Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Einar Kárason: „Ekki lausn að sniðganga lönd eins og Qatar“

Einar Kárason: „Ekki lausn að sniðganga lönd eins og Qatar“

Einar Kárason rit­höf­undur seg­ist ekki skilja í þeirri hug­mynda­fræði að vilja banna gömul lista­verk, bækur og kvik­myndir. Einar, sem er einn far­sæl­asti rit­höf­undur Íslands er nýjasti gest­ur­inn í Podcasti Sölva Tryggva­sonar. Hann fékk sjálfur yfir sig hol­skeflu af reiði eftir að hafa tekið upp hansk­ann fyrir J.K Rowling, höf­und Harry Potter bókanna:

„Mér finnst það í stuttu máli algjör­lega ömur­leg þróun sem hefur verið í gangi, þar sem fólk er farið að taka bæði nútíma­lista­verk og klass­ísk lista­verk og ráð­ast gegn þeim, útbreiðslu þeirra, sölu og útgáfu. Þetta er herfi­leg þróun. Það merki­lega er að það eru vissir hópar sem standa fyrir því að vilja banna hluti sem eru mjög ólíkir inn­byrðis. Fyrsta bylgjan kom frá kristnum strangrú­ar­mönnum í Banda­ríkj­unum sem vildu láta banna allan fjand­ann, af því að það væri ekki nægur kristi­legur andi í verkum eða and­kristi­legur andi. Síðan koma ofur­frjáls­lyndir og fólk af vinstri kant­inum, orðið „woke“ nær að ein­hverju leyti yfir þetta. Það fer að gera aðsúg að bókum og lista­verkum af því að því líkar ekki eitt­hvað í titl­inum eða frá­sögn­inni. Ég held að það hafi verið teknar nærri 3 þús­und bækur af mark­aði í Banda­ríkj­unum í fyrra vegna þrýst­ings frá ólíkum hópum og þessi frjáls­lyndi og víð­sýni hópur er í raun orð­inn afkasta­meiri í þessu. Svo eru útgef­endur mjög við­kvæmir fyrir árásum frá hópum af þessu tagi, af því að það gengur allt út á ímynd­ina,“ segir Einar og heldur áfram:

„Eitt er þegar verið er að gera aðsúg að styttum, sem manni finnst reyndar líka gengið út í öfgar, en svo er þetta farið að ná yfir í tón­list, ljóð­list og bók­menntir frá mönnum sem höfðu vit­lausa afstöðu fyrir mörg hund­ruð árum. Þetta er algjör­lega ömur­leg þróun af því að listir eiga að vera vett­vangur frjálsrar hugs­unar. Þetta er farið að ganga gegn því dýr­mætasta í okkar menn­ing­ar­arfi eins og Pass­íu­sálm­unum.“

„Ég ætla nú ekki að fara mikið út í þetta með J.K Rowling þegar ég tók upp hansk­ann fyrir hana, en til að byrja með var upp­haf­punkt­ur­inn að konur ættu ekki að þurfa að koma inn í sturtu­klefa þar sem ein­hver væri með slátrið milli fót­anna. En svo fór hún á Twitter og sagði hluti sem ég er ekki endi­lega sam­mála. En þetta er einn af mik­il­væg­ustu rit­höf­undum okkar sam­tíma. Það eru heilu kyn­slóð­irnar sem eru orðnar að bóka­fólki út af Harry Potter bók­unum. Það var mjög skrýtið fyrir mig að átta mig á því að það væri upp til hópa fólk úr mínum eigin flokki, Sam­fylk­ing­unni og fólk úr rit­höf­unda­sam­band­inu sem var að ráð­ast á það sem ég sagði. Ef að eitt­hvað á að vera múr­brjótur á móti fas­isma og mið­alda­hugsun, þá eru það frjáls­lyndar stjórn­mála­hreyf­ingar og höf­unda­sam­bönd.“

Und­an­farið hefur farið fram mikil umræða um mann­rétt­indi í Qatar, þar sem heims­meist­ara­mótið í knatt­spyrnu fer nú fram. Einar segir ömur­legt að sjá allar teg­undir af kven­fyr­ir­litn­ingu og mis­munun á fólki, en hins vegar verðum við að velta því upp hvort hægt sé að halda stór­mót ein­göngu í löndum sem okkur á vest­ur­löndum séu þókn­an­leg:

„Þessi ömur­lega kven­fyr­ir­litn­ing á þessum slóðum og umburð­ar­leysi gagn­vart öllum frá­vikum er ekk­ert annað en við­bjóður. En þessir hlutir hafa ekki orðið verri við að halda mótið í Qatar og meira að segja hefur mögu­lega eitt­hvað skánað. Það hafa verið haldin heims­meist­ara­mót í Argent­ínu þegar þar var ömur­leg her­for­ingja­stjórn og líka mótið í Rúss­landi og Ólymp­íu­leikar í Kína, þar sem mann­rétt­inda­brot eru mjög algeng. Ef við myndum bara sætta okkur við að stór­mót sem þetta væri haldið í löndum sem falla að okkar hug­myndum um lýð­ræði og kerfi eins og við viljum hafa það, væri ansi lítið eftir. Það að snið­ganga alveg lönd er ekki nein lausn í mínum huga,“ segir Einar og heldur áfram:

„Við verðum líka að muna að þessir strákar sem eru mættir þarna til að spila fót­bolta hafa ekk­ert gert af sér og virka nú bara upp til hópa góðir drengir. Við höfum séð það sem Íran­irnir gerðu til að mót­mæla ástand­inu heima fyrir og aðrir hafa virst allir af vilja gerðir til að sýna hinsegin sam­fé­lag­inu stuðn­ing. En þeir eru búnir að und­ir­búa sig undir þetta mót í áraraðir og eiga ekki skilið neina fyr­ir­litn­ingu eða leið­indi.“

Hann segir þetta áhuga­verða sið­ferði­lega umræðu og seg­ist til dæmis sjálfur í þeirri stöðu að bækur hans séu gefnar út í löndum þar sem honum mis­líkar stjórn­ar­farið:

„Ég skrifa og gef út bækur sem hafa verið gefnar út víða um lönd og þá kemur upp spurn­ingin hvort ég eigi að skoða mann­rétt­inda­mál í öllum löndum sem vilja gefa út bækur eftir mig áður en ég ákveð hvort það megi gefa hana út. Það er lík­lega fólk sem vill lesa bæk­urnar mínar í þessum löndum sem er ekki endi­lega hrifið af eigin stjórn­völdum. Bókin mín, Storm­fuglar var til dæmis gefin út á arab­ísku og hebr­esku, en það þýðir ekki að ég sé að leggja blessun mína yfir með­ferð Ísraela á Palest­ínu eða með­ferð á konum í Mið-Aust­ur­löndum. Maður er ekki að leggja blessun sína yfir mann­rétt­inda­mál í Kína þó að bókin mín sé gefin út þar. Á end­anum verðum við að spyrja okkur hvert það leiðir okkur að slíta öll tengsl við ákveðin lönd.“

Einar fer í þætt­inum yfir fer­il­inn og segir að hann hafi ákveðið að verða rit­höf­undur strax sem barn:

„Ég ákvað 9 ára að verða rit­höf­undur og þetta var alltaf það sem ég vildi gera. Þegar ég var krakki var ég að skrifa sögur um Tarzan og fleira, meðal ann­ars af því að ég vildi lesa fleiri sögur um ákveðna karakt­era og varð þá bara að skrifa þær sjálfur. Fyrst þegar ég byrj­aði að skrifa bækur var ég oft mjög óviss um það sem ég var að gera, en svo byrjar maður að treysta ferl­inu með reynsl­unni. Rétt eins og múr­ari eða píp­ari sem kann sitt fag, þá veit maður hvað maður er að gera þegar maður er búinn að vera lengi í fag­inu og veit hvernig bækur maður vill skrifa. Oft selj­ast alveg frá­bærar bækur með mikið bók­mnennta­gildi ekk­ert sér­stak­lega vel, þannig að maður lærir líka að það er ekki sama­sem­merki á milli sölu og gæða. Bækur eftir Sjón og Gyrði Elíasson eiga ekki séns í spennu­sögur svo dæmi sé tekið.“

Nýjasta skáld­saga Einars, Opið Hafi, byggir á sönnum atburðum eins og tvö síð­ustu verk hans. Bókin fjallar um eitt rosa­leg­asta afrek Íslands­sög­unnar, þegar Guð­laugur Frið­þórs­son synti alla leið til lands eftir að hafa farið í sjó­inn 7 kíló­metra fyrir austan Vest­manna­eyjar:

„Þetta hefur leitað á mig alveg frá því að ég heyrði þetta fyrst, enda rosa­legur atburður. Ég hafði hugsað um þetta í 30 ár, en fannst ég ekki geta troðið á einka­lífi Guðlaugs. En svo ger­ist það fyrir algjöra til­viljun að hann bætir mér sem vini á Facebook og var mjög sam­mála ein­hverju sem ég hafði skrifað. Ég  sendi honum þá strax línu og sagði honum að ég væri búinn að hugsa um þetta allan þennan tíma en hafi ekki viljað snerta á því nema með sam­þykki hans. Hann sagð­ist hafa hugsað mikið um þetta og sagð­ist hafa hugsað mig sem þann sem ætti að skrifa þetta ef ein­hver myndi gera þetta. Þannig að það var eig­in­lega eins og þetta hafi verið skrifað í skýin. Þetta varð mér mikil upp­örvun og ég hófst bara handa við að skrifa.“

https://www.youtube.com/watch?v=yJRUbm6f_PM&t=81s

Þáttinn með Einari og alla aðra Podcastþætti Sölva Tryggva­sonar má nálg­ast inni á: https://solvitryggva.is

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
6
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fór í búð í Graf­ar­vogi en end­aði í fanga­geymslu

Heimur

Geymdi milljón myndir og mynd­skeið af mis­notkun eig­in­kon­unnar

Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Myndir
Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum