Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Gunnari Smára hótað: „Ekki bara belgingur eins og hótanir eru oftast – Viva Bjarni Ben!“

Gunnari Smára hótað: „Ekki bara belgingur eins og hótanir eru oftast – Viva Bjarni Ben!“
Gunnar Smári Egilsson, með­limur í Sós­í­alista­flokki Íslands.

„Þið eruð sið­blind hel­víti og farið beint þangað. Ég mun finna á end­anum hvar þið eigið heima. Hugsaðu um fjöl­skyld­una þína áður en þið haldið áfram. Ég vill ekki beita vopnum en þið gefið mér ekki færi á öðru.“ Þessu greinir Gunnar Smári Egilsson, með­limur Sós­í­alista­flokks Íslands frá  á Facebook-síðu Sós­í­alista­flokks­ins, en hann fékk þessi skila­boð send fyrri tveimur dögum síðan.

Gunnar Smári segir að hann hafi til­kynnt við­kom­andi að þessar hót­anir yrðu til­kynntar lög­reglu, sem hann svo gerði. Þegar lög­regla heyrði í Gunnari hafi hann sömu­leiðis til­kynnt hót­anir sem hann hefur fengið frá öðrum manni sem einnig hefur veist að Gunnari út á götu ásamt fjöl­skyldu hans.

„Ég sá hann síð­ast fyrir utan heim­ili mitt þar sem hélt hót­unum sínum áfram, hróp­aði alls kyns ókvæð­is­orð um meinta glæpi sós­í­al­ism­ans, sagði mér að láta Bjarna Bene­dikts­son í friði og hróp­aði að lokum: Viva Bjarni Ben!“

Gunnar seg­ist hafa bent lög­reglu­manni á að deild lög­reglu sem rann­sakar hat­urs­orð­ræðu ætti að kanna hvernig áhrifa­fólk í sam­fé­lag­inu talar um sós­í­al­isma, en sumir tali um sós­í­al­isma og leggi þar að jöfnu sós­íal­íska verka­lýðs­bar­áttu Sós­í­alista­flokks­ins við morð og ofbeld­is­verk alræð­is­stjórna, kennda við sós­í­al­isma, á síð­ustu öld.

„Að þau sem vildu há rót­tæka verka­lýðs­bar­áttu á Íslandi í dag væru í raun að leggja af stað í leið­angur sem hlyti að enda í afnámi lýð­rétt­inda, morðum á póli­tískum and­stæð­ingum, jafn­vel hung­ursneyðum sem myndu fella tugi millj­óna manna. Undir slíkum hat­urs­ræðum gegn frels­is­bar­áttu hinna fátæku og valda­lausu fengju van­stilltir menn þær grillur í haus­inn að sjálf­sagt væri að hóta og jafn­vel meiða for­ystu­fólk í Sós­í­alista­flokknum og í verka­lýðs­hreyf­ing­unni.

Ég stakk upp á að lög­reglan gæti t.d. haldið erindi í stjórn­mála­skóla Sjálf­stæð­is­flokks­ins, þar sem það hefur verið kennt lengi að sá sem aðhyllist hug­sjónir sós­í­al­ism­ans myndi á end­anum leið­ast út í sams­konar alræði og ein­ræð­is­herrar sov­éska og kín­verska komm­ún­ista­flokks­ins.“

Ráðist á húsnæði sósíalista

Síðan í gær hafi óprútt­inn aðili eða aðilar grýtt félags­mið­stöð Vor­stjörn­unnar þar sem Sós­í­alista­flokk­ur­inn leigir aðstöðu ásamt öðrum sam­tökum.

„Tveir gluggar voru brotnir þar sem merki flokks­ins og Sam­stöðv­ar­innar eru.

Auðvitað veit ég ekki hvort annar mann­anna sem ég benti lög­regl­unni á hafi verið að verki. En auð­vitað grunar mig það. Ég hef verið blaða­maður frá því fyrir næstum fjöru­tíu árum og oft verið hótað. Menn hafa ruðst inn á rit­stjórnir blaða sem ég hef unnið á og gert sig breiða, ætt inn á skrif­stofu mína, lokað á eftir sér og hótað lík­ams­meið­ingum. Ég hef fengið hót­anir í pósti, sím­tölum, tölvu­pósti og sms. Mér datt aldrei í hug að til­kynna þessar hót­anir og hef aldrei sagt frá þeim opin­ber­lega.

Ekki fyrr en núna í vik­unni. Heiftin í þessum mönnum og talsmáti, og full­vissa þeirra um að sós­í­alistar sé skepnur og sví­virð­ingar, veldur því að ég ótt­ast að þetta sé ekki bara belg­ingur, eins og hót­anir eru oft­ast.“

Sambærileg orðræða viðhöfð gagnvart Sólveigu

Gunnar minnir eins á átökin sem hafi átt sér stað í kringum Eflingu nýverið. Þá hafi sam­bæri­leg orð­ræða verið við­höfð og Sólveig Anna Jóns­dóttir, for­maður Eflingar, kölluð Stalínisti, sögð halda dauða­lista, þola ekki gagn­rýni sem og annað sem hafi átt að skapa hug­renn­inga­tengsl milli Sól­veigar og alræð­is­stjórna Sov­ét­ríkj­anna.

„Og þegar Pútín sendi rúss­neska her­inn inn í Úkraínu stigu menn á stökk, sem af ein­hverjum óskilj­an­legum ástæðum eru taldir máls­met­andi, til að lýsa yfir ábyrgð íslenska sós­í­alista á þess­ari inn­rás. Jafnvel þótt Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn hafi verið í póli­tísku sam­starfi við Sameinað Rússland fram að inn­rásinni á Krím og Pútín er álíka langt frá því að vera Sós­í­alisti og Bol­son­aro, Trump eða Erdogan, svo ein­hverjir af öðrum póli­tískum sam­herjum Sjálf­stæð­is­flokks­ins séu nefndir.“

Gunnar Smári telur að sós­í­alistar hér á landi þurfi að taka orð­ræð­una alvar­lega sem nú vaði upp hér á landi. Algengt sé að sós­í­alistar séu sak­aðir um að vilja alræð­is­stjórn.

„Þótt þetta sé banal orð­ræða þá virkar hún á fólk sem er einmitt banalt fyrir og það sér sós­í­alista sem stór­hættu­legt fólk sem verður að stoppa.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina