Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Páll skipstjóri: „Hún hefur ríkisfjölmiðil landsins og nokkrar hjáleigur en ég hef bara Facebook“

Páll skipstjóri: „Hún hefur ríkisfjölmiðil landsins og nokkrar hjáleigur en ég hef bara Facebook“
Páll Stein­gríms­son.

Páll Stein­gríms­son, skip­stjóri hjá Samherja, sendir Þóru Arn­órs­dóttur rit­stjóra Kveiks, tón­inn, eftir að Kveikur hlaut Eddu­verð­launin í gær­kvöldi sem Frétta- og við­tals­þáttur árs­ins.

Vakti það mikla athygli þegar Þóra steig í pontu á afhend­ing­unni og gagn­rýndi lög­regl­una fyrir að kalla blaða­menn til yfir­heyrslu:

„Vegna þess að á þessum tímum er ótrú­lega mik­il­vægt að fá að vita, finna og skynja að þið fag­fólkið og áhorf­endur kunnið að meta hvað við erum að gera, því ekki kann lög­reglan að meta það.“

Páll svarar fyrir á Facebook með þessum orðum:

„Góðan dag­inn kæru ætt­ingjar, vinir og sam­starfs­menn. Eins og ykkur er kunn­ugt um hef ég reynt að tak­marka það hvað ég hef tjáð mig opin­ber­lega um mál sem stendur mér nærri meðan á rann­sókn lög­reglu stendur. Hef ég ítrekað bitið í tung­una á mér þegar síend­ur­teknar rang­færslur og útúr­snún­ingar dynja á lands­mönnum, fyrst og fremst á og frá rík­is­fjöl­miðl­inum en einnig á öðrum miðlum sem starfa náið með rík­is­fjöl­miðl­inum, svo náið að varla má greina á milli hver er starfs­maður hvers og hver borgar og gerir hvað.“

Páll færir í tal að „rang­færsl­urnar flytja sak­born­ingar máls­ins sjálfir, svo því sé haldið til haga. Í gær­kvöldi flutti Þóra Arn­órs­dóttir, sak­born­ingur í þessu lög­reglu­máli og yfir­maður þáttar á rík­is­fjöl­miðl­inum þakk­ar­ræðu fyrir verð­laun sem þáttur hennar hlaut. Gerði hún að umtals­efni að lög­reglan kynni ekki að meta verk hennar og að Samherji hefði stofnað skæru­liða­deild sér til höf­uðs. Kannski er hið fyrra rétt en hin stað­hæf­ingin er hug­ar­burður hennar til að gera sjálfa sig að fórn­ar­lambi og afsaka það sem hún hefur gert. Á það hef ég marg­sinnis bent en reyndar er ég ekki í sömu aðstöðu og Þóra við að koma mínum sjón­ar­miðum á fram­færi, þar sem hún hefur rík­is­fjöl­miðil lands­ins og nokkrar hjá­leigur meðan ég hef bara Facebook vegg minn, það sjá allir sem vilja sjá að á þessu tölu­verður aðstöðu­munur.“

Hann vill fara yfir málið:

„Förum yfir nokkrar stað­reyndir. Mér var byrlað til þess eins og kom­ast í sím­ann minn og sam­skipti þar enda var ég rétt komin í sjúkra­bíl þegar byrjað var að ná í ein­staka gögn úr sím­anum. Sú vinna hélt áfram þegar ég fór í önd­un­ar­stopp og í fram­hald­inu setur í önd­un­ar­vél og fluttur á gjör­gæslu í Reykja­vík. En þá var unnt að vinna á hrað­virk­ari hátt við afrit­un­ina enda kunn­áttu­fólkið sem afrit­aði sím­ann þar, á sama Leiti og gjör­gæslan er.

Afritaði sím­inn er enn not­aður til að reyna að kom­ast í gögn í mínum fórum. Sá angi máls­ins er líka i höndum lög­reglu,“ skrifar hann og bætir við:

„Mánuðum saman þegar aðstand­endur þess­arar veiku mann­eskju sem fengin var til ódæð­is­ins reyndu að fá hjalp fyrir við­kom­andi, var Þóra Arn­órs­dóttir á hinum end­anum að hvetja við­kom­andi áfram og biðja þennan fár­veika ein­stak­ling að senda sér sem mest. Sem mest! Það dugar að vera læs á íslensku til að sjá bág­indi við­kom­andi í sam­skiptum hennar og Þóru en það stopp­aði ekki Þóru Arn­órs­dóttur i að kynda undir óra þessa veika ein­stak­ling og hvetja áfram.

Ekki lét hún það duga heldur ræddi einnig við við­kom­andi tveimur klukku­tímum áður en þessi veiki ein­stak­lingur fór til skýrslu­töku i fyrsta sinn hjá lög­reglu. Hvatning Þóru og græðgi í að kom­ast í upp­lýs­ingar um mig og fleiri var slík að hún virti að vettugi hversu hall­oka þessi ein­stak­lingur stóð, heldur nýtti yfir­burða­stöðu sína til að kreista upp­lýs­ingar upp úr við­kom­andi, lét útnefna sig umboðs­mann til að fá per­sónu­leg gögn við­kom­andi og síma til að gramsa i svo fátt eitt sé nefnt. Úr þessu vann hún, á launum hjá Rík­is­út­varp­inu, sem birt­ist svo undir nöfnum ann­arra á öðrum fjöl­miðlum. Ekkert birt­ist á rikis­miðl­inum annað en end­ur­ómun áróð­urs hinna fjöl­miðl­anna. Áróðurs sem Þóra vissu­lega skipu­lagði á bak­við tjöldin.“

Páll spyr:

„Ætli þessi vinnu­brögð séu það sem Þóra mun hugsa um þegar hún horfir á verð­launa­grip­inn og furðar sig á að ekki skuli allir kunna að meta það. Ég skil að lög­reglan kunni ekki að meta það. Sjálfum verður mér óglatt og sér­stak­lega eftir lestur gagn­anna þar sem ein­beitur ásetn­ingur Þóru kemur fram. Ekki skil ég hvernig fólk sem lendir undir í líf­inu eða aðstand­endur þeirra muni geta leitað til rík­is­fjöl­mið­ils­ins til að vekja athygli á aðstæðum sínum þegar bæði útvarps­stjóri og frétta­stjóri útnefna sak­born­ing i lög­reglu­máli, sem mis­notað hefur slíkan aðila, til að rit­stýra slíkum málum. Sorglegt.“

Hann ritar að end­ingu:

„Eftir sem áður legg ég traust mitt á að lög­reglan upp­lýsi málið i heild sinni. Ljóst er að eng­inn hjá rík­is­fjöl­miðl­inum ætlar að axla ábyrgð eða draga úr skað­anum. Þvert á móti er öllum upp­lýs­ingum sem varpa ljósi á gjörðir þessa hóps sópað undir teppið og klifað á rang­færsl­unni i þeirri von um að i hund­rað­asta sinn verði hún sönn.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Plastbiti fannst í 200 gramma dós af jógúrt
Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við