Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Ásdísar-samsæri Þórarins eins og að rífast við mann á typpinu: „Æ, viltu ekki fara í buxur?“

Ásdísar-samsæri Þórarins eins og að rífast við mann á typpinu: „Æ, viltu ekki fara í buxur?“
Þórarinn Leifsson, Ásdís Ósk Vals­dóttir og Jakob Bjarnar Grét­ars­son. Þess ber að geta að Ásdís og Jakob eru ekki sama mann­eskjan.

Blaða­mað­ur­inn Jakob Bjarnar Grét­ars­son seg­ist ekk­ert botna í mein­ingum rit­höf­und­ar­ins Þórarins Leifs­sonar um að Jakob standi að baki reikn­ingi Ásdísar Óskar Vals­dóttur á Goodreads, hvar bók Þórarins hafði fengið slaka umsögn. Ásdís hefur sjálf stigið fram og lýst furðu yfir því að vera sögð ein­hver önnur en hún sjálf. Jakob Bjarnar segir enga for­sögu að baki mál­inu; Þórarinn sé ein­fald­lega að reyna að vekja á sér athygli.

Ásdís Ósk Vals­dóttir lýsir því í nýjum pistli á mbl.is hvernig hún hafi farið í lestr­ar­á­tak og haldið utan um bæk­urnar sem hún las á Goodreads, með stuttum umsögnum, „án þess að vera með rit­dóm því ég er hvorki bók­mennta­fræð­ing­ur né gagn­rýn­andi og fyr­ir mér var Goodreads bara svona minn­ismiði fyr­ir mig.“

Ásdís seg­ist hafa byrjað að lesa bók­ina Út að drepa túrista, eftir Þórarin Leifsson, en fund­ist hún „alveg drep­leið­in­leg“.

„Mér leið í al­vör­unni eins og ég væri kom­in í sögu­kennslu í grunn­skól­an­um á Dal­vík. Ég gaf henni eina stjörnu og setti í um­sögn:

„Þessi höfð­aði ekki til mín og ég gafst upp á henni. Leið eins og ég væri að lesa yf­ir­borðs­kennda hand­bók um Ísland. Náði eng­um tengsl­um við per­són­urn­ar og ákvað að snúa mér að næstu bók.““

Ásdís segir að sér hafi þótt umsögnin nógu dönnuð til að „eng­inn fengi áfall yfir dóna­skapnum.“ Hún seg­ist síðan hafa fengið skila­boð frá rit­stjóra DV, sem hafi viljað kanna hvort það hafi í raun verið hún sem hafi skrifað umsögn­ina.

Sakaði Jakob Bjarnar um að vera Ásdís

Þórarinn virð­ist hafa tekið umsögn Ásdísar um bók hans illa. Í fram­hald­inu stað­hæfði hann að aðgangi Ásdísar væri í raun haldið úti af blaða­mann­inum Jakobi Bjarnari Grét­ars­syni, og Ásdís væri ekki raun­veru­leg mann­eskja.

„Þá hafði höf­undi bók­ar­inn­ar verið svo mis­boðið yfir þess­ari um­sögn að hann var sann­færður um að ein­hver ann­ar væri með leyni­að­gang und­ir dul­nefn­inu Ásdís Vals­dótt­ir enda hver heit­ir líka Ásdís Vals­dótt­ir. Aug­ljóst að þetta er ekki raun­veru­leg mann­eskja. Ekki nóg með að þetta væri leyni­að­gang­ur held­ur vissi hann ná­kvæm­lega hver stæði að baki þess­ari árás,“ segir Ásdís í pistli sínum.

„All­ar bæk­urn­ar mín­ar eru um­deild­ar. Þær eiga líka að vera það. En ég er á sama tíma 100% viss um að Ásdís Vals­dótt­ir er Jakob Bjarn­ar blaða­maður að skrifa dóm um bæk­urn­ar mín­ar inni á Goodreads, gníst­andi tönn­um und­ir dul­nefni. A cunt is a cunt is a cunt,“ skrif­aði Þór­ar­inn á Face­booksíðu sína. Pistill Ásdísar ber einmitt tit­il­inn „Eru kuntur nei­kvæðar?“

„Bara eitthvað klámhögg“

Jakob Bjarnar seg­ist í sam­tali við Mannlíf ekki hafa hug­mynd um það hvers vegna Þórarni hafi dottið það í hug að Jakob hafi skrifað umsögn um bók hans undir dul­nefni.

„Ég veit eig­in­lega ekki almenni­lega hvað ég á að segja um þetta. Þetta er bara svo glóru­laust, eitt­hvað. Þetta er nátt­úru­lega bara eitt­hvað klám­högg sem hann setur fram, afskap­lega heimsku­legt, þar sem hann er að reyna að vekja athygli á sjálfum sér.“

Jakob Bjarnar seg­ist ekki standa í neinum deilum við Þórarin. „Mér finnst þetta bara hjá­kát­legt rugl og kippi mér bara ekk­ert upp við þetta. Það er ekk­ert í þessu; þetta er bara eitt­hvað svo leið­in­legt. Ég hef alveg gaman af því að lenda í rök­ræðum og rit­deilum, en þetta er svona svipað og ef ég sæi mann sem er buxna­laus úti á götu á sprell­anum og segði við hann „æ, viltu ekki fara í buxur?“, og hann svar­aði með ein­hverjum fúk­yrða­flaumi. Þá erum við allt í einu lentir í ein­hverjum deilum. Ég skil þetta bara ekki. Hann er bara að reyna að koma sér í mjúk­inn hjá ein­hverju liði á Twitter og verði honum bara að góðu.“

Aðspurður seg­ist Jakob Bjarnar ekki átta sig á því hvers vegna Þórarinn hafi gert þessa teng­ingu, að slök umsögn um bók hans hlyti að vera runnin undan rifjum Jakobs. „Það skilur eng­inn. Það eina sem getur skýrt það er að það sé ein­hver hópur, senni­lega á Twitter, sem hann vill reyna að koma sér í mjúk­inn hjá. Hann hefur verið eitt­hvað að reyna að slá til mín. Ef það væri eitt­hvað í þessu, þá væri svo­lítið gaman að þessu, en það er bara ekki neitt.“

Skrifaði dóm um fyrstu bók Þórarins

Jakob Bjarnar segir enga for­sögu um deilur milli þeirra Þórarins. „Þetta er algjör­lega úr lausu lofti gripið. Hann er bara að reyna að vekja á sér athygli og honum greini­lega tekst það. Ef það væri eitt­hvað smá vit í þessu, þá gæti verið gaman að þessu, en það er það bara ekki. Ég skrif­aði ein­hvern tíma fyrir lif­andis löngu rit­dóm um fyrstu bók hans, sem hét Götu­málar­inn. Það var bara mjög lof­andi bók. En ég hef bara því miður ekki lesið neitt meira eftir hann.“

Jakob Bjarnar segir að sig minni að sá rit­dómur hafi verið skrif­aður í Frétta­blaðið á sínum tíma. „Það var bara mjög lof­sam­legur dómur.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi