar­hrepps. Það er mik­il­vægt að greina mögu­leik­ana og tæki­færin sem sam­ein­ingu myndu fylgja til að varpa ljósi á kost­ina og gall­ana við sam­ein­ingu sveit­ar­fé­lag­anna. Góð sam­vinna hefur verið í gangi milli sveit­ar­fé­lag­anna og er hægt að bæta það enn betur.“

Launin í samræmi við ábyrgð

Á árunum 2020-2022 var Þórdís sveit­ar­stjóri Borg­ar­byggðar undir meiri­hluta Sjálf­stæð­is­flokks, Sam­fylk­ing­ar­innar og Vinstri grænna. Framsókn fékk fimm með­limi kjörna í sveit­ar­stórn Borg­ar­byggðar í síð­ustu sveit­ar­stjórn­ar­kosn­ingum og felldi meiri­hlut­ann og ákvað nýr meiri­hluti að end­ur­ráða ekki Þórdísi.

„Ég hóf störf í Borg­ar­byggð um leið og fyrsta Covid-bylgjan reið yfir og fór að hafa áhrif á starf stofn­ana sveit­ar­fé­lags­ins. Þetta voru því frekar sér­stakir tímar. Helstu verk­efnin voru að gera stjórn­sýsl­una skil­virk­ari, við gerðum breyt­ingar á skipu­riti sveit­ar­fé­lags­ins, fjölg­uðum stöðu­gildum í skipu­lags- og bygg­ing­ar­málum og jukum áherslu á þjón­ustu við íbúa og aðra við­skipta­vini. Við gerðum tugi verk­ferla yfir helstu verk­efni stjórn­sýsl­unnar og útbjuggum gæða­hand­bók. Enn fremur und­ir­bjuggum við skipu­lagn­ingu nýrra íbúða­hverfa, þjöppun byggðar og breyt­ingar á skipu­lagi atvinnu­svæða. Það fór því mjög mikil vinna í breyt­ingar og lag­fær­ingar innan stjórn­sýsl­unnar. Ég starf­aði aðeins fyrir Borg­ar­byggð í tvö ár og hefði verið frá­bært að fylgja eftir öllum þeim breyt­ingum sem við vorum að vinna að á nýju kjör­tíma­bili. En ég treysti því að gott starfs­fólk Borg­ar­byggðar og sveit­ar­stjórn­ar­full­trúar haldi áfram með þau verk­efni sem hafin eru.“

Vinnu­fram­lag sveit­ar­stjóra er gríð­ar­legt og ekki skráð inn í stimp­il­klukku.

Hver er skoðun Þórdísar varð­andi há laun sveit­ar­stjóra?

„Ég tel launin vera í sam­ræmi við ábyrgð. Það er mik­il­vægt að horfa á það umhverfi sem sveit­ar­stjórar starfa í. Við erum nokkurn veg­inn í vinn­unni allan sól­ar­hring­inn, alltaf vak­andi yfir hags­munum sveit­ar­fé­lags­ins í heild. Vinnu­fram­lag sveit­ar­stjóra er gríð­ar­legt og ekki skráð inn í stimp­il­klukku. Sveit­ar­stjóri hefur jafn­framt marga und­ir­menn sem eru starfs­menn ýmissa stofn­ana sveit­ar­fé­lags­ins. Það er auð­vitað alltaf mik­il­vægt að taka þessa umræðu og velta upp öllum steinum en í flestum til­vikum held ég að sveit­ar­stjórar séu ekki að fá ofgreiðslur fyrir sitt vinnu­fram­lag og sína ábyrgð. Einnig er sveit­ar­stjóra­starfið mjög ótryggt og kjörin eftir því.“

Fjölbreytt verkefni

Þórdís er með meist­ara­próf í lög­fræði frá Háskóla Íslands og B.sc.-gráðu í við­skipta­lög­fræði frá Háskól­anum á Bifröst.

„Áður en ég fór inn í sveit­ar­stjórn­ar­málin var ég í fjár­mála­heim­inum; vann hjá fjár­fest­ing­ar­fyr­ir­tæki og í banka. Ég hafði átt þann draum að flytja vestur á firði og kláraði lög­fræð­ina sam­hliða vinnu minni í bank­anum til að eiga fjöl­breytt­ari tæki­færi til starfs. Þá átt­aði ég mig á að ég myndi vilja vinna við þau verk­efni sem eru hjá sveit­ar­fé­lögum. Ég hafði þó engan grun um hversu fjöl­breytt verk­efni væru hjá sveit­ar­fé­lögum sem kom mér skemmti­lega á óvart. Hjá Ísa­fjarð­arbæ sinnti ég mjög ólíkum verk­efnum í nánu sam­starfi við þá bæj­ar­stjóra sem ég vann með sem og annað starfs­fólk,“ segir Þórdís sem var á árunum 2013-2020 bæj­ar­rit­ari og stað­geng­ill bæj­ar­stjóra Ísa­fjarð­ar­bæjar. „Ég naut þess að starfa að verk­efn­unum hjá Ísa­fjarð­arbæ og með því frá­bæra fólki sem þar er. Ég vann að íbúa­lýð­ræði og nýsköpun, atvinnu­málum og fjölgun íbúð­ar­hús­næðis í gegnum starfið og stjórn­ar­setu. Þetta eru allt ólík verk­efni sem gáfu mér mikla inn­sýn inn í verk­efni sveit­ar­fé­laga. Þessi tími gaf mér mjög mikið; bæði lærði ég mikið og eign­að­ist góða vini.“

Fjallahjól og ískaldur sjór

Þórdís segir að fjöl­skyldan hafi byrjað í skíða­mennsk­unni á Ísafirði og að það sé eitt það skemmti­leg­asta sem þau gerðu saman.

Þessa dag­ana er ég mest á fjalla­hjól­inu.

„Á Ísafirði varð til frá­bær hópur kvenna sem ákvað að taka þátt í Fossa­vatns­göng­unni á Ísafirði; sumar okkar höfðu aldrei stigið á göngu­skíði áður og þar á meðal ég. Þegar nálg­ast fór göng­una ákváðum við að taka þetta aðeins lengra og klára Land­vætt­ina líka. Það var frá­bær upp­lifun þar sem ég steig mörg fyrstu skref í því sem mér finnst skemmti­leg­ast að gera núna. Gull­rill­urnar mínar eiga stórt pláss í hjarta mínu og því hvernig ég hef kosið að lifa lífi mínu und­an­farin ár. Ég nýt þess að vera í góðum félags­skap vina og/eða fjöl­skyldu og stunda úti­vist með ýmsum hætti. Þessa dag­ana er ég mest á fjalla­hjól­inu og er ég viss um að ég get fundið ein­hverjar skemmti­legar leiðir fyrir vestan til að hjóla. Annars geng ég líka nokkuð á fjöll, stunda lík­ams­rækt af og til og elska að fara í ískaldan sjó. Þrátt fyrir að úti­vist og hreyf­ing séu mín helstu áhuga­mál þá er líka mik­il­vægt að slaka vel á heima eftir langa daga á skrif­stof­unni og njóta þess að vera með krökk­unum.“

Nýjar áskoranir

Hvaða atburður í líf­inu hefur haft mest áhrif á Þórdísi?

„Ég ólst upp í Borg­ar­nesi en fór svo til Reykja­víkur í fram­halds­skóla þegar ég var 16 ára. Ég hef alltaf litið á mig sem lands­byggð­ar­túttu og flestir góðir vinir mínir eru utan af landi. Þegar ég var búin að búa í Reykja­vík meiri­hluta ævi minnar og flutti aftur út á land þá fann ég hvað ég var komin lagt frá þeim upp­runa sem ég tengdi mig alltaf við. Það að flytja á Ísafjörð breytti lífs­sýn minni og afstöðu til smærri byggð­ar­laga og sam­gangna líkt og gangna­gerð. Við viljum öll geta ferð­ast um landið okkar, að út um land allt sé þjón­usta í boði fyrir okkur og verðum við því að passa upp á að halda íbúa­byggð á lands­byggð­inni líf­væn­legri með góðum sam­göngum allt árið um kring og fjöl­breyttu atvinnu­lífi. Ég fór að hafa mik­inn áhuga á byggða­þróun og hvað það væri sem skap­aði gott sam­fé­lag.“

Hvað með drauma varð­andi fram­tíð­ina?

„Ég hlakka mjög mikið til að kynn­ast sam­fé­lag­inu og fólk­inu í Vest­ur­byggð betur. Það að setj­ast að á nýjum stað með ný tæki­færi og nýjar áskor­anir er eitt­hvað sem er spenn­andi.

Vera lausn­a­miðuð.

Ég ætla að halda áfram að horfa jákvæðum augum á hlut­ina og vera lausn­a­miðuð, vera til staðar fyrir börnin mín eins og ég get og aðra sem mér þykir vænt um. Hlúa að sjálfri mér og mínum áhuga­málum. Vera heil­brigð á lík­ama og sál eins lengi og lífið leyfir mér og njóta alls þess óvænta sem lífið mun bjóða upp á.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

„Þetta er ekki bara eitthvert mál, þetta er grafalvarlegt mál,“ sagði Stefán Vagn
Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Menning

Kíkja í jóla­pakk­ann í Gerðu­bergi

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Að lokinni fimm vikna þjálfun hafa nemendurnir réttindi til að kafa niður á 30 metra dýpi
Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ